Morgunblaðið - 06.10.1967, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKT. 1967
3
U.S.S.R
Kort þetta sýnir allglögg'leg'a ástandið eins
og það er um þessar mundir í Kínverska
alþýðulýðveldinu. Láréttu strikin tákna
héruð, sem eru á valdi stuðningsmanna
Maós. Lóðréttu strikin merkja Svæði, sem
herinn hefur á sinu valdi. Deplarnir eiga
að tákna svæði, þar sem yfirráð Maóista
eru ótrygg, og dökku svæðin eru á valdi
andstæðinga Maós. Stjörnurnar sýna þau
svæði þar sem nú geisa bardagar. Svört
lína sýnir leið Maós um nokkur héruð
Kina nú fyrir tæpum tveimur vikum.
Haröir bardagar í Canton
Leikhúslíf leggst niður í Kínn
Hong Kong, 5. okt. — AP —
FREGNIR bárust í dag um
harða bardaga milli stuðnings-
manna Mao Tse-tungs og and-
stæðinga hans í Canton. Bardag
arnir hófust að kvöldi 1. októ-
ber, þegar þjóðhátíð Kínverja
gekk í garð og slanda enn, að
sögn ferðamanns frá meginland
inu. Þegar á laugardagskvöldið
voru 200 manns felldir í þessum
átökum, en mun fleiri særðust.
16 skip með 2340 tonn
Á MIÐVIKUDAG var veður
frekar óhagstætt ó síldarmiðun-
um, NA-kaldi og kvikusláttur.
Veiðisvæðið er ca. 220 sjómílur
NA frá Raufarhöfn.
Alls tilkynntu 16 skip um afla,
2.340 lestir.
Raufarhöfn
Skarðsvík SH
Gjafar VE
Guðbjörg ÍS.
Hratfn Sveinbjarnars.
Höfrungur III. AK.
Þórður Jónass. EA.
Súlan EA.
Sléttanes ÍS
Dalatangi:
Hoffell SU
Höfrungur II. AK.
Lest.
110
150
180
n. GK. 100
190
140
60
220
lest.
100
160
Hrafn Sveinbjarnars. GK. 140
Heimir SU. 100
Ásþór RE. 160
Þórkatla II. GK. 130
Bjartur NK. 150
Börkur NK. 250
Frelsisher alþýðunnar var send
ur til Canton fyrir nokkrum
vikum til að bæla niður óeirð-
irnar. Herinn hefur gert hús-
leii hjá mönnum, sem grunað-
i'. voru um andúð á Mao, og
þeir handtcknir og l.engdir.
Ferðamaanirnir segja, að
Fek'n-stjórnij. geri nú örvænt-
ingarfullar tilraurur ,il að koma
á lögum og reglu í Canton fyr-
ir 51. nóvember, en þá hefst
vörusýning í borg.nni. Var v'öru
sýningunni frestað um einn
mánuð vegna bardagjnna.
Vörusýningunni í Canton er
hin mikilvægasta sinnar tegund-
ar í Kína. Vestrænum innflytj-
endum er samkvæmt venju boð
ið til sýningarinnar, þar sem
þeir gera vörupantanir.
Levniþjónusta þjóðerniss.nna
á Formósu segir að náinn vin-
South China Sea
ur Maós um 40 ára skeið, Chang
Ching-wu hafi venð handtekinn
sakaður um áróður gegn For-
manr.inum. Chang átti ennfrem
ur að hafa verið í bandalagi
við Lin Chieh, félagalim í bylt-
ingarnefndinni, og þeir hafi í
sameiningu reynt að koma á fót
öflugri hreyfingu gegr. Maó.
Miklar hreinsanir hafa nýiega
verið gerðar í byltingarnefnd-
inni og hafa auk Changs og
Lins verið handteknir tveir
aðrir félagar hennar.
f grein í sovézka blaðinu,
Sovetskaja Kultura, sem út kom
í dag, segir að leiklist í Kína
hafi verið gerð að áróðurstæki
fyrir Maó og kommúnistaflokk-
inn, Skiptist á í leikhúsunum
móðursýkiskenndur áróður
gegn Sovétríkjunum og hé-
stemmt lof um Formanninn.
Leikhúsyfirvöld í hinu fræga
æskulýðsleikhúsi í Peking hafa
harðlega verið gagnrýnd fyrir
að setja á svið erlend leikrit,
sem eitri hugsanir áhorfenda.
Meðal þessara leikrita er „Oth-
ello“ „Shakespeare, „Vanja
frændi“ eftir Tsjekov og „Brúð
kaup Fígarós."
Færanleg kennslustofa
— fyrir handavinnukennslu pilta
ÁKVEÐIÐ hefur verið eftir tii-
lögu Fræð'sluráðs Reykjavíkur,
að smiða færanlega kennslu-
stofu fyrir handavinnu piilta. —
Verður vænitanlega byrjað að
vinna að srniði kennslustotfunnar
innan tíðar og mun hún í vetur
verða notuð í Hlíðarskólanum,
en þar hefur handavinna pilta
verið kennd í þröngu kjallara-
húsnæði.
Hin færanlega kennslustofa á
að vera um 50 ferm að stærð og
verður innréttuð fyrir handa-
vinnukennslu og þar verða ýmis
þau álhöld er notuð eru við
kennsluna. Húsið verður smíðað
á smiðaverkstæði, en síðan flutt
í heilu lagi að Hlíðarskólanum.
í framtiíðinni verður síðan hægt
að flytja stofuna milli staða eftir
þörfum.
STAKSHIMR
Falsanir Fram-
sóknarblaðsins
Framsóknarblaðið gerð^ heið-
arlega tilraun til þess sl. mið-
vikudag að afsaka þau ósann-
indi, sem á borð voru borin í
forustugrein blaðsins daginn
aður, um afstöðu aukafundar
L.Í.Ú. til tengsla fslands við
EFTA og EBE, en í forustu-
grein blaðsins í gær er með
furðulegum hætti reynt að láta
líta svo út, sem rétt hafi verið
með farið í forust.ugrein blaðs-
ins áður. Þannig segir Fram-
sóknarblaðið: „Það sjá allir,
sem sæmilega eru skynugir, að
stjórn L.f.Ú. hefur alls ekkert
„uniboð til að afgreiða þetta
mál fyrir hönd sambandsins",
samkv. þeim tillögum, sem
aukafundur L.Í.Ú. vísaði frá
sér og til stjórnarinnar til at-
hugunar.“ Hér er enn reynt að
villa um fyrir lesendum og al-
menningi um hina raunverulegu
afgreiðslu þessa máls. Stjórn
L.f.Ú. hafði lagt fram ákveðna
tillögu fyrir aukafundinn um
stefnuyfirlýsingu varðandi við-
skiptabandalögin tvö. Á fundin-
um lagði stjórnin svo fram aðra
tillögu um það, að fyrri tillög-
unni yrði vísað til stjórnarinn-
ar, sem falið yrði að undir-
búa greinargerð um málið og
síðan ályktun, sem send yrði
ríkisstjórninni, ef % stjórnar-
manna væru henni samþykkir.
Af þessu er ljóst, að aukafund-
urinn hefur veitt stjórn L.f.Ú.
fullt umboð í þessu máli, og tek
ið jákvæða afstöðu til þess. All-
ar tilraunir Framsóknarblaðs-
ins til þess að villa um fyrir
almenningi eru gagnslausar en
sýna aðeins, að Framsóknarmál
gagnið vill heldur hafa það sem
ósannara er.
Faisanir kommún-
istablaðsins
Slúðurdálkur kommúnista-
blaðsins í gær er einkar glöggt
dæmi um það, hvernig sá dálk-
ur er ritaður. f Staksteinum
Morgunblaðsins í fyrradag var
rætt um brottvikningu danska
viðskiptamálaráðherrans Tyge
Dahlgárd og jafnframt rakin
þau ummæli hans, sem urðu til
þess að forsætisráðherrann vék
honum úr embætti. Slúðurdálk
ur kommúnislablaðsins, sem
stundar að vísu þá iðju daglega
að fara rangt með staðreyndir,
gerir sér lítið fyrir og eignar
Morgunblaðinu ummæli Dahl-
gárds. Var þó skýrlega fram
tekið í Staksteinum Morgun-
blaðsins, að enginn dómur yrði
lagður á efni þeirra ummæla,
sem valdið hafa siíkum úlfaþyt
í dönskum stjéinmálum. Álykt-
unarorðum slúðurdálksins er
því vísað heim til föðurhúsa, en
raunar gat höfundur þeirra ekki
dregið upp skýrari mynd af eig-
in vinnuaðferðum.
Flóttinn undirbúinn
Blaðið „Frjáis þjóð“ upplýsir
að Alþ.bl. í Reykjavík hafi gert
samþykkt sem efnislega er á þá
leið, að þar sem ótvírætt sé að
atkvæði Alþýðubandalagsins í
Reykjavík hafi skipzt á tvo lista
í kosningunum í vor sé eðlilegt
að atkvæði I-listans verði taljn
með atkvæðum G-listans við út-
lilutun uppbótarþingsæta. Þar
með eru kommúnistar i þessum
félagsskap að undirbúa flótta
sinn frá þeirri afstöðu sem þeir
tóku fyrir kosningar. Hins veg-
ar hefur ekkert slíkt heyrzt frá
einum þingmanni þeirra, sem
tekið hefur ótvíræða afstöðu
gegn þeirri málsmeðferð. Af
þeim sökum verður að álykta
að hann haldi enn fast við fyrrf
afstöðu og greiði atkvæði sam-
| kvæmt því þegar kemur til
j þings. Er ekki svo, Magnús?