Morgunblaðið - 06.10.1967, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. OKT. 19S7
MAGMÚSAR
SKIPHOLTI21 símar 21190
eftirJojcuri slml 40381
»•«:>SIM' 1-44-44
mniim
DverfLsgotu 103.
Sími eftir lokua 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
lngólfsstræti 11.
Hagstætt teigugjald.
Bensín innifalií * leigngjaldi.
Srmi 14970
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Siml 35135,
Eftir lokun 34936 og 36217.
f-F==*B/lAirfGAM
RAUOARARSTlG 31 SfMI 22022
flest til raílagna:
Kafmagnsvörur
Heimilstæki
Utvarps- og sjónvarpstaeki
Raímagnsviimbiiöin sf
Suðurlandsbraut 12.
Simi 31670 (næg bílastæði).
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
★ Súlnadráp
í sjónvarpi
Bréf hafa borizt um sjón-
varpsþátt fyrr í vikunni, þar
sem fjallað var m.a. um fugla-
tekju í Vestmannaeyjum. Vel-
vakandi missti af þessum þætti,
og getur því ekki um hann bor-
ið, en hér birtast tvö bréf um
hann.
Þrettán ára telpa skrifar:
„Oft er fólk að kvarta und-
an glæpamyndum, sem sýndar
voru í ameríska sjónvarpinu,
en aldrei hef ég séð ógeðslegri
mynd en þá, sem sýnd var í
íslenzka sjónvarpinu um súlna-
dráp við Vestmannaeyjar.
Hvernig ungir menn geta
lamið fugla í hel frá varnar-
lausum ungum, skil ég ekki,
en ég er bara 13 ára gömul, og
þeir gerðu þetta að gamni sínu
og brostu.
Skyldi vætturin ekki vera
máttug lengur, eða hvað held-
ur þú? Og mér finnst skrítið,
að sjónvarpið skuli sýna mynd
um baráttuna við hungrið, um
fólk, sem er að svelta í hel, en
svo er sýnd mynd strax á eftir
um það, hvað við erum rík og
mikil þjóð.
Svo segja þessir menn: „Ja,
þetta er gamall siður“. Og
aumingja fuglarnir voru að
reyna að verja ungana sína, en
mennirnir réðust á þá með
bareflum og glottu við. Svo
sagði þulurinn: Og þeir komust
heilu og höldnu niður aftur eft-
ir vel heppnaðan „skemmti-
túr“, — en það finnst mér ekki.
Henni litlu systur minni,
sem er sex ára gömul, þykir
mjög vænt um dýr. (Ég er ný-
búin að senda barnatíma sjón-
varpsins skopmyndir, sem hún
hefur teiknað af köttum).
Hún er veik í kvöld. Og sjón-
varpið má skammast sín.
Sigrún S. Karlsdóttir,
Víðimel 21, Reykjavík“.
•ftr Ekki fegurra en
Tyrkjaránið?
Kristín M. J. Björnson
skrifar:
„ „Ó, hve mig tekur það sárt
að sjá, saklausu fuglana . . . .“.
Svo kvað Hannes Hafstein, eitt
af öndvegis-skáldum þjóðar
vorrar. Hann mundi hafa fund-
ið sárt til með fuglunum í
kvöld, blessaður.
Það má segja um íslenzka
sjónvarpið, að það fræðir þó.
Mig, einfeldninginn, sem hélt
að hér væru starfandi dýra-
verndarfélög, fræddi það um
hið gagnstæða. Eða leyfa lög
landsins að berja fugla til
dauðs? Er ekki frekar um lög-
brot að ræða að lemja með
lurk, lífverur íslands byggða?
Er þetta fegurra en Tyrkjarán-
ið forðum?
Hér er bannað með lögum að
aflífa sauðfé, nema með byssu-
skoti, og er það vel. En er ekki
jafnsjálfsagt að nota byssu við
fuglaveiðar, ef deyða þarf
fugla? Hvað á þessi grimmd og
harðýðgi að þýða? Vill fugla-
morðinginn láta berja sig
svona? Erum við ekki kristin
þjóð, sem vill reyna að gjöra
ekki öðrum, það sem við ekki
viljum láta gjöra okkur?
Hér finnast dýraverndunar-
félög, skátafélög, kvenfélög,
barnavérndarfélög, kristileg
félög, svo að eitthvað sé nefnt.
Til hvers eru svo þessi félög, ef
slíkt og þvílíkt er látið óátalið?
Mér skilst helzt, að sjón-
varpið sé í kvöld að skora á öll
þessi félög að rísa nú upp og
veita viðnám þessari svívirðu.
Annars hefði það varla farið
að sýna þjóðinni þá ósvífni að
kynna saklausum börnum
landsins þennan ljóta leik.
Að endingu: Munum val-
mennin okkar og skáldsnilling-
ana, sem vildu bæta og fegra
lífið. Hlustum á þá, hlýðum
þeim!
„Og hafirðu auðsýnda misk-
unnsemd' mús, þú munt af því
uppskera gleði“. (Þ. Erl.).
Með þökk fyrir birtinguna.
Kristín M. J. Björnson".
Enn um skepnu-
meðferð á íslandi
og í Færeyjum
„Kæri Velvakandi!
Ég hafði nú ekki hugsað mér
að fara að standa í blaðadeil-
um í dálkum þínum, allra sízt
við góða frænku úr Færeyjum.
En þar sem ég sé, að hún
væntir svars, og svarið er mjög
auðvelt, þá get ég tæplega
skorazt undan þvi.
Mín börn horfa naumast
nokkurn tíma á glæpamyndir,
því að hér á heimilinu ráðum
við foreldrarir vali á sjón-
varpsefni, og þeim hefur þegar
verið innrætt andstyggð á öllu
slíku og sækjast ekki eftir því.
En komi það nú fyrir samt
sem áður, að þau horfi á glæpa-
myndir, þá hefur þeim verið
rækilega sagt, að þar sé að-
eins um leik að ræða; það er
ekki verið að drepa eða lim-
lesta þessa menn í alvöru, — í
því liggur stór mismunur.
f myndinni frá Færeyjum
var því miður ekki um neinar
leikbrellur að ræða, það var
nakinn veruleikinn. Það gladdi
mig mjög, þegar ég las í blöð-
unum, að Færeyingar væru
komnir hingað til að læra að
setja upp sláturhús, það var
sannarlega tími til kominn. Ég
veit, að Færeyingar eru ágætis
fólk, en þarna hafa þeir dreg-
izt illa aftur úr tímanum.
Ég er uppalin í sveit á ís-
landi og hef aldrei kynnzt öðru
en góðri meðferð á skepnum,
og á mínum ferðalögum um
landið hef ég aldrei séð neitt
vítavert af því tagi. Ég geri þó
ráð fyrir, að einhvers staðar sé
úrbóta þörf í þeim efnum og
sumir þyrftu að fá tiltal, en
varla munu þeir setja ósóm-
ann á filmu þár, sem gera ætti
heimildarkvikmynd _ um þjóð-
hætti; ég held, að íslendingar
kynnu að skammast sín fyrir
síikt.
Þótt kindur standi við afrétt-
argirðingar og graslaust sé við
girðinguna, þarf það ekki að
þýða, að öll afréttin sé gras-
laus, heldur sækjast kindurnar
eftir að komast út úr girðing-
unni og halda sig því þarna af
„sauðþráa“. Hefði ég komið að
þeim, mundi ég hafa reynt að
reka þær inn í beitilandið
frekar en að horfa á þær í
marga daga við girðinguna.
Þessi þröngu, dimmu húsa-
kynni, sem konan segir, að
menn og skepnur séu lokaðar
inni í í sveitum á íslandi,
þekki ég ekki, hef aldrei séð
þau né heyrt þeirra getið fyrr.
Vissulega er ég bláeygð og
norræn, og einmitt þess vegna
hneykslast ég á ómannúðlegri
meðferð á skepnum; væri ég
suðræn og dökk, mundi ég
sennilega láta mér það í léttu
rúmi liggja..
Með beztu þökk fyrir birt-
inguna.
Húsmóðir í Vesturbænum".
^ Ljót sjón
Færeyskur sjómaður"
skrifar:
„Harri Velvakandi;
Vegna skrifa um vonda með-
ferð á skepnum í Færeyjum,
leyfist mér kannski að skýra
frá því, að ég sá á ferðalagi
norður í landi fyrir fáeinum
árum, að hestur var bundinn
niður á jörðina, og voru þar
menn að vana hann með
gömlu, brútölu aðferðinni. —
Þetta væri ekki hægt að sjá í
Færeyjum.
Eins finnst mér algengara
hér en heima, að menn séu
vondir við hunda, sparki í þá
og sveii þeim af litlu tilefnL
Annars erum við næstum al-
veg eins, Færeyingar og íslend-
ingar, og eigum ekki að vera
að rífast eða vera með neinn
meting.
Með beztu kveðjum,
Færeyskur sjómaður".
Er Reykjavík
i Færeyjum?
„Stúdent“ skrifar:
„Herra Velvakandi!
Hætt er við, að óbilgirni
SAS-ríkisstjórnanna kasti ein-
hverjum skugga á norrænt
samstarf og norrænan samhug
um nokkurn tíma. Vonandi
leysist deilan þó innan tíðar,
þannig að allir megi sæmilega
við una.
En í sambandi við samstöðu
Norðurlandaþjóða (Islendingar
þar taldir með) kemur mér í
hug, hve lítið frændur vorir
austan Atlantsála vita um
okkur, og hve ísland gleymist
oft, þegar fjallað er um Norð-
urlönd. Ég les talsvert skandin-
avísk blöð, eins og margir aðr-
ir hér á landi, og er áberandi,
að venjulega gleymist ísland
með öllu, þegar talað er um
„Norden" og „de nordiske
lande".
T. d. skifaði fræðimaður einn
ýtarlega grein fyrir nokkrum
dögum í Berlingske Tidende
eða Politiken, þar sem hann
fjailaði um vandkvæðin af
tungumálafjöldanum á Norður-
löndum. Hann lagði til í löngu
máli, að Norðmenn hneigðu
mál sitt meira til dönsku, og
Finnar tækju upp sænsku sem
skyldumál ailrar þjóðarinnar,
jafnhliða finnsku. Á ísland og
íslenzku var aldrei minnzt
aukateknu orði í þessari löngu
grein.
Einhver blaðamaður, sem
kallar sig „Erol,“, skrifar jafn-
an um vísindi og menningar-
mál í Politiken, og virðist hann
harla fróður um hin margvís-
legustu afni. Þó heldur hann,
að Reykjavík sé í Færeyjum.
í Politiken 22. september skrif-
ar hann um doktorsvörn ís-
lenzka læknisins Þorkels Jó-
hannessonar. Þótt rætt sé um,
að hann starfi við háskólann í
Reykjavík, er hann kallaður
færeyskur.
Þetta er aðeins lítið dæmi
um þekkingar- og/eða á'huga-
leysi á Íslandi, sem maður
verður mjög var við á Norður-
löndum.
Stúdent“.
Eignarlóð við Skerjafjörð
Til sölu er 900 ferm. eignarlóð í næst fremstu
húsaröð frá sjó. Tilboð merkt: „Eignarlóð — 2705“
sendist Mbl. hið fyrsta.
Hvað kostar
að fá teppi
yfir allt gólfið?
M i ÍU Jmta n
MIESTON
ofið yfir allt gólfið
Alafoss, Þingholtsstræti 2. Sími 13404.