Morgunblaðið - 11.10.1967, Qupperneq 2
2
MORG'UNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKT. 190T
Vel haldið á Loftleiöa-
málinu af stjórninni
— segir Kristján Cuðlaugsson,
stjórnarformaður Loftleiða
SEM kunnugt er af fréttum, í
samibandi við fund forsætisráð-
herra Norðurlanda um síðustu
helgi, tók forsætisráðherra,
Bjarni Benedikitsson, Loftleiða-
málið upp við forsætisráðherra
SAS-landanna og kom því til
leiðar að málið mun tekið upp
aftur til umræðu af samgöngu-
málaráðherrum SAS-landanna og
samgöngumálaráðherra Jslands.
1 samtali, sem Kristján Guð-
laugsson, stjórnarformaður Loft-
leiða, átti við Mbl. í gær, óskaði
hann að taka fram eftirfarandi:
Ríkisstjómin hefur lagt sig
mjög fram við að leysa deilu
Loftleiða og SAS-flugfélagsins,
en hún er ekki auðleyst, enda
má segja að sífelld togstreyta
hafi verið milli félaganna í nokk
uð á annan áratug.
Sjálfir höfum við forráðamenn
Loftleiða, sagði Kristján. rætt
þráfaldlega við stjórnendur
SAS, en án nokkurs árangurs.
Ráðherrar í núverandi ríkis-
stjórn, og þá einkum samgöngu-
málaráðherra, Ingólfur Jónsson,
og Emil Jónsson, utanríkisráð-
herra, hafa hvað eftir annað
reynt að leysa málið og lagt á
sig utanlandsferðir í því sam-
iandi, Auk þess sem sendiherrar
Islands á Norðurlöndum hafa
fyrir sitt leyti unnið að lausn
málsins eftir ýtrusrtu getu. Má
fullyrða, sagði Kristján Guð-
SAS-iulItriiar
væntanlegir
FJÓRIR fulltrúar SAS-flugfé-
lagsins voru væntanlegir til
Reykjavíkur í nótt, en í dag
ætla þeir að ræða við fulltrúa
Flugfélags fslands um samstarf
í flugi til Grænlands. Hetfur SAS
mikinn áhuga á að auka ferða-
mannastrauminn þangað.
laugsson, að mjög vel hatfi verið
á málunum haldið okkar vegna.
Á Ka.upmannahafnartfundinum,
sem haldinn var um miðjan
september síðastliðinn, þokaði
mjög i rétta átt, og i viðræðum
forsætisráðherra hér i Reykjavík
um helgina, varð enn frekari ár-
angur.
Óhætt er að segja, að stjórn
Loftleiða var fyllilega Ijóst, að
lengra áleiðis var ekki unnt að
þoka málinu, enda mun um það
fjallað endanlega af samgöngu-
málaráðherrum landanna.
Að lokum sagði Kristján Guð-
laugsson: Ég vil fyrir hönd
stjómar Loftleiða þakka Bjarna
Benedibtssyni, forsætisráðherra,
og ríkisstjórninni alla fyrirhöfn
þeirra og fyrirgreiðslu, jafn-
framt því sem ég vil sérstaiklega
leggja áherzlu á, að betur var
ekki unnt að halda á málinu né
fylgja því fram atf meiri festu.
Við Lotftleiðamenn emm von-
góðir um endanlega lausn máls-
ins. —
♦ » «-----
Mikið tjón ó
síldornótum
vegna mikilla
strauma á miðunum
tÍTLIT er fyrlr aS mikið tjón
hafí orðið hjá síldarflotanum sl.
isólarhring, vegna þess að mörg
velðiskip rifu nætur sínar í mikl
um sjávarstraumum á mlðunum.
Mbl. átti tal við síldarleitina
lá Dalatanga og taldi sá, er blað-
ið ræddi við, að milli 15 og 20
.skip hefðu rifið nætur sinar. —
Skemmdirnar á nótiunum vom
Iþó mismunandi miMar hjá þess-
um skipum, en allflest þurftu
þau að sigla til lands til að fá
gert við næturnar. Miklir straum
ar eru jafnan á þeim slóðum,
sem veiðiskipin eru nú á.
Eddy Gilmore látinn
Var fréttamaður hér í „þorskastríðinu"
BLAÐAMAÐURINN frægi
Eddy Gilmore lézt að heimili
sínu í East Grinstead í Lund-
Gilmore og dóttir hans
Susanna
únum fyrir fáeinum dögum,
60 ára gamall. Gilmore var
einn þekktasti fréttamaður
AP-fréttastofunnar og hlaut
Pulitzer-verðlaunin árið 1947
fyrir frábær fréttaþjónustu-
störf í Moskvu, en þar var
hann yfirmaður AP-fréttastof
unnar, þegar herir nazista réð
ust inn í Rússland. íslendingar
munu minnast Gilmore fyrir
fréttamennsku hans hérlend-
is meðan á „þorskastríðinu"
svonefnda við Breta stóð.
Fréttir hans af aðsúginum,
sem gerður var að brezka
sendiráðinu vlð Laufásveg
meðan á þessu „stríði“ stóð,
vöktu heimsathygli, en hann
lýsti því hvað gerðist innan
sendiráðsins meðan grjót var
látið dynja á veggjum og
gluggarúðum hússins utan frá.
í Moskvu kynntist Gilmore
ballerínu við Bolshoi-ballett-
inn, Tamara Kolb-Chernasho-
vaya, sem hann giftist 1943.
Sovézk yfirvöld reyndu á sín-
um tíma að gera allt, sem í
þeirra valdi stóð til að koma
í veg fyrir hjónaband þeirra
og Tamara fékk ekki brott-
fararleyfi frá Sovétríkjunum
fyrr en tíu árum eftir gifting-
una. Kvikmynd hefur verið
gerð eftir þessum ástarraun-
um, sem Gilmore lýsti f bók
sinni: „Ég og kona mín rúss-
nesk.“
Auk Pulitzer-verðlaunanna
var Gilmore margvíslegur
"ómi sýndur. Síðustu ár ævi
sinnar var hann einn af yfir-
mönnum AP-fréttastofunnar í
Lundúnum.
SmyriU um borS
Eins og Mbl. sagði frá fyrir hann hinn sprækasti, þegar
nokkru fengu skipverjar á honum var sleppt á Raufar-
Skarðsvík SH smyril í heim- höfn 30 desember sl. Flaug
sókn, þegar skipið var 'statt hann lágt með jörðu í hánorð-
um 800 milur NA af Raufar- ur og hvarf fljótt í þokuna.
höfn í síðasta mánuði. Kom Myndin var tekin rétt áður
smyrillinn af hafi og virtist en smyrlinum var sleppt.
þreyttur mjög, en dafnaði vel (Ljósm. E. B. J.)
um borð í Skarðsvíkinni. Var ___
Ársleigan fyrir nýju
aðalstöðvarnar 85 kr.
Brússel, 10. dkt. NTB.
ÁRSLEIGAN fyrir hið nýja að-
setur fastaráðs NATO í Brussel
ætti ekki að verða mikill fjár-
hagslegur baggi á aðildarríkjun-
um. Að þvi er NTB hefur frétt,
verður leigan 100 belgískir
frankar eða sem svarar rúmlega
85 íslenzkum krónum. Er það
sem sagt aðeins „táknræn leiga
og ákvörðuð af belgískum stjórn
völdum.
Byggingin, sem vígð verður
16. október n.k. kostaði um 270
milijónir íslenzkra króna og eru
þá allar innréttingar ótaldar, en
þær munu kosta annað eins.
Belgiska stjórnin lét reisa húsið
en bandalpgið sjáltft stendur
straum af kostnaði við innrétt-
ingarnar.
Upplýst var í stjórnarbúðum
Belgíu í dag, að hinar nýju aðal-
stöðvar, sem búizt var við, að
Mdlverkasýning
í Eyjum
LAUGARDAGINN 30. septem-
ber s.l., opnaði Ágúst F. Peter-
sen, listmálari sýningu á verk-
um sínum í Akógesthúsinu i
Vestmannaeyjum. Sýnir Ágúst
þarna 28 myndir, bæði olíu- og
vatn-slitamyndir.
Aðsókn hefur verið mjög
sæmileg, og nokkrar myndir
selzt, m. a. hefur Vestmanna-
eyjakaupstaður keypt eina
mynd. Sýningunni lýkur sunnu-
daginn 8. þ.m.
— Fólk á flakki
Framh. af bls 28
stórhættulegur, en samt er
ekkert eftirlit haft með fólki
senrt flykkist þangað um helgar
til þess að skoða.
Sigurjón sagði, að til umræðu
hefði komið að sýslumaðurinn,
eða hans fóik, fylgdist með
mannaferðum og héldi fólki frá
hættusvæðunum, en um síðustu
helgi hefði verið þarna mikill
fjöldi, sem vaðið hefði um eftir
litslaust. Hinsvegar mætti sýslu
maðurinn nokkru seinna, en
ekki vissi Sigurjón hvort hann
var að hyggja að einhverjum
sem ekki hefðu komið heim til
sín.
yrðu aðeins til bráðabirgða —
yrðu hugsanlega framtíðarheim-
ili ráðsins. Byggingin er í Evere,
í útjaðri Brússel — á svæði, sem
áður var notað til heræfinga.
Var hugmyndin, að aðalstöðv-
arnar yrðu síðan fluttar til
Heysel, sem einnig er í útjaðri
Brússel, þegar þaðan hefðu
veriið fluttir sýningarskáilarnir
frá heimssýningunni, er þar var
haldin í eina tíð. Nú er sagt, að
nýja byggingin í Evere geti senni
lega dugað í 30 ár, svo að ekki
þurfi að koma til flutnings, í
bráð, að minnsta kosti.
Fastaráðið hélt síðasta fund
sinn i aðalstöðvunum í París í
dag og mun hefja störf í Brússel
í næstu viku. Verður væntan-
lega fyrsti fundurinn í nýju aðal
stöðvunum næsta þriðjudag.
Athugasemd frá
bæjarfógetanum
í Hafnarfirði
BÆJARFÓGETINN 1 Hafnar-
firði, Einar Ingimundarson,
hefur óskað eftir að taka fram
vegna fréttar í Mbl. sl. sunnu-
dag um lögtök á útsvörum
gjaldenda í Hafnarfirði til trygg
ingar skuldum bæjarins við
Tryggingarstofnun ríkisinis, að
lögtökin hafi ekki verið gerð
eftir fyrirmælum eins eða neins
fram yfir það, að bæjarfógeta-
embættinu hafi í eitt skipti fyrir
öll verið fahð að innheimta
greiðslur, sem H afnarfjarðar-
bæ, eins og öðrum sveitarfé-
lögum í umdæminu, beri að
inma af hendi til Tryggingar-
stofnunar ríkisins lögum sam-
kvæmt.
SJÁLFTSTÆÐISKVENNA-
FÉLAGIÐ Vorboðinn mun hefja
vetrarstarfsemi sína í næstu
viku og verður fyrsti fundur
þess á vetrinum mánudaginn
daginn 16. þ.m. Þann 19. þ.m.
mun svo hefjast handavinnu-
námskeið á vegurn félagsins.
Þar gefst konum tækifæri til að
útbúa ýmsa skemmtilega muni
Hálf milljón
á heilmiða
ÞRIÐJUDAGINN 10. október var
dregið í 10. flokki HappdræiUis
Háskóla íslads. Dregnir voru
2,400 vinnimgar að fjáhhæð 6,-
900,000 krónur.
Hæsti vinningurinn, 500,000
krónur, kom á heilmiða númer
47067. Annar heilmiðinn var
seldur í Hatfnarfirði hjá umboði
Valdimars Long, en hinn i um-
boðinu Sandgerði. Eigandi mið-
ans í SandgerSi átti tvo miða í
röð, svo hann fær einnig annan
aukavinninginn.
100,000 krónur komu á heil-
miða númer 55514. Voru bóðir
miðarnir seldir í umboði Helga
Sivertsen i Vesturveri.
10,000 krónur:
833 981 1240 2429 3728
4618 6993 8333 9947 11670
14225 15078 17134 20131 20289
21101 21168 21748 24220 28766
28930 33406 33924 34061 34181
34864 36507 27720 38622 41657
41658 42154 42714 43723 43818
44756 44893 46315 47066 47068
47330 48044 49252 49754 50673
52884 52951 53138 55218 55628
55655 55808 56085 56922 57613
58752 59543 59864
(Birt án ábyrgðar)
Byggingartjón í
Borgarskála
12,9 milljónir
MORGUNBLAÐIÐ hefur haft af
því spumir frá áreiðanlegum
heimildum að tjónið á bygging-
um Borgarskála Eimskips nemi
eigi minna en 12.9 milljónum
króna.
>SÚ meinlega prentvilla var í
íblaðinu í gær varðandi uppsögn
endur.tryggjenda á brunabóta-
(samninigi, að sagt var að samn-
ingar Hústrygginga Rvk næmu
allt frá 15—20 millj. króna, en
átti að vera allt frá 5—20 millj.
Só síld 30 mílur
fró Dalatanga
BARÐI frá Neskaupstað kom að
rvaðandi síldartortfu aðeins um 28
sjómílur austur atf Dalatanga er
báturinn var á leið af miðunum
til heimahafnar. Hann kastaði á
fhinn bóginn ekki á torfuna, en
Látur, sem átti þar leið um síð-
ar um daginn, kannaði toríuna,
®g virtist hún vera lítil. Veiði-
iskip, sem leið eiga þarna um á
næstunni, munu kasta á torfuna,
og ætti þá að koma 1 ljós, hve
mikið magn sildar er þarna á
tferðinni.
Jöklamenn
halda fund
J ÖKLARANN SÓKN ARFÉLAG
íslands heldur fund í Domus
Medica á föstudaginn kemur, 13.
þessa mánaðar, klukkan 20:30.
Þar mun Garðar Siggeirsson
segja frá skíðaferð þeirra sjö
félaga úr Flugbjörgunarsveitinni
þvert yfir Vatnajökul í sumar
og sýna litskuggamyndir. Að
lokum verður. kaffi og tilheyr-
andi gleðskapur. Allir félags-
menn eru velkomnir á fundinn.
úr filti, t. d. jóiadúka, veggteppi
og fleira. Er ekki að efa að
konur munu fjöimenna á þetta
námskeið Vorboðans. Seinasti
innritunardagur er í dag, mið-
vikudag, og verður skrifstofa fé-
lagsins í Sjálfstæðishúsinu opin
frá kl. 21—22, sími 50228, þar
sem allar nánari upplýsingar
verða veittar.
Sjólfstæðiskonui Hofnnrfirði