Morgunblaðið - 11.10.1967, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKT. 1987
BILA
LEIGA
rnrnmm,
MAGIMÚSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR 21190
eftir lokun simi 40381 "
»>«' 1-44-44
mfíif/o/fí
Hverfisgöto 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt teigugjald.
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugaveg 12. Sím) 35135.
Eftir lokun 3493« og 36217.
BAUOARARSTÍG 31 SlMI 22022
mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmrn
Flest til raflagna:
Rafmagnsvörur
Heimilstæki
Utvarps- og sjónvarpstæki
Kafmagnsvorubúðin sf
Suðurlandsbraut 12.
Simi 81670 (næg bílastæði).
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
★ A að þjóðnýta
tannlæknana?
„Tannlæknir“ skrifar:
„I>að er skrítið, að alltaf skuli
annað veifið heyrast raddir
um nauðsyn' þess að skella
tannlækningum inn í sjúkra-
samlaga- og trygginga-system-
ið. Engu er líkara en þeir, sem
orð hafa á þessu, ímyndi sér
með einhverjum hætti, að með
því verði tannlækningar, tann-
viðgerðir og tannsmíðar ókeyp-
is fyrir allan almenning. Það
er þó öðnu nær.
Heildarupphæðin, sem þjóðin
greiðir tannlæknum árlega
fyrir þjónustu þeirra, minnkar
vitanlega ekki. Fremur mun
hún hækka, vegna aukins
hirðu- og kæruleysis almenn-
ings um tennur sínar. En al-
kunna er, að fólk verður áhuga-
lausara um hirðu þeirra hluta,
sem ríkið eða „hið opinbera"
bætir þeim.
Jafnvel þótt við gerðum ráð
fyrir því, að heildarupphæðin,
sem árlega er greidd tannlækn-
um og tanntæknum, hækkaði
ekki, mundu tannlækningar
samt kosta þjóðina mun meira
fé samtals, eftir að ríkið tæki
þær inn í tryggingar sínar, því
að stóraukin skriffinnska og
nýtt bókhaldsferlíki væri fljótt
að hlaða utan á sig fjölmennu
skrifstofuliði, sem ykist árlega
eftir beztu Parkinsons-lögmál-
um.
Heildarkostnað-
urinn hækkaði
Þannig yrði útkoman sú,
að þjóðin greiddi árlega mun
meira fé fyrir tannlækningar
en hún gerir nú.
Eini munurinn yrði sá, , að
nú greiddi hver ekki úr eigin
vasa fyrir kostnað við tennur
sínar, heldur dreifðist só kostn-
aður á landsmenn alla, réttláta
sem rangláta.
Nú er lögð áherzla á upp-
fræðslu almennings í tannhirð-
ingarmálum. Fólk er hvatt með
skrifum og erindum til þess að
kaupa sér nú tannbursta og
nota hann almennilega. Þetta
hlýtur að gera ráð fyrir því,
að einstaklingnum sé nokkuð
í sjálfsvald sett, hvernig tenn-
ur hans endist. Því skyidu þá
þeir, sem hafa hirt tennur sín-
ar ‘ vel frá barnæsku, eiga að
gjalda fyrir tarinsóðana? Því
skyldu þeir, sem hafa heilar
tennur vegna eigin hirðu, þurfa
að borga undir tanngarðana
upp í hina?
Og þarna er komið að hættu-
legu atriði. Vitund fólks um
það, að ríkið borgaði handa því
gebiss upp í munninn og allar
viðgerðir, mundi vitanlega
gera hina hirðulausu enn hirðu-
lausari og jafnvel draga úr um-
hirðu hinna hreinlátu. Þar af
leiðandi mundi heildarkostnað-
ur þjóðarinnar við tannlækn-
ingar enn fara hækkandL
Fjárhagslega og
siðferðilega rangt
I stuttu máli:
1) Sósíalisering á tannvið-
gerðum mundi auka heildar-
kostnað þjóðarinnar Við tann-
lækningar, eingóngu vegna
aukins mannahalds hins opin-
bera við nýtt trygginga-
kontról.
2) Tannhirðu-mórallinn mundi
minnka mjög með þjóðinni, og
auka þannig enn á kostnaðinn.
3) Siðferðilega séð er óverj-
andi, að tannþrifið fólk taki að
sér að greiða kostnað við út-
gjöld tannslóða, en viðurkennt
er, að hver og einn ráði mestu
um það, hve dýrar tennur hans
verði í rekstri yfir æviskeiðið.
Það er nær, að af hverjum
hundrað manna hópi, greiði til
dæmis fimmtíu árlega hundrað
króniur hver (svo að einhver
tala sé tekin) og ■fimmtíu ekki
neitt, en að allir borgi fimm-
tíu krónux hver.
Virðingarfyllst,
Tannlæknir“.
Heiðinn kennara-
skólanemi
Ólafur Friðriksson á Sel-
fossi skrifar:
„Kæri Velvakandi!
„Alltaf finnst mér bæði fróð-
legt og gaman að lesa dálka
þína, og margt ber þar á góma.
Nú langar mig að koma til þín
nokknum línum, út af viðtali,
sem birtist í dagblað 27. jan-
úar s.L undir fyrirsögninni
„Hver er afstaða ungs fólks t’l
kirkjunnar?" Þetta voru 5
ungmenni, sem talað var við,
og var einn 22ja ára piltur.
Hann er nemi í Kennaraskól-
anum, og byrjaði viðtalið með
þessum orðum: „Ég segi nú
ekki beinlínis, að ég vilji láta
setja timasprengjur inn í allar
kirkjur, en ég er mótfallinn
því, að ríkið styðji trúarbrögð
á nokkurn hátt“. Þá segir þessi
Vernharður Linnet seinna í
viðtalinu, að kristinfræðsla í
skólum sé að hans dómi fárán-
leg, og í hennar stað ætti að
taka upp kennslu í trúarbrögð-
um almennt, Múhameðstrú og
Búddhatrú jafnt sem kristinni
trú. Enn. segir hann, „það er
glæpsamlegt athæfi að ferma
óharðnaða unglinga, sem ekk-
ert vita, hvað þeir eru að gera,
og fermingaraldurinn mætti
skilyrðislaust hækka um nokk-
ur ár“. Þá segir hann, að meiri-
hluti þjóðarinnar sé heiðinn.
Er þessum manni trúandi
fyrir kennslustörfum? Ég segi
nei. Að mínum dómi ætti hann
aldrei að fá að koma nálægt
slíku staríi. Lítið þykir mér
hann gera úr kennarastéttinni,
þar sem hann segir, að ferm-
ingarbörnm, sem þó eru búin
að ganga 8 ár í skóla, viti ekk-
ert, hvað þau eru að gera þeg-
ar þau eru fermd. Til hvers
eru þá kennararnir og til
hvers eru þá skólarnir? Eitt er
víst, að ekki mun Vernharður
Linnet bæta upp kennarahóp-
inn nema síður sé.
Með kærri kveðju,
Ólafur Friðriksson,
Tryggvagötu 1, SelfossL
Hefur hættan auk-
izt?
„Eldibrandur“ skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Getur verið, að lögregian sé
farin að slaka á eftirliti sínu
við gangbrautir, eftir þá sjálf-
sögðu herferð, sem hafin var
nýlega?
Undanfarna daga hefur kom-
ið fyrir hvað eftir annað, að
ég hef stöðvað við gangibraut
vegna vegfarenda, en bifreiðir
hiklaust ekið fram hjá, yfir
göngúbrautina, og mildi, að
ekki varð stórslys í tvö skipti.
Reyndar rétti ég hönd út um
bílrúðuna í annað skiptið til
merkis um, að fólk var að fara
yfir göngubrautina, en því var
engu skeytt.
Hér verður lögreglan að
vera betur á verði. Margir öku-
menn hafa sýnt fyllstu prúð-
mennsku og tekið ébendingar
Lögreglunnar til greina, en við
það skapast jafnvel, þótt ein-
kennilegt megi virðast, meiri
hætta fyrir hina gangandi, þeg-
ar ökuníðingar láta sér ekki
segjast og aka áfram á fullri
ferð yfir gangbrautix.
Mér finnst það óþægileg Til-
finning að stöðva bifreið mína
við gangbraut, vitandL að
fólk leggur af stað út á göngu-
braut, og sjá á sama tírna í
baksýnisspegli bifreið nálgast
á hliðarakrein, án þess að geta
vitað, hvort hún r.emur staðar
við gangbraut eða ekki.
Sektarákvæði eiga að hækka
að mun og stöðugu eftirliti að
halda ui>pi.
■Jc Varzla á gang-
brautum
Annað mikilsvert atriði
verður einnig að fá úrlausn, og
það er varzla á þeim gang-
brautum, þar sem umferð er
mest, t.d. í Aðalstræti við
göngubrautir, þar sem stöðug
umferð gangandi fólks er; einn-
ig við göngubraut á Kalkofns-
vegi móti Hreyfli og við þá
sem er þvert yfir Hafnarstræti
úr Lækjargötu. Ég veit, að
lögreglustjóra er kunnugt um,
hve vel það gafst í Svíþjóð á
H-daginn að láta unglinga
stjórna umferð um göngu-
brautir, og vel mætti hugsa
sér, að við þetta gæti unnið
fólk, sem er fatlað, eða ekki
má vinna erfiðisvinnu, þvi að
ekki er að efa, að ótölulegur
fjöldi vinnusfcunda tapast
vegna þess, hve umferðin geng-
ur hægt- mestu annastundir
dagsins og algjört öngþveiti
skapast við þessar aðstæður.
Einnig verður að krefjast
þess, að meira aðhald sé við-
haft við gangandi vegfarendur,
lögreglan verður að sýna þeim
meiri hörku og beita sektar-
ákvörðun skilyrðislaust. Sömu
kröfu verður að gera til gang-
andi vegfarenda, sem öku-
mannáT
h Sterkari litir?
Að lokum vil ég greina
frá atvikL sem fyrir mig kom
nýlega. Ég ók suður Reýkjaveg
og beið við Suðurlandsibraut,
sem ég ætlaði að. aka til hægri.
Þegar ég hafði kannað umferð
beggja vegna, ók ég inn á Suð-
urlandsbrautina, en mér til
skelfingar mátti litlu muna, að
ég æki í veg fyrir lögregluþjón
á bifhjóli. í þetta sinn varð
ekki slys, en ég hef mikið hugs-
að um, hvernig á þvi stóð; að
ég sá hann ekki, og ég hefi
komizt að þessari niðurstöðu:
Rigning var og útsýni því ekki
alls kostar gott, en bifhjólið,
plasthlíf þess og hjélmur lög-
regluþjónsins voru svo samlit
götunni, að þetta rann saman í
eitt. Ég vildi aðeinsi benda á
þetta og spyrja, hvort ekki sé
möguleiki á að kanna þetta, og
ef þörf krefði að auðkenna
bifhjólin með sterkari litum,
ljósum eða á annan hétt.
Eldibrandur".
Ibúð -strax
Vélstjóri óskar eftir 4—5 herb. íbúð.
Uppl. í síma 14692.
Til sölu
sumarbústaðarland
við Þingvallavatn
Upplýsingar gefur:
Einar Árnason hdl., sími 35276 og 18592.
Ný þjónusta - innheimta
Tökum að okkur innheimtu fyrir alls konar fyrir-
tæki, félagasamtök og stofnanir. Upplýsingar send-
ist afgreiðslu Morgunblaðsins merktar- „Innheimta
182.‘