Morgunblaðið - 11.10.1967, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐV fKUDAGUR 11. OKT. 1967
11
VIÐA um Suður-Ameríku
finnast fulltrúar Castros og
eru þeir í viðkynningu ófrið-
legir og ala á erjum, sem lík-
lega gætu leitt til byltftigar.
Hér fer á eftir skýrsla frá
hinunx ýmsu ríkjum, er átti
drjúgan þátt í að ýta undir
samband Ameríkuríkjanna, að
taka afstöðu gegn kommún-
ísku Kúbu, og ekki áð ástæðu-
lausu.
Hinn 24. sept. varð Mexico
eitt til þess að greiða atkvæ'ði
móti tillögu Ameríkuríkjanna
um að fordæma kommúníska
stjórn Castros og að herða
eftirlit með skorðun og tak-
mörkun á viðskiptum við
Kúbu. Þessi ákvörðun vaí
tekin vegna áreiðanlegrar
vitneskju'um, að skæruliðar,
þjálfaðir á Kúbu, stjórnuðu
skæruhernaði í mörgum ríkj-
um Mið- og Su'ður-Ameríku.
Mesta athygli vöktu Vene-
zuela og Bolivia í sambandi
við aðgerðir og framtíðar-
I W'
| aHHp 1
þar í landi,. og nái hann yfir-
höndinni meðal þeirra, kynni
landið að vera í yfirvofandi
hættu.
I GUATEMALA er vert að
hafa í huga, að yfirráð rauð-
liða myndu hindra alveg
samgöngur á landi milli Suð-
ur og Norður-Ameríku. í svip-
irin virðast kommúnistar þar-
lendis einskorða starfsemi
sína við rán fólks og fjár-
muna.
í PERÚ hefur Castro átt sér
litils frama von síðan 1965,
en þá var þurrkuð út herdeild
skæruliða.
1 CHILE er flokkur kommún-
ista leyí'ður og álítur Castro
fiorfur einna vænlegastar þar
í landi tjl friðsamlegrar valda-
töku.
í URUGUAY myndi mörgum
finnast hyggilegt að gera bylt-
ingu, þar sem landið er fjár-
hagslega illa statt og stjórn-
in völt í sessi og flokkur
kommúnista stór, en ekkert
hefur bólað á slíkum aðgerð-
um.
Hvað snertir BRASILlU,
þá hafa margir þarlendir
haldið til Kúbu til herþjálf-
unar, en svo virðist sem
Castro ætli Sovétríkjunum
Framtíðarvonir Castros í S-Ameríku
áætlanir kúbanska einvalds-
ins.
BOLIVTA, má segja, að sé
augnayndi Castros þessa
stundina. Nýlega hafa borizt
myndir. og skjöl þess efnis, að
Ernesto „Che“ Guevara,
„hægri hönd“ Castros, sem
hvarf fyrir tveim og hálfu
ári, eiginlega sem bergnum-
inn væri, og mikið hefur ver-
ið deilt um og leitað að, hafi
dvalizt í aðalstöðvum skæru-
liðanna á tvöþúsund og fimm-
hundruð ekru býli norður af
Camiri. Þar hafi m. a. fundizt
stríðsannálar Guevara, 21
fölsu'ð vegabréf frá ýmsum
löndum Suður-Ameríku, tölu-
vert af vopnum og vistum.
Margir hafa og verið tekn-
ir til fanga, og hefur vitnis-
burður þeirra verið á þá leið,
að skipulögð hafi verið bylt-
ing í Bólivíu seint á árinu
1969, eða í ársbyrjun, 1970.
Stjórnin í Bólivíu sér ástæðu
til að hafa eftirlit með Sam-
bandi námamanna, því að það
var beint verkfæri í byltingu
þeirri, 1952, er studdi núver-
andi stjórn til valda. Sömu-
leiðis er haft eftirlit með stú-
dentasamtökum og sérhæf-
ingu manna er eitthvað kynni
til skæruhernáðar. Lands-
stjórnin er ekki viss um, að
Guevara sé ennþá í Bólivíu,
en ef svo kynni að vera, þá
er álitið að hann sé einhvers-
staðar á þrjúhundruð fermílna
svæði, sem í svipinn er um-
kringt af her landsmanna, sem
telur áttaþúsund, og ætti því
bráðlega að vera von ein-
hverra fregna af honum.
í VENEZUELA hefur Castro
ekki sóað tímanum. Hann
byrjaði að hafa sig í frammi
þar 1959, skömmu eftir valda-
töku hans á Kúbu. I skýrslu
stjórnarinnar um framgang
hans þar í landi segir m.a.:
Stofnaður var skóli bylting-
arsinna 1962. Uppþot voru
í bækistöðvum sjóhersins,
lögreglumenn voru myrtir,
bankar rændir og iðnver.
Einnig voru gerðar árásir á
þorp. Castro mistókst að gera
spell í kosningum 1963, en
hann lét þáð ekki á sig fá.
í júlí 1966 stigu í heimilda-
leysi á land kúbanskir her-
menn, sem héldu til fjalla til
liðs við aðra heri. Hinn átt-
unda maí, síðastliðinn, kom
annað skip upp að með her
manns frá Kúbu.
í málgagni sínu hafa kúb-
anskir kommúnistar staðfest
hlutdeild sína með því að lofa
ennfremur að styrkja fram-
vegis hverskyns mótþróa gegn
heimsveldisstefnu.
Álitið er, að Castro sé ekki
af baki dottinn í Venezuela
en áþreifanleg ítök hans eru
komin undir árangrinum í
Bólivíu.
í NICARAGUA heyrðist síð-
ast um skæruhernað í ágúst-
mánu'ði, og sögðust stjórnar-
hermenn hafa banað fimmtán
skæruliðum, er hlotið hefðu
þjálfun sína á Kúbu. Frétzt
hefur af frekari herflutning-
um, nýlega frá Kúbu, og er
almennt álitið, að ætlunin sé
að koma upp svipuðum her-
afla og í Bólivíu.
I COSTA RIC-A hugsar Castro
sér gott til glóðarinnar, þótt
snemmt sé og hafa margir
haldið heim þangað frá her-
æfingum á Kúbu.
I PANAMA gefa kommún-
istar togstreitu landsmanna
við Bandaríkin um Panama-
skurðinn meiri gaum en
bráðri byltingu innanlands.
Líklegt er, að innan tíðar
hefjist á ný and-amerískar
óeirðir.
í COLOMBIU hefur Castro
sé'ð sér leik á borði, þar sem
ræningjar hafa átt góða daga
umsjón með henni, en hafi
fremur áhuga sjálfur á hinum
smærri ríkjum, er skemmra
eru komin á veg til þróunar.
í GUYANA virðist ekki vera
grundvöllur fyrir byltingu
síðan í kosningum 1964, er
hin kommúnisk sinnuðu
Cheddi og Janet Jagan náðu
ekki kosningu.
I einveldinu HAITI ber furð
anlega lítið á Castrosinnum.
í DOMINIK AN SK A LÝÐ-
VELDINU hamlaði bandarísk
íhlutun framgangi kommún-
ista vi'ð kosningar 1965, en
ekki er að sjá að Castro muni
láta það aftra sér frá íhlut-
un þar í landi.
í ARGENTÍNU, EL SALVA-
DOR og HONDURAS virðast
og lítil líkindi til þess að gerð
verði bylting á næstunni.
Glöggt er, að Castro lætur
það lítt aftra sér, þótt tafsamt
sé að ná éhrifum í S-Ameríku
og ýmsar tálmanir á þeirri
leið, og sannast sagna er, að
forystumenn Suður-Ameríku-
ríkja gefa æ meiri gaum að
hugarfóstri Castros, nefnilega:
Kommúnískum yfirráðum allr
ar Suður-Ameríku.
Þegar grein þessi var skrif-
uð, var eins og má sjá, „Che“
Guevara, ennþá á lífi, en
síðan haf a fregnir um lát hans
borizt og verfð staðfestar, frá
La Paz í Bólivíu.
(Þýtt og endursagt, einkum
úr U. S. News and World
Report).
Castro og Kruschev á valdatíma þess síðarnefnda
Vel með farinn
Dodge Dart
2ja dyra, árg. ’63 er til sýnis og sölu að Fornhaga
11. Sími 20618.
Til sölu
Glæsileg 150 ferm. íbúðarhæð á bezta stað í Sund-
laugahverfi. í íbúðinni eru 4 svefnherbergi (þar
af forstofuherbergi), 2 stórar suðurstofur, eldhús,
bað, ytri og innri forstofa, W.C. og sérþvottahús
(inn af eldhúsi). Teppalagt. Tvöfalt gler. Sérhiti.
Hagkvæmt verð og skilmálar.
Allar nánari upplýsingar gefur
Skipa- og fasteignasalan
KIRKJliUVOJ.I
Simar:14916 oí 138«
NETBUXUR
nýkomnar
^S«//eff('iíí)in
13
M E R I l U N I K
.Zt rh BR/BRABORGARSTIG 22
Síldarsöltunarstúlkur
Söltunarstöðin Síldin h.f., Raufarhöfn. óskar eft-
ir söltunarstúlkum strax. Yfirbyggt söltunarplan,
fríar ferðir. Upplýsingar í síma 2338, Keflavik.
99
Lumberpanel46 viðarþiljur
og loftklæðning
Viðartegundir: Gullálmur, limba, eik, fura, oregon
pine og askur.
Stærðir: 270 og 250 cm.x30 og 20 cm.
Verð frá kr. 85.— platan
Sérlega vönduð og falleg vara.
PALL ÞORGEIBSSON & CO.
Sími 1-64-12.