Morgunblaðið - 11.10.1967, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKT. 1907
Útgefandi: Hf. Arvakur, R'eykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar; Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Jphannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjðrn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Símf 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 105.00 á mánuði innanlands.
MARKAÐSMÁLIN
í BRENNIDEPLI
'undum forsætisráðherra
Norðurlanda og forseta
Norðurlandaráðs, sem staðið
hafa í Reykjavík, síðustu
daga, er nú lokið. Á fundum
þessum var m. a. rætt um
næsta fund Norðurlandaráðs,
sem haldinn verður í Osló
í febrúarmánuði n. k., og er
Ijóst, að aðalverkefni þess
fundar verða markaðsmálin,
en þau hafa um nokkurt skeið
verið mjög til umræðu á
fundum Norðurlandaráðs.
Sú staðreynd, að umræður
á þingi Norðurlandaráðs í
Osló munu mjög snúast um
markaðsmálin og jafnframt
að umræðurnar á síðasta
þingi ráðsins í Helsinki fjöll-
uðu einnig að mestu um
markaðsmálin, sýnir glögg-
lega hversu þýðingarmikil
þessi mál eru í augum hinna
Norðurlandaþjóðanna.
Sérstaða okkar íslendinga
í þessum málum er augljós og
forsætisráðherra, Bjarni Bene
diktsson hefur ítrekað undir-
strikað hana í viðræðum við
ráðamenn bæði á hinum
Norðurlöndunum svo og í við-
tölum við ýmsa helztu for-
svarsmenn Efnahagsbanda-
lagslandanna. Með það sjón-
armið í huga er hins vegar
nauðsynlegt, að víðtækar um
ræður fari fram hér á landi
um þessi mál svo að öll höf-
uðatriði þeirra verði öllum
almenningi skýr.
Tollahækkanir í EFTA-
löndunum og innan Efnahags-
bandalagsins verða stöðugt
tilfinnanlegri fyrir okkur ís-
lendinga ekki sízt nú, þegar
verðlag á helztu útflutnings-
afurðum okkar hefur lækkað
svo mjög. Ríkisstjórnin hefur
að sínu leyti markað skýra
stefnu til þessara mála, og
vissulega væri æskilégt að
stjórnarandstaðan ræddi
markaðsmálin af meiri
ábyrgðartilfinningu og skyn-
semi en hún hefur gert fram
til þessa.
fslend.ingar munu og fagna
því, að sá árangur hefur náðst
í viðtölum forsætisráðherra
íslands við forsætisráðherra
Norðurlandanna þriggja, að
Loftleiðamálið svonefnda
stendur enn opið, þau hafa
lofað að athuga betur ákveð-
in atriði í því sambandi, og
forsætisráðherra íslands hef-
ur áskilið sér rétt til þess að
ræða málið frekar á fundum
forsætisráðherranna, ef ekki
finnst nú viðunanleg lausn á
málinu.
Ástæða er til að vekja at-
hygli á ummælum Erlanders,
forsætisráðherra Svía í við-
tali við Mbl. í gær er hann
sagði: „Á ráðherrafundinum í
Kaupmannahöfn var gengið
nokkru lengra til móts við
Loftleiðir en almennt hafði
verið búizt við. Þessu ber að
fagna, því að Loftleiðir eru
norrænt fyrirtæki og það á að
veita því betri kjör en flug-
félögunum utan Norðurland-
anna.“
ATTLEE
LÁVARÐUR
að féll í hlut Clements
Attlees, að leiða Breta
síðustu sporin til sigurs í
heimsstyrjöldinni síðari og
hafa forustu um endurreisn-
arstarfið að stríðinu loknu. í
óvæntum kosningum 1945
komst brezka þjóðin að þeirri
niðurstöðu að það verkefni
bæri að fela öðrum en hinum
mikla stríðsleiðtoga og þing-
skörungi, Winston Churchill.
Attlee var gjörólíkur fyrir-
rennara sínum, hógvær mað-
ur og látlaus. Stjórnarforusta
hans eftir stríðið einkenndist
af þessum eiginleikum. Stjórn
Verkamannaflokksins eftir
stríðið mótaðist mjög af sósí-
alískum hugmyndum, ýmsar
mikilvægar atvinnugreinar
voru þjóðnýttar og heilbrigð-
isþjónustu í landinu gjörbylt.
Attlees mun þó fyrst og
fremst minnst fyrir það, að í
stjórnartíð hans var hafizt
handa um að leysa upp ný-
lenduveldi Breta og stærsta
sporið í því var stigið þegar
Indlandi var veitt sjálfstæði.
íhaldsflokkurinn komst aft
ur til valda í kosningunum
1951 og nokkrum árum síðar
hætti Attlee þátttöku í stjórn-
málum. Hann hefur áunnið
sér virðulegan sess i stjórn-
málasögu brezka stórveldisins
og ekki er ólíklegt, að í hug-
um eftirkomandi kynslóða
muni reisn hans og virðing
enn meiri en í hugum sam-
tíðarmanna.
DAGUR LEIFS
HEPPNA
að er rík ástæða til þess
fyrir okkur íslendinga að
leggja rækt við dag Leifs
heppna, sem hátíðlegur var
haldinn sl. sunnudag. Af
hálfu bandarískra stjórnar-
valda hefur þáttur Leifs
heppna í fundi Ameríku ver-
ið viðurkenndur með tilskip-
Frá átökum Kínverja og Indverja á landamærum Sikkim í dögunum. Kinverskir hermann bera
Iik fallinna félagana sinna frá vígvellinum.
Október - tími upp-
gjörs í Hong Kong
-Heldur Kína áfram að sfá nýlendunni fyrir vatni?
Hong Kong (Ass-ociated
Press) —
OKTÓBER verður tími upp-
gjörs í þessari róstum hrjáðu,
brezku nýlendu.
Vera má, að hann beri í
skauti sér endalok ofbeldis,
vinnudeilna og hryðjuverka,
sem herjað hafa í Hong Kong
síðan í annarri viku maimán-
aðar. Að minnsta kosti mun
hann veita svar þeim stjórn-
málafræðingum og blaðamönn
um á staðnum, sem hafa verið
að rökræða, hve langvarandi
árás kommúnista á brezku ný-
lendustjórnina hér verði og
hvaða stefnu þessi árás muni
taka.
Hinn 1. október munu kín
verskir kommúnistair halda
hátíðtegan átjánda „þjóðhá-
tíðardag" kínverska alþýðu-
lýðveldisins. 1. októíber er
einnig sá diagur, sem megin-
landið á samkvæmt gömluim
samningi, aftur að fara að
sjá þessari nýlendu fyrir
vatnsbirgðum.
Margir halda því fram, að
kommúnistar í Hong Kongi
fái ekki þann stuðning, sem
þeir óska eftir, frá Peking.
Þeir segja, að vegna skorts
á stuðningi þessum muni
kommúnistar hér á staðnumi
innan skamms birjda encta ál
herferð sína, sem hefur það'
markmið „að koma breztou)
stjórnarvöldunum í Hong1
Kong á kné“.
Einn af áhrifamestu komm
únistum nýlendunnar, Fei'
Yi Ming, útgefandi helzta
blaðs kommúnista, Ta Kung
Bao ,gaf það í skyn fyrir
skömmu, að málin væru nú'
í höndum Pekingstjórnairinn-
ar. Fei gaf yfirlýsingu þessa
efnis á blaðamannafundi fyrir
tveimur vikum, er hann vék
sérstaklega að vatnsveitunni
til Hon.g Kong í ototóber.
Viatn skipar mjög þýðing-
armikinn sess í málum Hong
Kong, þar sem nýlendani
verður að fá um 60 milljarða
lítra frá Kína á tímabilin.ij
frá október og fram í júlí.
Vatnsveitan til Hong Kong
er eibthivert öflugasta vopn
Kína til að ógna nýlendunnL
Til eru þeir, m.a. einn harð
asti andstæðingur kommún-
ista í hópi Kínverja í Hong,
Kong, sem spá því, að her
ferð kommúnista gegn'
brezku yfirvöldunum munil
standa a,m.k. ár í viðbót og
muni harðna i októbermán-
uði.
Fung Hoi-Chu, einn af
helztu hægri-sin'nuðu leiðtog
um verkalýðshreyfingarinn-
ar, sagði, að áfonm kommún-
ista að láta endanleg'a til
skarar skríða við Breta íi
september og ná fullnaðar-
sigri í október hafi farið úto
um þúfur. vegna hörkul
brezku yfirvaldanna hér.
Hann spáði því, að kornmún-
istar mundu hal-da áfram
hryðjuverkum sínum, kröfu-
göngum og tilraunum til að
koma á allsherjarverkfalli'
eins lengi og kostur værL
Það er einnig í október-
mánuði, sem Kínverskir Þjóð
ernissinnar halda hátíðlegam
þjóðhátíðardag sinn, — 18.
október.
Báða þjóðhátiðardagana
blakta hvarvetna við hún
fánar þeirrar stjórnar serni
hver og einn lýtur, — kommi
únistastjórnarinnar, sem
steypti af stóli Ching-ættinni,
árið 1911.
Svarið við spurningunnii,
hve lengi kommúnistar í
Hong Kong muni herja á
Rreta, kemur sennilegaist frá
Kína. Og beztu heimilda-
mönnum hér sýnist, að eng-
in von sé til að vandamálim
í Hong Kong leysist, fyrr en
greiðast tekur úr upplausn-
arástandi því, sem nú ríkir í
Kína sjálifu.
Á því er lítill vafi, að hóp-
ar þeir, sem togast á um
völdin í Kína, eru ekki held-
Framhald á bls. 20
un um að 9. október ár hvert
skuli vera dagur Leifs
heppna. í ræðu, sem Johnson,
Bandaríkjaforseti flutti í til-
efni hinnar opinberu heim-
sóknar forseta íslands til
Bandaríkjanna í sumar var
þessi viðurkenning enn stað-
fest.
Hins vegar er ljóst, að mjög
margir Bandaríkjamenn telja
Leif heppna hafa verið Norð-
mann og af hálfu Norðmanna
í Bandaríkjunum er ekkert
gert til þess að leiðrétta þann
misskilning, nema síður sé. Af
þeim sökum m. a. er full
ástæða til þess fyrir okkur
Islendinga að leggja rækt við
minningu þessa frækna landa
okkar og vinna ötullega að
því að uppræta þann mis-
skilning, sem virðist ríkja um
þjóðerni hans.