Morgunblaðið - 11.10.1967, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKT. 1967
17
— Okkur íinnst
Framhald af bls. 12. __
hefði öllu.m þótt Reykj avík
ákaflega þekkileg borg, og
hrein og loftið gott — „eng-
inn reykur og engar auglýs-
ingar á almannafaeri, hvílík
dásemd!“.
Skólastýra ein við barna- .
skóla í Mexikóborg, kona
nokkuð við aldur, brosljúf
Og fashlý svo af bar, Fern-
anda Castano de Allende,
kvað það at'hyglisverðast
hér hversu vinnuisamt fólk
'væri, hús öll og umgengni
Um þau bæri því vitni að
tfólki þætti vænt um híbýli
sín og legði mikið á sig til
þess að gera þau sem bezt
úr garði. „Og svo er fólkið
svo fallegt“, sagði hún, „svo
myndarlegt og vel klætt og
ásjálegt í alla staði. Hún
isagðist nú alllengi haía ver
ið skólastýra við barnaskóla
•einn í heimaborg sinni, ekki
ýkja stóran, hann taldi 350
nemendu/r á aldrinum 6 til
'l4* ána og þótti skólinn mjög
mátuilega stór. „Mér þykir
þetta miklu farsælla kerfi,
að skólar séu ekki stærri en
ðvo að allir þekkist og séu
eins og ein fj-ölskylda en hitt
að hrú'ga nemendum saman
í sVo stóra skóla að framand
leikinn sé þeim yfirþyrm-
andi mörgum hverjum. „Ég
þekki öll börnin í mínum
skóla og sjái ég þar andlit sem
ég efcki kannast undireins við
bregzt það ekki að það er
einh'ver utanaðkomandi í
heimsókn.
Verkfræðingurinn Pastor
Cordero Arteaga kennir véla-
verkfræði og rafmagnsverk-
fræði við verkfræðiháskól-
ann sem áður ságði frá, Inst-
ituto Politecnico Nacional (I.
P.N.) í Mexíkóborg og segir
að þar séu nú við nám um
70.000 nemendur. Er blaða-
maður furðar sig á svo hárri
tölu brosir hann við og seg-
ir: „Já, en þér verðið að gæta
að því að Mexíkómenn telja
orðið sex milljónir og nem-
endur í háskólanum fylla
bráðum hundraðasta þúsund-
ið.“ Ekki segir Pastor Cor-
dero vera verkaskiptingu
með skólunum þannig að
verkfræðiháskólinn sé einn
um að mennta verkfræðinga
í Mexíkó heldur geri háskól
inn það líka en grundvöllur
menntunarinnar sé nokkuð
annar, ' háskólamenntuðu
verkfræðingarnir læra meira
af húmanistiskum fræðum og
þeir er hljóti sína menntun
í I.P.N. séu aftur á móti
kannski nokkru tæknifróðari
Hann segir töluverða sam-
keppni milli háskólaverk-
Stúlkurnar fimm sem misstu af kynnisferðinni og fengu aðra í staðinn: Rocio Urike lengst til
vinstri, Amelia Ramírez næst henni, þá Volanda Hernandez og hinumegin við borðið innst
Lourdes Alarcón og Amelia Carrera, allar fimm starfandi fóstrur í Mexíkóborg. Myndin er
tekin yfir kvöldverði á Loftleiðahótelinu sl. laugardagskvöld og ljósmyndarinn er Ijósm.
Loftleiða, Lennart Carlén, sem einnig tók hinar myndirnar.
fræðinga og IPN-verkfræð-
inga og sé ekki nema gott
eitt um það að segja og Mex-
íkó, sem mennti hvoru tveggja
sé samkeppnin hagstæð.
Verkfræðingurinn er hér
ekki einn á ferð, kona hans
er með honum og börn þeirra
hjóna tvö, systir hans sömu-
leiðis og maður hennar og
tvær fjögurra dætra þeirra.
Pasbor Oordero segir það
miklu algengara í Mexíkó
en víða annars staðar að fjöl-
skyldur ferðist saman og
kveðst sjálfur ekki geta hugs
að sér langt ferðalag án konu
og barna. Báðar eru þær eig-
inkona hans og systir læknar
og sérmenntaðar sem skurð-
læknar og starfa báðar að
sérgrein sinni á vegum ríkis-
ins í „Instilutio Méjicano de
Seguro Social" (Tryggingar-
stofnun Mexíkós), og mágur
hans er líka læknir. „Ég var
mikið að hugsa um það og
við bæði“ segir Pastor Cor-
dero, „þegar við konan mín
vorum trúlofuð, hvort hún
ætti að vinna utan heimilis
eða ekki. Við ræddum það
fram og aftur ótal sinnum en
komumst loks að þeirri nið-
urstöðu að það væri engin
sanngirni í því að !áta menr.t
un hennar fara til spillis.
Nú er líka svo komið mál-
um í Mexíkó að ríkið kostar
nær alla menntun manna og
hver sá vel menntaður mað-
ur, hvort heldur er karl eða
kona, læknir, iögfræðingur,
verkfræðingur eða eittbvað
annað, sem ekki starfar að
því er hann hefiur menntun
til, er stórtap fyrir ríkið, þótt
við látum liggja milli hluta
hver missir sjálfum honum
er í því að fá ekki að njóta
hæfileika sinna“.
Kona hans, Maria del Cons-
uelo Cárdenes de Cordero,,
tekur undir þetta og bætir
því við að ekki megi láta hjá
líða að minnast á það sem gert
hafi verið undanfarin ár í
Mexíkó til þess að reyna að
mennta fplk, sem einhverra
hluta vegna hafi annaðhvort
fyrirgert tækifærum sínum til
háskólanáms eða geti ekki, af
fjölskylduástæðum, vegna
skorts á námsgáfum eða af
öðrum sökum, stundað há-
skólanám, en geti samt komizt
vel á veg að öðrum leiðum,
s.s. í ýmisskonar tækninámi,
í hjúkrun og við marghóttuð
störf önnur, sem krefjast sér-
menntunar á einhverju sviði.
Báðar hafa þær hún og mág
kona hennar, Oralia Cordero
de Sánchez de la Barquera,
heimilisaðstoð „innan fjöl-
skyldunnar" en vinna úti frá
8 á morgnana til 4 síðdegis
og þykir ekki mikið. „Þetta
gengur prýðisvel1' segir Maria
del Consuelo, „við getum svo
snúið okkur óskiptar að heim
ilinu og börnunum þegar við
komum heim klukkan f jögur“.
„Já“, samsinnir Oralia, „þetta
er allt annað en að hafa lækna
stofu og einkasjúklinga og allt
þess konar, slíkt væri erfitt að
samræma umsjá bús og
barna“.
Báðar láta þær mágkonur
vel af starfi sínu og segja
tryggingastofnumna mesta
þjóðþrifafyrirtæki, nú sé svo
komið, að ríkið greiði mest-
allan sjúkrakostnað lands-
manna og tryggingakerfið sé
allt til fyrirmyndar.
í þessu kemur að stúlka rétt
undir fermingaraldri, bros-
hýr og heitir Lorena, næst-
yngsta dóttir Oraliu og manns
hennar. Lorena er tólf ára og
stundar nám við þýzka skól-
ann í Mexíkó og er vel mæl-
andi á þá tungu og ensku
líka. „Enska er bráðnauðsyn-
leg, þó ekki væri vegna ann-
ars en nálægðarinnar við
Bandaríkin” segja foreldrar
hennar, „og með því að senda
börnin svo í þýzka eða
franstka skóla læra þau fyrir-
hafnarlítið eitt málið til og
það veitir þeim ákaflega mik-
ið valfrelsi um frekara nám
að kunna fleiri tungumál en
eitt saman móðurmálið".
Öll er fjölskyldan sammála
um að fólk sé hér vel mennt-
að og vel kurteist, hreinskilið
og hlýtt í viðmóti — „og
mjög vinnusamt", segir verk-
fræðingurinn, „því landið er
ekki auðugt að náttúrugæð-
um, það liggur í augum uppi“.
Konan hans tekur undir það
og segir: „Reykjavík er miklu
stærri borg en við bjuggumst
við og mjög snyrtileg. Ein-
hvern veginn hélt ég að ailt
væri hérna minna i sniðum.
Við vissum reyndar að fólk
væri hér vel menntað og ólæsi
ekiki til, en það ei allt annað
að sjá það með eigin augum,
húsin, hreinlætið, fólkið —
þessi fallegu börr. — og alla
þessa dásamlegu staði sem
við sáum á kvikmynd og dauð
langar til að sjá seinna i al-
vöru“. Mágkona hennar tekur
undir þetta og segir að þótt
þeim finnist heldur kalt hér
hér eða eins og kaldast gerist
í Mexíkó beri allt því vitni
að hér sé gott að vera og vel
að fólki búið og útlendinga
beri Islendinga á hönd-
um sér án undirlægju-
háttar eða fyrirlitningar
eins og svo víða ger-
ist annars staðar, landið sé
óspillt af ferðamönnum þótt
þeir gisti það í æ ríkara mæli
að því er skilið verði. Bróðir
hennar samsinnir þessu og
segir brosandi: „Það jaðrar
nú sennilega við sjálfhól, en
mér finnst eftir þessa stuttu
viðdvöl hérna vera töluverð-
ur skyldleiki með íslending-
um og Mexíkönum úr norður-
héruðunum, sama hrein-
skilni, sama einlæga viðmót-
ið, greiðviknin og hjálpfýsin.
Með þessari skemmtilegu
niðurstöðu þeirra Cordero-
systkina látum við spjallinu
lokið og hyggjum á heimferð.
Á leiðinni til dyra tökum við
tali José B. Gomez Camargo,
sem brosir breitt og segir: „Ég
er nú eiginlega ekki viðræðu-
hæfur — ég er ekki kennari,
heldur iðnrekandi, á súkku-
laði- og sætindagerð í Mexí-
kóborg, og fékk bara að fljóta
með vegna fjölskyldunnar,
konan mín kenndi hér áður
fyrr og dætur mínar eru að
byrja kennslu, systkini mín
eru ikennarar og frændur á ég
lika og frænkur í kennara-
stétt og þetta var látið gott
heita, enda bæði konan og
dæturnar með í ferðinni.
Þetta er dásamlegt land sem
þið eigið, íslendingar, og mér
þykir mjög vænt um að við
skyldum hafa fengið tæki-
færi til þess að koma hér við
þótt fljótt sér farið yfir. Ég
hef lesið töluvert um landið
áður og það kemur mér því
ekki eins ókunnuglega fyrir
sjónir og ýmsum öðrum úr
hópnum en hér er svo
margt að skoða og sjá og ég
vona að við fáum til þess
tækifæri einhverntíma seinna
að koma hingað aftur og
dvelja hér lengur".
- HONG KONG
Framhald af bls. 14
ur á einu máli um það, hvorti
Bretar eigi að halda Hong
Kong.
Fleira og fleira bendir
alltaf til þess, að herferð*
kommúnista gegn Rretuim,
hér í nýlendunni, lúti annað
hvort klofinni forystu. Síð-
ustu fregnir af handahófs-
kenndum spremgingum
hnyðjuverkamanna, sem urðu'
einkum Kínverjum, að baná
meðal þeirra tveg.gja áira
direng og átta ára gamalli
systur hams, — virðast benda
til hins síðarnefnda.
Þá ber að gæta þess, að
svo virðist sem aðeins tæp-
lega þriðjungur þeirra 20
milljóna Hong Kong dollara,
sem Rauða-Kína hafði heitið
tiil herferðarinnar, sa.m-
kvæmt kommúnistabl'öðum
nýlendunnar, hafi verið reiddl
ur fram.
Ferðamenn, sem hingað
koma frá suðurhéraði
Kífta, Kwantung, hafa skýrt
svo frá, að þar blasi víða
við á veggspjöldum fordæm-
ing á kommúnistum í Hong
Kon,g, og sé þeim lýst sem
óábynguim væsklum.
Það er því álit margra, að
toommúnistar í Hong Kong
muni sennilega halda áfram
ba.ráttu sinni gegn Bretum,
þar til þeir verða eldsneytis-
lausir eða þar til Kína fær
ráðrúm til að einbeita sér
að Hong Kong, sem lemgi
hefur verið því þyrnir í
auga.
Nauðungaruppboð
Að kröfu innheimtumanns ríkissjóðs, Gjaldheimt-
unnar i Reykjavík og ýmissa kröfuhafa verða ýms-
ir lausafjármunir, svo sem ísskápar, þvottavé'lar,
sjónvarpstæki, útvarpstæki, bækur, málverk, hús-
gögn og önnur heimilistæki, seld á opinberu upp-
boði í Góðtemplarahúsinu fimmtudaginn 19. októ-
ber kl. 2 síðdegis. Ennfremur verða seid hlutabréf
í hlutafélaginu Sólp.ast.
Greiðsla fari fram við hamarshögg.
Bæjarfógetinn í Hafnarfirði 10. október 1967.
Steingrímur Gautur Kristjánsson, ftr.
Sláturhús Hafuarf jarðar
tilkynnir
Kjötsa’an er í fullum gangi. Fimm kjötverðflokk-
ar. Opið til kl. 10 þessa viku.
Siáturhús Hafnarfjarðar.
Stjórn styrktarsjóðs
Isleifs Jakobssonar
auglýsir hér pieð eftir umsóknum um styrki úr
sjóðnum. Tilgangur sjóðsins er að styrkja iðnaðar-
menn, að fullnema sig erlendis í iðn sinni. Um-
sóknir ber því að leggja inn á skrifstofu'Lands-
sambands iðnaðarmanna, Skipholti 70, fyrir 6.
nóvember næstkomandi, ásamt sveinsbréfi í lög-
giltri iðngrein og upplýsingum um fyrirhugað
framhaldsnám.
Sjóðsstjórnin.