Morgunblaðið - 11.10.1967, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 11. OKT. 1967
Guðrún Magnúsdóttir
yfirljósmóðir-Minning
f DAG er kvödd, hinztu kveðju
Guðrún Magnúsdóttir, yfirljós-
móðir, en hún lézt 4. okt. sl.
Mig setti hljóðan, þegar mér
barst andlátsfrétt þessarar góðu
vinkonu og frænku. t>ótt mér
væri kunnugt um, að hún hafði
átt við nokkura vanheilsu að
búa, þá hafði hún gengið að
störfum sínum, án þess að láta
slíkt á sig fá.
Rétt einu sinni hafði maður-
inn með ljáinn verið á ferðinni
og höggvið stórt skarð í frænda-
garð hennar.
Guðrún var fædd 3. ágúst
1918 að Eyjaseli í Jökulsárhlíð,
dóttir hjónanna þar, Margrétar
Eyjólfsdóttur og Magnúsar Eir-
íkssonar. Hún ólst upp með for-
eldrum síwum og þrem yngri
bræðnum, fyrst í Eyjaseli en þeg
ar hún var fjögurra ára gömul,
fluttust þau búferlum að Geira-
stöðum í Hróarstungu og þar
bjó fjölskyldan til ársins 1946,
að þau brugðu búi og fluttust
hingað til Reykjavíkur. Átti hún
heimili hér með foreldrum sín-
um, þangað til faðir hennar lézt
nú fyrir fimm árum, síðan með
móður sinni, þangað til fyrir
stuttu, að Margrét var svo þrot-
in að kröftum, að hún varð að
fara til dvalar á sjúkra'húsi.
Á uppvaxtar og unglingsár-
um Guðrúnar voru aðrir tímar
en nú eru og margir áttu þá við
krappari kjör að búa og fræðslu-
kerfið var þá ekki eins víðtækt
og nú er. Foreldrar hennar voru
Eiginmaður minn og faðir
okkar,
Sigurður Ólafsson, múrari
Langholtsvegi 24,
lézt að Landakotsspítala mánu
daginn 9. október.
Giiðbjörg Guðbrandsdóttir
og börn.
Hjartkær móðir okkar, tengda
móðir og amma
Vilborg Brynhildur
Magnúsdóttir
Baldursgötu 24,
andaðist áð Borgarspítalanum
10. okt.
Fyrir hönd vandamanna.
Pétur Þór Ólafsson.
Móðir okkar, amma og systir
Jóhanna Guðlaugsdóttir,
Miðtúni 76
verður jarðsett frá Fossvogs-
kapellu fimmtudaginn 12. okt.
kl. 15.00.
Börn, barnabörn
og bræður.
Innilega þökkum við öllum,
nær og fjær, sem auðsýndu
okkur samúð við andlát og
jarðarför bróður okkar
Bjama V. Gíslasonar
Hnappavöllum, Öræfum.
Systkin og fjölskyldur
hins látna.
alltaf bjargálna fólk, sem
bjuggu börnum sínum traust og
notalegt heimili, sem sérsták-
lega var þekkt fyrir gestrisni og
greiðvirkni.
Hugur Guðrúnar mun hafa
staðið til einhverrar framhalds-
menntunar og fór hún ung að
árum til náms í Húsmæðraskól-
ann að Hallormsstað. Af frekara
námi varð þó ekki að sinni og
aðstoðaði hún foreldra sína
dyggilega við búskapinn næstu
árin, að undanteknum nokkrum
vetrum, sem hún dvaldist hér í
Reykjavík við ýmis störf. Árið
1944 hóf Guðrún nám í Ljós
mæðraskóla íslands og lauk prófi
þaðan ári seinna og hótf fljótlega
störf við Fæðingadeild Lands-
spítalans og starfaði þar til
dauðadags, að ur.danskildum
rúmum fimrn árum alls, sem
hún dvaldist erlendis við fram-
haldsnám. Frá áramótum 1957
var hún yfirljósmóðir Fæðinga-
deildarinnar.
Guðrún var óvenjulega mörg-
um góðum hæfileikum gædd,
samfara miklum mannkostum.
Hún var með afbrigðum hjálp-
söm og ósérhlífin og urðu margir
til þess að leita til hennar varð-
andi margvíslegan vanda, enda
brást hún aldrei. Hún var alltaf
reiðubúin til hjálpar og spar-
aði þá hvorki tíma eða fyrir-
höfn. Eitt sinn, er ég þakkaði
henni mikla og óverðskuldaða
fyrirhöfn mín vegna, sagði hún
aðeins: „Ekki að þakka, ég gerði
aðeins það, sem skyldan bauð“.
Ég lét í ljós, að hún hlyti að
hafa skyldur langt fram yfir
aðra. í«á brosti hún sínu elsku-
lega brosr og sagði eittíhvað í þá
átt, að þar væru mörkin kannske
stundum dálítið óljós.
Trygglyndi hennar við nán-
ustu skyldmenni, frændur og
vini, var með afbrigðum, svo
virtist hún bundin órofaböndum
við sveitina okkar kæru á Fljóts
dalshéraði. Ég hygg að fiestum
eða öllum sveitungum okkar og
mörgum fleinum fyndist sem
þeir gætu ekki látið hjá líða að
njóta gestrisni og velvildar á
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðar-
"ör móður okkar, tengdamóð-
ur og ömmu,
Berit Sigurðsson
Börn, tengdabörn
barnabörn.
Þakka innilega þeim, er sýndu
mér samúð og vináttu við and
'át og útför föðursystur minn-
r,
Kristínar Sigvaldadóttur.
Eiríkur Jónsson.
Þökkum innilega allar sam-
úðarkveðjurnar, hlýjan hug
og vináttu sem okkur var
sýnd við andlát og útför,
Sigurlínu Aðalfinnsdóttur,
Læknum og hjúkrunarliði lyf-
lækningadeildar Sjúkrahúss
Akureyrar færum við beztu
þakkir fyrir gó'ða umönnun í
langvarandi veikindum henn-
ar.
Adam Magnússon og börn.
heimili Guðrúnar og foreldra
hennar, meðan þeirra naut við.
Því engir af þeim, sem ég hefi
þekkt hafa verið r.ær því að
byggja skála um þjóðbraut
þvera, þó ekki væri í bókstaf-
legri merkingu.
Ég veit ekki með neinni vissu,
hvers vegna Guðrún kaus að
gera ljósrpóðurstarfið að ævi-
starii sínu, en hvaða orsakir,
sem hafa legið til þess, þá var vel
farið, þótt ég ætti þess ekki
kost að starfa með henni, vissi é£
vel, að ’hún var þar hinn bezti
starfskraftur, sem völ var á,
enda valdist hún ekki af neinni
tilviijun til yfirljósmóðurstarfs-
ins, en þann vanda tókst hún
ekki á hendur fyrr en hún hafði
aflað sér beztu menntunar er-
lendis í þeirri grein. En hún lauk
þá m.a. prófi frá Ljósmæðra-
skóla danska ríkisspítalans, auk
þess sem hún starfaði á þekktum
fæðingastoifnunum bæði í Dan-
mörku, Svíþjóð og Noregi og
seinna, eftir að hún gerðist yfir-
ljósmóðir, fór hún í námsferð til
Englands.
í starfinu nutu margir hennar
góðu hæfileika sín vel. Bún var
duglegur, röggsamur stjórn-
andi, sem aldrei hikaði við að
leggja hönd á plóginn, þar sem
þess var þörf. Samvizkusemi og
trúmennska voru hennar aðals-
merkL Henni fylgdi ávallt ein-
hver hressandi andblær, þrung-
inn glaðvæxð og öryggi. í návist
hennar var svo gott að vera, því
manni fannst ósjálfrátt, að hún
kynni ráð við öllium vandá.
Kæra vinkona, hér læt ég stað-
ar numið, en á þó flest ósagt,
sem í huga mínum býr að leiðar-
lokum, en ég held að þú hefðir
viljað hafa það svo, en í
hjörtum frænda þir.na og vina
hefur þú reist þér óbrotgjarnan
minnisvarða með lífi þínu og
starfi. Að endingu flyt ég móð-
ur þinni bræðrum og öðrum nán-
um vandamönnum mínar inni-
legustu samúðarkveðjur og bið
þess, að góður Guð megi leggja
líkn með þraut.
Margrét Jónsdóttir.
Frk. Guðrún Magnúsdóttir,
yfirljósmóðir á Fæðingardéild
Landsspítalands lézt að heimili
sínu 4. okt. síðastliðinn.
Við Ijósmæðurnar sem hjá
henni unnum erum harmi slegn-
ar. Vil ég fyrir hönd okkar allra,
flytja henni þökk fyrir samstarf-
ið og hennar mörgu heilræði, og
góðu undirtektir, er við bárum
upp við hana hin ýmsu vanda-
mál, sem alltaf eru þessu starfi
samfara. Mesti missirinn, fyrir
utan hennar nánustu, sem ég
votta mína dýpstu samúð, er fyr-
ir Ljósmæðraskóla íslands.
Breytingar á húsnæði hans,
fjölbreyttari kennsla, nýtustu
kennslutæki, og í heild betri
aðbúð og upplýsingar til sam-
ræmis við önnur lör.d, áttu hug
hennar allan.
Guðrún heitin var búin að
starfa hér 10 ár sem yfirljósmóð-
ir er hún lézt, og vissum við
gömlu vinkonurnar, að hún gekk
ekki heil til skógar, þó hún
’hvorki hlífði sér við vökum eða
vinnu.
Ég kvaddi hana glaða, með
spaugsyrði á vör mánudaginn 2.
okt. — og þannig óska ég að
varðveita minninguna um 21 árs
vináttu.
Þessum tveimur lögmálum
lífsins, að fæðast og deyja sem
við öll verðum að lúta, bregzt
maður alltaf við á ólíkan hátt.
Við ljósmæðurnar veitum nýju
lífi móttöku og gleðjumst mest,
næst móðurinni, að fá að leggja
heilbrigt velskapað barn í fang
móðurinnar.
En gagnvart dauðanum, þegar
hann knýr dyra og kallið kem-
ur, er svo erfitt að sætta sig við
dóm drottins. Stundum finnst
okkur dauðinn svo miskunnar-
laus og ranglátur, en stundum
þráum við miskunn hans og al-
gleymi.
Far þú í friði,
friður guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Emma Þorsteinsdóttir.
t
KVEÐJA FRÁ LJÓSMÆÐRA-
FÉLAGI ÍSI.ANÐS
í dag kveðjum við Guðrúnu
Magnúsdóttux, yfirljósmóður, er
svo skyndilega var burt kölluð
frá okkur. Við sem bundum svo
miklar vonir við að njóta for-
ustu hennar og starfskrafta um
ókomin ár. Með fráfalli hennar
hefur . ljósmæðrastéttin misst
sína færustu og mætustu konu.
Frá því að Guðrún útskrifaðist
ljósmóðir fyrir 22 árum hefur
öllum þeim, sem sýndu mér
hlýhug og vinsemd á sjötíu
ára afmæli mínu, 22. sept. sl.,
sendi ég mínar beztu þakkir.
Baldvin E. Þórðarson,
Tangagötu 8, ísafirði.
Innilegar þakkir sendi ég öll-
um þeim sem sýndu mér á
ýmsan hátt hlýhug og vináttu
á áttræðisafmæli mínu þann
24. sept. sl.
Helgi Jónsson,
Krókatúni 15
Akranesi.
Hjartanlega þakka ég öllum
sem sýndu mér vinarhug og
glöddu mig með skeytum,
blómum og öðrum gjöfum á
sjötugsafmæli mínu, 1. okt. sl.
Elín Guðmundsdóttir,
Bergþórugötu 12.
hún helgað ljósmóðurstörfunum
alla krafta sína, allt til síSRstu
stundar.
Fyrst eftir nám, sem ljósmóðir
á Fæðingardeild Landsspítalans,
síðan við framhaldsnám erlend-
is og nú síðustu 11 árin, sem
yfirljósmóðir Fæðingardeildar
Landsspítalans. Við minnumst
með miklu þakklæti starfa henn-
ar í þágu Ljósmæðrafélags ís-
lands. En hún hefur verið for-
maður félagsins síðastliðin 8 ár
og síðustu mánuðina gegndi hún
formannsstörfum. Starfaði hún
ötullega að framfaramálum fé-
lagsins og ljósmæðrastéttarinn-
ar í heild. Það var Guðrúnar
hugsjóna- og metnaðarmál að
mennta íslenzkar ljósmæður,
sem allra bezt, svo þaér væru
færar um að veita sem bezta
þjónustu í störfum sínium. Nú
síðustu árin vann hún því mál-
efni aif sinni alkunnu ósérhlífni
og fyrirhyggju. Átti hún sinn
stóra þátt í því að Ljósmæðra-
skólinn var lengdur í tvö ár.
Og nú, er viðbótarbyggingu
Ljósmæðraskólans er að ljúka,
só hún margra ára baráttu og
drauma sína verða að veruleika.
Guðrún gérði miklar kröfur
til sjálfrar sín og þrátt fyrir
vanheilsu síðustiu ára, hlífði hún
sér hvergi og var alltaf reiðu-
búin að veita öðrum þjónustu
og axla annarra byrðar. Þannig
gert fólk fer oft fljótt og verð-
ur ei langlífL
„En hvað er langlifi?
Lífsnautnin frjóa“.
Það var einmitt það sem Guð-
rún hafði í ríkum m.æli, mikinn
líifskraft og viljastyrk til að láta
gott af sér leiða. Við sem störf-
uðum með Guðrúnu í Ljósmæðra
félagi íslands munum ávallt
minnast hennar sem glaðværrar,
hjálpsamrar og úrræðagóðrar
félags- og stéttarsystur. En nú
er hún horfin oktour yfir landa-
mærin miklu. Biðjum við henni
Guðsblessunar og þökkum
allar samverustundirnar. Aldr-
aðri móður, bræðum og öðrum
ættingjum Vottum við innileg-
ustu samúð.
Mínar hjartansþakkir sendi ég
börnum mínum, tengdabörn-
um, barnabörnum, systkinum,
tengdafólki, vinum og öðrum
kunningjum fyrir margvísleg-
ar gjafir og heillaskeyti á sex-
tiu ára afmæli mínu 8. sept-
ember 1967. — Lifið heil.
Gróa Jónsdóttir,
Hvoli II, ölfusi.
Hjartaniega þnkka ég öllum
sem sýndu mér vinerhug á 50
ára afmælinu 1. okt. og glöddu
mig á margvíslegan hátt með
heimsóknum og höfðinglegum
gjöfum og gerðu mér daginn
ógleymanlegan. Guð blessi
ykkur öll.
Þórdís Sigurðardóttir
Grindavík.
Framtíðarstarf
Fyrirtæki með góð umboð á sviði tækni og tækni-
þjónustu vill ráða skrifstofumann með reynslu í
skrifstofuvinnu og sem getur unnið sjálfstætt og
séð um erlendar bréfaskriftir og skrifstofuhald
fyrirtækisins.
Höfum aðeins áhuga á reglusömum manni, sem
vill leggja sig fram og vinna ábyrgðarmikil störf
fyrir fyrirtækið.
Upplýsingar sendist Morgunblaðinu fyrir 17. þ.m.
merktar: „Tækni 184“ og tilgreini menntun,
reynslu og fyrrverandi atvinnuveitendur. Farið
verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál.