Morgunblaðið - 11.10.1967, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 11. OKT. 1967
Fjögurra skrefa reglan
oft strangt túlkuð
Alþjóðaknattspyrnusambandið
hefur nú tilkynnt að víða hafi
hin nýja regla varðandi skref
markvarðar í knattspyrnu verið
túlkuð of hastarlega. Segir sam-
bandið að tilgangurinn sé sá einn
að koma í veg fyrir að mark-
verðir tefji leiki eins og oft hef-
ur átt sér stað.
Flest lönd tóku — að skipan
FIFA — fyrirvaralítið upp hina
nýju reglu þess efnis að mark-
vörður mætti ekki taka nema
fjögur skref í hvert sinn er hann
varði. Víða var þetta túlkað svo
að ef markvörður hálfverði, þ.e.
féikk slegið knöttinn frá, án þess
að halda honum, og hljóp svo
eftir honum og náði honum t.d.
eftir að hafa tekið sex skref, þá
var dæmt á hann aukaspyrna.
Alþjóðasambandið hefur nú til
kynnt að þetta sé ranglega dæmt.
Markvörður má taka knöttinn
aftur, en aldrei stíga fleiri skref
með knöttinn en fjögur eftir að
hann hefur haldið á honum.
Danir eru meðal þeirra þjóða,
sem hafa túlkað hina nýju
reglu of strangt og hafa nú dóm-
arar verið boðaðir á fund til að
ræða — og læra — hina nýju
reglu rétt.
Gera tillögur um fram
tíð Islandsmótsins
- Mörg mál rœdd á þingi HSÍ
ÁRSÞING Handknattleikssam-
bands íslands var haldið á laug-
ardaginn. Var fjallað um mörg
mál á þinginu, fjárhag sam-
bandsins skýrslu stjórnar
a.m.fl. Eins og skýrt hefur verið
frá var Axel Einarsson hrl.
kjörinn formaður sambandsins
í stað Ásbjarnar Sigurjónssonar
sem staðið hefur við stjórnvöl-
inn með miklum myndarbrag
um mörg undanfarin ár en aðrir
í stjórn eru Axel Sigurðsson,
Valgeir Ársælsson, Rúnar
Bjarnason, Einar Th. Mathiesen,
Jón Ásgeirsson og Sveinn Ragn-
arsson.
Á þinginu var samþykkt sú
breyting við reglugerð um hand
knattleiksmót að nú í vetur
skuli þau 9 lið sem tilkynnt hafa
þátttöku í meistaraílokk kvenna
öll keppa í einm deild.
Skipuð var nefnd til að gera
tillögur um fjárhag 2. deildar
en 6 félög senda nú flokka í 2.
deild, Á, ÍR, Þróttur, Keflavík,
Akureyri og Akranes. Einnig
á sú nefnd að gera tillögur um
yfinstjórm íslandsmótsins í
framtíðinni.
Guðjón Einarsson varaforseti
ÍSÍ mætti á þinginu og fíutti
ávarp og færði sambandinu að
gjöf mynd af fyrsfca ísl. landslið-
inu í handknattleik sem lék á
heimavelli — móti Finnum 1950,
þá er jafnteflið varð 3:3.
Fjárhagur sambandsins er
góður og á það jrfir 100 þús.
kr. í sjóði og útistandandi skuld
um, en nokkur rekstrarhalli
varð s.l. ár.
„Gull og silfurliðið“ frá HM
sækja íslendinga heim
- Og ísl. landsliðið sækir fyrr-
um heimsmeisfara heim
ÞAÐ verður mikið um að vera
í handknattleiknum á íslandi á
byrjandi keppnistímabili. Hing-
að heim sækja ok,kur landslið
„gull“- og „silfurliðið“ frá síð-
ustu heimsmeistarakeppni, Tékk
ar og Danir og utan fara Is-
lendingar og leika m.a. við Rú-
mena, sem urðu nr 3 í heims-
meistarakeppninni, en voru
heimsmeistarar næstu tvö tíma-
bil á undan og við V-Þjóðverja
sem einnig voru framarlega í
síðustu heimsmeistarakeppni.
Um þessi mál var fjallað i
skýrslu stjórnar HSÍ og "segir
þar svo:
Karlar.
Stjórnin hefir verið í sam-
bandi við handknattleikssam-
bönd frá fjölmörgum löndum
varðandi landsieikjaviðskipti á
næsta keppnistímafbili og á
næstu árum. Hafa bréfavið-
skipti farið fram við Spámverja,
Portúgala, Tékka, Pólverja,
Frakka, Vestur-Þjóðverja, Aust
ur-Þjóðverja Dani, Rúmena,
íslenzkur bikar í 4. ára norrænni
keppni í handknattleik karla
Á BAK við tjöldin hefur að
undanförnu verið unni að því
að gera áætlun um Norður-
landamót í handknattleik
karla, sem nær yfir fjögurra
ára tímabil — svipað því sem
nú tíðkast hjá Norðurlanda-
þjóðunum að íslandi undan-
skildu, í knattspyrnu. En nú
verða íslendingar með og
svo langt er málum komið að
Flugfélag íslands hefur ákveð
ið að gefa bikar tii keppninn-
ar. Málið hlýtur endanlega
afgreiðsu á fundi handknatt-
leikssambands Norðurlanda
sem haldinn verður í Næstved
18. nóv. n.k.
Samkvæmt áætluninni eru
leikir landanna þannig:
1967- 1968:
Ísland-Danmörk, Noregur-
ísland, Finnland-Svíþjóð,
Finnland-Noregur, Svíþjóð-
Danmörk.
1968- 1969:
Danmörk-Noregur^ Dan-
mörk-Finnland, Noregur-
Finnland, Ísland-Finnland,
Svíþjóð-Ísland.
1969- 1970:
Noregur-Danmörk, Dan-
mörk-ísland, Noregur-Sví-
þjóð, Ísland-Svíþjóð og Finn-
land-Svíþjóð.
1970-1971:
Danmörk-Svíþjóð, Finn-
land-ísland, Finnland-Dan-
mörk, Svíþjóð-Noregur, Sví-
þjóð-Finnland, Ísland-Noreg-
ur.
Að þessum tima loknum
hafa liðin mætzt heima og
heiman og stigatala og marka
hlutfall ræður úrslitum.
Danir leggja til að tveggja
dómara kerfið verði notað í
þessum leikjum og ætla síðar
að vinna að því að það kerfi
verið tekið upp í landsleikj-
um við aðrir þjóðir, unz það
hefur tekið við af núverandi
fyrirkomulagi, en Norður-
landaþjóðirnar hafa gengið á
undan í að innleiða það.
Það er sannarlega gleðilegt
fyrir ísl. handknattleiks-
menn að þessi keppni er svo
gott sem ákveðin, þó endan-
legt samþykki liggS ekkii
fyrr en að fundi leiðtoga
Norðurlandaþjóðanna lokn-
um. Þetta skapar ákveðin
verkefni sem marka fasta
punkta í landsleikjapró-
gramminu.
■HER sjáum við tvo af béztu
frjálsíþróttaköppum Evrópu.
Til vinstri er Tékkinn L,ud-
' ‘wig Danek, kringlukastarinn
heimsfrægi, sem hlaut silfur-
Verðlaunin á ÓL í Tókíó. T.
h. er gamalkunningi, Uwe
Bayer frá V-Þýzkalandi, sem
ihlaut bronsverðlaun í sleggju
Ikasti á sömu leikum — og
kom svo og lék hér aðalhlut-
verk í kvikmyndinni Sigurði
Fáfnisbani.
Rússa, Kanad'amemn, Norðmenn
og Svía.
Ákveðið er, að heimsmeist-
ararnir frá Tékkóslóvalkíu komi
til íslands á tímabilinu 1. .— 7.
desember og leiki hér tvo leikL
Ennfremur er ákrveðið, að
danska lanidliðið komi til ís-
lands og leiki tvo leiki, þ. e.
6. og 7. apríl 1968.
Tvær utanferðir eru ákveðnar
og er önnur í febrúarlok 1968
en hin í aprii 1968. Leikirnir
í þessum ferðurn verða svo sem
hér segir: í Rúmeniu 28. og 29.
febrúar 1968 og i Vestur-Þýzka-
landi 1. og 3. marz 1.968. Dag-
setningar fyrir ferðina til Spán-
ar eru enn ekki ákveðmar.
Konur.
Eins og annars staðar er getið
í skýrslunni, tekur kvenna-
lamdsliðið þátt í Norðurlanda-
móti, sem fram fer í Næstved
i Danmörku dagana 17. •— 19.
nóvember n.k. Gnnur verkefni
eru ekki ákveðin fyrir kvenna-
landsliðið.
Piltar.
Unglingalandslið pilta mun
taka þátt í Norðurlandamóti,
sem fram fer í Noregi dagana
29. — 31. marz 1968.
Stúlkur.
Unglingalandsjið stúlkna imm
taka þátt í Norðuirlandamóti,
sem fram fer í Danmörku dag-
ana 29. — 31. marz 1968.