Morgunblaðið - 29.11.1967, Page 3

Morgunblaðið - 29.11.1967, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. NÓV. 1967 3 EINS og áður hefur verið get- ið um í Morgunblaðinu, hefur undanfarið verið unnið að opnun nýrrar þjálfunarstöðv- ar á vegum Judo-deildar Ár- manns. Hefur deildin lengi verið í húsnæðishraki. Fyrir þremur mánuðum hættu fé- lagsmenn æfingum til að geta einbeitt sér að því að inn- rétta húsnæði það, er þeir tóku fokhelt á leigu, þá til a.m.k. þriggja ára. Húsnæðið er nú fullgert, teppalagt og Reimar, Jónas, Jóhanna, Ragnar. KONUM GEFINN KOSTUR Á JUDÖ-ÆFINGUM fullbúið húsgögnum og hefst þjálfun 6. des nk. Þjálfun þessi er ætluð jafnt fyrir unga sem eldri, jafnt kvenfólk sem karlmenn, og á- litin aðgengiieg fyrir íþrótta- fólk, sem ekki er lengur í keppni, og aðra, sem áhuga hafa á því að halda líkama sínum í þjálfun. Ráðgert er að hafa tíma fyrir húsmæður seinni hluta dags. Sú nýjung mun verða tekin upp, að gefa fólki í viðskiptaheiminum, eða fólki, sem ekki hefur annan tíma á daginn eða á kvöldin, tækifæri til að koma í hádeginu, fá þjálfun, gufu- bað, hvíld og léttan, grenn- andi hádegisverð fyrir þá sem vilja grenna sig. Þrekþjálfun verður á laugardögum eftir hádegi og á sunnudagsmorgn- Undirbúningsnámskeið verða fram að nýári, og verður hver fiokkur þjálfaður tvisvar í viku, klukkutíma í senn, og eru æfingar hafnar af fullum krafti. Unnið hefur verið af mikilli bjartsýni og dugnaði við að koma stöðinni upp og er hún algjör nýjung hér á landi. Húsrými þjálfunar- stöðvarinnar er mjög rúmgott, 330 fermetrar að stærð og þar eru tveir þjálfunarsalir, þann ig að hjón geti til dæmis mætt á sama tíma til æfinga. Þar eru einnig tvær gufubaðstof- ur, tveir steypibaðklefar, tvær nuddstofur og hvíldar- stofa, eldhús og stórglæsileg setustofa búin húsgögnum, sem Gunnar Magnússon, arki- tekt, hefur teiknað ásamt öðr- um innréttingum. Innan skamms, eða 9. des., mun Evrópufulltrúi frá Kodo- kan (aðalbækistöðvum Judo- þjálfunarinnar) í Tókió í Jap- an, heimsfrægur þjálfari í þessari íþróttagrein, og svo- nefndur „sjöundi DAN“ eða leiðtogi af sjöundu gráðu, sem táknar framúrskarandi árangur í íþróttinni, koma til iandsins til að hjáipa félags- mönnum ti) að skipuleggja starfsemi deildarinnar og leið beina í þjálfun. Nafn hans er stórviðburður á sviði íþróttar þessarar hér- lendis, en hún er íþrótt, sem samhæfir endlega og líkam- lega hæfni og eykur við- bragðsflýti. Yngsti drengurinn, sem gráðu hefur, er J.ónas Jónas- son, 11 ára, sonur frú Jóhönnu Tryggvadóttur og Jónasar Bjarnasonar yfirlæknis. — Helztu hvatamenn eru Reim- ar Stefánsson, Ragnar Jóns- son, frú Jóhanna Tryggva- dóttir, Þorkell Magnússon og Sigurður Kárason. Innritun stendur nú yfir og fer fram milli kl. 19 og 21. — Allar upplýsingar fást á staðn um, en það er að Ármúla 14, 3. hæð. Jónas leggur Ragnar. Glímumenn í hvíldarstöðu. Leiðrétting í FRÉTT í blaðinu í gær mis- ritaðist, að Björn Bjarnason væri formaður Stúdentafélags íslands. Hann er formaður stú- dentaráðs Háskóla íslands. Prestkosningin MISSÖGN varð í biaðinu í gær varðandi prestskosningu í Hail- grímsprestakalli. Sr. Óskar Þor- láksson, dómkirkjuprestur, á sæti í yfirkjörstjórn, en ekki dómprófastur eins og þar segir. Vegna missagnar í Vísi 27. þ.m. óskast tekið fram, að kæru- frestur yfir kosningu er 3 dagar samkv. lögum um veitingu prestakaíla en ekki hefð, eins og komizt var að orði i fréttinni. Þess vegna er ekki hægt að teija atkvæði fyrr en á fimmtudag. OSíubíEI ók ekki á þotuna í FRÉTT í blaðinu í gær var sagt, að bifreið, sem var að af- greiða þotu með eldsneyti á Kefla vikurflugvelli, hafi ekið utan í hana og rispað. Hér er um misskilning að ræða, ekk- ert liggur fyrir um það, hvaða farartæki rispaði þotuna, og þeir, sem unnu við eldsneytis- afgreiðsluna fullyrða, að þeirra milli hafa hvergi komið þar nærri. Einnig sagði fréttaritari blaðsins á Keflavíkurflugvelli í gær, að vel geti hugsazt að rispa þessi væri eldri, þótt fyrst hafi verið tekið eftir henni hér. ma STAKSTEII\IAR Gleði DIQOVIUINNi tmétlm íét «ro oi trflftir mri' Imft- káám 1 kiim umtwkmm. Allsheriorverkfalí 1. des. ] t'il oí inýio trom t*c rrmeiitéröfu at /oumtl/or Mditl 6tl*c - hoti okki nóiit aomtomu/og im Momo/i/ro/ur aornfoAonno '. * «i stefna «ð allshcr|ar vlnnustóðvun 1. dMsmbsr: Stjórnin valdi verkfölt? HotnaAI tllboAi vorhlýAohroyflnsarinnor um 4.4 f, K|ora>horAlnsu! Þegar ráffstefna ASf mælti meff því viff mefflimafélög sán að efnt yrffi til verkfalla hinn 1. des. n.k. ríkti mikil gleffi í herbúffum stjórnarandstæðinga og málgögn þeirra endurspegl- uffu þessa kæti í fréttaflutningi sínum um þessa ákvörffun ráff- stefnu ASÍ. Fréttin um það, að ASÍ „mælti meff“ verkföllum var birt 5 dálka efsrt á forsíffu Tím- ans og 6 dálka efst á forsiðu Þjóffviljans. Bæði þessi blöð veittust mjög að MbL vegna þess, að það taldi ekki ástæðu til að birta fregn þess á for- síffu. Sorg VlSITÖLUUPPBÓT A LAUN: VERKFOLLUM Pjófur í paradísj AFLYSTÍ ,.... .. ____ ■ I Rlkisstjórnin atlar ai afnema öR iaflaákvanii um veritrygthfn kanps Þessar myndir eru svo af for- síffu Þjóffviljans ©g baksiðu Tímans daginn eftir aff miðstjórn ASÍ ákvað aff mæla meff því við meðlimafélög sín að aflýsa boð- uðum verkföllum, Að þessu sinni sér Timinn ekki ástæðu til að birta fregnina á forsíðu sinni heidur er henni valinn staður á baksíðu og mun minna úr henni gert en hinni fyrri. Þjóðviljinn birti ályktun miðstjórnar ASf í 3ja dálka klausu neðst á forsíðu. Þannig ríkti augljós sorg á rit- stjórnarskrifstofum Timans og Þjóðviljans, þegar verkföllum var aflýst, á sama tíma og aðrir landsmenn og ekki sizt þeir, sem tekið hefðu þátt í verkföllunum, fögnuðu því að vinnufriður var enn einu sinni tryggður, um sinn a.m.k. V erðlagsuppbót Það vakti jafnframt athygli að Þjóðviljinn sá ekki ástæffu til þess að geta þess t. d. í fyrir- sögn að ríkisstjórnin befði talið sér fært að verða við þeirri meg- inkröfu verkalýðssamtakanna að greidd yrði verðlagsuppþót 1. des og Títninn skýrði frá þeirri frétt með litlum myndarbrag. Ef til vill er hér af hálfu Þjóðviljans vísvitandi stefnt að því að blekkja launamenn og gera ákvörðun miðstjórnar ASÍ tor- frygg'lega í þeirra augum með þvi að leggja litla áherzlu á kjarna málsins. En hvað sem þvi líður, sýnir fréttaflutningur Þjóðviljans og Timans þessa dag ana að hvorugt þessara blaða get ur leynt geðvonzku sinni vegna þess að vinnufriður hefur verið tryggður um sinn. l’m leið sýnir fréttaflutningur þessara blaða siðustu daga að þau ættu að gera sem minnst af því að saka aðra um að fela fréttir. Maður líttu þér nær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.