Morgunblaðið - 14.12.1967, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DES. 1967
t
1^S»SIM11-44-44
mHlf/Ð/fí
Hverfisgötu 10S.
Sími eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BILALEIGAIM
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
LpÆiuujÆ>y
RAUDARARSTÍG 31 SfMI 22022
Látið ekki dragast að athuga
bremsurnar, séu þaer ekki
lagL — Fullkomin bremsu-
þjónusta.
Stilling
Skeifan 11 - Sími 31340
AU-ÐVITAÐ'
ALLTAF 5
Atburðurinn við
sendiráðið
Magnús Finnbogason
skrifar eftirfarandi:
Ég óska, að Velvakandi birti
eftirfarandi álit mitt á aitburði
þeim, er mannsöfnuður steð-
næmdist framan við sendiherra
bústað Bandarikjanna og
brenndi þar brúðu, er átti að
tákna Bandaríkjaforseta:
Utanríkiisráðuneyti íslands á
tvímælalaust áð biðja sendi-
herra Bandaríkjanna afsökunar
á atburðinum og viðurkenna
hreinskilnislega, að það skorti
bolmagn og aðisrtöðu til að koma
í veg fyrir hópgöngur og
múgæsingar, jafnvel þótt múg-
urinn fremji verk, sem íslenzka
þjóðin sean heild blygðast sín
fyrir.
-ár Að létta andlegt
og líkamlegt
böl náungans
Velvakandi
f dag birtist hér bréf frá
Skagstrendingi, svar til lækn-
iskonu:
Ég hefi lesið grein yðar í
„Velvakanda" 1. des. og ég vil
góðfúslega óska eftir að þér
lesið með athygli grein mína
sem ég ritaði í Velvakanda 22.
nóv., þar sem ég legg áfherzlu
á ríkjandi vandræði m_: að
fá lækni til að starfa í læknis-
héruðum sem eru án lækna.
úti á landsbyggðinni. >ar sem
virðist benda til misskilnings
hjá yður, og grein yðar fjall-
ar einkum um annríki læknis,
og sem að þér teljið mig bera
lítt skyn á, sem sjá má af því
að þér teljið mig þurfa að
dvelja mánaðartíma á heimili
yðar td að fylgjast með störf-
um manns yðar sem læknis. En
ég get sagt yður, frú, að mér
er fyllilega ljóst að stanf lækna
er erfitt. og gaf yður alls ekki
í grein minni tilefni að hug-
leiðingum yðar.
Sný ég mér því að kjarna
málsins. — Það er þyrnir i
augum yðar þessi orð mín í
grein minni sem ég tek hér
orðré'tt upp:
„Mörgum manni verður á
að spyrja sjálfan sig. Er
læknastéttin á íslandi orðin
svo úrkynjuð ,að hún treysti
sér ekki til starfa úti á landi,
og vanti þá eiginlsika sem kall
ast fórnfýsi?"
Nú skulum við athuga stað-
reyndir.
í fyrsta lagi: Það vantar
lækna í hin ýmsu læknahér-
uð, en læknar fást ekki til
Starfa þar. og sem s-vo leiðir
til margháttaðra erfiðleika.
í öðru lagi: Þess er eigi fá
dæmi (ég þarf eigi langt að
líta til baka) að læknar hafa
tekið héruð, starfað þar stutt-
an tíma, talið þau of erfið,
flutzt í stærri kaupstað, eink-
um í Reykjavík og það á bezta
aldursskeiði og heilsugóðir.
í þriðja lagi: Það eru eigi
fáir læknar sem eftir nám,
hverfa til starfa af landi burt
og láta ekki sína eigin þjóð
njóta starfskrafta sinna.
Þessi þrjú atriði sem ég
benti á sanna ótvírætt að þá
lækna vantar fórnfýsi og eru
í úrkynjun frá því sem áður
var, auk þess sem ég get rétti-
lega bætt við, gagnvart þeim
sem hverfa af landi burt til
starfa fyrir aðra þjóð hafa
„svikizt undan merkjum“.
Ég vona að þér skiljið orð
mín rétt, og tek það fram að
orð mín og ummæli um lækna
byggist á því viðhorfi sem nú
er, og viðurkenni að þeir yf-
irleitt starfi af ósérplægni. T.
d. er mér ljúft að benda á að
læknir Blönduóshéraðs tekur
hér í þorpinu á móti sjúkling-
um vikulega einn dag, þrátt
fyrir mikið annríki heima fyr-
ir.
Að endingu vil ég draga upp
fyrir yður mynd. Hún er þessi:
Aldraður læknir, hættur lækn
isstörfum sakir elli, lí'tur til
baka yfir farinn veg. Hann
minnist þess að hafa staðið
meðan" kraftar og heilsa leyfðu
í erfiðu héraði, leitað sér auk-
innar þekkingar utanlands þá
hægt var. Hann minnist ým-
issa atburða sem allir miðuðu.
með hliðsjón af starfi hans, til
að létta böl náungans andlega
og líkamlega.
Þessi maður getur án efa
lagst rólegur á koddann.
Virðingarfyllst
Skag'strendingur.
★ Hvers vegna eru
strætisvagnar ekki
með keðjur í hálku?
Vegfarandi hefur sent Vel-
vakanda eftirfarandi bréf:
Herra Velvakandi Morgun-
blaðsins.
Viltu gera svo vel að birta
fyrír mig nokkrar línur um
það sem ég álít mjög alvarlegt
málefni.
Þriðjudaginn 5. þessa mán-
aðar kom ég að mjög hörðum
árekstri á gatnamótum Freyju
götu og Baldursgötu. Þar lenti
strætisvagn á sendiferðabíl og
stórskemmdi hann (ef ekki
eyðilagði). Ég heyrði á tal
manna um atburð þennan og
virtust allir á sama máli að
ökumaður strætisvagnsins
bæri alla ábyrgð á óihappi
þessu, og heyrði ég fólk hreita
ónotum í vagnstjórann, sem
tók þessar athugasemdir sem
sjálfsagðan hlut. Ég sneri mér
að ökumanni straátisvagnsins
og spurði hvað hann hefði um
þetta að segja og svaraði hann
eitthvað á þá leið að hann
hefði litlar málsbætur og bæri
sjálfsagt alla ábyrgð á þessu
þar sem hann væri keðjulaus
og mikil hálka. Ég spurði hann
þá af hverju hann væri keðju-
laus. Þá glotti hann og sagði:
„spurðu lögregluna. hún er
hér“, og benti á Lögreglúþjón-
ana, sem vor-u að mæla út
áreksturinn. Ég kastaði þessari
spurningu fram og svarið var:
,.spurðu vagnstjórann". Nú vil
ég £á þessu svarað, af hverju
strætisvagnarnir mega ösla hér
um götumar hvernig sem færð
in er keðjulausir? (Það hlýtur
einhver að vita þetta), en ég
mdnnist þess ekki að hafa séð
strætisvagn á keðjum, og mig
minnir að ekki sé nema 2-3
dagar síðan slys varð með
þeim hætti að strætisvagn
rann í hálku á mann á hjóli
og slasaði hann. Er ekki um
heldur mikla áhættu að ræða
hér og beinlínis verið að bjóða
slysunum heim með svona
háttalagi.
Svo vil ég að lokum benda
lögreglunni á að næst þegar
hún sendir í útvarpinu aðvör-
un til vegfarenda um hálku á
götum að hafa hana eitthvað
á þessa leið: Þar sem mikil
hálka hefur myndast á götum
borgarinnar eru vegfarendur
beðnir að passa sig á strætis-
vögnum.
Virðingarfyllst
Vegfarandi.
+ Hvað langar þig
helzt að vita, pabbi?
í dag svarar annar bíógest-
ur bréfi bíógests, sem birtLst
í Velvakanda 22. nóv. sl.:
Svar til bíógests. sem skrif-
aði í Velvakanda 22. nóv.
Hann segist vera mér ósam-
mála um að fólk yfir 16 ára
viti flest um kynferðismál.
Hann um það.
Mér þætti bara gaman áð
heyra, ef hann ætlaði að fara
að fræða strák eða stelpu, sem
væru komin yfir þennan ald-
ur, um þessi efni.
Ætli að færi ekki líkt fyrir
honum og pabbanum í skrítl-
unni, að loks þegar hanr. ætl-
aði að fræða son sinn, stálp-
aðan strák, um þessi mál. þá
spurði strákur bara: Hvað
vantar þig helzt að vita pafobi?
Það nær auðvitað engri átt
að vera að banna fólki að sjá
svolítið hressilegar kvikmynd-
ir, en það mætti alveg hafa
sama hátt á eins og hafður er
við hrollvekjandi myndir. Að
taugaveikluðu fólki eða við-
kvæmu fólki sé ráðlagt að sjá
ekki myndina, svo það eyði-
leggi ekki fyrir hinum.
Biógestur.
PACER 8TAR
Ijósprentunarvélin
fæst ennþá á
gamla verðinu
sem er
ÓTRÍ7LEGA LÁGT EÐA AÐEINS KR. 3.084.00.
Sisli <3. dofínsen 4
UMBOÐS- O G HE1L.DVERZI.UN
SÍMAR: 12747 -16647 VESTURGÖTU 45
Vesturgötu 45 — Sími 12747.
7[/ottiús
borðstofuhúsgögnin
ERU LANDSÞEKKT FYRIR
VERÐ OG GÆÐI.