Morgunblaðið - 14.12.1967, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. DES. 1967
21
- LAXNESS
Framhald af bls. 1
andi von um það, að Sin-
javski og Daniel verði látn
ir lausir í kringum bylt-
ingarafmælið og reyndar
höfðu borizt einhver tíð-
indi frá Sovétríkjunum
þess efnis, að jafnvel væri
von á náðirn til handa þess
um rithöfundum tveim,
sem nú eru búnir að vera
i betrunarhúsi síðan í
febrúar 1966.
Ég gerði ráð fyrir að
þetta væri einkabréf og
ætlaði ekki að láta prenta
það, ef náðun hefði komið
fram. Því skal ekki neitað,
að ég beið í miklu ofvæni
dagana fyrir 7. nóvember
eftir fréttum af þessum
rússnesku starfsbræðrum
mínum, en þeirra var ekki
minnst. Aftur á móti var
talað um að nú skyldi látið
til skarar skríða gegn þeim
litla hópi, sem hafði mót-
mælt þessum fangelsunum
i verki, SMOG-mönnunum
fjórum. <Jr því sem komið
er sé ég ekki ástæðu til að
liggja lengur á þessu
hréfi."
Hér á eftir fer bréf Lax-
ness til frú Furtsevui:
Reykija'vík, 14. ág. 1967.
Til mentamálaráffflierra
Sovétríkjanna virðulegrar
frú É. Fúrtsévu
Kreml
Moskva
Exilens,
Gamall frumkvöðull menn-
íngarlegra samskifta milli ís-
lands og USISIR, sem yður
eftilvill rekur mdnni til, rit-
ar yðar exilens að þessu sinni
vegna álhyggjiu sinnar af
ástandi sem þróast hefur fyr-
ir sérstakar opinherar til-
raunir sovéskar, sem gerðar
hafa verið ekki all-s fyrir
laungu til að draga bókment-
ir undir ákvæði refsilöggjaf-
arinnar. Ég hef sérstaklega í
huga dóma þá frá fyrxa ári
sem látnir voru gánga yfir
rithöfundana Siníavskí og
Daníel og frægir hafa orðið
um heim allan. Margir menn,
þarámeðal ég, litu á dóma
þessa sem slys og reiyrtdu að
afsaka þá í von um að náðun
kæmi fljótlega eða að mdnsta
kosti yrði ekki framhald á
slíkum vertoum. Ef svo skyidi
fara afturámóti, að hér væri
ætlunin að mynda upphaf
fastrar venju, einsog mála-
ferlin sem nú standa yfir
gegn SMOG kynnu að benda
til, þá horfir þúnglega fyrir
þeim mönnum vdða um heim
sem langar að efla við Sovét-
ríkin menníngarteingisl reist
á skilningi og samúð en eigi
hræsni.
Mig hefur tekið sárt að
horfa á hvemig vinátta við
Sovétríkin, svo meðal ein-
staklínga sem fjölmennra
hópa, einkum og sérílagi þó
meðal vinstrimanna, hefur
beðið hnekk og dofnað útaf
í vonleysi sem var bein af-
leiðíng af dómum þessum lítt
skidjanlegum, enda ekki ver-
ið tilraiun ger að rökræða þá
né útskýra af aðiljum sem
bera ábyrgð á þeim, Ég skal
láta nægja að minna aðieins
á eitt sorgardæmi sem leiddi
af þessum atburði, en það
voru þúngar foúsifjar sem af
hans völdum voru gerðar
Samlbandi Evrópskra Rithöf-
unda, CX>MEIS einsog það var
kaillað eftir fángamarki sínu
ítölsku, en samtök þessi áttu
sér höfuðstöðvar í Rómaborg.
OOMES var stöfnað af rithöf-
undum úr gervailri Evrópu,
sem aðfhyltiust hreinskdnar
viðræður milli starfsbræðra
úr rithöfundastétt. Grund-
völlur stofnskrárirtnar var sá
einn sem öllum ritihöfundum
er sameiginlegur, krafan um
rækt og vernd ritaðs orðs.
Var undi'rskilið að þessi hóg-
vær frum'skilyrði hókmenta
væru viðurkend og í heiðri
höfð af evrópskum þjóðum.
Ég hafði þann heiður að
starfa í stjórn þessa ham-
íngjusama félagsskapar, var
sömuleiðis einn af varafor-
setum hans, í góðri samvinnu
við maxga ágæta fulltrúa
evrópskra bókmenta, og voru*
á meðal Iþeirra elskulegir
starfsbræður og valmenni úr
ritihöfundastétt Sovétríkj-
arnna, menn einsog Badsjan,
Súrkof og TvardovskL Eftir
að tukthúsun rússnesku höf-
undanna tlveggja hafði verið
framin samkvæmit dómi í
felbrúar 1966 fór eins um
OOMES og margar aðrar
félagheildir sem stefndu að
vináttu og góðri samlbúð við
Sovétríkin: þessi aUsherjar-
samtök evrópskra ritlhöfxmda
voriu slegin lömuu og ómerk
ger af því grundveftlinum til
bókmentaisköpunar, hirwum
hógværu frumatriðum stofn-
skrár vorrar, hafði í verki
verið sagt stríð á hendur af
einu sterkasta stuðningslandi
samstakanna; hefur flélagið
ekki borið sitt barr siðan og
áftiior.£smiál hvort það sé leing-
ur lífs.
Endurvakníng á flomum
aðferðum rússnesku keisara-
stjórnarinnar og rómversk-
kaþólsku kirkjiunnar í við-
skiftum við gagnrýnendur
kennínga þjóðdifs og menn-
íngar Iheflur komið hart nið-
uir á vinum Slovétríkj anna
Viðsvegar um heim, ritlhöf-
undum listamiönnum og lær-
dómsmönnum, sem gerðu séi
vonir um að þetta sósíaiska
rikjasamiband, USSR, ætti
eftir að verða fyrirmyndar-
land heimsims þegar stundir
líða. Áttum. við það skiiið?
Rithöfuindar eru oflt harðir
gagnrýnendiuir og óvægir í
aðfinnslum hver heima hjá
sér og þykir ekki tiItökum'áiL
Sftíkum mönnum er gert erfitt
fyrir að ttialda hátíðlegt af-
mæli stjómarfoyltíngar sem
upþhaldsmönnu.m hennar
hefuir ekki á fimtíu árum
tekiist að þroska með sér
hæfileikann tft að mæta
gagnrýni betur en svo að þeir
telja rétt að svara rituðu orði
ekki með öðru rituðu orði,
ekki rökuim með andirökum,
heldur tukflhússdómum.
í mínu landi er hverjum
manni heimilt að gagnrýna
hvaða kenmíngu sem er, svo
og menníngu og þjóðfélags-
hiáttu eftir vild, og segja op-
infoerlega um ríkiisstjórnina
hvað sem hon-uim þóknast.
Takmörkun hugsanafrelsis
málfrelsis og prenflfrelsiis er í
stjórnarskrá voTri talin
óhæfa sem aldrei megi í lög
leiða.
Vér 'unnum rússnesku þjóð-
inni og Sövétlýðveldunum alls
hins besta, en oss er það of-
ætlun að hylla á þjóðhátíð
annans lands stjórnarfaxs-
reglur sem ekki viðurkenna
prentfrelsi og mállfrielsi og
ætla þeim riflhöfundum betr-
unarhússvinnu sem ekki vilja
hlíta ritsfcoðun. Vox skoðun
er sú að gaumgæfilega rit-
skoðaðar bókmentir verði yf-
irleitt ekki nefndax bók-
menflir nema með fyrixvara;
því þar sem lögregtlan ræður
bókmentum er ekki ancPleg-
ur samgángur frjáls milli
ólháðs Ihöfiundar og almenn-
íngs, heldur verður að semja
bækur fyrst og frennst til að
þóknast ritsfcoðaranum, það
er að segja lögreglunm.
Sem gama'll vinur rúss-
nesku þjóðarinnar vildi ég
leyfa mér að mæla með því
við yður, exilens, að þér vild-
uð niota áhrifavald yðar til
að rétta hlut ritaðs orðs í
Sovétríkjunum, Mentaðiir
menn, hvar sem er í heitni,
hvaða hugmyndir sem þeir
aðhyliast, og ég vona ekki
hvað síst í landi yðar sjálfrar,
bíða þess óþreyufullir að ein-
hver vísbending verði í té
látin um að haldið verði með
skynsemi á miáli sem er
fjarri því að vera markla.ust
frá sjónarmiði þess afmælis
er þér Ihaldið h'átíðlegt á
þeissu ári.
Með virðíngu og vinarhug,
Halldór Laxness
(íslenzkur riflhöfundur)
- ERLENT YFIRLIT
Framhald af bls. 19
landsins. Rúmenía var fyrsta
Austur-Evrópuríkið, sem tók upp
stjórnmálasamband við vestur-
þýzku stjórninEi, enda þótt sú
ráðstöfun sætti hartiri gagnrýni
annars staðar í Austur-Evrópu.
Ceusescu vill samstarf við öll
ríki, ef slík samvinna kemur
báðum aðilum að gagni og er
ekki bundin skilyrðum, sem að
hans dómi eru skerðing á full-
veldi Rúmeníu. Þess vegna hefur
hann gagnrýnt Rússa fyrir að
beita Rúmena efnahagslegum
þvingunum til þess að halda sjálf
stæðisviðleitni þeirra í skefjum
og fyrir að standa ekki við gerða
samninga um aðstoð við rú-
menskan iðnað af sömu ástæðu.
Hann hefur einnig frestað undir-
ritun nýs vináttu- og viðskipta-
samnings við Rússa. I texta samn
ingsins er talað um „huganslega
þýzka árás“. Hann vill, að þessi
setning verði þurrkuð út, því að
hann telur þetta orðalag úrelt
og heyra fortíðinni til.
Ceusescu hefur ekki átt sæti
í ríkisstjórninni og því ekki kom-
ið fram fyrir landsins hönd er-
lendis. Nú getur hann farið til
allra landa, sem hann hefur
áthuga á samvinnu við, sem þjó*ð-
höfðingi og flokksleiðtogi. Hann
keppir síður en svo að því að
slíta sundur öll tengsl við Rússa
eða alþjóðahreyfingu kommún-
ista, en telur að hlutverk sitt
sé í því fólgið að halda fram
sjálfstæði Rúmeníu. Hann eT
fremsti leiðtogi hins þjóðlega
kommúnisma. Tíminn leiðir í
ljós, hvort stefna hans, sem vík-
ur ekki frá sósíalistískum mark-
miðum, gerir rúmensku þjóðinni
lífið bærilegra.
Umrœður um
framtíð NATO
MERK skýrsla um framtíðar-
hlutverk NATO og leiðir til þess
að bæta samstarf aðildarland-
anna verður tekin til meðferðar
á ráðherrafundi bandalagsins í
Brússel í þessari viku, enda er
hér um að ræða eitt helzta mál
fundarins. Þessi skýrsla er kennd
við Pierre Harmel, utanríkisráð-
herra Belgíu, og varð til í tveim-
ur áföngum. Sérstök nefnd, sem
skipuð var til að fjalla um þessi
mál, skipaíði fjórar undirnefndir
undir forsæti hæfra manna, sem
fengu víðtækt umboð til þess
að gera tillögur án þess að binda
hendur ríkisstjórna aðildarland-
anna.
Fyrsta nefndin kannaði sam-
skipti austur og vesturs á öllum
sviðum, ekki aðeins í stjórnmál-
um. Afstaða var tekin til hugs-
anlegra samningaviðræðna um
almenna pólitíska lausn á mál-
efnum Evrópu, en einnig til
grundvallaratriða friðsamlegrar
sambúðar á hinum ýmsu svið-
um, t. d. að því er snertir skipu-
lagningu samgöngumála, m.a.
flugmála, og hafnargerð í Pól-
landi með vestrænu fjármagni,
en mikill áhugi er á því að
gerð verði höfn þar í landi er
geti tekið við útflutningi frá
Vesturlöndum. Þetta undirbún-
ingsstarf getur komið að gagni,
en Bonnstjórnin er andvíg rót-
rækum ráðstöfunum til þess að
draga úr spennunni í sambúð
austurs og vesturs nema því að-
eins að áfram miði um leið í átt
til lausnar á Þýzkalandsvanda-
málinu.
1 skýrslu annarrar undirnefnd-
ar um varnarmálin er komizt að
þeirri niðurstöðu, a'ð hin minnk-
andi spenna sé þróun sem hljóti
að verða hægfara og búast megi
jafnt við ávinningi sem áföll-
um. Til dæmis er búizt við því,
að kommúnistar skipuleggi mikla
herferð til þess að grafa undan
NATO á næstu tveimur árum.
Samt er mælt með því í skýrsl-
unni að halda skuli áfram að
fækka í herliði NATO og vinna
að afvopnun. Sýnt er fram á
stórkostlega sóun fjármuna, sem
varið er til varnarmála, enda
vinna aðildarlöndin-hvert í sínu
lagi a'ð vopnaframleiðslu og
hergagnavísindum og herráð
landanna vinna einnig hver í
sínu lagi.
Annar nefndarformaður, Paul-
Henri-Spaak frá Belgíu, samdi
skýrslu um samskipti banda-
manna innbyrðis og sagði, að
611 aðildarlöndin stæðu andspæn-
is því vandamáli að sporna gegn
því að Asía, Afríka og Suður-
Ameríka kæmust xmdir yfirráð
Rússa eða Kínverja og yrðu því
að móta sameiginlega utanríkis-
stefnu. Aðildarlöndin í Evrópu
yrðu a'ð vera hinn trausti horn-
steinn bandalagsins, og NATO
ætti einnig að marka samræmda
stefnu I efnahagsmálum. í fjórðu
skýrslunni, sem fjallar um sam-
búðina við þróunarlöndin, er
lagt til, að aðstoð við þróunar-
löndin verði samræmd.
I öðrum áfanga þessara um-
ræðna rannsakaði hin sérlega
nefnd skýrslumar fyrir hönd rík-
istjórnanna. Frakkar hafa alltaf
lagzt gegn því, að hlutverk eða
starf NATO verði fært út, og
„dúfumar" í NATO — Kanada,
Danmörk og Noregur — vildu
forðast áð láta hart mæta hörðu.
Sérstaka nefndin ákvað því að
semja almenna skýrslu, sem eng-
an gæti styggt, og þar er sagt,
að öflugt hernaðarbandalag sé
ennþá nauðsynlegt og ekki ósam-
rýmanlegt tilraunimum til þess
að bæta sambúð austurs og vest-
urs. Hvatt er til aukinnar stöðl-
unar á vopnum, áframhaldandi
rannsóknar sérfræðinga á fækk-
un í liðsaflanum og aukinna
rannsókna á ástandinu á Mið-
jarðarhafi þar sem sovézki flot-
inn er orðinn æði umsvifa-
mikill. Einnig er lögð álierzla
á, að hættulegt geti reynzt a'ð
aðildarlöndin friðmælist hvert í
sínu lagi við kommúnistaríkL
Eftir mikið þóf féllust Frakk-
ar á, að aðildarlöndin ráðfærð-
ust sín í milli um viðræður sín-
ar við kommúnistaríki um Þýzka
landsmálið, en eftir á að koma
í ljós, hvort þetta samkomulag
verði einhvers virði í reynd.
Franski utanríkisráðherrann,
Couve de Murville, hefur ekki
viljað undirrita lokaskýrsluna.
Þess vegna er ólíklegt, að ráð-
herrarnir birti nokkuð af nið-
urstöðunum eða ákveði að athug-
ununum skuli haldið áfram. Emb
ættismenn NATO er þó síður en
svo svartsýnir og segja, að banda
lagið geti beðið rólegt og séð
hvað setur. Almennt er talið,
að Frakkar muni ekki segja sig
úr bandalaginu, og hugsanlegt er
talið, að þeir snúi aftur til sam-
starfsins innan bandalagsins að
lokum.
Stetna Araba
enn óbreytt
UTANRÍKISRÁÐHERRAR Ara-
balandanna hafa nýlega lokið
þriggja daga fundi um stefnu
Araba gagnvart ísrael í ljósi síð-
ustu ályktunartillögu Öryggis-
ráðsins um ástandið í löndunum
fyrir botni Miðjarðarhafs og
væntanlegra sáttatilrauna hins
sérlega sendimanns Sameinu'ðu
þjóðanna, Gunnar Jarrings. Bráð
lega halda æðstu menn Araba-
ríkjanna fimmta fund sinn.
Þótt deilan við Israel sé mál
málanna í Arabaheiminum, veld-
ur ástandið í Jemen áhyggjum,
en þar hafa átök konungssinna
og lýðveldissinna færzt í aukana
síðan Egyptar hófu brottflutning
hersveita sinna frá landinu. Sér-
stök sáttanefnd, sem skipuð var
eftir að samkomulag tókst í
Jemenmálinu milli Nassers for-
seta og Feisals Saudi-Arabíu-
konungs á Khartoum-ráðstefn-
unni í haust, hefur ekki getað
jafnað ágreining lýðveldissinna
og konungssinna, þrátt fyrir
brottvikningu Sallals úr forseta-
embættinu fyrir skömmu.
Ekki er talið líklegt, að utan-
ríkisrá'ðherrafundurinn eða ríkis
leiðtogafundurinn muni valda
nokkrum verulegum breytingum
á stefnu þeirri, sem mörkuð var
í grundvallaratriðum á ráðstefn-
unni í Khartoum. öll aðildarlönd
Arababandalagsins nema Sýr-
land senda fulltrúa á ríkisleið-
togaráðstefnuna, sem væntanlega
verður haldin í Rabat og á að
hefjast á laugardaginn, en hvorki
Boumedienne, forseti Alsírs, né
Bourguiba, forseti Túnis, sækja
fundinn. Talið er, að Nasser hafi
beitt sér fyrir því að ráðstefnan
yrði haldin til þess að tryggja
vfðtæka samstöðu Araba áður en
Jarring hefur sáttatilraunir sín-
ar.
Afstaða Nassers er að ýmsu
leyti óljós, en að sögn frétta-
ritara Observers, Robert Steph-
ens, er hún nú í aðalatriðum
þessi:
Nasser hefur sagt, að ályktun-
artillaga Öryggisráðsins sé ófull-
nægjandi, þar sem ekki var til-
greint, að ísraelsmenn yrðu að
flytja á brott aUt sitt herUð frá
Sinaiskaga, en í Kaíró er álykt-
unin ekki talin ósamrýmanleg
arahískum hagsmunum. Það er
enn stefna aUra Araba nema
Sýrlendinga og að nokkru leyti
Alsírsmanna að reyna að koma
því til lefðar með pólitískum
fremur en hernaðarlegum ráðum,
að tsraelsmenn flytji burtu her-
lið sitt. Arabar vUja forðast
formlegan friðarsamning, beinar
samningaviðræður og formlega
og lagalega viðurkenningu á
ísrael. í síðustu ræðu sinni á
Nasser að hafa sagt, að friður
við ísrael væri útiloka'ður, en
hér var um þýðingarskekkju að
ræða og hann átti við friðar-
samning, en stefna hans er
óbreytt.
Arabar vilja fyrst tryggja
brottflutning ísraelska herliðs-
ins frá öUum herteknum svæð-
um, en síðan segja þeir að reyna
megi að finna varanlega póli-
tíska lausn, segir Robert Steph-
ens. Þeir virðast fúsir að semja
um, að endir verði bundinn á
styrjaldarástand, dregfð verði úr
vopnabúnaði á landamærasvæð-
um, frjálsar siglingar verði
leyfðar um Tiransund og um að-
gang að helgum stöðum í Jerú-
salem í sambandi við brottflutn-
ing ísraelska herliðsins. Endan-
leg pólitísk lausn mundi kveða
á um flóttamannavandamálið og
siglingar um Súezskurð, að
þeirra dómi. Markmið ísraels-
manna er að knýja fram eins
fullkomna og endanlega lausn
og mögulegt er áður en brott-
flutningur á sér stað, en mark-
mið Araba er að takmarka póli-
tískar tilslakanir á fyrra stigi
samningaumleitana til þess að
koma í veg fyrir að hægt verði
að beita þá þvingunum á síðara
stigi samningaviðræðnanna.
gm
Hafnarstræti 19
Sími 13835
Hamborgarar
GrUl-kjúklingar
Fish &Ohips
Nautasteik
Borðið á staðnum
Pantið og fáið sent
eða sækið