Morgunblaðið - 02.02.1968, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRUAR 190«
Skipulagsmál ASÍ:
Grundvallarstefnan samþykkt en
málinu frestað til hausts
— og fengið milliþinganefnd til meðferðar
FRAMHALDSÞINGI Al-
þýðusambands íslands lauk
um kvöldmatarleytið í gær.
Að loknum Iöngum og hörð
um umræðum um skipulags-
mál sambandsins var sam-
þykkt að lýsa yfir samþykki
við þá grundvallarstefnu,
sem mörkuð er í lagafrv. en
jafnframt ákveðið að taka
frv. til frekari meðferðar og
athugunar og leggja það síð-
an fyrir þing ASÍ í haust.
Var kjörin sérstök milliþinga
nefnd til þess að fjalla um
málið þangað til.
Þá var ennfremur gerð
sérstök ályktun um atvinnu-
og kjaramál og er í þeirri
ályktun lögð megináherzla á
útrýmingu atvinnuleysis,
styttingu vinnutíma án skerð
ingar tekna og verðtrygg-
ingu launa.
Loks var samþykkt að inn-
heimta 10 króna gjald af
hverjum sambandsfélaga til
Leiðrétting
í FRÉTT Mbl. í gær uim frv.
það sem fimm ritstjórar dag-
blaðanna í Reytkjavík, sem sæti
eiga á Alþingi. flytja um að kom
ið verði á fót kennslu í blaða-
mennsku við Háskóla íslands,
féll niður nafn eins flutnings-
manns, Mag.núsar Kjartansson-
ar. Leiðréttist þetta hér með.
þess að standa undir kostn-
aði við undirbúning skipu-
lagsbreytinganna.
Hér fer á eftir samþykkt
þingsins um skipulagsmál:
„30. þing A.S.Í., haldið í janú-
ar 1968, lýsir yfir samþykki
sínu við þá grundvallarstefnu,
sem mörkuð er í frumvarpi að
lögum fyrir Alþýðusamband ís-
lands á þingskjali nr. 1. Jafn-
framt ályktar þingið að kjósa
sjö manna milliþinganefnd er
taki frumvarpið til frekari með-
fei'ðar og athugunar í því
skyni að lagfæra og samræma
einstök ákvæði þess. Frumvarp
ið svo breytt verði síðan lagt
fyrir næsta reglulegt Alþýðu-
sambandsþing til fullnaðaraf-
greiðslu.
Milliþinganefndin sendi sam-
bandsfélögunum frumvarpfð
eigi síðar en í lok ágústmán-
aðar 1968.“
Eru bardagarnlr í S-Vietnam und
anfari enn stórfelfdari átaka?
SKÆRULIÐAR Viet Cong og
hermenn frá Norður-Víetnam
hófu á miðvikudag mestu
hernaðaraðgerðir sínar í allri
Víetnamstyrjöldinni til þessa.
Gerðu þeir hörkuárásir á
ýmsar m.kilvægar herstöðvar
herja Suður-Víetnams og
Bandaríkjamanna og einnig
á morgar borgir og bæi í
landinu. Þannig réðust sveitir
þeirra á ýmsar mikilvægar
byggingar og stöðvar í sjálfri
höfuðborginni, Saigon. Þá
náðu sveitir skæruliða og
Norður-Víetnam á sitt vald
borgunum Hue og Guang Tri,
eða miklum hluta þeirra, en
þær eru í norður hluta lands-
ins. Þá náðu þeir ennfremur
á sitt vald borginni Quin Hon
um miðbik landsins og í gær
bámst fréttir um, að borgin
Dalat, sem liggur talsvert
fyrir norðaustan Saigon hefði
fallið í hendur Viet Cong.
Dalat hefur um 40.000 íbúa.
í síðari fréttum segir, að
skæruliðar hefðu orðið að
l'áta undan síga í borgunum
Hue og Guang Tri, enda geta
þeir varla gert sér vonir um
að halda borgunum, þar sem
unnt er að beita skriðdrek-
um og öðrum áhrifamiklum
vopnum gegn þeim á virkari
hátt en í frumskógahernað-
inum. Bardagar héldu samt
áfram í gær bæði í Hue og
Guang Tri og einnig í Saigon,
enda þótt svo virtist þá, sem
skæruliðar hefðu ekki lengur
frumkvæðið í sínurn höndum.
Ljóst er, að með hernaðarað-
gerðum þessum, hafa gerzt
stórtíðindi í styrjöldinni í
Víetnam. Þetta eru ekki að-
eins stórfelidari hernaðarað-
gerðir en áður, heldur vekur
það ekki hvað minnsta at
hygli ,að sveitir Vieteong og
Norður-Víetnam hika ekki
lengur við að gera stórárásir
á borgir landsins, þar sem
öflugri varnir eru fyrir en
víðast hvar annars staðar.
Samt er jafnvel talið, að
þessar hernaðaraðgerðir séu
aðeins undanfari enn meiri
átaka annars staðar í landinu
og til Þess gerðar að draga
undir þau. Umhverfis banda-
undir þau. Umhvrfis banda-
rísku herbækistöðina Khe
Sanh í norðvestur horni Suð-
ur-Víetnam hafa Norður-Víet
nammenn safnað saman um
20.000 manna liði og öðrum
20.000 að mánnsta kosti innan
landamæra Laos og rétt fynr
norðan hlutlausa beltið milli
Suður- og Norður-Víetnam.
Samanlagt er þetta fjölmenn-
asta og bezt útbúna herlið,
sem Norður-Víetnam hefur
nokkru sinni safnað saman á
einum vígstöðvuim.
Til þess að mæta þessari
hættu, hefur Westmoreland,
yfirmaður herafla Bandaríkja
manna í Suður-Víetnam, látið
fjölga liði herbækistöðvarinn
Khe Sanh upp í 5000 manns
með því að koma í skyndi
upp loftbrú þangað. Ennfrem-
ur hefur mikið magn her-
gagna verið flutt þangað með
þessum hætti undanfarna
daga. Þá á allt herlið Banda-
ríkjamanna, sem ekki er of
fjarri Khe Sanh að vera við-
búið því að halda þangað, ef
nauðsyn krefur. Samanlagt
hefur Westmoreland safnað
saman 45.000 manna liði til
þess að vera viðbúið til gagn-
árásar eða varnar gegn hmu
40.000 manna liði frá Norð-
ur-Víetnam, sem talið er, að
kunni að hefja árás sína á
bandarísku herstöðina í Khe
Sanh þá og þegar.
Álitið er, að Vo Ngayen
Giap, hermálaráðiherra Norð-
ur-Víetnam, Sem frægur varð
fyrir herstjórn sína gegn
Frökkum við Dien Bien phu
á sínum tíma. stjórni sjálf-
ur undirbúningi árásinnar á
Khe Sanh. Til þessa hefur
allur unidirbúningur þarna
borið ÖU einkenni hertækni
hans, þaT sem saman fara
varkárni, yfirskinsárásir, ná
kvæmur undirbúningur og á-
A kortinu sjást borgirnar,
Quang Tri, Hue og Quin Hon,
sem voru að verulegu leyti í
höndum skæruliða Vietcong
og herliðs frá Norður-Víet-
nam, enda þótt tekizt hafi að
ná borgunum að töluverðu
leyti úr höndum þeirra að
nýju. Hins vegar náði Víet
cong á sitt vald borginni Dal-
at norðaustur af Saigon í
gær. Miklir bardagar urðu
einnig í sjálfri höfuðborginni
einkum á miðvikudag.
herzla á að safna saman geysi
miklu herliði og skotvopnum.
Allar líkur benda til, að inn-
an skamms muni hefjast
þarna fyrsta mieiri háttar or-
nu'sta Víetnamstyrjaldarinn-
ar, þar sem beitt verður hern
aðaraðferðum sambærilegum
þeim, sem áður þekktust
með venjulegum vopnum og
verði því frábrugðin skæru
liðaaðferðum frumskógahern
aðar, sem einkum hafa ein-
kennt styrjldina til þessa.
Enn hafa átökin við Khe
Sanh ekki hafizt, en ef álit
hernaðarsérfræðinganna í
Víetnam standast, má vænta
stórkostlegra tíðinda næstu
daiga frá Víetnam, sem ízt
mun standa í skugga þeirra
atburða, sem gerzt hafa þar
undanfarma daga.
!h*A
mtj
Vss IjF
UTAN ÚR HEIMI
i
Mirmingarsjóður
um Þórarin Björns-
son skólameistara
NEMENDUR og samstarfsmenn
Þórarins Björnssonar, skóla-
meistara, hafa ákveðið að beita
sér fyrir stofnun minningar-
sjóðs við Menntaskólann á Ak-
ureyri, er beri nafn hans. Fram
lögum til sjóðsins verður veitt
viðtaka á Akureyri hjá hús-
vetði Menntaskólans þar og í
Reykjavik í Bóksölu stúdenta
í Háskólanum og hjá Bóka-
verzlun S. Eymundssonar í
Austurstræti. Þess er óskað, að
þeir, sem gerast vilja stofnend-
ur sjóðsins og tök hafa á því,
riti nöfn sín á skrár, sem
frammi liggja á ofangreind-
um stöðum.
Þótt frumkvæðið komi frá
ofangreindum aðiljum, er hér
um almennan sjóð að ræða, sem
veitir viðtöku framlögum frá
öllum þeim, er minnast
vilja Þórarins skólameistara og
styrkja vilja sjó'ðinn. Stofnend
ur, sem ekki geta komið því
Leii að týnda
kafbátnum hætt
Toulon, 1. feb. NTB
MIKILL fjöldi skipa og þyril-
vængja, sem leitað hefur að
franska kafbátnum „Minierve“
á Miðjarðarhafi, beið í kvöld
eftir fyrirmælum frá París um
að hætta leitinni. Lítil sem eng
in von er talin tU þess að 52
manna áhöfn bátsins finnist á
lifi. ,
við að rita nöfn sín á framan-
greinda skrrá, eru beðnir að
hafa samband við aðilja þá, er
taka við framlögum. Verða
nöfn þeirra þá skráð á stofn-
endaskrá. Minningarspjöld
verða gefin út í tilefni af sjóðs-
stofnuninni og eru fáanleg á
fyrrgreindum stöðum.
í stofnunamefnd sjóðsins
hafa valizt: Steindór Steindórs-
son, settur skólameistari, Ar-
mann Snævarr, háskólarektor,
Baldvin Tryggvason, forstjóri,
Bryndís Jakobsdóttir, frú, Jón
Héðinn Ármannsson, alþingis-
maður, og Sigur'ður Hallsson,
efnaverkfræðingur.
Reykjavík, 1. febrúar 1968
F.h. stofnnefndar,
Armann Snævarr.
Meistaraprófs-
fyrirlestrar í
*
Háskóla Islands
FLUTTIR verða tveir opinberir
fyrirlestrar í Háskóla íslands við
meistarapróf í íslenzkum fræð-
um.
Try.ggvi Gíslason stud. mag.
fjallar um Áhrif kristninnar á
íslenzkan orðaforða að fomu, og
Vésteinn Ólason stud. mag. svar-
ar spurningunni: Er Snorri höf-
undur Egils-sögu?
Báðir fyrirlestrarnir verða
fluttir laugardaginn 3. febrúar í
I. kennslustofu Háskólans. Hefst
hinn fyrri kl. 2.15 e.h., en hinn
síðari kl. 3.15 e.h.
(Frá Háskóla íslands)
Fjölmenn úffiör
Halldóru Ólafsdóttur
MINNINGARATHÖFH í MA
í GÆR var gerð frá Fossvogs-
kapellu útför Halldóra Ólafs-
dóttur, skólameistarafrúar frá
Akureyri. Séra Bjarai Sigurðs-
son, prestur á Mosfelli, flutti
minningarræðu og komst m.a.
þannig að orði, að frú Halldóra
hefði verið í senn móðir Mennta
skólans á Akureyri og drottn-
ing.
Sungnir voru sálmamir „Ég
kvei'ki á kerturn mínum“, eftir
Daivíð Stefánsson, og „Faðir and
anna“. Ennfremiur var sunginn
skólasöngur Menntaskólans á
Akureyri „Undir skólans mennta
merki“ og að lokum „Allt eins
og blómstrið eina“. Ragnar
KEFLAVÍK
SJÁLFSTÆÐISFÉLAG Kefla-
víkur heldur aða.lfund sinn á
laugardag kl. 16 í Æskulýðs-
hei'miliinu, Austurgötu 13. Venju
leg aðailfundarstönf. ,
Flugslysi afstýrt
Chicago. 1. feb. (NTB)
BANDARÍSK farþegaþota, sem
var að koma til lendin.gar é flug
velli við Chioago, rakst á há-
spennulínu og varð fyrir tals-
verðum skemmdum. Flugstjóran
um tókst þó að hafa stjórn á vél
inni og fljúga henni 400 kíló-
metra leið til Bunker Hill flug-
vaillarins við Indianapoíis. Þar
lerati flugvélin heilu og höMnu.
Vél þessi er frá Trans World
Airlines flugfélaginu, og voru
37 farþegar um borð þegar á-
reksturinn varð, en engann
þeirra sakaðL
Bjrnsson lék á orgelið. Míkið
fjölmenni var Við útförina.
KLUKKAN 10.45 í gær morgun
fór fram látlaus en háöíðleg
minningarathöfn um frú Hal'l-
dóru í Menntaskólaraum á Akur-
eyri. Þar flutti Brynjólifur Sveins
son, yfirkennari nokkur kveðju
orð frá eigin brjósti og las síð-
an minningarræðu efti.r Stein-
dór Steindórsson, sem nú gegn-
ir skólameistarastörfuim, en
hann hafði farið til Rejikjavík-
ur til að vera viðsta'ddur út-
förina. Keransla var feUld niður
í skóluim, það sem eftir var dags
ins.
KR-ingar
sigruðu
INNANHÚSMÓT í knattspyrna
fór fram í íþróttahöllinni í Laug
ardal í gækvöldi, en mót þetta
var haldið í tilefni af afmæli
félagsins. KR-ingar báru sigur
úr býtum í viðureign þessari, en
þeir sigruðu Keflvíkinga í úr-
slitum með 4:1.
Þá fór þarna einnig fram leik-
uir milli Harðj'aixlanna, sem eru
gamlar kraattspyrnustjörnur úr
KR, og Bragðarefanna, en það
er skipað gömluim knaittspyrnu-
stjörnum úr Fram. Sigruðu hin-
ir fyrrraefnidu mieð 6:4. Loks
léku svo Dýrlingamir þ.e.
íþróttafréttaritarar, gegn stjórn
Fram, og urðu Dýrlingarnir
fyrir því óhappi að tapa þessum
leik 4:1, enda vantaði nokkra
I a.f beztu mönnunum í liðið.