Morgunblaðið - 02.02.1968, Blaðsíða 4
4
y*-r
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2, FEBRUAR 130«
r
»•£>SIM' 1-44-44
mnim
Hverfisgötu 103.
Símí eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
IP^/Lffff^ff’
RAUDARARSTÍG 31 SÍMI 22022
Nýr sími
23-222
SENDIBÍLAR HF.
Einholti 6.
BEZT að auglýsa
1 Morgunblaðinu
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
★ Enginn kvikmynda-
sensor hjá
Sjónvarpinu?
Unnur skrifar:
Velvakandi góður!
Pistlar þínir eru alltaf vel-
komnir inn úr dyrunum hjá
mér daglega. Oft hefUr mig
langað til að hreyfa ýmsu við
þig, en það er svo ríkt í ís-
lendingsins eðli að kyngja því
er aflaga fer og er ég víst
engin undantekning. En í þetta
sinn get ég ekki orða bundizt
Mig langar til að udirstrika
þau bréf er þú hefur fjallað
um útaf mynd er sýnd var
nýiega i sjónvarpinu og end-
ursýnd þar að auki — Vasa-
þjófur. Ég horfði á alla mynd-
ina, hvorki mér til gagns eða
gleði, ég vildi aðeins sjá þenn-
an viðbjóð frá upphafi til
enda.
Laugardagskvöldin eiga að
vera fjölskyldukvöld, þar sem
fjölskyldan getur setið við
þetta dásamlega skemmtitæki.
Þess vegna gagnrýni ég harð-
lega — sem móðiir — sjón-
varpið fyrir svona mistök, því
mistök hljóta það að vera, að
hella yfir heimilin, þvílíkum
óþverra.
Mér þykir vænt um sjónvarp
ið því marga unaðsstund hef-
ur maður átt með því mjög
margar — ég vil aðeins nefna
örtfá dæmi, t.d. Polyfónkórinn,
— Þætti Þorkels Sigbjörnsson-
ar, ferðamyndir Ásgeirs Long,
sem eru það undurfagrar að
maður nœstum upplifir sum-
arið í skammdegiséljunum við
að horfa á þær og m.fl.
Það er aldrei sársaukalaust
að gagnrýna það sem manni
þyki vænt um, en ég veit að
fyrir þessi mistök hefur sjón-
varpið misst margar af sínum
aðdáendum. Að endingu vil
ég aðeins spyrja: Er engin
kvikmyndacensor hjá sjónvarp
inu? Ef svo er, þá er eitthvað
að?
Unnur."
Þátt fyrir
stofublóm
Næst skrifa tvær konur,
sem kalla sig biómaunnendur:
Velvakandi.
Við erum hér tvær áhuga-
samar konur um ræktun stofn
blóma, og okkur langar að
biðja þig að hreyfa máli sem
við og áreiðanlega margar kon
ur hafa sama áhuga ó. En það
er að biðja sjónvarpið að hafa
handa okkur þátt fyrir stofu-
blóm. Það var einn þáttur í
fyrra um blóm og hann var
mjög góður. En við þurfum
fleiri, og fleiri en einn á vetri.
Þeir mættu vera stuttir en
margir á þeim tíma er verið
er að búa blómin undir sum-
arkomuna. Til eru bækur um
blóm en >kkur finnst þær ó-
fullnægjandi. Það er annað
að fá að sjá og heyra um með-
ferð bióma, það yrði meira lif-
andi fræðsluefni. Við ímynd-
um okkur að fleiri konur yrðu
til að láta í ljós áhuga á þessu
máli, ef við því yrði hreyft
í þínum þætti.
Með fyrirfram þökk.
Blómaunnendur.
Bækur, sem erfitt
er að fá
„Ein afskaplega forvit-
in“ skrifar:
Velvakandi.
Undanfarin 4—5 ár hefur
mig vantað mjög bagalega ísl.
enska orðabók, sem er gjör-
samiega ófáanleg hér í bóka-
búðum. Getur þú Velvakandi
góður frætt mig á því hvers
vegna í ósköpunum þessi nauð
synlega bók er ekki gefin út
aftur þar sem hún hefur ver-
ið uppseld fyrir löngu síðan?
Hvernig fara skólanemendur
að, við stílagerð? Á mínu heim
ili hefur þetta valdið miklum
óþægindum. Á hverju hausti
hefi ég fengið sama svarið í
bókabúðunum hér í borg —
„Hún er væntanleg um ára-
mótin“ og um áramót er svar-
ið — „Hún mun kom í vor“
og á vorin — „Hún kemur
áreiðanlega í haust áður en
skólarnir byrja.“
Nú langar mig að spyrja:
Hve mörg ár á ísl. skólafólk
að bíða ennþá?
Svo langar mig að minnast
á aðra ólíka bók. Ég eignaðist
fyrir mörgum árum, smá kver
í vasabókarbroti Ann Pilis-
bury’s Baking Book. Sennilega
er það sarna fyrirtækið, sem hér
var með bökunarkeppnina í vet
ur, er gefið hefur þessa köku-
bók út. Og nú verð ég að segja
þér mína harmasögu. Ég er bók
starflega búin að „baka bók-
ina upp til agna“ — (saman-
ber bækur voru lesmar upp til
agna hér áður fyrr). Þetta er
fortakslaus sú langbezta og
handhægasta bökunarbók, sem
ég hefi notað (að öllum öðrum
matreiðslubókum ólöstuðum).
Ég hef alltaf verið viss um
að baksturinn tekst vel sama
hvort það eru brauð úr pressu-
geri ,kex, smákökur eða hinar
fínustu tertiu'. En nú er hver
síðastur, baksturinn úr þessari
litlu bók. — Hún er öll komin
í sundur af sliti og handfjötl-
un, og hvergi hefi ég getað
fundið samskonar bók hér í
bókabúðum.
Velvakandi góður, reyndu
nú að komast að því fyrir mig,
hvort Ann Pillsbury fyrir-
tækið hefur ekki gefið út nýja
kökubók og komdu því á fram
færi hve mikill fengur það
væri fyrir okur húsmæðurnar
ef þessi bók yrði þýdd á ís-
lienzku.
Jæja, þá er nú síðasta
kvabbið.
Segðu mér einhver deili á
þeim ágætu mönnum Sigmund
teiknara og Bjarna Sigurðs-
syni (Vetur í sveit) sem gera
Morgunblaðið svo miklu rík-
ara. Helzt vildi ég fá viðtals-
þátt við þessa — gullkorna-
smiði — ásamt mynd.
Ein afskaplega forvitin.
Verkstjóri
og prestur
Velvakanda er ljúft að
veita nánari upplýsingar um
hyerjir þeir eru Sigmund
teiknari og Bjarni Sigurðsson.
Sigmund er verkstjóri hjá
frystihúsi í Vestmannaeyjum.
Honum er margt til lista lagt
og hefur hann fundið upp
ýmis tæki, sem að gagni koma
í sambandi við fiskiðnað.
Bjarni Sigurðsson er prestur,
situr á Mosfelli og nær presta-
kall hans hér allt niður að
Elliðaám,
Spjaldskrárstúlka
Viljum ráða stúlku til starfa við spjaldskrá i vara-
hlutaverzlun. Vélritunarkunnátta æskileg. Tilboð
leggist inn á blaðið, merkt: „50il“.
Skrifstofustúlka óskast
Af sérstökum ástæðum óskast vön skrifstofustúlka
Yi eða allan daginn til 1. júlí n.k.
Skrifstofa rannsóknastofnana atvinnuveganna.
Simi 20240.
rfl r r\ r 1 Iresmioavelar Skrifstofustarf
Sérverzl'un m,eð byggingarvÖTur, óskar ©ftir skrif-
Til sölu hjólsög, DELTA og 16 tommu bandsög., stofustúlku. Verzlunar- eða stúdentsmenntun.
Hjólsögin er ný. Uppl. í síma 50564. Umsókn sendist blaðinu fyrir 7. þ.m. merkt: „Fram-
tíð 5363“.
Hafnfirðiii£ar r MA 1960
Höfum opnað kvöid- og helgarsölu. — Stúdentar frá MA árið 1960. —
Mjólk, brauð, ávextir og fleira. Fundur í kvöld, 2. febrúar, kl. 21.00.
HRAUNVER, Álfaskeiði 115. , Fundarstaður Hótel Loftleiðir, Snorrabúð.
Hafnfirzkar húsmæður
ALLT í HELGARMATINN.
Meðal annars: Svartfugl, lundi, svínakjöt, nautakjöt,
og folaldakjöt.
Verzlið þar sem úrvalið er mest. — Sendum heiim.
HRAUNVER, Álfaskeiði 115.
Sími 52690.
IIJÓLSÖC
Góð hjólsög óskast til kaups.
Upplýsingar í síma 41690, 14477.
ÚLFAR GUÐJÓNSSON, H.F.
Auðbrekku 63, Kópavogi.
/