Morgunblaðið - 02.02.1968, Qupperneq 7
7
«fi«' n/-Tr<rfrsni s anoAi; jTfVyn mfírt.TKWTíwrw
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1968
Frtðrik kóngur á enga prinsessu
handa
MER
„JA, já, þetta er alveg rétt
hjá þér, Friðrik. Friðrik
kóngur er búinn að gifta all-
ar sínar prinsessur, og engin
er eftir handa mér, og hefði
piér þó fundizt, að Lukku-
borgarættinni hefði ekki
veitt af því, að fá íslenzkt
víkingablóð inn í sínar gömlu
og lúnu æðar“.
Það er Selsvararkappinn,
Pétur Hoffmann, sem þannig
byrjaði samtalið, þegar við
hittum hann á förnum vegi
í gær, þar sem hann rigsaði
um i slánni með silfurhnöpp-
unum, sem bera mynd vík-
ingaskips og Bárður Jóhann
esson sló handa kappanum.
„Sláin? Já, þetta er
Ulsterslá, eins og þeir bera
lögreglumenn í Vestur-Evr-
ópu og írlandi. Já, og þó sér-
staklega í Frakklandi. Þeir
slé nefnilega um sig þarna í
París. Eins og þú veizt et
það borg ástar og ævintýra,
kjörborg íslendinga, afkom-
enda Göngu-Hrólfs og fleiri
kappa.
Það er ekki að undra, þótt
hnapparnir á slánni séu með
mynd af víkingaskipi, því áð
alþjóð veit, að það stendur í
ævisögu minni, sem hann
Stefán hjá Útvarpinu tíndi
saman, að ég hafi „yfirfallið“
heilt skip, sem hafði 14
manna áhöfn, tekið stjórnina
í mínar hendur, og geri aðrir
betur“, sagði Pétur og dæsti
enda var nú Sölvi sveittur.
„Ertu búinn að fá Bene-
diktupeningana út úr tolli?“
„Ég held nú það, og Bún-
aðarbankinn á heiður og
þökk skilið fyrir alla þá að-
stoð. Ég fékk svolítinn gjald-
eyri til þessa arna. Annars er
ég 100% sajnþykkur því, að
við spörum gjaldeyri eins og
við getum.
En ég á smáögnina af
hverri, krónprinsessunni,
henni Margréti, sem giftist
þessum með franska nafnið,
sem enginn getur borið rétt
fram, henni Önnu Maríu, sem
fór með honum Konstantín í
útlegðina til Rómar, og
missti fóstur fyrir vikið. Ég
vorkenni alltaf þeim hjóna-
kornum, svona eilítið, en pen-
„Engin prinsipissa eftir handa mér, en má annars ekki bjóða
þér í nefnið, lagsi?“ sagði Pétur Hoffmann, þegar við áttum
tal við hann um minjapeningana um prinsessumar í Dana-
veldi, sem honum eru um stund gengnar úr greipum.
ingurinn með mynd þeirra er
augnayndi. Síðast en ekki
sízt á ég fallegan silfurpen-
ing með mynd Benediktu,
sem er að ganga í það heilaga
rétt um þessar mundir, og
hann er nú sérstaklega til
sölu.
Nú er úti veður vont, og
þessvegna tel ég það trygg-
ara að selja þessa peninga
heima hjá mér á Bergstaða-
stræti 8, og ég hef m.a.s. síma
15278. Auðvitað slæ ég mér
stundum út. Var ekki Snorri
í Reykholti líka kvennamað-
ur, en yfirleitt má segja, að
ég sé alltaf við, og auðvitað
máttu bæta því við til vina
og velunnara, að hvar sem ég
sésit á gangi í silánni góðu
með silfurhnöppunum hans
Bárðar, þá er mig að hitta
með alla peningana á mér.
Svo ég minnist aftur á
kóngafólkið, sem myndir eru
af á þessum peningum, sem
ég nú hef til sölu, þá hef ég
alltaf samúð með því. Þetfca
er fjötrað fólk. Já, það er ör-
uggt. Þetta er fjötrað fólk.
Það má ekki leyfa sér alla
hluti, það má ekki giftast
þeim, sem það elskar að jafn-
aði. Néi, það verður að gift-
ast einhverju kóngaslekti,
eins og það er nú orðið upp
á síðkastið.
Nei, sjáðu nú til, lagsi og
minn góði vinur. Mér er allt-
af vel til þessa fólks, sem
hnippir í mig á götu og falar
af mér þessa merku silfur-
peninga. Og af hverju
spyrðu. Það skal ég segja
þér, það er vegna þess, að
mín reynsla hefur kennt mér,
að í mig hnippir ekki nema
gott fólk. Islendingar eru,
þrátt fyrir allit og allt, eitt-
hvert bezta þjóðarríki, sem
nú byggir þessa jarðarkúlu."
Og með það var Pétur horf
inn af förnum vegi og rokinn
út í rokið. Við horfðum á eft-
ir honum í slánni, þar sem
hann gekk keikur og stoltur,
því að það er hann, og má
vera, austur Austurstrætið,
langa fórtóvið í gamla daga,
staðnæmdist stundarkorn við
Útvegsbankavegginn, minnug
ur sumardaga, sætra og
langra, þegar ekki var úti veð
ur vont, en sól allstaðar um
sund og voga. — Fr. S.
peningarmr ur Danaveldi
Vinna óskast
Kona óskar eftir eldhús-
störfum. önnur hliðstæð
sitörf koma til greina. Uppl.
í sima 22150.
Akranes
4ra herb. íbúð til leigu á
Akranesi. Nánari uppl. gef-
ur Lögmannsskrifstofa Stef
áns Sigurðsson, Vesturgötu
23, sími 1622.
Berklavörn Reykjavíkur heldur
Félagsvist
í Danssal Heiðars, Ástvaldssonar, Brautarholti 4,
l.augardaginn 3. febr. kl. 8.30. — Góð verðlaun.
SJÓ-MENN
Vantar vanan háseta á netabát frá Grindavík strax.
Uppl. í síma 92—8107 eða 40957.
Sendisveinn óskast
hálfan eða allan daginn.
A (Álii i? UZilcli
VestuiTgötu 29.
Viljum ráða nú þegar
ungan og reyndan sölumann til að selja snyrtivörur
o.fL
Kirkjuhvolii.
2ja og 3ja herb. íbúðir
Til sölu eru skemmtiliegar 2ja og 3ja henbergja fbúðir
í sambýlishúsi á góðum stað í Breiðholtshverfi. Selj-
ast tiltbúnar undir tréverk og samieigin úti og inni
frágengin. Húsið er niú að verða fökhelt, en íbúðirnar
afhendast 1. ágúst n.k. Ágætt útsýni. Tvennar svalir.
Teikning til sýnis á sfcrilfstafunni. Hagstætt verð.
ÁRNI STEFÁNSSON, HRL.
Málflutningur. Fasteignasala.
Suðurgötu 4. Sími 14314.
Kvöldsími 34231.
íbúðir til sölu:
3ja herb. íbúð á 4. hæð við Ljósheima.
4ra herb. íbúð á 3. hæð við Ljósheima.
5 herb. íbúð á jarð’hæð við Reynfhvaimm í Kópavogi,
Einbýlishús á Flötunum.
Raðhús á Flötunum, og margt fleira.
Skíp & Fasteignir
AUSTURSTRÆTI 18 • SÍMl 21735 • EFTIR LOKUN 36329
6. jan. sl. voru gefin saman í
hjónaband af séra Jóni Thoraren-
sen, ungfrú Guörún Norberg og
Sigfús Sigfússon, viðskiptafræð-
ingur. Heimili ungu hjónanna er
að Víðimel 66.
Nýlega hafa opinberað trúlofun
sína ungfrú Lóa Hjartardóttir,
Bergstaðarstræti 59, Rvík, og Hall-
grímur Smári Jónsson, Digranes-
vegi 60. Kópavogi.
Spakmœli dagsins
Himinninn er aldrei heyrnarlaus
nema gegn því hjarta sem er mál-
laust. — Quarles.
LÆKHAR
FJARVERANDI
Læknar fjarverandi
Þórhallur B. Ólafsson, fjarver-
andi fram á mánudag. Ólafur Jóns
son, Domus Medica, gegnir störf-
um fyrir hann á meðan.
i^
Kristniboðssamkoma í KEFLAVÍK
KEFLAVÍK: Kristniboðsvikan. Samkoma í kirkjunni í kvöld kl.
8.30. Litmyndir. Jón Dalbú Hróbjartsson og Jóhannes Sigurðsson
tala. Allir velkomnir. Barnasamkoma er kl. 5,30. Myndasýning. —
Kristniboðsambandið.