Morgunblaðið - 02.02.1968, Side 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 1968
Handritamálið og hin nýja
ríkisstjórn Danmerkur
NÚ fara fram stjórnarskipti
í Danmörk. Um þau hefur
veriS mikiS ritaS undanfarna
daga, en gert er ráS fyrir, aS
nú taki viS stjórn borgara-
flokka í staS sósíaldemókrata.
Eitt er þaS mál, sem vert er
fyrir okkur Islendinga aS
veita athygli í sambandi viS
þessi stjómarskipti, en þaS er,
hvort þau kunni aS hafa ein-
hver áhrif á handritamáliS,
enda þótt þaS mikilvæga mál
hafi hlotiS endanlega af-
greiSsiu danska ÞjóSþingsins í
maí 1965 meS samþykkt lag-
anna um afhendingu handrit-
anna.
Þegar lögin um handrita-
málið voru afgreidd, greiddu
allir þingmenn sósíaldemó-
krata og radikala atkvæði
með frumvarpinu. Ennfremur
greiddu atkvæði með því 10
þingmenn úr flokki Venstre, 7
úr SF-fldkknum, 2 íhalds-
menn og 1 utan flok'ka. Á
móti voru 26 íhaidsmenn, 22
úr Venstre, allir þingmenn
Óhiáða flokksins, 1 úr SF og 1
utan flokka. Alls voru iögin
samþykkt með 104 atkvæðum
gegn 58, 4 sátu hjá og 14 voru
fjarverandi.
Samkv. 3. gr. laganna á
nefnd skipuð tveimur fulltrú-
um Kaupmannahafnarháskóla
og tveimiur fulltrúum Háskóla
fslands að gera tillögur um,
hvaða handrit og skjöl úr
Árnasafni eigi að afhendast
íslendingum, en síðan á að
leggja þessar tillöigur fyrir
danska forsætisnáðiherrann,
sem kveður uipp endanlegan
úrskurð efíir viðræður við
danska og íslenzka mennta-
málaráðherrann. Hins vegar
lýsti Jens Otto Krag forsætis-
ráðherra fráfarandi stjórnar
því yfir, að hann myndi hafa
samráð við viðurkenndan
vísindamann utan Norður-
landa um atriði, sem hinum
dönsku og íslenzku nefndar-
mönnum kæmi ekki saman
um. Hilmar Baunsgaard, sem
verður forsætisráðiherra hinn-
ar nýju dönsku stjórnar,
verður hins vega vart tal-
inn bundinn af þessari yf-
irlýsing.u Krags, þannig, að
skoðanir hans varðandi
framangreind atriði kunna
að skipta miklu máli. Af-
staða hans í heild til hand-
ritamálsins er hins vegar
feunn, því að hann greid'di at-
kvæði með frumvarpinu á
sínum tíma eins og allir aðrir
þingmenn Radikale Venstre
samkv. framansögðu.
Vegna stjórnarskiptanna í
Danmörk er ekki úr vegi að
’rifja upp afstöðu þeirra
flokka, Radikale Venstre,
íhaldsflokksins og Venstre,
sem mynda munu næstu ríkis
stjórn Danmerkur svo og um-
mæli leiðtoga þeirra eða þing-
manna þeirra, sem létu hand-
ritam’áhð til sín taka, eir það
var til umræðu í Þjóðþinginu
1965.
Eins og þegar hefur verið
getið, studdu þingmenn Radi-
kale Venstre óskiptir hand-
ritamálið, er það var afgreitt
sem lög í maí 1965. Helveg
Petersen tók þátt í umræðun-
um um frumvarpið af hálfu
radikala og sagði þar m.a., að
spurningin um afhendingu
íslenzku handritanna væri
ekki fyrst og fremst spurning
um lög eða vísindi. Það væri
fyrst og fremst spurning
um, hvort Danmörk sýndi góð
an vilja og skilning á málefni,
sem orðið væri ósegjanlega
mikilvægt hinni íslenzku
þjóð.
Poul Möller leiðtogi íhalds-
flokksins hefur fyrr og síðar
verið hvað ákafastur danskra
stjórnmálamanna gegn því,
að handritin væru afhent
Íslendingum. Þegar frum-
varpið um 'handritamálið
var fyrst lagt fram í
danska Þjóðþinginu og af-
greitt þaðan sem lög 10. júní
1961, var það Möller, sem
hafði foryztu fyrir því, að
Poul Möller
Poul Hartling
hafizt var handa um að safna
undirskriftum meðal þing-
manna í þvi skyni að frestað
yrði að fá staðfestingu kon-
ungs á lögunum á þeim for-
sendum, að um eignarnám
væri að ræða, en samkv. 73.
gr., 2. máisgrein dönsku stjórn
arskrárinnar er unnt, þegar
lagafrumvarp snertir eignar-
nám, fyrir þriðjung þing-
manna Þjóðþingsins að krefj-
ast slíks innan þriggja daga,
frá því að slíkt frumvarp var
samþykkt. Skal frumvarpið
ekki hljóta staðfestingu kon-
ungs, fyrr en þingkosningar
hafa farið fram að nýju og
frumvarpið verið samþykkt á
nýjan leik af hinu nýkjörna
þingi.
Möl'ler tókst að fá undir-
Hilmar Baunsgaard
skrift 61 þingmanns, og enda
þótt Jens Otto Krag forsætis-
ráðherra féllist ekki á eignar-
námissjónarmiðið, gerði hann
það heyrinkunnugt, að hann
myndi taka frestunina til
greina. Þannig frestaðist það
um fjögur ár, að handritalög-
in voru afgreidd endanlega.
Þá varð Poul Möller einnig
aðalhvatamaður þess 1965,
eftir að frumvarpið hafði ver-
ið samþykkt, að fram yrði lát-
in fara þjóðaratkvæðagreiðsla
um handritamálið samkv. 42.
gr. dönsku stjórnarskrárinn-
ar.' Til gamans má geta þess,
að samkvæmt stjórnarskránni
má ekki beita þjóðaratkvæði,
ef um eignarnámslög er að
ræða, þannig að Foul Möller
og fýlgismenn hans tóku koll-
steypu í málinu. Til þess að
heimi'la þjóðaratkvæða-
greiðslu þurfti einnig und-
irskriftir 60 þingmanna, en
þessi atlaga mistókst. Kröf-
una undirrituðu aðeins 57
þingmenn.
!Þá mlá einnig geta þess, að
Poul Möller gaf út bók um
handritamálið sem hann
nefndi ,,De islanöske hánd-
skrifter i dokumentarisk be-
lysning“ og hlaut hún mjög
misjafna dóma fxæðimanna
nerna þá helzt prófessors
C’hr. Westergaard-Nielsen sem
verið hefur mikill andstæðing
ur fslendinga í handritamál-
inu ásamt Bröndun-Nielsen
prófessor.
í umræðum í Þjóðþinginu
hafnaði Möller hugtakinu
menningareign, sem sam-
kværnt skoðun hans hafði ver-
ið fundið upp í því skyni, að
unnt yrði að skapa mæli-
kvarða um, hvaða handrit
ætti að afhenda. Þennan
mælikvarða væri hins vegar
ekki unnt að nota, án þess að
til deilu kæmi milli Danmerk-
ur og íslands, og það væri
engin ástæða til þess að
öfunda forsætisráðherrann,
sem ætti að vera gerðardóm-
ari, ef samkomulag næðist
ekki. Mælikvarðinn væri svo
óljós og ófullkominn, að
möguleikar opn-uðust fyrir
miklum deiluim.
Venstre-floikkurinn var
klofinn í afstöðu sinni til
handritamálsins og var meiri
hlutinn á móti frum.varpinu,
þ.e. 22 þingmenn, en 10
greiddu atkvæði með því. íb
Thyregod var í hópi þeirra
þin.gmanna Venstre, sem
mæltu gegn frumvarpinu.
Kvaðst hann álíta, að um eign
arnám væri að ræða, en hann
var ekki samþy.kkur þjóðarat-
kvæðagreiðslu, sökum þess að
hún myndi útiloka sjónarmið-
ið um eignarnám.
Poul Hartling formaður
Venstre var hins vegar í hópi
þeirra þingmanna flokksins,
sem greiddu atkvæði með
frumvarpinu.
Engu skal spáð 'hér, hvort
það muni háfa nokkur áhrif á
handritamálið, að ný rílkis-
stjórn, mynöuð af öðrum
flokkum en sú fyrri, tekur nú
við völdum í Danmörk. Af-
greiðslu málsins í Þjóðþing-
inu er endanlega lokið. Hið
eina, sem skipt getur máli,
er afstaða forsætisráðherrans
í 'hinni nýju stjórn til ein-
stakra atriða í samtoandi við
skiptingu ihandritanna, þar
sem hann skipar sæti eins
konar gerðardómiara, ef deil-
ur koma upp í sambandi við
hana. Hitt er vitað, að afstaða
Baunsgáards hefur verið mjög
jákvæð gagnvart m'áistað ís-
lendinga. Er ekki ólíklegt, að
hann kveðji til óvilhallan vís-
indamann líkt og Krag hafði
lýst yfir, að hann myndi gera,
ti'l aðstoðar sér, komi einhver
deilumál upp.
Ráðstefna um heilbrigðis-
mál haldin í Húsavík
Ráðstefna um heilbrigðismál á
Norðausturlandi haldin i veitinga
húsinu Hlöðufelli í Húsavík 13. jan
sl. Hófst hún með því að bæjarstjór
inn í Húsavík, Björn Friðfinnsson,
ávarpaði fundarmenn og gat þess
að til ráðstefnu þessarar væri boðað
af bæjarstjórn Húsavíkur og stjórn
sjúkrahússins í Húsavík. Áðalvið-
fangsefni ráðstefnunnar væri heil-
brigðisþjónusta á Norðausturlandi
og hefði þvi ýmsum forystumönn-
um í Húsavík og Þingeyjarsýslum
og öðrum þeim, er þessi mál varð-
aði verið boðið til ráðstefnunnar.
Voru 34 þátttakendur mættir til
fundar, oddvitar og aðrir sveitar-
stjórnarmenn, formenn sjúkrasam-
laga og starfsmenn við heilbrigðis-
þjónustu.
Bæjarstjóri skipaði Jóhann Skapta
son sýslumann, til að gegna funda
stjórn, en Sigurjón Jóhannesson,
var fundarritari.
Fundarstjóri las þessu næst skeyti
frá heilbrigðismálaráðherra, þar
sem hann kveðst ekki geta sett ráð
stefnuna, en óskar að hún megi
verða árangursrík.
Var síðan tekið fyrir fyrsta mál
dagskrár: Læknisþjónusta, fram-
sögumáður Gísli Auðunsson, héraðs
læknir. Ræddi hann læknisþjón-
ustu á Norðausturlandi, þó aðallega
í Húsavík og nágrenni. Benti hann
á galla, sem hann taldi vera að nú-
verandi skipan þessara mála. Hvað
Gísli einu úrlausnina að sínu viti
vera að koma á fót svokölluðum
læknamiðstöðvum, en forsenda þess
að þær gætu komið að nægilegu
gagni væri aftur bættar samgöngur
innan landshlutans. Þyrfti að gera
miklar umbætur í vegamálum, en
þá opnuðust jafnvel möguleikar á
að veita landshlutanum fullnægj-
andi læknisþjónustu frá tveimur
læknamiðstöðvum, annarri í Húsa-
vík og hinni á Þórshöfn.
Annað mál á dagskránni var ný-
bygging sjúkrahússins í Húsavík.
Rakti Asgeir Höskuldsson, bygging
armeistari, byggingarsögu sjúkra-
hússins og skýrði frá ýmsu í því
sambandi. Ásgeir kvað mikla nauð
syn á að hraða framkvæmdum við
bygginguna og einnig ræddi hann
um hugsanlega aðild sveitarfélaga
austan Jökulsár að byggingunni.
Næst á dagskránni var rekstur
sjúkrahússins í Húsavík. Áskell Ein
arsson, framkvæmdastjóri sjúkra
hússins skýrði frá rekstri þess
Björn Friðfinnsson, bæjarstjóri,
ræddi næst um heilsugæzlustöð i
Húsavík. Skýrði hann frá því, að á
síðast liðnu ári hefði vísir að heilsu
gæslustöð verið rekin í héraðslækn
isbústaðnum í Húsavik og gæti sú
stofnun einnig tekið við hlutverki
læknamiðstöðvar í framtiðinni. Taldi
hann rétt að flytja þessa starfsemi
sem fyrst í nýbyggingu sjúkrahúss-
ins. Einnig ræddi haann um skipt-
ingu kostnaðar við rekstur stöðv-
arinnar.
Síðastur frummælenda var Hjört
ur Tryggvason, formaður sjúkra-
samlags Húsavíkur. Hjörtur ræddi
um ýmis málefni er sjúkrasamlög-
in varða og þær miklu breytingar,
sem nýverið hefðu verið lögfestar
á starfsemi þeirra.
Að loknum framsöguerindum
kvaddi sér hljóðs Þóroddur Jónas-
son, læknir að Breiðumýri, og rædd
um ýmis sjónarmið í sambandi við
hinar umtöluðu tæknamiðstöðvar.
Þá ræddi hann starfsaðstöðu lækna
i dreifbýlinu, sem hann kvað ekki
til þess fallna að gera störf héraðs-
lækna eftirsóknarverð.Þóroddur gaf
einnig fróðlegar upplýsingar um
fjölda læknisvitjana í umdæmi sínu
á síðast liðnu ári.
Að ræðu Þórodds lokinni var gef
ið kaffihlé, en síðan var þátttak-
endum ráðstefnunnar skipt í 3 um-
ræðuhópa, þar sem framsöguerindin
voru rædd. Hófst svo ráðstefnan að
nýju þar sem umræðustjórar í hverj
um hópi gerðu grein fyrir umræð-
um þar og lögðu fram tillögur til
ályktunar fyrir ráðstefnuna. Sam-
þykkti fundurinn eftirfarandi álykt
anir:
1. Ráðstefnan samþykkti að vinna
bæri að því, að í Húsavík verði
rekin heilsugæslustöð, sem orð
ið geti læknamiðstöð fyrir
Húsavík og nágrannahéruð, ef
fullnægjandi læknisþjónustu
verður ekki haldið þar uppi með
öðrum hætti.
2. Ráðstefnan lagði áherzlu á að
unnið yrði að því af alefli, að
byggingaframkvæmdum við ný
byggingu sjúkrahússins í Húsa-
vík yrði lokið fyrir árslok 1969
Til þess að svo geti orðið taldi
ráðstefnan að m.a. yrði að afla
2 milljóna króna með frjáls-
um samskotum til byggingar-
innar Var sjúkrahússtjórn fal-
ið að kjósa nefnd til fram-
kvæmda í málinu
3. Raðstefnan taldi nauðsynlegt að
leita þátttöku sveitarfélaga aust
an Jökulsár um framlög til ný-
byggingar sjúkrahússins í Húsa
vík og fól sýslumanni Þingey-
inga, formanni sjúkrahússtjórn
ar og oddvita Kelduneshrepps
að vinna að því.
4. Ráðstefnan samþykkti að leita
eftir því við forráðamenn Dval
arheimilis aldraðra sjómanna,
að varið yrði fjarmunum frá
happdrætti Das til byggingar
sjúkradeildar fyrir aldrað fólk
sem ætlað er rúm í sjúkrahús-
byggingunni nýju. Var ákveðn-
um mönnum falið að vinna að
framgangi málsins.
5. Ráðstefnan leit svo á, að eigi
væri enn tímabært að taka af-
stöðu til breytinganna, er ný-
verið hafa verið gerðar á lög-
um um almannatryggingar, þar
eð áhrif þeirra væru enn eigi
komin fram. Taldi ráðstefnan
að skipulag sjúkrasamlaga í
sveitum landsins hefði gefizt
veí og taldi því varhugavert að
skerða áhrif sjúkrasamlaganna
Ráðstefnan beindi þeim tilmæl
um til sjúkrasamlaga og héraðs
samlaga, að þau fylgdust vel
með þeim áhrifum, sem breyt-
ingin á lögum um sjúkrasam-
lög hefur í för með sér.
Þessu næst flutti Sigurjón Jóhann
esson formaður Rauðakrossdeildar
Húsavikur skýrslu um rekstur
bifreiðar Rauðakrossleildarinnar s.
1. 2 ár
Að lokum þakkaði fundarstjóri
mönnum komuna og sleit fundi.
Gulltop USA
Wasihin.gt'on, 31. jan. NTB.
YFIRVÖLD í Bandarikjunum
skýrffu frá því í dag, aff Banda-
ríkin hefffu tapaff irúmlega ein
um milljarff dlala (um 75 millj
örffum ísl. króna) í gulli í fyrra.
Nær öllu þessm bulli var varið
til aff mæta hinni æffisgengnu
eftirspurn sem varff eftir gulli
eftir gengisfellingu brezka
sterlingspundsins.