Morgunblaðið - 02.02.1968, Blaðsíða 32
SSKUR
Sudurlandsbraut 14 ■—- Simi 38550
FÖSTUDAGUR 2. FEBRUAR 1968
TVÖFALT
H E1NANGRUNARGLER
'Qára reynsla hérlcndl»
EGGERT KRlSTJANSSC .'ítCO HF
SJÓMANNAEKKJURNAR í HULL
SENDA WILSON ÁSKORUN
— Leitinni að togaranum Kingston Peridot hætt
— Báðir Hull-togararnir taldir af í dag
HÆTT var í gær skipulagðri
leit að skipbrotsmönnum af
brezka togaranum Kingston
Peridot ,enda búið að leita
mjög mikið úr lofti, á láði og
legi á stóru svæði kringum
Brekann, þar sem talið er að
togarinn hafi farizt. í dag
hefði Kingston Peridot og
annar týndur togari, St. Rom-
anus, átt að koma úr veiði-
ferð heim til Hull, og verða
þeir þá báðir opinberlega
taldir af- Hefur þessi fiski-
bær þar með misst 40 af sjó-
mönnum sínum, ér héldu
norður í höf til fiskveiða.
Ekkjur sjómannanna fjöru-
tíu sem fórust, eru nú með
tilstyrk verkalýðssambands-
ins að senda áskorun til
Wilsons, forsætisráðherra,
þar sem þær krefjast þess að
öryggi og allar aðstæður um
borð í fiskiskipunum verði
bætt.
í fyrrakvöld töldu þrír
brezkir togarar, er voru út af
Langanesi, að þeir hefðu
heyrt són frá sjálfvirkum
vekjaraútbúnaði úr neyðar-
talstöð, en engin hjálpar-
beiðni eða staðarákvörðun
fylgdi. Telja bæði Slysavarna
félagið og stöðvar í Bretlandi
mjög litlar líkur til að þetta
geti staðið í nokkru sam-
bandi við hin týndu skip. Og
ýmsar tilgátur eru á lofti til
að skýra, að ekki hafi endi-
lega verið um neyðarkall að
ræða.
Krefjast meira öryggis á sjónum
Dagblöðin í Bretlandi, einkum
fiskibæjunum, hafa í rúma viku
skrifað mjög mikið um hvarf
togaranna tveggja, Kingston
Peridot og St. Romanus, með 40
manna áhöfnum. Mbl. átti í gær
tal við fréttastjóra Hull Daily
Mail, sem sagði m.a. frá áskor-
un þeirri, sem ekkjur sjómann-
anna eru að senda til Wilsons,
forsætisráðherra.
Undanfarna mánuði hafa vér-
ið uppi raddir í Félagi flutninga-
verkamanna um að bæta þyrfti
öryggi og aðibúnað á brezkum
togurum. Og missir þessara
tveggja togara, með svo mörg-
um mönnum, hefur orðið til þess
að herða á þeirri kröfu. Það hef-
ur valdið því, að Verkamanna-
sambandið (General Workers
Union) styður nú áskorun til for
sætisráðlherra Bretlands frá eig-
inkonum sjómannana, sem fór-
ust. Hefur félagið boðizt til að
sjá um framkvæmd málsins og
er þegar búið að senda Wilson,
forsætisráðherra, símskeyti, með
beiðni um, að hann taki við slíku
skjali.
í áskorun þessari eru almenn
mótmæli og krafizt algerrar
endurskoðunar á aðstæðum um
borð í skipunum. f>ví er mót-
mælt, að ráðnir séu á skipin
óreyndir menn, menn sem ekki
hafi sjóferðabækur. Þá er þess
krafizt, að fullkomin skoðun og
viðgerð fari fram á togurunum
til undirbúnings hverri véiði-
ferð. í fjórðá lagi, að sjómenn-
irnir og skipstjórarnir á fiskiskip
unum fái hækkuð laun í áhættu-
sömum veiðiferðum. í fimmta
lagi, að um borð í öllum skip.un-
um verði loftskeytamenn. (Eng-
inn loftskeytamaður var um borð
í St. Romanus, en Kingston
Peridot hafði loftskeytamann).
Og ioks, að skipin verði útbúin
með varahluti, sem séu ávallt um
borð ,svo hægt sé að gera við iti
á sjó.
Fara konurnar fram á, að for-
Framh. á bls. 31
Hundurinn
ekki brezkur
Hús'avík, 1. fe(b.
Á MÁNUDAGSMORGUN-
INN veittu bændur á bæj-
unum Björg og Nýpá í Köldu
kinn því atlhygli að ókunnur
hundur var þar á bökkunum
út undir sjónum í stefnu á
Lundey frá Björgum séð. En
bæir þessir eru yztu bæir í
Köldukinn, fyrir botni vest-
anverðs Skjálfandaflóa. Hund
urinn virtist ekki vilja gefa
sig að bæjarmönnum og
þvældist á milli bæjanna all
Framh. á bls. 31
.««íw*éjho& llíP
Forsíðan á brezka blaðinu T he Daily Mail, þar sem sagt e r frá skipstapanum við ísland.
Er m.a. mynd af togaranum K ingston Peridot á forsíðunni. M bl. hefur aflað sér eintaks af
þessu blaði( að vísu gallað), til að sýna hve mikið brezku b löðin hafa skrifað um þetta mál.
Frá fundi borgarstjórnar í gœrkvöldi:
Hið opinbera greiði sjúkra-
kostnað erlendis
sé ekki fullnœgjandi lœknishjálp að fá hér á landi
Á FUNDI borgarstjórnar í gær
var samþykkt einróma svohljóð
andi tillaga frá Kristínu Gúst-
avsdóttur, borgarfulltrúa Sjálf-
stæðisflokksins: ,
„Borgarstjórn beinir þeim ein
„They were all
lads on board"
good
— segir William Henry Cood,
matsveinn af týnda togaranum
Islenzkur kokkur bauðst
MATSVEINNINN á brezka
togaranum Kingston Peridot,
sem talinn er hafa farizt
fyrir nörðan land í síðustu
viku, var ekki um borð í þess
ari síðustu óheillaferð skips-
ins. Hann varð eftir í Reykja-
vík vegna meiðsla og var
sendur heim, vonsvikinn yfir
að hafa misst af veiðiferð-
inni. Matsveinninn William
Henry Good var staddur á
skrifstofu útgrðarinnar,
Kingston Steam Trawlers
Ltd., er Mbl. átti símtal við
hann í gær.
Aðspurður hvenær hann
hefði frétt um afdrif togarans
og hvernig honum hefði orðið
við, svaraði Good: — Ég
vissi það ekki fyrr en á
þriðjuda'gskvöld, þegar ég sá
blöðin. Ég lei't í blaðið og sá
að togarans var saknað. Það
kom yfir mig eins og reiðar-
slag. Það var mikið áfall
„because the were all good
lads on board“ (því þetta
voru allt svo góðir strókar
um borð).
— Höfðu þeÍT verið skips-
félagar þínir lengi?
— Nei, ekki ó þessu skipi.
En ég hafði þekkit nokkra
þeirra lengi, svo sem 1. vél-
stjóra, og einnig 1. stýrimann.
Ég hafði verið með þeim á
öðrum skipum.
— Hvernig stóð á því að þú
varst ekki um borð?
Viltu segja okkur af hverju
þú fórst í land í Reykjavík?
— Já, ég varð fyrir slysi,
brá’kað rifbein. Það vildi þann
ig til, að veðrið var ekki sem
bezt og ég féll niður stiga. Ég
brákaði bæði brjósfkassann og
bakið. Skipstjórinn hélt að ég
hefði brotið í mér rifbein og
fór með mig inn til Reykja-
víkur. Þar var farið með mig
í nýja stóra spítalann ykkar.
Framhald á bls. 31
dregnu tilmælum til Alþingis og
ríkisstjórnar, að þessir aðilar
vinni að því. að lögfeist verði
ákvæði um greiðslu hins opin-
bera á sjúkrahúskostnaði erlend
is hjá þeim aðilum, sem sann-
anlega geta ekki fengið full-
nægjandi læknishjálp hér á
landi. Vitnar borgarstjórn í
þessu sambandi. til samþykktar
borgarráðs 28. október 1966, til-
lögu tryggingarráðs frá 8. nóv-
ember 1967 og ályktunar félags-
máiaráðs Reykjavíkurborgar 21.
janúar sl.
Kristín Gústavsdóttir (S)
sagði m.a.: Komið hefur í Ijós,
að í hinu íslenaka tryggingar-
kerfi eru þeir ágal'lar, að sjúlkra
trygging nær ekki til þeitrra,
sem þurfa að leita læknisfhjálpar
erlendis. Hefiur þetta valdið því.
að einstöku sjúkdómstiMélli
hafa haft í för með sér mikil
útgjöld umfram það, sem sjúkra
tryggingar bæta og bafa jafn-
vel valdið a'lvarlegri röskun á
afkomu sjúklings og aðstand-
enda hans. ,
Að sjálfsögðu er hér átt við
aðgerðir, sem ekki er hægt að
gera hér á landi og krefjast sér
stakrar og mjög fulKkominnar
sjúikraihúsaðstöðu og sérhæfing-
ar. Eftir því sem læknavisindá
ná lengra verður möguleikinn
Framh. á bls. 31
Sjónvarpið nær
til Vestfjarða
SJÓNVARPSTÆKl hafa nú ver
ið sett upp á nokkrum bæjum
í Geirdalshreppi og Reykhóla-
hreppi í Austur-Barðastrandar-
sýslu. Sést íslenzka sjónvarpið
sæmilega á þessum slóðum. Mun
það vera myndin frá endurvarps
stöðinni í Búðardal, sem nær
þangað vestur.
Eins og kunnugt er hefur ver-
ið ákveðið að byggja tvær mikl-
ar endurvarpsstöðvar á þessu
ár'i, á Skálafelli og í Stykkis-
hólmi. Er talið líklegt, að sjón-
varp eigi að geta náð til Akur-
eyrar og Eyjafjarðar fyrir
næstu óramót.