Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 1968 J V Rauðarárstlg 31 Sími 22-0-22 MAGIXIÚSAR 5KiPMOwn2’. ^MAR 21190 efíir )0-*.un simi 40331 sími ^4^4 mtim Hverflsgötn 103. Sími eftir lokna 31160. LITLA BÍLALEIGAN Ingólfsstraeti 11. Hagstætt leigugjald Simi 14970 Eftir lokan 14970 e»a 81740 SignKJur Jónsson. BÍLALEIGAM - VAKUR - Snndlangavegi 12. Sfmi 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. BÍLALEIG AN AKBRALT NÝIR VW 1300 SENDUM SÍMl 82347 Skolphreinsun Losa um stífluð niðurfalls rör. Niðursetningu á brunn- um. — Smáviðgerðir. Vanir menn. Sótthreinsum að verki loknu. — Sími 23146. Volvo Pentu bótuvél til sölu. Véljn er 137—160 hestöfl, roeð oiíuskiptinigu og sjálfstillandi ventkim. Vélin selst á hálfvirði ef samið er strax. Upplýsinigar í síma 1335, Vestmainnaeyjum. Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar púströr o. fl. varahlutir í margnr gerðir bifreiðs Bílavörubúðin FJÖÐRIN Laugavegí 168 - Sími 24180 'A' Sektarmiðar á bílum í Kópavogi „Gamall Kópavogsbúi“ skrifar Velvakanda all-hvass- yrt bréf. Þykir honum lög- regluþjónar þar í plássi of öt- ulir við að leita uppi bíla, sero lagt hefur verið ólöglega, og líma á þá sektarmiða. Liggi við, að sektargxeiðsla sé orð- inn fastur útgjaldaliður hjá mörgum búfreiðaeigendum. Nú segir bréfritari, að þetta stafi ekki af afbrotahneigð hjá eigendum bifreiðanna, heldur eigi þeir sér nokkra afsökun: „Það er ekki nokkur mögu- leiki fyrir þá að leggja bílunum löglega ,eins og ástand gatna- kerfisins er nú. Þeir kynnu að telja það afsökun, að það fer að líða á annan áratug frá því að þeir greiddu gatnagerðar- gjöld og allt slíkt, og þó ligg- ur við, að þeir þurfi ennþá að nota keðjur, til þess að komast frá húsum sínum, sé rigning og blautt úti“. Bréfi sínu lýkur „Gamall Kópavogsbúi" á því, að hann voni, að lögregluþjónar kaup- staðarins lesi þessa ábendingu og taki hér eftir meira tillit til erfiðra aðstæðna bíleigenda en þeir hafi gert fram til þessa. ■^Bí bí og blaka Helgi Bjamason skrifar: „Velvakandi! Þú virðist hafa nokkurn áhuga á að fá úr hi-nu rétta skorið með ýmsar gamlar vís- ur og kvæði. Alþekkt er þessi vísa: „Br, bí og blaka“, en hana lærði ég, þegar ég var innan við 10 ára aldur og þá svona: Leikur sér í Ijósinu IítiII ungi á vatninu, en I gula grasinu gamlar álftir kvaka; bí, bí og blaka, álftirnar kvaka, ég læt sem ég sofí, en samt mun ég vaka. Seinna, ég ég var unglingur í sveit, sá ég þetta í einhverju ljóðakveri, sem húsbóndi minn átti, og man ég eklfí betur en vísurnar væru fleiri, og að „bí, bí og blaka" væri viðlag við þær. Ætli nokkur kannist við þetta? Þegar Árni Óla vann hjá Morgunblaðinu, talaði ég um þetta við hann, en hann gat ekki haft upp á þvi. Helgi Bjamason, Sogavegi 152“. Menntun barna fyrir skólagöngu Dóra Snorradóttir í Hveragerði skrifar: „Kæri Velvakandi. Mikið er ritað og rætt um landsprófsdeildir um þessar mundir, en mig langar til að spyrjast fyrir um aðra deild skólanna okkar, en það er 7 ára bekkur, því að hann hlýt- ur að vera fyrsta undirstaða bariisins undir landspróf eða hvað annað, sem við kann að taka. Fyrst langar mig til að vita, hvern undirbúning foreldrum ber að veitá bornum sínum fyrir barnaskölagöngu, og þá hvort það sama gildi almennt fyrir aJla barnaskóla, eða hvort það sé, eins og mig grun- ar, að hver skóli hafi sína að- y ferð við lestrarkqnnsluna. í öðru lagi, hver veitir for- eldrum upplýsingar um þetta, áður en barnið hefur skóla- gönguna, og þá á ég auðvitað við það svo snemma, að barnið sé því nær læst, áður en það sezt I 7 ára bekk, því að mér virðist það vera ósk eða tilætl- an kennara. í þriðja lagi, af hverju eru ekki haldnír foreldrafundir, ár inu áður en börn þeirra hefja barnaskólagöngu? Einnig langar mig til að vita, hvort ekki sé eitthvað visst mark sett í því, hversu langt hver bekkur á að vera kominn í reikningi að vetri Ioknum, eða á þar ádiugi eða áhugaleysi bamanna að ráða? Gott væri að fá svör við þessu sem fyrst, því að brátt mun vorskóli hefjast og árejð- anlega vilja flestir foreldrar fylgjast með námi barna sinna og undirbúa þau svo vél, að þau geti sezt í og flutzt á milli hvaða barnaskóla sem er, án þess að dragast aftur úr í námi. Með fyrirfram þakklæti fyr- ir svörin, Dóra Snorradóttir“. ★ Velvakandi skal reyna að svara þessum spurningum eft- ir brjóstviti sínu, en bezt væri, að einhver skólamaður svaraði þeim, og yrði bréf hans birt hér þegar í stað. 1) Engin skylda mun hvíla á foreldrum um menntun barn- anna, áður en nám 1 barna- skóla hefst. Hins vegar mun börnum kennt að lesa á flest- um heimilum fyrir sjö ára ald- ur, og sama gildir um skrift og undirstöðuatriði í reikningi. Sjálfsagt er betra, að barnið Iæri Iestur eftir sömu aðferð og notuð er í þeim skóla, sem það á að ganga í, heldur en eftir einhverri annarri aðferð, en alkunna er, að flestir for- eldrar vilja kenna börnum sín um eftir sömu aðferð og þau notuðu sjálf á sínum tíma, þ.e. með þvi að læra að kveða að. Þetta þarf að athugast í sam- ráði við væntanlegan skóla- stjóra barnanna. • 2) Að sjálfsögðu viðkom- andi skólastjóri eða námsstjóri. 3) Ekki veit Velvakandi það, en vitanlega væri það mjög æskilegt. Hér vísast enn til væntanlegs skólastjóra. 4) Til þessa þekkir Velvak- andi ekki, en enn hlýtur að vera bezt að spyrja skólastjór- ann. ★ „Englaljósið bjarta“ M. Ásgeirs. skrifar: Halló Velvakandi! Langar til að biðja þig að gera mér þann greiða að taka í fjöllesna diálka þína örfá orð. Þannig er mál með vexti, að í Sunnudagsbl. Tímans 11. tbL ‘68 er birt viðtal við Jón Jó- hannesson frá Skáleyjum á Breiðafirði og hefi ég ekkert við það að athuga, annað en vísu, sem hann birti þar og tel- ur móður sína höfund að. En þvi ber ég hrigður á það, að í Nýju kvennablaði árið 1944 (man ekki tbl.) skrifar magist er Björn Sigfússon afmælis- grein um frú Ingibjörgu Magn úsdóttur, konu Júlíusar læknis Halldórssonar frá Klömbrum. Endar hann greinina á eigin handskrift frú Ingibjargar á vísu þessari, hinni sömu vísu, Kveimadeild Borgfiröingafélagsins hefur veizlukaffi og skyndihappdrætti í Tjarnar- búð sunnudaginn 5. maí kl. 2.30. Ibúð til leigu Til leigu er 4ra herbergja fbúð frá 1. júní, 105 ferm„ í góðri sambyggingu í Austurbænum. Fyrirlram- greiðsla. Lysthafendur sendí nöfn og símanúmer til Morgun- blaðsins fyrir 1Ö. þ.m. merkt: „Góð ibúð — 5100“. Framkværadast|órastarf Frystihús úti á landi vill ráða framkvæmdastjóra strax. Umsóknir ásamt upplýsingum sendist Morg- unblaðinu fyrir 7. þ.m. merktar: „Framkvæmda- stjóri — 8090“. ÓSKLIVÍ EFTIR heima 30587 EINBYLISHUSI HÖFUM KAUPANDA AÐ NÝLESU EINBÝ LISHÚSÍ I REYKJAVÍK EDA NÁGRENNI ÚTBORGUN ALLT AÐ KRÓNUR 2.000.000,— Bagnar Tómasson hdl. heima 24493 Fasieighöþjónustan . ; ja Ausiurstræti 17, 3, hæö, (Silli cg VaJdD^gá 16870 og 21645 Stefán J. Rlchter sem J.J. telur móður sína höf- und að. Enginn núlifandi gæti því betur dæmt hér í milli en Björn Sigfússon. Vildi ég því freista þess að fá hið rétta fram um höfund vísunnar, sem frú Ingibjörg skrifar í Nýtt kvennablað 1944, með eigin hendi (skrift hennar þekkti ég vel, dvaldi unglingur á heimili þessarar frænku minnar og ekki var ^hún sú kona, sem vildi eigna sér það, sem hún ekki ætti með rétti. Þar er þetta svona: „Gott er að treysta Guð á þig, gleður það mannsins hjarta. Yfirgefðu aldrei mig englaljósið bjarta. Ingibjörg Magnúsdóttir". »

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.