Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 196«
VVAVA’A'
Myndin sýnir byggingaframkvæmdir Geðverndarfélags íslands að Reykjalundi, og var hún
tekin um s.l. mánaðamót. Verkinu meðar mjög vel áfram, og vonast félagið til að húsin þrjú
verði fnllgerð og tekin í notkun fyrir næsta haust. — Ljósm.: ABj
Brotið blað í sögu
geðverndarmála hér
Frá aðalíundi Geðvemdarfélags Islands
Aðalfundur Geðverndarfélags
íslands var haldinn hinn 3. apríl
s.l. — Formaður Geðverndarfé
lagsins, Kjartan J. Jóhannsson
héraðslæknir, taldi, að nú hefði
verið brotið blað í sögu geð-
verndarmála hér á, landi, og
kæmi þar margt til. — Skrif-
stofa og félagsráðgjafcistarfsemi
Geðverndarfélagsins ætti nú
fyrsta heila árið að baki, og
væri reynslan af þessari starf-
semi mjög góð. — Læknirinn
taldi, að Geðverndarfélagið
hefði verið mjög heppið, hversu
góð samvinna hefði tekizt með
SÍBS og Geðverndunarfélaginu
viðvikjandi öllum framkvæmd-
um að Reykjalundi, sem mið-
aði mjög vel áfram, og væri
stefnt að því að ljúka öllum
byggingafnamkvæmdum fyrir
komandi haust. — Kjartan J.
Jóhannsson minntist á ýmsa þá
viðurkenningu, sem félagsstarf-
semin hefði hlotið, og væri þar
bæði átt við beina fjárstyrki,
en einnig ýmaa aðra fyrir-
greiðslu. — Starfsemi „Tengla“,
éhugahóps framhaldsskólanem-
enda, var þökkuð, svo og ánn-
arra þeirra, sem lagt hafa hönd
á plóginn. — Tilkynnt var, að
skammt væri nú undan, að eld-
spýtnabréf kæmu á markaðinn,
og vonaðist formaður til að sala
auglýsinga á slík bréf gæti orð
ið nokkur tekjustofn fyrir fé-
lagið.
Niðurstaða eignarefknings
sýni tæpl. 1,2 millj. kr hreina
eign félagsins, og í minningar-
sjóði um Kjartan B. Kjartans-
son lækni eru nú um 80 þúsund
krónur.
Borgarlæknir dr. med. Jón
Sigurðsson, flutti erindi á fund
inum. Ræddi hann geðverndar-
mál almennt og taldi að enn
vantaði rösklega 400 sjúkrarúm
til að fullnægja brýnustu þörf,
ef við íslendingar vildu miða
okkur við þær kröfur, sem gerð
ar væru á Norðurlöndum. Er-
indi borgarlæknis vakti mikla
athygli, og mun það verða birt
í næsta hefti tímaritsins GEÐ
VERNDAR, sem félagið gefur
út.
' Nokkrir fundarmanna tóku
til máls, m.a. ritari félagsins,
þrófessor Tómas Helgason, sem
þakkaði borgarlækni sérstak-
lega, svo og öðrum þeim, sem
sýndu geðvemdarmálum skiln-
ing. Öll þessi mál hefðu — til
þessa — reynzt nokkuð þung í
tauminn, en nú væri greinilega
úr að rætast, og — án efa—
allri þjóðinni til mikilla heilla.
Félagatala Geðverndarfélags-
ins hefur nær tvöfaldast frá
haustmánuðum 1966, og eru nú
skráðir félagar um 550. Stjórn
félagsins var endurkosin, en
hana skipa:
Kjartan J. Jóhannsson, hér-
aðslæknir Kópav., formaður
Benedikt Tómasson, skólayfir-
læknir, varaformaður, Tómas
Helgason, prófessor, ritari Ás-
laug Sívertsen, frú, gjaldkeri
Grímur Magnússon, læknir frú
Jóhanna Baldvinsdóttir og Jón
H. Bergs, forstjóri meðstjórnend-
ur.
Framkvæmdastjóri
er Ásgeir Bjarnason (daghluta
starf). Ráðgjafa og upplýsinga
þjónusta alla mánudaga kl. 4-6
e.h. að Veltusundi 3. sími: 12139
Geðverndarfélagi íslands hef
ur borizt myndarleg dánargjöf
að upphæð tæplega 140 þús.
krónur.
Guðbjörg Guðjónsdóttir ljós-
móðir, síðast til heimilis að
Strandgötu 83 í Hafnarfirði, á-
nafnaði félaginu hluta eigna
sinna, en Hrafnkell Ásgreisson
hdl., Hafnarfirði afhenti félag-
inu þessa veglegu gjöf. Um leið
og Geðverndarfélagið leyfir
sér að minnast hinnar göfugu
konu, þakkar það lögmanninum
vinsemd og fyrirgreiðslu.
(Rrá Geðvemdarfélaginu)
Úthlutað úr Menningorsjóði
Spnrisjdðs Snuðnrhróks
Sauðárkróki 29. apríl —
Þegar Sparisjóður Sauðár-
króks, sem stofnaður var 1866,
hætti starfsemi sinni og við tók
Búnaðarbanki íslands árið 1964,
var ákveðið að með eignum
sparistjóðsins skyldi myndaður
sjóður til eflingar skagfirzku
menningarlífi og hlaut hann
nafnið Menningarsjóður Spari-
sjóðs Sauðárkróks. Stofnfésjóðs
ins var kr. 3.1 milljón.
f skipulagsskrá sjóðsins, sem
staðfest var á þessu ári, erheim
ilt að verja árlega allt að %
hlutum ársvaxta á fyrrnefndan
hátt.
Laugardaginn 27. þessa mán-
aðar var haldinn á Sauðárkróki
aðalfundur sjóðsins og úr hon-
um veitt í fyrsta sinn. Var hér
um að ræða úthlutun fyrir tvö
siðastiiðin ár, að upphæð kr.
440 þúsund, en framvegis erráð
gert að veita úr sjóðnum árlega.
Samkværrit tillögu stjórnarinnar
voru eftirfarandi fjárveitingar
samþykktar í einu hljóði á fund
inum:
Fyrsta: til stofnunar Lista-
safns Skagfirðinga krónur 270
þúsund. Annað: til Sögufélags
Skagfirðinga kr. 60 þúsund.
Þriðja til Tónlistarskóla Skag-
firðinga 60 þúsund til hljóðfæra
kaupa. Fjórða: til Sjúkrahúss
Skagfirðinga kr. 25 þúsund til
kaupa á segulbandstæki. Fimmta
til Karlakórsins Heimirs 25 þús
und í tilefni 4 ára starfsafmælis
kórsins.
Stjórn Menningarsjóða Spari-
sjóðs Sauðárkróks skipa Stef-
án Ólafur Stefánsson, póst- og
símstjári, farmaður, Bjöm Daní-
elsson, skólastjóri og Sæmund-
ur Hermannsson tolltjónn.
Á fundinum voru lagðir fram
reikningar annarra sérsjóða
sem stofnaðir voru á sínum'txma
af sparisjóðnum. Menntasjóður
með 105 þúsund króna eign. Fegr
unarsjóður með 35 þúsund
krónum og Minningarsjóður
Kristjáns og Valgarðs Blöndal
kr. 16 þúsund, en þeir feðgar
vonu stairfsmenn sparisjóðsins
uim langt ánabil. — jón.
Lífræn umferöarfræösla
JÓN Oddgeir Jónsson fulltrúi | azt leiðbeiningar fyrir kennara í I um landsins um kennslu í um-
hefur á undanförnum árum ann I flestum barna- og unglingaskól- I ferðarmálum, svo og í Kennara-
skóla fslands. Hefur hann leitazt
við að gera kennslu þessa sem
lífrænasta og haft ýmis ráð til
að svo mætti verða. Hér bregð-
um við upp nokkrum myndum
af leiðbeiningum þessum, en
þær voru teknar í bama- og
unglingaskóla á Akranesi af
Ólafi Arnasyni, ljósmyndara á
Akranesi:
—
mmm
'sm*
Þama hefur verið búinn til ,,bíU“ með fjómm drengjuw auk
bílstjóra, sem ekur bílnum um kennsiustofuna eftir settum um-
ferðarreglum. A myndinni sjást þeir Jón Oddgeír, Njáll Guð-
mundsson, skólastjóri og Helgi Daníelsson, lögregluþjónn, sem
leiðbeint hefur um umferðarmáll í flestum skólum Akraness á
síðasti. vetri.
Reiðhjói inn í kennslustofu. Oneitanlega var það nýstárlegt
fyrir hina ungu nemendur og einnig það að þeir skyldu fá
sjálfan lögregluþjóninn til að segja þeim frá öryggisútbúnaði
reiðhjóla.
—
Það verður nemendum skóla þessa minnisstætt hveraig ungu — Þarna sjáið þið muninn, segir Heigi Danielsson, á slitnum
stúlkurnar sýndu undirstöðuna að merkjunum um stöðvunar- og lítt slitnum hjólbörðum og hvorum treystið þið betur fyrir
skyldu. lífi ykkar?