Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 32
RITSTJORN • PRENTSMIÐJA
AFGREIÐSLA'SKRIFSTOFA
SÍMI 1Q.1GO
LAUGARDAGUR 4. MAI 1968
AUGLYSINGAR
SÍMI 22*4*80
Hríöin búin og
aftur fœrf norður
VEÐUR batnaði í gaer á Norður-
landi, og stytti upp hríðinni,
sem hafði hlaðið snjó á alla vegi.
Og í gær var orðið fært um allt
Suður. og Vesturland og norður
til Akureyrar og Siglufjarðar
Hafði Vegagerðin getað gert
norðurleiðina greiðfæra. Voru
bæði Holtavörðuheiði og öxna-
dalsheiði færar. Einnig var orð-
ið fært til Kópaskers og verið
að ryðja veginn til Raufarhafn-
ar.
Austan við Akuireyri eru mairg
ir vegir slæmir, að sögn Hjör-
leifs Ólafsisonar hjá Vegagerð-
inrnii. Þeir spilltust um daginin og
hefuir ekki verið hægt að gera
við þá síðan.
Ráðstefna MA-Atlants-
hafsnefndarinnar
hefst t Reykjavík í vikunni
NÆSTKOMANDI þriðjudag hefst
í Reykjavík fundur hinnar al-
þjóðlegu fiskveiðinefndar á Norð
austur-Atlantshafi, en Davíð Ól-
afsson er nú formaður þeirrar
nefndar og stýrir fundinum hér.
Koma hingað 80 manns frá 16
löndum til að sitja þennan fund.
Eru það fulltrúar frá 14 lönd-
um á þessu svæði og áheyrnar-
fulltrúar frá Kanada og Banda-
ríkjunum.
Norðaustur-Atlantshafsnefndin
fylgist með fiskistofnum á
nefndu svæði og ráðleggur um
verndun fiskistofna þar. Verður
fjallað um slík mál á ráðstefn-
unni hér, m.a. rætt um þorsk-
stofninn við ísland.
Fulltrúar fslands verða Már
Elísson, fiskimálastjóri, Jón
(Jónsson, forstöðumaður Rann-
sóknarstofnunar fiskiðnaðarins,
Gunnar G. Schram, fulltrúi í ut-
Dr. Björn Sigurbjörnsson
/
anríkisráðuneytinu og Pétur Sig
urðsson, forstjóri Landhelgis-
gæzlunnar.
Borgarstjórinn í Grimsby, Alfred Chatteris, afhendir Sigurði Árnasyni skipherra áletraðan
skjöld til minningar um afrek Óðinsmanna. Stýrimennirnir tveir horfa á.
Við í Grimsby hyllum Öð-
in og hans vösku áhöfn
— sagði borgarstjórinn í þakkaræðu sinni
Einkaskeyti frá AP í Grimsby.
ÍBÚAR hafnarbæjarins Grimsby
fögnuðu vel skipverjum af ís-
lenzka varðskipinu Óðni, sem
björguðu 19 sjómönnum af
Grimsby-togaranum Notts Coun-
ty, er hann strandaði við ísland
í febrúarmánuði i vetur.
Allir bæjarráðsmenn og for-
stöðumenn fiskiðnaðarins í bæn-
um voru í kvöld viðstaddir há-
tíðlega athöfn í ráðhúsinu, þar
sem íslendingarnir þrír voru
heiðraðir, þeir Sigurður Árnason
skipherra og stýrimennirnir Sig-
urjón Hannesson og Páll Hall-
dórsson. Var þeim færður minn-
ingaslijöldur til handa varðskip-
inu Óðni og hver um sig hlaut
sem þakklætisvott silfurbikar
með áletrun frá borgarstjóran-
um í Grimsby, Alfred Chatteris.
Einnig veittu þeir viðtöku úr
hendi forseta Félags togaraeig-
enda í Grimsby, silfurbakka, sem
ætlaður er í borðsal Óðins.
Chatteris borgarstjóri sagði í
þakkarræðu sinni, m.a.: Eftir að
togarinn tók niðri á klöppunum,
sáu skipverjar hvar örlítill bát-
ur klauf öldurnar í áttina til
þeirra. í honum voru björgunar-
menn þeirra, tveir skipverjar
af varðskipinu Óðni, sem beið
átekta í nærri mílu fjarlægð.
Sjómennirnir blésu upp tvo
gúmmíbáta og lögðu sig í mikia
hættu við að flytja í þeim sjó-
mennina af Notts County þang-
að, sem þeir voru öruggir. Farið
var með þá í land, þar sem þeir
fengu aðhlynningu í sjúkra-
skýli. Ég get bezt lýst hugrekki
þessara íslenzku sjómanna með
orðum eins af skipverjum á
Notfe County. Hann sagði: Þess-
ir piltar hættu eigin lífi við að
koma okkur yfir í bátinn. Hon-
um hefði getað hvolft hvenær
sem var. Við hefðum allir frosið
í hel, ef við hefðum þurft að
dvelja mikið lengur í togaran-
um. Ég verð þeim eilíflega þakk-
látur.
Og Chatteris borgarstjóri hélt
áfram ræðu sinni: — Við hér í
Grimsby hyllum Óðinn og haris
vösku áhöfn. Ég vona að þið seg-
ið vinum okkar á íslandi hve
þakklátir við erum og hversu
mjög við metum hið nána vin-
áttusamband, sem er milli ís-
lands og hafnarborgarinnar
Grimsby.
Islendingar reynast framsýnir um
söiu þorskblokka í Bandaríkjunum
fiskimálafulltrúi Dana i New York
— segir
í blaðinu Dansk-Fiskeri Tid-
ende birtist fyrir nokkru grein
um samkeppnina um sölu á
frystum fiski á bandaríska mark
aðnum. Greinin er skrifuð af
Erling Hulgaard, danska fiski-
Ungur Islendingur varaforstjóri
hjá FAO og Kjarnorkustofnuninni
•málafulltrúanum í New York.
Hulgaard segir í grein sinni, að
íslenzkir útflytjendur hafi sýnt
mikla framsýni við sölu frysta
fisksins á sl. hausti.
í grein Hulgaard segir:
„Ókyrrð greip um sig í þeim
löndum sem flytja út þorsk-
blokkir, þegar það spurðist í lok
janúarmánaðar, að íslendingar
hefðu selt þorskblokkir á verði,
sem var undir þáverandi mark-
aðsverði.
Það var aðeins þröngur hóp
ur manna, sem þekktu hinar
raunverulegu aðstæður við sölu
íslendinganna, og með tilliti til
Framh. á bls. 31
DR. BJÖRN Sigurbjörnsson,
erfðafræðingur, hefur verið
skipaður varaforstjóri hinnar
sameiginlegu deildar Alþjóða-
heilbrigðisstofnunarinnar og
Alþjóðakjarnorkumálastofn-
unarinnar í Vínarborg. Tók
hann við þeirri stöðu 1. maí.
Vakti það mikla athygli að
svo ungur maður skyldi val-
inn í þessa stöðu. En Björn
hefur undanfarin 4% ár verið
deildarstjóri í hinni sameigin-
legu erfðafræði- og jurtakyn-
bótadeild FAO og Kjarnorku-
stofnunarinnar, sem er eina
dæmið um að tvær af sér-
stofnunum Sameinuðu þjóð-
anna vinni saman.
Af þessu tilefni átti Mbl.
stutt símtal við Björn í gær-
kvöldi. Hann kvað starf sitt
nokkuð breytast, þar sem
hann hefði áður unnið að
erfðafræði og jurtakynbót-
um, en nú mundi hann með
forstjóranum hafa á hendi
stjórn allrar stofnunarinnar.
Þar undir kæmi m.a. verkefni,
sem tengt væri íslandi, en það
er geislunin á fiski, sem á að
gera tilraunir með hjá Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarjps
í sumar í samvinnu við dr.
Þórð Þörbjarnarson. Vísaði
hann til dr. Þórðar um það,
en sagði, að geislunartækin
ættu að koma til íslands í
Framh. á bls. 31
Hörður teiknar enn
eitt alþjóðafrímerki
Hinn 15. maí n.k. munu koma
út í Bandaríkjunum nýtt frí-
merki í tilefni af 50 ára afmæli
flugpósts. f samkeppni um gerð
frímerkisins tók m.a. þátt Hörð-
ur Karlsson listmálari, er vinn-
ur hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um. Frímerki hans var valið,
og fékk hann verðlaun fyrir
teikninguna.
Þetta verður þriðja sinn, sem
út kemur frímerki, er Hörður
hefir teiknað. Hið fyrsta var gef
ið út af Sameinuðu þjóðunum
1961 til að minna á Alþjóða-
gjaldeyrissjóðinn, og annað frí-
merkið var Evrópumerkið 1965.
Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðs
ins hefir boðið Herði að halda
málverkasýningu í húsakynnum
sjóðsins, og verður hún opnuð
15. maí, sama dag og frímerkið
kemur út.
(Frá sendiráðinu í Washington)