Morgunblaðið - 04.05.1968, Blaðsíða 28
I
28
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 4. MAÍ 19«8
náungi kom og sagði okkur, að
hópurinn, sem hafði Corvin-bí-
óið á valdi sínu, þarfnaðist hjálp
ar. Við bróðir minn og fimm aðr
ir komum okkur saman um að
fara, en þegar við vorum komn-
ir framhjá tveimur húsasamstæð-
um hlupum við inn í rússneskt
virki. Við höfðum alls engin
skotfæri, svo að þarna var ekki
annað að gera en gefast upp.
Þeir settu okkur upp á flutn-
ingabíl og óku eftir breiðgöt-
unni. Við héldum, að við ættum
að fara til aðalstöðvanna, en
allt í einu stönzuðu þeir og
settu okkur af bílnum. Flest hús
in þarna í kring voru gjöreyði-
lögð, en einhverra hluta vegna
var karlmannafatabúð þarna al
veg óskemmd. Þeir fóru með
okkur þar móts við. Einn Rúss-
inn mölvaði rúðuna með byssu-
skeftinu. Annar Rússi sagði á
bágborinni ungversku, að nú
skyldum við bara birgja okkur
upp úr búðarglugganum. í fyrst-
unni skildum við ekki, hvað
hann var að fara, en svo sáum
við að þarna kom annar rúss-
neskur flutningabíll með kvik-
myndatökuvél á pallinum. Þessir
fantar ætluðu með öðrum orðum
að kvikmynda okkur meðan við
værum að ræna búðarglugga, til
þess að geta síðar sannfært heim
inn um, að við værum ekki ann-
að en hópur róna. Við sögðum
höfuðsmanninum, að hann gæti
ferið fjandans til. Þá sagðist
hann ætla að telja upp að þrem-
ur ei> skjóta síðan. Og hann
taldi líka upp að þremur og
skaut svo á okkur með vél-
skammbyssu. Fjórir af hópnum
lágu eftir dauðir. Einn dó hálf-
tíma seinna. Við Miklos vorum
teknir upp af ungverskri konu
í bíl, og hún ók okkur í Stefáns-
spítalann.
Nemetz lofaði honum að tala
út. Svo spurði hann. — Sögðuð
þér ekki, að þetta hefði verið
á laugardaginn síðdegis?
— Jú, svaraði Mihaly. — Um
þrjúleitið.
— Siðdegis á laugardag, taut-
aði Nemetz. Frú Halmy var myrt
á laugardagskvöld. Nú vissi
hann að hann hafði verið á villu
götum. Hann gæti þegar á stund
inni strikað frú Moller út og
svo syni hennar af skránni yfir
grunaða. Þótt undarlegt væri,
fann hann fremyr til léttis en
vonbrigða og gremju. Héðan i
frá gæti hann lofað frú Moller
að hverfa aftur til þessa fátæk-
lega og rólega- nafnleysis, sem
hún sjálf hafði kosið sér.
1 lögreglustöðinni bað hann
drenginn að tala við móður sína
í einrúmi. Hann beið þess í
spenningi, að þögnin yrði rofin
af ópi. En það óp kom ekki.
Á skrifborðinu fann hann miða
frá Kaldy: „Rudolf Moller var
frá klukkan sjö til tólf á laug-
ardagskvöld hjá einum kunn-
ingja sínum, Laci Tarjan, sem
hefur staðfest fjarverusönnun
hans“.
Nemetz herti upp hugann og
gægðist inn til frú Moller. Hún
sat á bekk hjá syni sínum og
lagði arminn um axlir honum.
Hún var rauðeygð, en alls ekk-
ert í þann veginn að sleppa sér.
— Nú megið þér gjarna fara
heim frú Moller, sagði hann. —
Mér fellur þetta þungt, hvern-
ig fór fyrir drengnum yðar. Og
afsakið þér þessi áþægindi, sem
ég hef valdið yður.
48
Hún stóð upp seinlega og
sendi honum' þreytulegt bros. —
Það gerir ekkert til, herra full-
trúi. Trúið mér ... með tilliti
til allra kringumstæðna, þótti
mér vænt um að hitta yður aft-
ur. Enda er orðið býsna langt
síðan við sáumst síðast, finnst
yður ekki?
Hún rétti fram höndina. Hann
tók í hana og langa stund stóðu
þau hreifingarlaus og horfðu
hvort á annað. Það sem þau sáu,
var tvær manneskjur — allt
aðrar manneskjur, úr horfinnj
veröld, sem var grafin undir
djúpu öskulagi, rétt eins og Pom
pei eða Herculanum.
Fimmtudagur 1 nóvember.
KAUPUM
hreinar léreftstuskur (stórar og góðar).
JIIwgtiitHðfrifr
prentsmiðjan.
veitingahúsið
ASKUR
BÝÐUR
YÐUR
HELGARMATINN
i handhœgum umbúðum til að taka
HEIM
GRILLAÐA KJÚKLINGA
ROAST BEEF
GLÓÐARSTEIKT LAMB
GLÓÐARSTEIKT NAUTAFILLÉ
GLÓÐARST. GRÍSAKÓTELETTUR
HAM BORGARA
Gleðjið frúna —
fjölskjlduna — vinina —
— njútið
hinna Ijúffengu rétta
heima i stofujðar.
Ef þér óskið
getið þér hringt og pantað ■
við sendum leiguhíl
með réttina heim
tiljðar.
K S KU R matreidir fyrirydur
olla daga vikunnar
Sudurlamhbraut IJf simi 38550
y
*
Ég skil hann pabba ekki, en hann er að spyrja um, hvort sér
sé óhætt að koma.
Alexa gekk út á götuna. Hún
stanzaði þar andartak og andaði
að sér fersku og svölu morgun-
loftinu — með álíka ákafa og
drykkjusjúklingur skellir í sig
fyrsta strammaranum að morgni
dags. Andvari á vestan bar til
hennar þefinn frá ánni. Hópur
kvenna var að hreinsa leifar
byltingarinnar af Jósefstorg-
inu. Vafalaust voru þetta sjálf-
boðaliðar, því að þær voru
miklu kátari én hinar, sem hafa
götusópun að atvinnu. Ung
stúlka í hópnum tók að syngja,
og hinar tóku undir. Þetta var
einhvernveginn svo óraunveru
legt og leikhússkennt. Það var
ekki nema í óperettum, að stúlk
ur sópa götur af svona hjart-
ans lyst. — og svona illa.
Sem snöggvast brauzt sólin
gegn um tætingsleg skýin og
keilulaga geislarnir voru rétt
eins og eitthvert boð um nýja
von. eftir dauðamyrkur síðustu
viku. Sorgarleikurinn var á enda
kljáður og leifarnar af honum
lágu þarna samansópaðar í
kyrfilega hrúgu. Friðurinn beið
handan við næsta horn, með öll-
um sinum smávægilegu skemmt-
unum: leikhúsi, kvikmyndum,
kvöldboðum úti, löngum ferðum,
siglingum á Dóná. Þsyð var und-
arlegt, hvað hægt var að sakna
slíks á skömmum tíma.
Ef Rússarnir hyrfu raunveru-
lega úr landinu, yrði það frjálst
rétt eins og Austurriki, og þá
yrði Budapest hreint ekki sem
verstur staður að eiga heima á,
hugsaði Alexa, er hún gekk eftir
breiðgötunni. Þó því aðeins hún
gæti átt Halmy áfram. Það
mundi koma sumar og sígaun-
arnir í litskrúðugum jökkum og
frunsuskyrtum og með olíugljá-
andi hár mundu spila í útiveit-
ingahúsunum í Buda, og svo
kæmi haust og „Káta ekkjan"
kæmi á sviðið í leikhúsunum,
með einhverja prímadonnu í að-
alhlutverkinu, næstum eins sterk
byggða og gamla og sankti Hell
erts kastalann. Svo kæmi vetur-
4. MAÍ.
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl.
Reyndu að sýna meiri gestrisni en undanfarið jafnvel þótt
þéir finnist gestirnir trufla þig frá störfum. Veittu vel en ekki
svo veglega, að þú stofnir fjárhag beiimilisins í voða.
Nautið 20. apríl — 20. maí.
Einhverjar áhyggjur hafa legið þungt á þér um nokkum tíma
og þú virðist vonlítili um að úr rnálum greiðist. Reyndu að
vera bjartsýnn á framgang miálanna.
Tvíburamir 21. maí — 20. júní.
Skoðanir þínar og samstarfsmainna þinna eru nokkuð ólikar •
og kann 1 fljótu bragði að vera erfitt að samræma þær. Með
góðum vilja er þó unnt að ná ótrúliegum árangri.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí.
Þú hefiu- tekið ákvörðun, sem fjöls/kyldu þinni eða vinmufélög-
um feilur ekki i geð. Haltu þó fasit við þitt og láttu esngan telja
þér hughvarf.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst.
Reyndu að skyggmast undir yfirborð hlutanna og einblína elkki
á það eitt, sem augað sér. Komdu skikk á fjárm-ál og gerðu bú-
reikninga til að sýna maka þínum í hvað peningarnir fara.
Jómfrúin 23. ágúst — 22. september.
Reyndu að vera sveigjanlegri í viðskiptum þínum og sam-
skiptum við aðra og láttu efcki eðlislæga þrjóefcu þína spúla fyr-
ir að góður árangur náist á ýmisum sviðum.
Vogin 23. september — 22. október.
Ef þú værir efcki svona dæmialaust eyðsJusamur og raun ber
vitnd um, mundi nú hagur þiinn annar. Reyndu að taka þessi
mál til gagngerðrar endurskoðuinar. Láttu efcki ginnast af gylli-
boði, sem þér kann að verða gert. Efcki er aHt sem sýnist.
Drekinn 23. október — 21. nóvember.
Forðastu að gefa nokfcur bindiandi loforð í dag, hvert sem
eru viðskiptalegs eða persónulegs eðlis. Dómgreind þin er ekki
upp á það bezta og því er hagsitæðara að nasa hvergi um rað fram.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember.
ýmsar breytingar verða á heimiíliinu I sag, sennilega til hins
betra. Láttu hagsýni þína og meðfæddia og góða greind hafa
yfirhöndina í viðkvæmu máli.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar.
Þú vinnur þér ívið létt og ættirekki að venja þig á það,
kynnii að koma þé í koll síðar. Hafðu samband við ættingja eða
vini sem bíða frétta af högum þínum.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar.
Þú sfcalt vera óhræddur við að segja hug þinm og draga efckert
undan. Láttu efckert á þig btta. Farðu fram á launahækkun í
starfi þinu, ef þú vimmuir ékkert utan heimiliis, þá akaltu fá
aukna vasapeninga á heimavígsitöðvum.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Þú lendir í leiðindaþrefi á vinnustað og lætur það haifa meiri
áhrif á þig en þörí er. Síðari Muti dagsins verður miun ánægju-
legri. Vertu heima við i kvöld og bjóddu ekki til þín gestum.
/