Morgunblaðið - 01.06.1968, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1'96S.
3
Jón Auðuns dómpróf.:
Handleiisla —
Heilagur andi
Frumkristnin er einhver
furðulegasta kynslóð, sem á
jörðu hefir lifað, og í trú henn-
ar á handleiðslu andans er að
finna lykilinn að leyndardóm-
inum um þann ótrúlega kraft,
sem hún er gædd, hið dæmalausa
hugrekki hennar andspænis of-
sóknum, hættum og dauða.
Hér var ný kynslóð á ferð,
sannfærð um að hún væri leidd
af æðra váldi, undir daglegri
vernd æðri veruleiká. Og þessi
veruleiki var andinn, heilagur
andi, sem kristnu mennirnir
fundu að var daglega að leiða
þá, daglega að stjórna þeim,
dagtega að (bera sjiálfum sér
vitni.
Og andinn bar sér vitni í lífi
þessa fólks einkum með tvennu
móti: Ýmist með táknum og
kraftaverkum, eða sem hand-
leiðsla, kærleiksfull, vísdómsrík.
Af lifandi lindum þessarar
reynslr drukku menn ótæpt, og
þeir sóttu þangað þrek til að
lifa em hetjur og deyja þannig,
að blóðugan kranz píslarvæitis-
dauðans 'báru iþeir eins og sig-
ursveig.
Jörðin var þeim veruleikur.
Á henni stóðu þeir föstum fót-
um. En ekiki eini veruleikinn,
því að yfir þeim hvelfdist him-
inn, sem heilagur andi bar
vitni, ýmist með kraftavexkum,
duilsýnum', lækningum og vitr-
unum, — eða með þeirri hljóðu
handleiðslu, sem var kærleifcs-
rík og viturleg, þótt hún leiddi
þá stundum inn á vegi, sem þeir
höfðu ekki ætlað sér sjálfdr að
ganga.
Nú eru 19 aldir liðnar. Hvað
eigum við nú af þessum heilaga
arfi, þessari helgu glóð?
Við eigum mik'iu meira en
nóg af lítt skiljanlegum „skýr-
ing'um“ á heilögum anda ,en ,
þekkjum við kraft hans?
Kirkja hvítasunnukynslóðax-
innar er í stórum vanda, stórri
þrengingu stödd. „Lituðu“ þjóð-
irnar hafna kristindóminum í
ríkari og ríkari mæli, sumpart
raunar af andstöðu við vestræn
yfirráð og afskiptasemi og vest-
ræna menningu, aðra en tækni-
menninguna. Og í kristnum
heimi gerast göturnar að helgi-
dómunum grasi vaxnar og færri
og færri þiggja aðra þjónustu
kirkjunnar en hin svokölluðu
prestsverk. Kirkjan þokar fyrir
öðrum öflum í nú'tímaþjóðfé-
lagi.
Þeir sem kirkjunni unna sjlá
þetta, en ótrúlega mangir telja
það leið til úrbóta, varnar og
sófcnar, að endurvekja gömul,
stirnuð form í gatsiitnum kenni
setningum, gömlum söng og sið-
um og fánýtum klæðaiburði við
helga þjónustu. Aftur í gráa
forneskju er leitað eftir göml-
um götum, sem nýrri kynslóð
er ætlað að ganga. Sumar barna-
legar sálir finna í þessu ein-
hverja fróun, en dettur nokkr-
um í ai'vöru í hug, að þetta fá-
nýta fálm leið.i nútímamenn að
i þéim lindum, sem frumkristnin
drakk af sinn þrótt, sitt undra-
verða þrek, sína sterku sann-
færingu um handleiðslu andans?
Hefir þú enga reynslu um
slíka handleiðslu? Þreifar þú
aldrei á þeirri hendi, sem þig
leiðir? 'Hafa þau atvik aldrei
orðið í lífi þínu, að þú gazt ekki
annað en séð, að lífsþráðurinn
þinn var spunnin hendi, sem
ekki var höndin þín, og lífsvoð-
in þín ofin, þótt þú værir ekki
vefarinn sjálfur?
Eða getur þú við nána attiug-
un annað en séð, hvernig and-
inn hefir starfað, leiðbeint, stýrt
framþróun kynslóðanna? Lífs-
I móðan hefir með öruggum þunga
hnigið hljóðlega fram. Öld hefir
komið af öld og kynslóð af kyn-
slóð. Þessa miklu sögu eiga aliir
að geta lesið. En færri lesa letr-
ið hulda bak við atburðarásina,
söguna sem frumkristnin las um
heil. anda og handleiðslu hans.
Þetta voru vordagar, dásam-
legir vordagar. En 19 aldir eju
liðnar og margt er orðið breytt.
Að ýmsu eðlilega. Öll ytri form
eru mannaverk sem eiga, ef vel
er, að endurnýjast með hverri
nýrri kynslóð. Það er feigðax-
merki, bæði á kirkjunni og öðr-
um stofnunum, ef leita þarf aft-_
ur í aldir eftir leiðum fyrir nýja^
kynslóð.
Það er alvörumál, og þó eink-
um það, ef kraftur andans kenn-
ist ekki í kirkjunni. Þá verða
hin ytri form líkt og rómversku
vatnsleiðslurnar frægu, sem eru
fagurt meistaraverk að horfa á,
en flytja ekki droþa af lifandi
vatni lengur!
Þá frjósa læknir, og lindir
mannshjartans þorna, trúræn
hrifning hættir, hugljómun deyr.
Þá tapast þeir töfrar, seip engin
mannssál, engin kynslóð má að
ósekju missa.
Rannsóknarleiöangur.
Finnskur kór
í heimsókn
HINGAÐ tii lands er kominn
finnski kórinn Helsingin Laulu
(söngvarar Helsingforsbæjar), og
syngur í Háskólabíói í dag, laug-
ardag kl. 4 e. h.
Helsingin Laulu er nú á hljóm
leikaferð um Norðurlönd og Eist.
land og er söngskemmtun í Há-
skólabíói liður í henni.
Belsinigin Laulu er 50 radda
blandaður kór. Kórinn hefur
leitazt við að kynna áheyrend-
um sínum lítt þekkt verk og þá
fyrst og fremst verk finnskra
tónskálda. Kórinn hefur fengið
Ærábæra dóma. Stjórnandi kórs-
ins er Kauli Kalhoniemi.
Á hljómleikunum á laugardag
verður flutt ýmislegt það falleg-
asta úr finnskri kórmúsík, m. a.
lög eftir Sibelius, Palmgren,
Madetoja og Kuula, ásamt
nokkrum finnskum þjóðlögum.
— Leika í Hótel Sögu á þriðiudagskvöldið
LOS Angeles Brass Quintett-
inn er nú staddur í Reykja-
vík, á vegum Lúðrasveitar
Reykjavikur. Mun hann halda
hljómleika í Hótel Sögu á
þriðjudagskvöld kl. 9.
Fréttamaður fann þá að
máli niðri í Ríkisútvarpi
ásamt ungri konu, frú Miles
Anderson, sem þeir sögðu
vera fóstru sína. Þeir félagarn
ir, sem allir eru ýmist heima-
eða heimsfrægir í tónlistar-
heiminum, að sögn Þorkels
Sigurbjörnssonar, voru, að eig
in sögn að sækja í sig veðrið
fyrÍT útvarpsupptöku eftir há-
degfð.
— Eruð þið búnir að leika
lengi saman?
— Þrjú ár, við erum nokk-
urskonar samvinnuhreyfing.
Jafnrétti, frelsi og bræðra-
lag!
— Hver leikur svo á hvaða
hljóðfæri í sveitinni?
— Stevens á trompet, Maríó
Guarneri á trompet, Ralp
Pyle á franskt horn, Miles
Anderson á trombone (bás-
únu) og Roger Bobo á túbu.
— Hvað ætlið þið að hafa
langa viðdvöl hérna?
- — ■ ' H
— Við förum héðan á
fimmtudag.
— Hvað verður á efnis-
skránni?
— Prelúdía í e-moll eftir
Bach, svíta eftir Pezel, Can-
zóna nr. 5 eftir Gabrieli, svíta
nr. 1 eftir Wilder og í þessu
verki fær hver einstakur
leikari aðalhlutverk. Síðan
ætlum við að hafa hlé. Eftir
hlé leikum við svo 3 kaprísur
eftir Paganini, músík fyrir
blásarakvintett eftir Schuller,
og k'úntett eftir Malcolm
Arnold.
Forstöðunefnd sýningar Myndlistarfélagsins í sýningarsal Menntaskólans.
Myndlistarfél.
opnar sýningu
i Menntaskólanum á laugardag
farinn a Vatnajökul
I MORGUN lagði upp hinn ár-
legi vorleiðangur Jöklarannsókn
arfélags Islands til mælinga á
Vatnajökli. Eru núna í förinni 14
manns undir forustu Sigurðar
Þórarinssonar, jarðfræðings, og
verður ferðazt um jökulinn í
tveimur snjóbílum, Jökli II og
Gusa Guðmundar Jónassonar.
í förinni eru nú þrír menn frá
Raunvísindastofnun Háskólans,
I þeir Bragi Agnarsson, efnafræð-
I ingur og eðlisfræðingarnir Þor-
valdur Búason og Páll Theodórs-
son, en þeir ætla að gera grunn-
vatnsmælingar samskonar og
þeir gerðu á Langajökli fyrr í
vor og taka sýnishorn af jöklin-
um með þar til gerðum bor.
Einnig eru í förinni Hjálmar
Bárðarson, skipaskoðunarstjóri,
sem er listilegur ljósmyndari og
rússneskur maður, Sokoloff sem
er sérfræðingur í jökla- og vatna
fræði og hefur verfð að kynna
sér þau mál hér í vetur. Og að
öðru leyti félagar úr Jöklafélag-
inu, sem annast ýmiskonar störf
í þessum rannsóknarleiðangri. Er
ætlunin að reyna að fara víða
um jökulinn, bæði á Austur-
Jökulinn, á Bárðarbungu, og í
Kverkfjöll og skipta verður liði
svo bílarnir geti flutt mælinga-
menn á fleiri staði í einu. Og að
sjálfsögðu verður komið í Gríms
vötn, þar sem skáli Jöklafélags-
ins er á mfðjum jökli.
Lagt var af stað snemma í
morgun og ætlunin að reyna að
komast yfir Tungnaá á Hófsvaði
seint í kvöld eða nótt, þegar
bráðnun er minnst, því leysingar
eru byrjaðar og þá getur áin
orðið ófær trukkunum, sem V
flytja snjóbílana inn í Tungnár-
botna. Reiknað er með að ferðin
taki hálfan mánuð.
MTNDLISTARFÉLAGIÐ opnar
sýningu í Menntaskólasalnum
kl. 16 í dag. Á sýningunni
verða 52 myndir eftir 15 málara,
LEIÐRETTIIMG
I Lesbók Mbl., sem fylgir blað-
inu í dag er meinleg prentvilla.
Á bls. 8, 1. dálki, 2. línu að neðan
stendur þjóðlífi, en á að vera
þjóðfífli. Leiðréttist þetta hér
með.
Að geffftu tilefni
AÐ gefnu tilefni vil ég undirrit-
aður taka fram, að þau ljóð, sem
birzt hafa í Þjóðviljanum að
undanförnu, eru ekki eftir mig,
heldur nafna minn.
Guðmundur Hallvarðsson,
og verður hún opin frá 1.-9. júní.
Myn'dirnar voru að visu henigd
ar upp á m'9ðvilkuidag og var þá
opið og sömiU'leiðils á fimmibuidag,
en gert verður síðan hilé fram
yfir hádegi á laiugardag vegna
prófa, sem nú standa sem hæst.
Málaramir, sem, miyndiir eága
á sýningunni em Jóhannes
Kjarval, sem forstöðuneifnid sýn
ingarinnar sagði vera heiðiurs-
gest, og hafði hann alltaf sýnt
með þeim frá byrj'Uin, Eyjóflifur
Eyfells, Finnur Jónsson, Guð-
miundur Karl Ásbjörnisson, Guð
mundur Hermannsisen, Guinnar
Hjal’taison, Belga Weiisshappel
Foster, Börður Haraldlsson,
Helgi Guðmundsson, Jón Gumn
arsison, María H. Ólatfsdóttir,
Pétur Fri'ðrik Sigurðsson, Ragn
ar Páil F.inarsison, Silg. K. Árna
son og Sveinm Bj'örnisisom.
John Ogdon.
John Ogdon hjó
Tónlistnr-
iélnginu
JOHN Ogdon, enski píanistinn,
sem lék með sinfóníuhljómsveit-
inni sl. fimmtudag, leikur nú
tvisvar fyrir meðlimi Tónlistar-
félagsins, næstkomandi þriðjudag
og miðvikudag, í Austurbæjar-
bíói.
Verketfnin sem Qgdon spilar
eru eftir Bach, Beethoven, Ravel
og Liszt. Hér er um tónlistarvið-
burð að ræða og var listamannin
um fagnað ákaft á sinfóníutón-
| leikunum.
Los Angeles Brass Quintet, Stevens, Mario Guarneri, Ralp
Pyle, Miles Anderson, frú Anderson og Roger Bobo.
Los Angeles Brass quintet hér
r