Morgunblaðið - 01.06.1968, Qupperneq 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1968.
44 menn einir á segl-
bátum yfir Atiantshaf
Observer-keppnin hefst
Eric Tabarly, franski sjóliðsforinginn, sem sigraði í Observer-
siglingunni 1964 og sló þá hraðamet Sir Francis Chichesters,
við líkan af þrefaldrl skútu sinni, „Pen Duick IV“.
Klukkan ellefu fyrir há-
degi í dag hefst í Plymouth
á suðurströnd Englands
geysimikil kappsigling, sem
brezka stórblaðið Obaerver
gengst. fyrir á fjögurra ára
fresti. Mikill fjöldi seglbáta
af ýmsum stærðum og gerð-
um tekur þátt í keppninni,
en hún er fólgin í því, hver
verður fyrstur til Newport á
Rhode Islands í Bandaríkjun-
um. Aðeins einn maður sigl-
ir hverjum báti yfir Atlants
hafið-
Bruce Dalling frá Suður-Afr-
iku.
Það varpar talsverðum
skugga á keppnina, að einn
þairra manna, sem tilkynnt
hafa þátttöku sína, Arthur
Piver frá Kaliforníu, er nú
talinn af, eftir að bandaríska
strandgæzlan hætti leit sinni.
Piver lagði af stað hinn 17.
marz sl. frá San Francisco
til San Diego einn á báti sín
um. Hann bjóst við að ná
til hafnar hinn 22. apríl, en
ekkert hefur til hans spurzt.
Piver þekkti Kyrrahafið vel.
Hann hafði farið í margar
siglingar frá vesturströnd
Ameríku allt til Hawai-eyja
og Nýja-Sjálands. En hann
hafði alltaf siglt með áhöfn
með sér svo að þetta var
fyrsta för hans einn á báti.
Hann var góður sjómaður og
einn fremsti seglbátateiknari
í heimi.
Fregnin um Piver grúfði
eins og ský yfir Plymouth
undanfarnar vikur. Margir
keppendanna hafa dvalizt þar
nokkurn tíma og undirbúið
ferðina. Þar hefur rikt mikil
spenna og menn hafa mjög
skipzt á tilgátum um það,
hver muni sigra í keppninni.
Tapi Pivers minnti menn á
hættur úthafsins.
Greina mátti í augum
margra keppenda löngun til
að launa hafinu lambið gráa
fyrir þetta ótímabæra grimmd
arverk. Margir þeirra þekktu
Piver vel og báru virðingu
fyrir honum sem siglingar-
manni og uppfinningarmanni
og seglbátasmið.
Kannski var ekki vanþörf
á því að minna á þær hættur,
sem fylgja því að sigla einn
um úthöfin. Eftir hnattsigl-
ingu Sir Francis Chichesters
og Alecs Roses hafa menn
tekið að líta á þá, sem sigla
einir um höfin, eins og venju
lega dauðlega menn. En þeir
skömmu á siglingu frá San
Francisco til San Diego.
eru líka miklu meira en það.
Það eru brautryðjendur á
sviði mannlegra afrefka. Það
er mjög hættulegt og erfitt
að sigla einn svona langa
leið, og hver maður, sem það
reynir, á Skilið aðdáun.
Einn hinna sigurstrangleg-
ustu er 29 ára gamall Suður-
Afríkubúi, Bruce Dalling.
Hann er mjög geðfelldur mað
ur og hefur notið mikilla vin
sælda enskra blaðarfianna og
í dacj
keppenda. Eftir öll blaðaskrif
in um Olympíuleikana, er
er hann verðugur fulltrúi
suður-afrískra íþrótta. Hann
er mpög áhugasamur og hef
ur einsett sér að reyna að
sigra, þótt hann hafi ekki í
frammi neinar yfirlýsingar
þess efnis. Sigling hans frá
Suður-Afríku til Englands
virðist hafa tekizt vel.
Dalling er þeirrar skoðun-
ar að einfaldur seglbátur
muni vinna keppnina. Bátur
hans hefir einn skrokk, er 50
fet að lengd og nefnist „Voor
trekker". Einvígi það, sem í
vændum er milli einfaldra og
margfaldra siglara, er eitt
helzta umræðuefnið í sigling
arheiminum. Margir sérfræð
ingar telja, að Observer-
kappsiglingin muni leiða mál
ið til lykta.
Tólf þrefaldir siglarar og
fjórir tvöfaldir bátar höfðu
verið skráðir til keppni fyrir
nokkrum dögum, en geign
þeim eru 27 einfaldir siglarar
af ýmsum gerðum.
Það vakti mikla athygli, þeg
ar það spurðist að Erij^Tab-
arly, sem vann kappsigling-
una 1964, á einföldum báti
sínum „Pen Duick III“, hefði
ákveðið að skrá sig til leiks
á mjög nýstárlegum, þreföld
um báti sínum „Pen Duick
IV“. Báturinn var sjósettur
fyrir aðeins þremur vikum og
þótt Tabarly sé frábær sigl-
Alain Gliksman
ingamaður, verður að draga
mjög í efa að honum takizt
að vinna keppnina á þessum
báti.
Franski sjóliðsforinginn
fékk þá hugmynd að smíða
þrefaldan siglara eftir Fast-
net-!kappsiglinguna í fyrra-
Pen Duick IV. er 65 feta
löng, hin lengsta af öllum bát
unum, og menn velta því fyr
ir sér hvort einn maður geti
yfirleitt ráðið við slíkt fer-
líki þá 3000 mílna leið, sem
liggur yfir Atlantshafið.
Fyrir Skömmu var ekki vit
að fyrir víst, hve mangir bát
ar mundu taka þátt í Observ
er-kappsiglingunni, því að
þátttakendur verða að færa
sönnur á það, að þeirra hafi
áður siglt einir 500 mílna vega
lengd, — en 44 munu hafa
látið skrá sig til keppni.
Observer-kappsiglingin hef-
ur vakið geysilega athygli um
allan heim. Faðir Dallings
skrifaði blaðinu bréf og sagði
að áhugi Suður-Afríkumanna
væri mjög almennur. Observ
er hafa borizt fyrirspurnir
frá nokkrum löndum, og
Frakkar leggja allt sitt þjóð
arstolt í keppnina. Sá kepp-
enda, sem einna mest hefur
borið á að undanförnu, er
Frakkinn Alain Gliksman.
Gliksman er ritstjóri tíma-
rits siglingarmanna, Neptune
Nautisme. Bátur hans, „Nep-
tune“, er 60 feta langur og
var smíðaður sérstáklega fyr
ir keppnina. Aðrir keppendur
hafa mikið álit á bátnum og
skipstjóranum, sem er aðlað-
andi og lítillátur, þótt hann
hljóti að vita að hann hefur
'talsverða möguleika á því að
verða fyrstu að lokamarkinu
í Newport. Báturinn er með
einföldum skrokki og mjög
rennilegur og fallegur ásýnd-
um, en þó velta menn því
einnig fyrir sér, hvort það sé
nokkrum manni kleift að stýra
svo stórri skútu yfir úthaf-
ið. •
Það er milkið um dýrðir í
Plymouth í dag, enda eru
siglingamenn frá 10 löndum
komnir þangað til að fylgjast
með upphafi Observer-kapp-
siglingarinnar.
Skátamót í Krísuvík
SKÁTAFÉLAGIÐ Hraunbúar
heldur að venju vormót nú um
hvítasunnuna. Mótið verður
haldið í Krýsuvík og er hið 28.
í röðinni. Það verður sett föstu-
daginn 31. maí klukkan 22 og
stendur fram á annan í hvíta-
sunnu. Mót þessi hafa jafnan
verið fjölsótt og eru allar líkur
á að svo verði enn.
Á þessu skátamóti verða sér-
stakar dróttskátabúðir og að
nokkru leyti sérdagskrá fyrir
dróttskáta. Þá verða einnig fjöl-
skyldubúðir, en þær voru mjög
vel sóttar á síðasta vormóti.
Þar sem nýbúið er að taka upp
hægri umferð hér á landi, verð-
ur þetta mót að nokkru leyti mið
að við það. Einstaklingskeppni
og ýmislegt fleira verður á dag-
skránni, sem reynir á kunnáttu
og hæfni í umferðinni.
Varðeldar verða á laúgardags-
og sunnudagskvöld og verður
þar vafalaust glatt á hjalla ef að
venju lætur. Varðeldurinn á
sunnudagskvöldið verður opinn
öllum sem vilja, en oft hafa á
annað þúsund manns verið á
þessum Hraunbúavarðeldum.
Mótsgjald er kr. 300 og fyrir
það fá þátttakendur m.a. móts-
merki og mótsblöðin, sem verða
fjögur, kvöldhressingu (kakó og
kex) og mjólk alla mótsdagana.
Einnig verða farnar kynningar-
og skoðunarferðir á mótinu, þátt
takendum að kostnaðarlausu.
Um morguninn á hvít.asunnu-
dag verður helgistund, og klukk
an tvö þann sama dag verður mót
ið opnað fyrir almenning
Frá skátamóti í Ilelgadal.