Morgunblaðið - 01.06.1968, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1968.
11
Tónleikar:
Bakari óskast
Samsöngur Geysis frá Akureyri
LAUGARÁSBAKARÍ
Laugarásvegi 1.
Sex ár eru liðin frá því að
karlakórinn „Geysir“ frá Akur-
eyri heimsótti höfuðborgina
sfðast. Söngstjóri var þá Árni
Ingimundarson, en harm hafði
tekið við kórnum af föður sínum,
Ingimundi Árnasyni, sem stofn-
aði „Geysi“ og gerði úr honum
einn af beztu kórum lanðsins.
Söngurinn bar þá enn um margt
sama svip og verið hafði í tíð
Ingimundar. En nú hefur „Geys
ir“ fengið nýjan söngstjóra, Jan
Kisa, tékkneskan tónlistarmann,
sem búsettur er og starfar á
Akureyri. Og nýir siðir koma
með nýjum herrum. Sá Geysir,
sem lét til sín heyra í Gamlabíói
í Reykjavík fyrra laugardag, er
vart þekkjanlegur fyrir sama kór
og þeir feðgar stjórnuðu. Enda
eru að sjálfsögðu fáir einir eftir
af þeim mönnum, sem mestaja
svip settu á hópinn á'frUr fyrr
undir forystu Ingimundar. Hitt
veldur þó meiru, að nú er kórinn
tekinn nýjum tökum, bæði um
söngstíl og sérstaklega þó efnis-
vaL
íslenzkir karlakórar hafa fram
á síðustu ár að mestu samið sig
að svonefndri norrænni hefð í
karlakórssöng. I því felst það
meðai annars, að viðfangsefnin,
sem flest hafa verið af norræn-
um rótum runnin, háfa yfirleitt
verið „alvarleg“ tónlist og söng-
urinn sjálfur hefur borið sama
svip: Það hefur með cfðrum orð-
um verið litið á karlakórssöng-
inn sem tilraun til „alvarlegrar“
músíkiðkunar, en ekki aðeins til
gamans í glöðum félagsskap. Af
þessu leiðir aftur, að meiri kröf-
ur hafa verið gerðar til karlakór
anna hér um norðurslóðir en víð-
ast annars staðar, enda hefur
karlakórssöngur hvergi náð meiri
þroska. Á Islandi var þa'ð svo um
langt skeið, að varla var um
vandaðri tónlistarflutning að
ræða en söng karlakóranna,
þegar þeim tókst bezt. Eftir því
sem tónlistarstarfsemi hér hefur
orðið umfangsmeiri og fjölbreytt
arL hefur hlutur karlakóranna í
henni að sjálfsögðu orðið tiltölu-
lega minni, en þó skipa hinir
fremstu þeirra enn veglegan sess
í íslenzku tónlistarlífL
En nú virðist hin norræna kór
sönghefð vera á undanhaldi, þótt
margt — og sumt merkilegt —
hafi verið gert henni til viðhalds
og eflingar. Jafnvel í Svíþjóð,
þar sem hún hefur til þessa stað
ið föstum fótum, hneigjast sumir
kórarnir — einkum þó þeir, sem
minna eiga undir sér — að „létt-
um“ viðfangsefnum af dægurlaga
kyni, og má það ef til vill teljast
eðlilegt tímanna ákn. En vel verð
ur að halda á slíku efni, bæði um
búning og meðferð, ef það á að
verða kórnum til framdráttar til
lengdar.
Söngskrá „Geysis" á þeim tón-
leikum, sem hér um ræðir, bar
sterkan svip þessarar stefnu. Þar
æg'ði saman dægurlögum og þjóð
lögum úr ýmsum áttum, éinsöngs
lögum innlendum og erlendum
og lögum úr amerískum söng-
leikjum; þar kom líka fram stef
úr sinfóníu og kór úr óperu, en
sárafá eiginleg karlakórslög. Ut-
setningar á þessu efni voru mjög
misjafnlega smekklegar, sumar
hnittilegar, en aðrar miður, svo
sem á lagi Þórarins Jónssonar
„Norður við heimsskaut". Á
karlakórslögum Þórarins sjálfs er
snilldarhandbragð sem kunnugt
er, og er því mikill ábyrgðar-
hluti að láta einsöngslög hans
sæta slíkri meðferð að honum
fornspurðum.
„Geysir" hefur enn sem fyrr
góðum röddum á að skipa, þótt
ekki virtist raddblærinn í heild
að þessu sinni jafnast á við það
sem bezt var á'ður. En vera má
að þar hafi gætt eðlilegra þreytu
merkja í lok erfiðrar söngferðar.
Einsöngvarar með kómum voru
Sigurður Svanbergsson, Jóhann
Konráðsson, Jóhann Daníelsson,
Jóhann Guðmundsson, Aðal-
steinn Jónsson og Lárus Haralds
son, og fóru allir laglega með
hlutverk sín. Undirleikari var
Philip Jenkins. enskur píanóleik
ari, sem verið hefur kennari við
Tónlistarskóla Akureyrar. Það
kom hér fram, þótt í litlu væri,
sem áður er kunnugt að hann er
frábær píanóleikari, og væri gam
an að fá áð kynnast list hans
betur við ákjósanlegri skilyrðL
Karlakórinn „Geysir“ er alltaf
aufúsugestur í Reykjavík, og
hverju því, sem hann hefur fram
að færa, er jafnan vel tekið. Að
þessu sinni hefði það flest eins
vel getað verið komið sunnan og
austan úr Bæheimsbyggðum eins
og norðan úr Eyjafirði. Á söng-
skránni var til dæmis ekkert lag
eftir Björgvin Guðmundsson, Jó-
hann Ö. Haraldsson eða Áskel
Snorrason, svo áð aðeins þrjú
Akureyrartónskáld séu nefnd. Að
sumum lögum þeirra hefði þó
verið meiri fengur en flestu því,
sem nú stóð á efnisskránni. Af
slíku efni fæst allstaðar nóg.
„Geysir“ á hér — ekki sízt meðal
söngmanna — marga góða vini,
sem jafnan fagna endurfundum.
En þeir mundu harma það, ef
Geysismenn sjálfir gleymdu for-
tíð sinni og forustuhlutverki með
al íslenzkra — og þá sérstaklega
norðlenzkra —- karlakóra.
Jón Þórarinsson.
Þurfið þér
sérstðkdekk
fyrir H-UHFERD ?
Nei,aðeins góð.
Gerum fljótt og vel við hvaða dekk sem er,
seljum GENERAL dekk.
hjólbaröinn hf.
Laugavegi 178 * sfmi 35260
ÚTS'ÝNARFERÐIR: ÓDÝRAR ÚRVALSFERÐIR
Harðangursf jörður — Bergen.
Suður-Svíþjóð — Kaupmannahöfn
Glasgow og skozka hálendið.
14 dagar. — Brottför 16. júlí.
Vinsælasta Norðurlandaferðin.
FARSEÐLAR — HÓTELPANTANIR
I T — FERÐIR
EINSTAKEINGSFERÐIR
Sífellt fleiri einstakllngar og fyrirtæki
leita til ÚTSÝNAR með allt, sem viSkem-
ur ferðalögum þelrra.
ÚTSÝN hefur 12 ára reynslu í að veita yð-
ur þjónustuna, sem þér þarfnist, án þess
að það kosti yður nokkuð aukalega. Verið
velkomin i hóp hinna mörgu, sem hafa
sannfærzt um, að viðskiptin við ÚTSÝN
er lykillinn að ánægjulegu og vel heppn-
uðu ferðalagi.
ALASSIO — heillandi baðstaður á ítölsku
Rivierunni og býður einnig tækifæri til
fjölbreyttra ferðalaga, t.d. til Monte Cario,
Genua, Rapallo, Porto Fino o. fl. 11 daga
dvöl á völdu hóteli með fullu fæði og til
viðbótar 4 dagar í LONDON.
Brottför 26. júlí og 9. ágúst.
RÓM — SORRENTO — LONDON
Dvalist 3 daga í Róm, „borginni eilífu" og
viku í Sorrento við fegurð Napolíflóans,
og farið í ferðir þaðan til Pompei, Capri,
Amalfi o. fl. — 4 dagar í LONDON.
Brottför 16. ágúst og 30. ágúst.
GRIKKLAND
12 dagar í LOUTRAKI, sem er yndislegur
baðstaður um klukkustundarferð frá Aþenu.
Kynnisferðir til sögufrægustu staða Iands-
ins. Siglt með 26. þús. tn. skemmtiferða-
skipi um Adríahaf. 4 dagar i LONDON.
Brottför 13. sept. — Ferð með kostakjörum.
SPÁNARFERÐIR:
ÚTSÝN býður fjöibreyttasta úrvalið af
Spánarferðum, sem flestar eru að verða
upppantaðar:
LLORET DE MAR — vinsælasti og
skemmtilegasti baðstaðurinn á Costa Brava
um klukkustundarferð frá Barcelona. Val-
in hótel. Fararstjóri Útsýnar, Ottó Jónsson,
dvelst á staðnum. 3-4 daga dvöl í LONDON
þykir ómissandi í þessum ferðum.
Brottför: 18. júni, 26. júlí 16. ágúst, 23.
ágúst, 30. ágúst, 6. sept. 13. sept.
MALLORCA:
Brottför 12. júlí, 6. sept.
BENIDORM
Einn fegursti og eftirsóttasti baðstaður á
meginlandi Spánar. — 15 dagar — 4 dagar
í LONDON. — Brottför 20. sept.
TORREMOLINOS
Vinsælasti baðstaðurinn á Costa del SoL
15 dagar — 4 dagar í LONDON. — Brott-
för 20. sept.
MIÐ-EIHÓPUFERÐ
KAUPMANNAHÖFN — RÍNARLÖND
SVISS — PARÍS
18 dagar: — 5.—23. ágúst.
Eins og áður —
fjölbreyttasta
og vandaðasta
ferðaúrvalið —
ÖTSVN
SIMAR:
20-100 og 2-35-10
Austurstræti 17
FERÐASKRIFSTOFAN