Morgunblaðið - 01.06.1968, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ lí>68.
31
732 skammbyss-
ur og 7 véíbyssur
— hafa verið afhentar lögreglunni, sem
gefið hefur út 385 byssuleyfi fyrir
áður ólöglegum rifflum
Á FUNDI með blaðamönnum er
Bjarki Elíasson, yfirlögreglu
þjónn og Ásgeir Thoroddsen,
fulltrúi í dómsmálaráðuneytinu
boðuðu til í gær, kom það fram
að ráðuneytið hefði ákveðið í
samráði við saksóknara að fram
lengja tilkynningarfrest á ólög-
legum skotvopnum til 15. júni.
Er þetta gert vegna þess, að enn
ila, er hafa ólögleg skotvopn
undir höndum og vill hún gefa
mönnum kost á að skila þeim
án þess að til kæru komi.
í gær höfðu lögreglunni í
Reykjavik borizt alls 112 skamm
byssur og 4 vélbyssur, en tvær
höfðu borizt áður en auglýst var
um frestinn, er átti að hafa runn
ið út á miðnætti í nótt, hefði
ekki komið til hálfsmánaðar fram
lengingar eins og áður er sagt.
Menn hafa komið með öll ó-
lögleg skcftvopn, sem þeir hafa
haft undir höndum, þ.á.m. rifla,
sem ekki hafa verið á skrá. Hafi
þessir menn uppfyllt öll skil-
yrði fyrir byssuleyfi hafa þeir
fengið að halda byssum sínum
og fengið leyfi fyrir þeim. Alls
hefur lögreglan þannig veitt
leyfi fyrir 385 rifflum og hagla-
byssum.
Ásgeir Thoroddsen las upp
upplýsingar um fjölda óleyfi
legra skotvopna, sem skilað
Gunnor Thoroddsen
Framhald af bls. 32
Gunnar Thoroddsen og frú
Vala munu mæta á fundum þess
um og einnig er ráðgert, að halda
síðar fundi á Sauðárkróki, Sel-
fossi, í Keflavík, Hafnarfirði,
Kópavogi, auk Reykjavíkur.
Gunnar Thoroddsen sagði að
á fundum þessum yrðu flutt nokk
ur ávörp stuðningsmanna hans
og auk þess muni hann flytja
ávarp. Kvaðst hann fúslega
svara fyrirspurnum, ef þær
kæmu fram á fundunum.
Gunnar Thoroddsen sagði, að
varðandi útvarp og sjónvarp
vildi hann taka fram, að út-
varpsráð hafi ákveðið að hvor
frambjóðandi komi fram í þrem-
ur þáttum. í>ann 19. júní komi
frambjóðendur fram í viðtals-
þætti sem hljóðvarpað og sjón-
varpað verður samtimis. Þá muni
frambjóðendur flytja ávörp í
hljóðvarpi og sjónvarpi þann
28. júní og loks hafi útvarps-
ráð samþykkt, að sérstakir 30-
40 mínútna þættir verði fluttir í
hljóðvarpi og sjónvarpi og verði
þeir undirbúnir af stuðnings-
mönnum frambjóðenda.
Gunnar Thoroddsen sagði, að
fram tiil þessa hefði kosninga-
undirbúningurinn fyrst og
fremst beinzt að því, að koma
á fót skrifstofum og trúnaðar-
mannakerfi. Þá hefðu kornið út
3 tölublöð af blaðinu „Þjóðkjör"
og eitt af blaðinu „Unga fólk-
ið“. Sé ætlunin að Þjóðkjör komi
út vikulega fram að kosningum.
Aðspurður kvað hann ekkert
því til fyrirstöðu af sinni hálfu
að koma á fund með Kristjáni
Eldjám og svara þar spurning-
um blaðamanna.
Þökkum öllum sem auðsýndu
okkur hlýhug og samúð við
andlát og jarðarför,
Rutar,
dóttur okkar.
Hrafnhildur og
Davíð Haraldsson,
hafði verið í stærstu kaupstöð-
um landsins. í Hafnarfirði hafði
verið skilað 5 skammbyssum og
7 rifflum, en eigendurnir kærðu
sig ekki um að eiga þá. Þá
hefur verið tilkynnt um 2
vopnasöfn, en enn hefur ekki
verið ákveðið, hvort þau verði
gerð upptæk, eða byssurn-
ar gerðar óvirkar á eihhvern
hátt.
f Kópavogi hefur verið skilað
3 skammbyssum og 3 áður en
auglýst var eftir ólöglegum skot
vopnum. Einnig hafa komið í
ljós 3 vélbyssur.
Á Akureyri hefur verið skil-
að 8 skammbyssum.
f Keflavík hefur komið fram
ein skammbyssa.
Vopnin, sem gerð hafa verið upptæk í lögreglustöðinni í Reykja
vík. — Ljósm.: Sv. Þorm.
Allar vélbyssurnar, sem kom-
ið hafa fram á landinu eru frá
stríðsárunum, 2 eru úr þýzkum
flugvélum, er skotnar voru nið-
ur yfir Jan Mayen og Norð-
menn báðu einstaklinga fyrir
til geymslu.
Ásgeir Thoroddsen kvað í und
irbúningi að samræma reglurum
byssuleyfi, en þær eru all mis-
munandi á landinu. T.d. er víða
á slóðum rjúpunnar leyfi veitt
mönnum allt að 16 ára. Þá er
víða leyfi veitt út á nafn, en
ekki byssu, svo sem er í Reykja-
vík. f ráði mun að hafa svipað-
ar reglur og gilda í Reykjavík,
þ.e. að leyfi sé veitt á byssu, en
reglugerðin um meðferð skot-
vopna mun og öll í endurskoð-
un og verða viðurlög þyngd að
mun. Núgildandi reglugerð er
fná árinu 1936.
Erlend Idntaka vegna
framkvæmdaáætlunar
SÍÐASTLIÐINN fimmtudag var
undirritaður í London lánssamn-
ingur milli ríkisstjórnar íslands
og Hambros Bank um 2 millj.
sterlingspunda lán (274 millj.
kr.) vegna framkvæmdaáætlunar
ársins 1968. Dr. Jóhannes Nordal,
seðlabankastjóri, undirritaði
samninginn í umboði fjármála-
ráðherra og Mr. Charles Hambro
fyrir Hambros Bank.
Verðbréfin, sem seld verða í
London, bera 8 1/2% vexti, og
er söluverð þeirra 98% nafn-
verði. Lánstími er 25 ár, og er
lánið afborgunarlaust fyrstu 5
árin. Raunverulegir vextir eru
8,7%.
Dr. Jóhannes Nordal sagði í
símtali við Mbl. í gær a'ð aðstæð-
ur á alþjóðlegum lánamarkaði
hefðu versnað jafnt og þétt síðast
liðin 2 ár. Þarna væri fyrst og
fremst um að ræða afleiðingar
af gjaldeyriserfiðleikum Breta
og Bandaríkjamanna, en eins og
kunnugt hefðu New York og
London verið einu stóru alþjóð-
legu peningamarkaðirnir um jang
an aldur. Vegna greiðslujöfnu'ðar
hefðu margvíslegar hömlur verið
settar á lántökur. Hafi það kom-
ið niður á öðrum þjóðum, m.a.
Norðurlöndunum.
Bankastjórinn gat þess, að allar
lántökur á peningamarkaðinum í
London væru háðar leyfum, og
leyfi hefði yfirleitt ekki verið
veitt til annarra en samveldis-
landanna um nokkurra ára skeið.
„Ég tel að Bretar hafi sýnt mjög
mikinn skilning me'ð því að leyfa
að lán þetta yrði boðið út í Lond
on eins og nú standa sakir,“
sagði dr. Jóhannes.
Mbl. spurði um álit hans á
því, hvers vegna Bretar hefðu
leyft þessa lántöku. Sagði hann
að miklu myndi um valda, að við
værum á sterlingsvæðinu og mik
ið af viðskiptum okkar verið um
London og enska banka, en einn
ig myndu Bretar hafa haft í
huga, að vfð hefðum lent í ó-
venjulegum erfiðleikum, sem
gerði okkur nauðsynlegt að leita
lánsfjár erlendis.
Um kjörin á láni þessu sagði
bankastjórinn, að því yrði að
sjálfsögðu ekki neitað, að lán
þetta væri með mun hærri vöxt-
um en lán, sem ísland hefði áður
tekið, en ástæ'ðurnar til þess
væru alkunnar, hin mikla og al-
menna hækkun vaxta í flestum
löndum undanfarin ár. Aðspurð-
ur kvað hann ekkert útlit fyrir
að þeir færu lækkandi á næst-
unni.
Þá benti hanrt einnig á, að
hinir margvíslegu efnahagsörðug
leikar, sem margar þjóðir hafa
átt við að stríða að undanförnu,
hefðu skapað óróa og vantraust,
sem bæði hefði orka'ð á vexti til
hækkunar og gert lánsútboðin
erfið. Hinsvegar skipti það miklu
máli að lánstíminn væri óvenju-
lega langur og lánið afborgunar-
laust fyrstu 5 árin.
— Forkosningamar
Framhald af bls. 16
Afdrifaríkur ósigur.
Oregon kýs ekki nema 35
fulltrúa á flokksþing demó-
krata, en alls sitja þingið
2.622 fulltrúar. En ósig-
ur Kennedys þar hafði af-
drifaríkar afleiðingar. Eins
og einn bandarísku frétta-
mannanna komst að orði, þá
var þetta fyrsti ósigur Kenn-
edy-ættarinnsir, og hann
sýndi að „Bobby“ gat tapað.
Þetta var mikið áfall fyrir
Kennedy, og ekki talið lík-
legt að hann eigi sér upp-
reisnar von fyrir þessar kosn
ingar, hvað svo sem verður
fyrir kosningarnar 1972.
Það var McCarthy, sem
felldi Kennedy í Oreg-
on. Hlaut McCarthy um 45%
Fiskeskákmótið hefst á morgun
MINNINGARMÓT Taflfélags I
Reykjavíkur um prófessor Will- |
ard Fiske verður sett á morgun
í Tjamarbúð kl. Z e.h. Mun þá
formaður T.R. Hólmsteinn Stein-
grímsson bjóða gesti velkomna,
en síðan flytur menntamálaráð-
herra dr. Gylfi Þ. Gíslason ávarp.
Einnig mun sendiherra Banda-
ríkjanna á íslandi Carl Rolwaag
flytja ávarp. Síðan mun Geir
Hallgrimsson borgarstjóri opna
mótið formlega með því að leika
fyrsta leik mótsins.
Skákstjóri er Guðmundur Arn
laugsson, rektor.
í fyrstu umferð mun áreiðan-
lega vekja mest athygli þeirra
Szabo og Vasjukoff. Þá verður
einnig athyglisvert að fylgjast
með skák Uhlmanns og Ostojic
og Freysteins og Guðmundar.
Aðrir sem tefla saman eru Addi-
son og Jón Kristinsson, Byrne
og Jóhann, Andrés og Taimanoff,
Ingi R. og Bragi, og Benóný og
Friðrik.
Önnur umferð verður tefld á
sama stað á annan í hvítasunnu
kl. 6 e.h.
Nýja varðskipið reynist vel
— segir Pétur Sigurðsson, forstjóri Landhelgisgœzlunnar
Morgunblaðið hringdi til
Péturs Sigurðssonar, forstjóra
Landhelgisgæzlunnar í gær,
en hann er sem kunnugt er í
Álaborg að taka við nýja Ægi
Landhelgisgæzlunnar. Pétur
sagði m.a.:
Við voru í reynsluför á skip
inu frá kl. 6.30 í gærmorgun
til kl. 2 sl nótt. Það er margt
sem þarf að reyna og prófun
einstakra tækja er ekki lokið
enn. Er stöðugt unnið að því
að yfirfara skipið, en ætlunin
er að halda héðan í næstu
viku.
Við spurðum Pétur hvernig
honum virtist skipið og sagði
hann að þa'ð reyndist í alla
staði ágætlega. I dag hefði
verið farið yfir ýmis tæki í
því og enn væri eftir að yfir-
fara radar og nokkur fleiri
tæki. Allt hefði gengið sam-
kvæmt áætlun og ef ekkert
sérstakt kæmi fyrir héldi varð
skipið úr höfn áleiðis til Is-
lands 7. eða 8. júní.
atkvæða, en Kennedy 39%
og er trúlegt að McCarthy
hafi þótt sigurinn sætur. Þótt
þeir Kennedy og McCarthy
hafi um margt verið sam-
mála, og báðir byggt herferð-
ir sínar á gagnrýni á Viet-
namstefnu stjórnar Johnsons,
hafa þeir ekki verið tengd-
ir neinum vináttuböndum.
Var almennt álitið að eftir
fyrstu atkvæðagreiðslu á
flokksþingi demókrata í
haust, þegar ljóst væri orð-
ið að keppnin stæði milli
Kennedys og Humphreys, þá
færi McCarthy þess á leit við
sína fulltrúa að þeir kysu
Humphrey.
í nýjasta hefti vikuritsins
Newsweek er birtur listi yf
ir fulltrúafjölda hvers ríkis
á flokksþingi demókrata í á-
gúst, og hvern frambjóðenda
talið er að þeir kjósi. Kem-
ur þar í ljós að Humphrey
eru reiknuð 1.279? atkvæði,
Kennedy 713?, McCarthy 280
en 394 afckvæði eru talin ó-
viss. Þess ber þó að geta að
í þessum útreikningi vikurits
ins eru Kennedy talin öll at-
kvæði Oregon og Kaliforníu.
Hann hefur þegar tapað at-
kvæðum Oregon, og ókosið er
í Kaliforníu. En þótt Kenn-
edy vinni yfirburðasigur í
Kaliforníu, og hljóti alla 174
fulltrúana þar, er augljóst að
það nægir honum engan veg-
inn.
Það er við þessa útreikn-
inga Newsweek að athuga, að
marg getur breytzt á þeim
tæpu þremur mánuðum, sem
framundan eru þar til flokks
þing demókrata verður hald
ið í Chicago. Fari friðarvið-
ræður í Vietnamdeilunni út
um þúfur, eða bíði Banda-
ríkjamenn mikinn ósigur í Vi-
etnam, getur það að sjálf-
sögðu orðið til þess að draga
úr fylgi Humphreys. Eins má
gera ráð fyrir því að ef mik-
ið verður um kynþáttaóeirð-
ir í Bandaríkjunum í sumar,
muni þær hafa áhrif á skoð-
anir þingfulltrúanna. En eins
og málin standa í dag er
Humphrey öruggur um sigur
á flokksþinginu.
Republikanar.
Erfitt er að dæma um það
hverjar verða niðurstöður
flokksþings republikana. Ge
orge Romney ríkisstjóri
í Michigan gafst upp fljót-
lega eftir að forkosningar nóf
ust. Nelson Rockefeller ríkis
stjóri í New York var lengi
í vafa. Svo ákvað hann að
gefa kost á sér, en hætti aft-
ur við framboð. Þegar loks
hann skipti enn um skoðun
var það of seint til að taka
þátt í nokkrum forkosningum.
Richard Nixon fyrrum vara-
forseti hefur því setið einn
að forkosningunum, og hlotið
þar flesta full'trúana. Það
vakti þó athygli, að daginn
sem Rockefeller gaf endan-
lega kost á sér sem forseta-
efni voru forkosningar í
Massachusetts, og þótt Rocke
feller væri þar ekki í kjöri,
gátu stuðningsmenn hans rit-
að nafn hans á kjörseðilinn
með þeim árangri að hann
hlaut flest atkvæði, John
Volpe ríkisstjóri, sem almennt
hafði verið spáð sigri, varð
annar, og Nixon í þriðja sæti.
Þótt Rockefeller hafi orð-
ið síðbúinn, og allar likur
bendi til þess nú að Nixon
verði kjörinn frambjóðandi
republikana á flokksþingi
þeirra í Florida í ágúst, get-
ur margt gerzt enn. Rocke-
feller hefur beitt sömu bar-
dagaaðferðum og Humphrey,
og baint máli sínu til flokks-
leiðtoganna. Og hann bendir
þeim óspart á það að flokk-
ur republikana er mun fá-
mennari en flokkur demo-
krata, sem þýðir það að til
að vinna forsetakosningarn-
ar verður frambjóðandi
flokksins að höggva í fylk-
ingar bæði demókrata og ó-
flokksbundinna. Telur Rocke
feller sjálfan sig færari um
það en Nixon, og bendir,
máli sínu til sönnunar, á nið-
urstöður skoðanakannana.