Morgunblaðið - 01.06.1968, Qupperneq 32
I
- víða á INIorður- og IM-austurlandi
FERIA-OC FARANGURS
ALMENNAR TRYGGINGARg
PÓSTHÚSSTRÆTI S> SÍMI 17700
AUGLYSINGAR
SÍMI 22*4.80
LAUGARDAGUR 1. JUNÍ 1968
Erfitt ástand
sjávarþorpum
VÍÐA á Norðurlandi og Norð-
austurlandi er ástand mjög slæmt
vegna erfiðra samganga og hefur
lítið sem ekkert verið róið vegna
hafíss. Mbl. hafði í gær tal af
tveimur fréttaritara sinna, sem
gjörla þekkja ástandið í sínu
byggðarlagi og spurðist fyrir um
ástand og horfur.
Ragnar Guðjónsson í Vopna-
firði sag'ði, að allt væri nú þar
að verða matarlaust, þar hafði
ekki komið skip í tvo mánuði.
Vanalega hafa verið stundaðar
hákarlaveiðár frá Vopnafirði, en
nú eru aðeins komnir á land 3
hákarlar, en 50 á sama tíma í
fyrra.
Atvinnuleysi er hér algjört,
sagði Ragnar, vegna þessa á-
stands og horfir ekki vel fyrir
skólafólki, sem nú er að koma
frá prófborði. Ekkert er fyrir
þetta fólk að gera, svo að ekki
blæs byrlega. Eftir því sem ég
hef fregnáð úr nágrannabyggð-
unum mun svipað ástand víðast
hvar.
Á Hofsósi hefur ekkert verið
róið í langan tíma að því er
Björn Jónsson í Bæ símar. Kalt
er þegar vindur er á norðan og
Hótíðafundur í
Hafnnríirði
f DAG verður haldinn hátíða-
fundur í bæjarstjórn Hafnarfjarð
ar í tilefni þess, að liðin eru 60
ár frá því Hafnarfjörður öðlaðist
kaupstaðarréttindi. í bæjarráðs-
samþykkt um þennan hátíða-
fund segir á þessa leið:
Framhald á bls. 19
eru sjómenn að taka upp hrogn-
kelsanet sín, sem þeir hafa verið
að bjarga úr sjó.
ísinn hefur heldur lónað frá,
en þó virðist vera mikil ísþilja
til vesturs og norðurs. Vonandi
stendur þetta til bóta bráðlega.
Gunnar Thoroddsen á fundi með blaðamönnum í gær. — Ljósm.: Ól. K. M.
Gunnar Thoroddsen hefur kynn-
ingar- og fundarferðir út um land
Skýrði frá kosningarundirbúningi
á fundi með blaðamönnum i gær
GUNNAR Thoroddsen og kona
hans munu á næstunni fara út
um land í kynningar- og funda-
ferðalag. Verða fundir haldnir
í öllum landsfjórðungum. Þetta
kom fram á fundi með blaða-
mönnum, sem Gunnar Thorodd-
sen boðaði til í gær.
í upphafi fundarins sagði
Gunnar Thoroddsen, að tilefnið
væri það að hann telji eðlilegt
og æskilegt að tíðindamenn
blaða og útvarps, og þar með al-
menningur, fái upplýsingar um
það, sem sé á döfinni af hans
hálfu og stuðningsmanna hans í
kosningabaráttunni.
Gunnar Thoroddsen sagði, að
n.k. þriðjudag fari hann
ásamt konu sinni í kynningar-
og fundaferðalag út um land.
„Leiðin liggur fyrst til Snæfelis-
ness, í mitt gamla kjördæmi, en
ég var þingmaður Snæfellinga í
mörg ár“, sagði Gunnar.
Ákveðnir hafa verið fundir í
Stykkishólmi 4. júní, á Hellis-
sandi 5. júní, Vestmannaeyjum
6. júní, ísafirði 7. júní, Blöndu-
ósi 8. júní, Siglufirði 9. júní,
Akureyri 10. júní, Egilsstöðum
11. júní, Höfn í Hornafirði 12.
júní og á Akranesi 13. júní.
Framhald á bls. 31
Fyrsti órekstur
eitir H-dag
FYRSTI árekstur í Hafnarfirði
eftir H-dag var um hálf-níuleytið
í gærkvöldi, er þrjár bifreiðar
lentu saman.
Tvær þeirra, frá Reykjavík og
Sauðárkróki ,voru kyrrstæðar á
Hraunsholti. Kom þá að þriðja
bifreiðin merkt G. Ók hún aftan
á Sauðárkróksbifreiðina, sem
hentist á Reykjavíkurbifreiðina.
Allar bifreiðarnar voru á hægri
vegarbrún og skemmdir urðu
ekki teljandi.
Rekstrartap Loftleiða
rúmar 36 millj.
Bandaríkin hæsta sölulandið
Benedikt Gröndal og Kjartan Thors.
Benedikt Gröndal
form. Vinnuveitenda
ÞAÐ kom fram á aðalfundi Loft-
leiða í gær, að rekstrartap félags
ins á árinu 1967 nam 36.640.549:
— kr. þ.e.a.s. þá upphæð vantar
á að fullar afskriftir náist, en
þær námu 219.682.291:— kr. á
árinu. Veltuaukning varð nokkur
hjá félaginu, en þó minni en
flutningaaukningin, því að tekjur
fyrir hvern meðalfarþega lækk-
uðu. Hæsta söluland Loftleiða
voru Bandaríkin, þar var selt
fyrir 490 milljónir, næsthæst var
Þýzkaland, þar var selt fyrir 144
milljónir. Félagið fækkaði tveim-
ur viðkomustöðum á árinu,
Helsingfors og Amsterdam. Far-
i þegar á árinu voru 185.600 eða
12% fleiri en árið áður. Starfs-
menn félagsins voru við árslok
1090. Hér á eftir eru rakin
nokkur meginatriði af fundi Loft
leiða í gær:
Aðalfundur Loftleiða vegna
reikningsársins 1967 var haldinn
í gær í Hótel Loftleiðir. Formað-
ur félagsstjórnar, Kristján Guð-
laugsson hrl. setti fundinn og
kvaddi Gunnar Helgason hdl. til
áð stjórna honum og Guðmund
STJÓRN Vinnuveitendasambands
íslands kom saman til fundar í
Tjarnarbúð í gær. Formaður,
Kjartan Thors, setti fundinn og
gat þess í upphafi, að eins og
fundarmönnum væri kunnugt,
gæfi hann ekki kost á sér til end-
urkjörs. Þakkaði hann stjórnar-
mönnum góð störf, vináttu og
traust.
í stjórn voru kosnir: Benedjtt
Gröndal, formaður, Ingvar Vil-
hjálmsson, varaformaður. Aðrir
í framkvæmdanefnd: Jón H.
Bergs, Óttarr Möller og Svejnn
Guðmundsson.
Benedikt Gröndal þakkaði
Kjartani Thors frábær störf í
þágu vinnuveitendasamtakanna
og í sama streng tóku Óttarr
Möller, Björgvin Sigurðsson og
Karvel Ögmundsson.
W. Vilhjálmsson tii að rita fund-
argerð.
í upphafi ræðu sinnar minntist
stjórnarformaður starfsmanna fé-
lagsins, sem látizt höfðu á árinu.
í yfirgripsmikilli ræðu komst
hann síðar m.a. þannig að orði:
„Reksturinn á síðasta ári gekk
að flestu leyti vel og vænti stjóm
in því sæmilegrar afkomu. Raun
in varð hinsvegar allt önnur og
Framhald á bls. 19
Kjarval kveður
gamla skálann
Á sýningu í Listamannaskálanum verður
happdrœfti um eitt málverka hans
MBL. hefur frétt að Félag ís-
lenzkra myndlistarmanna, Ragn-
ar Jónsson í Smára o. fl. séu að
undirbúa mikla málverkasýningu
á Kjarvalsmyndum í Listamanna
skálanum og að sýningin verði
opnuð um næstu helgi. Mun þetta
líklega verða síðasta sýning
meistara Kjarvals í Listamanna-
skálanum, sem brátt á að víkja.
Hefur Ragnar víða leitað hófanna
meðal manna, sem eiga myndir
eftir Kjarval, vegna þessarar sýn
íngar.
Ragnar Jónsson sagði þetta
rétt vera er Mbl. hafði tal af hon-
um í gær. Sýningin yrði til
styrktar Kjarvalshúsi á Mikla-
túni og sagðist Ragnar hafa snúið
sér til ýmissra kunnra manna og
beðið um að fá Kjarvalsmyndir
þeirra til sýningar. Ragnar kvað
stórt og fallegt Kjarvalsmálverk
verða happdrættisvinning á
sýningunni, sem verða mun mjög
nýstárleg.
Stórtjón á bryggju á Hofsósi
Bæ, Höfðaströnd, 31. maí: —
í gærkvöldi var sunnan-
strekkingur og komst þá skrið
á ísinn út Skagafjörðinn. Rak
um 2 km ísbreiðu upp að höfn-
inni á Hofsósi og lenti hluti af
henni á hafnarbryggjunni. Þetta
er karabryggja fyllt grjóti og
plan steypt yfir. Isinn braut
fremsta karið í bryggjunni, sem
er um 14 metra langt, og virð-
ist það gerónýtt. Hefur ísinn
farið innundir planið og er nú
stærðarísjaki inni í bryggjunni,
sem ber uppi gólfið, er hlýtur
að falla þegar hann þiðnar.
Þrír bátar voru við bryggj-
una, er ísinn rak að, og sakaði
þá ekki. Menn og bílar, sem á
bryggjunni voru, gátu forðað
sér. Tjónið hefur ekki verið met-
ið, en talið er að það sé vart
undir hálfri annarri milljón.
í gærkvöldi rak mikinn ís út
fjörðinn eins og áður segir, en
þó er þar enn talsvert íshrafl.
Út að sjá er samfelld ísbreiða.
Gróðri fer nú ört fram til iandfl
ins- Björn.