Morgunblaðið - 16.06.1968, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 1-6. JUNI 196«
Morðin á King og
Kennedy „samsæri
II
New York, 15. júní — NTB-AP
RITHÖFUNDURINN Truman
Capote, sem krufði til mergjar
frægt morðmál í bók sinni „Með
köldu blóði“ sagði í gær, að
morðin á dr. Martin Luther
King og Robert Kennedy hefðu
sennilega verið samsæri.
Hann sagði í sjónvarpsviðtali,
að James Earl Ray, meintur
morðingi Kings, hlyti að vera lít-
ið peð í umfangsmiklu samsæri.
Ástæðurnar til þess að hann
væri enn á lífi gætu verið þær,
að hann hefði ekki myrt King
og að hann vissi ekki hver myrti
King. Capote sagði, að vera
mætti að Ray væri aðeins í vit-
orði með samsærismönnunum og
trúlegt væri að honum hefði ver-
ið greitt mikið fé til að leiða
lögregluna á villigötur. Áreiðan-
lega ætti eftir að koma í ljós,
að Ray hefði pottþétta fjarvist-
arsönnun og hann hefði ekki
einu sinni verið í Memphis þeg-
ar morðið var framið.
Frétt frá San Jose í Kaliforníu
hermir, að Sirhan Sirhan, sem
ákærður hefur verið fyrir morð-
ið á Robert Kennedy, hafi fyrir
nokkrum mánuðum gengið í dul-
spekifélag, sem kallast Rosae
Crucia og hefur það að mark-
miði að efla andlegan mátt er
leynist með hverjum einstakl-
ingi. Hins vegar hafi nafn hans
verið strikað út af félagaskrá,
þar sem hann hafi ekki greitt
félagsgjöld. Sirhan Sirhan hefur
beðið um tvö guðspekirit í fang-
elsinu.
Andúð á ofbeldi
í AP-frétt frá New York seg-
ir, að morðið á Robert Kennedy
hafi greinilega haft þau áhrif að
gripið hafi um sig megn andúð
á byssum og ofbeldi. Þannig hef-
ur kunnur kúrekaleikari, Ray
Allen, lagt frá sér byssur sínar
og segist aldrei ætla að bera þær
framar. Fjöldi manns hefur skil-
að byssum til lögreglunnar. All-
en segir, að byssur séu gerðar
rómantískar í kúrekamyndum og
sjónvarpsþáttum. Dagblað eitt
hefur hætt að birta tvo teikni-
myndaflokka, „Dick Tracy“ og
„Litle Orpan Annie", á þeirri
forsendu, að þar sé ofbeldi sífellt
hafið til skýjanna. í Burnaby í
Kanada hefur verið hætt við
skemmtun, þar sem lýsa átti
glæpamannamorðunum á St.
Valentines-degi 1929, og víða hef
ur verið hætt við sölu á leik-
fangabyssum.
Helen Keller sjóður
til styrktar blindum
EINS og flestum er kunnugt lézt
fyrir skömmu hin stórmerka,
blinda og heyrnarlausa kona,
Helen Keller, 88 ára gömul. —
Helen Keller hafði frábærar
gáfur og var stórmenntuð kona.
Hún vakti athygli hvar sem hún
fór bæði leikra og lærðra. Hér á
landi dvaldist hún í nokkra daga
og talaði þá meðal aninars í Há-
tíðasal Háskóla íslands að við-
stöddu miklu fjölmenni.
Ævi Helenar Keller verður
ekki nnáar getið hér, vegna þess
að lesendur þessa blaðs hafa átt
kost á að kynnast henni áður.
Tilefni þessara lína er það að
vekja athygli lesandans á einu af
fjölmörgum áhugamálum henn-
ar, en það voru hagsmunamál
Eldflauga-
árásir enn
á Saigon
Saigon, 15. júní NTB—AP.
BANDARÍSKAR sprengjuþotur
af gerffinni B-52 réffust í dag á
bækistöffvar Viet Cong í nágrenni
Saigon í dag eftir nýjar eld-
flaugaárásir Viet Cong-manna á
höfuffborgina og flugvöilinn Bien
Hoa. Forseti bandaríska herráffs-
ins, Harold K. Johnson hefshöfð-
ingi, sagði í Los Angeles í gær,
aff væri hugsanlegt en ekki
sennilegt, aff kommunistar létu
verffa af þeirri hótun sinni aff
ráffast daglega á Saigon meff 100
eldflaugum í 100 daga frá og meff
mánudegi.
Heldur hefur dregið úr eld-
fflaugaárásunuim á Sailgon, en
þær hafa staðið yfir í fimon vik-
ur og miðborgin hefur ekki orðið
fyrir árás síðan á þriðjudag.
Bandariska hetrstjórnin sagði í
dag, að árásirnar væri hlífðar-
lausar, ekkert tilliti væri tiekið
til öryggis óbreyttra borgara og
tiilganguirinn væri að hræða borg
aranna á sama háitt og nazistar
hefðu reynt að hræða íbúa
Londion með eldfllaugaárásum
sínum í heimsstyrjöldinni. Árés-
irnar hafa beinzt að fbúðarhverf-
um og verzlunarhverfumn en eklki
gegn hernaðarlega mikilvægum
stöðum.
hiinna blindu, sem áttu stóran
hluta af huga hennar og hjarta.
Geta má þess að ævisaga henn
ar hefur komið út á íslezku.
Skömmu eftir að Helen Keller
dvaldi hér á landi gaf Einar
Jónsson, er dvaldi síðari ár ævi
sinnar að Reykjalundi, fjárupp-
‘hæð til sjóðsmyndunar, er
skyldi bera nafn Helenar.
Úthlutað er úr sjóðnum tii
blindra þegar viðkomandi hefur
náð 25 ára aldri, og er slíkur
sjóður blindum mikil hjálp á
slíkum tímamótum, en eins og
er, er hann mjög lítill, eða rúm-
ar 8000,60 kr.
Einu sinni til þessa hefur blind
um verið veitt úr sjóðnum, en á
næstu árum eru það nokkrir
'blindir, sem koma til greina, Ef
það eru nú einhverjir, sem vilja
gefa litla gjöf í sjóð þennan, er
Einar Jónsson stofnaði og ber
<nafn Helenar Keller, eru þeir
■vinsamlega beðnir um að leggja
hana inn í skrifstofu Blindrafé-
lagsins að Hamrahlíð 17, sími
38180.
Með fyrirfram þökk.
Jón Gunnar Arndal.
Séff yfir hluta sýningarsalarins.
íslendingar og hafið:
Dagur Keflavíkur í dag
glæsileg skemmtun kl. 3
í D A G er dagur Keflavíkur á
sýningunni .jslendingar og hafið“
og munu Keflvíkingar standa
fyrir glæsilegri skemmtun í
Laugardalshöll kl. 3 í dag.
Keflvíkingar munu skreyta
sviffiff meff sitthverju frá sjávar-
síðunni og eftirfarandi skemmti-
atriffi verffa þar: Hin vinsæla
hljómsveit Hljómar úr Keflavík
leikur og syngur, Helgi Skúlason
leikari les upp, m.a. Stjána bláa,
lúffrasveit pilta úr Keflavík leik
ur undir stjórn Herberts H.
Ágústssonar, Sigfús Halldórsson
leikur á píanó og syngur og aff
síffustu verffur reiptog í Laugar-
dalshöllinni. Helgi S. Jónsson
mun stjórna skemmtun Keflvík-
inga.
Um 40 þús. gestir hafa nú séff
„tslendingar og hafið“ og búast
má viff aff margir noti tækifæriff
í dag að sjá sýninguna og njóta
glæsilegrar skemmtunar Keflvík
inga.
„íslendingor og
hnfið“ um
helginn
Sýningin „íslendingar og hafiff"
er nú opin virka daga frá kl.
17—22 og laugardaga og sunnu-
daga frá kl. 14—22. 17. júná verff-
ur sýningin opin frá kl. 17—22.
Sýningunni lýkur sunnudaginn
23. júní, en nú hafa um 40 þús-
und manns séff sýninguna. í dag
er dagur Keflvikinga á sýning-
unni og eru þeir meff sérstaka
glæsilega skemmtidagskrá, sem
hefst kl. 3 í Laugardalshöll. Þar
skemmta m. a. Hljóffar, lúffra-
sveit, Helgi Skúlason leikari, Sig
fús Halldórsson tónskáld o. fl.
- BERLIN
Framh. af bls. 1
talið að ferðatakmarkanirnar
nýju séu alvarlegustu aðgerðir
austur-þýzkra yfirvalda frá því
vinna hófst við að reisa Berlín-
armúrinn alræmda 1961. 1 þess-
um nýju takmörkunum er þess
m.a. krafizt áð Vestur-Þjóðverj-
ar, sem ferðast milli Vestur-
Þýzkalands og Vestur-Berlínar,
fái vegabréfaáritanir hjá aust-
ur-þýzku yfirvöldunum.
Miklar umferðartruflanir hafa
verið á helztu akbrautinni milli
Vestur-Berlínar og Vestur-
Þýzkalands. Þetta er hraðbraut,
sem liggur frá Helmstedt til Ber
línar, og er leiðin um 180 km.
Var það á fimmtudag sem aust-
ur-þýzku yfirvöldin kröfðust
vegabréfaáritana, og mynduðust
þá strax langar biðraðir bif-
reiða á hraðbrautinni. í dögun í
Ný tjörn við
IMorræna
húsið
Töluvert hefur veriff grafiff
í syffsta enda tjamarinnar til
þess að fá efni í uppfyllingu
viff Norræna húsið. Jafn-
framt er þessi uppgröftur
byrjun að skipulagðri tjöm á
þessu svæffi, sem borgaryfir-
völd hafa ákveðið að gera og
verffur væntanlega hafizt
handa um gerff tjarnarinnar
aff ári. Hægra megin á mynd
inni sést Norræna húsiff.
(Ljósm. Mbl.: Sv. Þorm.)
morgun var talið að margföld
röð kyrrstæðra bifrei’ða, er biðu
afgreiðslu, næði sjö km frá eft-
irlitsstöð austur-þýzku vega-
bréfaskoðunarinnar fyrir vest-
an Vestur-Berlín.
Vegna takmarkannanna nýju
kallaði vestur-þýzka stjórnin
sendiherra sinn í Moskvu heim
til Bonn í gær til skrafs og ráða-
gerða. Sama dag birfi málgagn
austur-þýzka kommúnistaflokks-
ins, „Neues Deutsehland" aðvör
un um að nýjar og óskemmtileg-
ar aðgerðir væru í vændum fyr
ir Vestur-Þjóðverja, ef þeir ekki
féllust á að viðurkenna austur-
þýzku ríkisstjórnina.
A'ðgerðir austur-þýzkra yfir-
valda hafa einnig verið rædd-
ar hjá fulltrúum Vesturveid-
anna þriggja, sem tryggja eiga
frelsi Berlínarbúa, þ.e. Banda-
ríkjanna, Bretlands og Frakk-
lands. Munu fulltrúar landanna
þriggja leggja fram mótmæli í
Moskvu, og fara þess á leit við
stjórn Sovétríkjanna, að hún fái
takmarkanirnar numdar úr gildi.
Kurt Georg Kiiesiinger, kanaú-
ari Vestur-Þýzfkalands, skýrffi
frá því í gær, að hann hefði
snúið sér tiil Vesturveldanna
þnilgigja, og beðið um aðstoð
ve.gna aðgerðanna gagnvart
Vestur-Berlín. Hét hamn BerMn-
arbúuim fullum stuiðningi og lof-
aði að gerðar yrðu ráðistafanir
til að nema takmarkanir úr
gildi.
í Bonn skýrði talsmaður vest-
ur-þýzku stjórnairinnar frá því,
að Brandt uitanríkisráðbierra ætti
fund með Dean Riusk utanríkis-
mðherra Bandarikjanna áðuir en
fundur Atlantshafsbandalagsins
hefst á ísilandi eftir rúma vi.ku,
og væri ætluinin að ráðíherrarnir
ræddu þá þessi mál. Dean Rusk
átti í gær viðræður við Vaisily
Kuznetsov, aðstoðar utararíkisráð
hierra Sovétrikjanna í New York,
og talið er fullvist að Ruisk hafi
laigt hart að Kuznetsov að beita
sér fyrir þvi að dregið verði úr
spennunni við Berlín.