Morgunblaðið - 16.06.1968, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ 196«
Sirhan
Sirhan Bishara
Svipmynd af manninum, sem
sakaður er um að hafa myrt
Robert Francis Kennedy
Móðir Sirhans brestur í grát er hún heyrir fréttirnar af syni
sínum.
SIRHAN Bishara Sirhan er
ákærður fyrir að hafa myrt
Robert Francis Kennedy og
gert tilraun til þess að myrða
5 aðrar manneskjur í eldhúsi
Ambassadors-hótelsins í Los
Angeles. Saksóknari Los
Angeles lét svo ummælt fyr-
ir skömmu að mál þetta væri
mjög sérstætt. Margir spyrja
hver hann sé þessi ógæfu-
sami Arabi og hvað hafi stýrt
hönd hans á hinu örlagaríka
augnabliki. Voru það hans
eigin hvatir er knúðu huga
hans og ef svo er, hvað var
það sem ól á hatri hans. Var
hann kannski tengdur ein-
hverri af hinum fjölmörgu
öfgahreyfingum er starfa í
Bandaríkjunum, eða Austur-
löndum nær.
ísraelska leyniþjónustan
hefur látið gera ítarlega könn
un, allt frá því að vitað var
að Sirhan var fæddur í Jerú-
salem, hvort nokkur mögu-
leiki væri á að einhver neð-
anjarðarhreyfing arabískra of
stækismanna stæði að baki
morðinu, en ekkert hefur enn
komið fram er bent gæti til
þess. Athygli leyniþjónust-
unnar bendist eðlilega fyrst
að föður Sirhans og aðfara-
nótt fimmtudagsins óku starfs
menn hennar að heimili hans
í Taibeh-þorpinu sem er um
23 km. frá Jerúsalem.
„Hann hefur alltaf verið
svo góður drengur"
Bishara Salameh Sirhan
varð felmtri sleginn er hon-
um var sagt, að það væri son-
ur hans, er sakaður væri um
að hafa myrt Kennedy.
„Hann er svo góður drengur,
hann hefur alltaf verið góð-
ur drengur og allir kennarar
hans hafa hrósað honum“,
endurtók Bishara hvað eftir
annað er hann hafði jafnað
sig. Rannsóknir leiddu í ljós,
að faðir hans sagði aðeins
sannleikann. Mannorð fjöl-
skyldunnar er óflekkað.
Leyniþjónustan sneri sér
því næst að því að kanna
hvort hugsanlega bandamenn
væri að finna á ísraelska yfir-
ráðasvæðinu, en fann ekkert
þar heldur. Sögusagnir hafa
verið á lofti um leynileg sam-
tök arabískra ofstækismanna
með útibú erlendis einkum
meðal ofstækisfullra ara-
bískra stúdenta. Samtök þessi
eru sögð eiga að vinna að út-
rýmingu stjórnmálamanna
sem hlynntir eru ísrael. Eng-
ar sannanir hafa fundizt er
benda til tilveru slíkra sam-
taka og áreiðanlegar ísraelsk-
ar heimildir, er vinna að því
að fletta ofan af neðanjarðar-
hreyfingum Araba um heim
allan, segja: „Við myndum
hafa vitað um hana“. >ar
sem óliklegt virðist að um
slíkt samsæri hafi verið að
ræða hefur athyglin beinzt
að Sirhan og fjölskyldu hans
til þess að reyna að komast
að einhverju í sögu þeirra og
lífsferli, sem varpað gæti
Ijósi á hvað það var er leiddi
Sirhan til þess að fremja
verknaðinn sem hann er sak-
aður um. Sú mynd er fram
kemur líkist í mörgu hinni
gömlu og sígildu mynd af hin
um einmanna og sálsjúka
launmorðingja.
J>egar foreldrar Sirhans
giftu sig var faðirinn starfs-
maður Breta á yfirráðasvæði
þeirra í Palestínu. Sirhan var
næst yngstur 5 bræðra, en
auk þess átti hann eldri syst-
ur. í styrjöld Araba og ísra-
elsmanna flúði fjölskyldan til
gamla borgarhlutans í Jerú-
salem, sem fallið hafði undir
jórdönsk yfirráð. Foreldrarn-
ir voru kristnir, grisk-ka-
þólskrar trúar, en Sirhan var
sendur í lútherskan skóla,
sem var nálægt heimili
þeirra. Gamall kennari Sir-
hans, sem nú veitir skólanum
forstöðu, minntist hans sem
góðs nemanda og einkunnir
hans síðasta árið í þeim
skóla sýna, að hann var nem-
andi fyrir ofan meðallag. Sir-
han var þó aldrei með þeim
hæstu í sínum bekk og var 7.
af 16 vorið sem hann hætti.
Faðir hans minntist þess, er
Sirhan kom heim Ijómandi
af gleði og stolti eftir að kenn
arar hans höfðu hrósað hon-
um og sagði: „Pabbi, kennar-
arnir segja að ég muni verða
stórmenni", eða að hann
spurði: „Pabbi, er ég gáfaðri
en bræður mínir?“ Sálfræð-
ingur gæti fundið eitthvað
samband milil þessara mikil-
mennsku tilhneiginga og hins
niðurlægjandi sendilsstarfs
sem hann gegndi í Los Ange-
les, sem skýrt gæti hvað
knúði hann að lokum til að
fremja árásina.
í fari Sirhans hefur alltaf
vottað eitthvað fyrir ofstæk-
ishneigingu. Hann lét oft í
Ijós aðdáun á Hitler og faðir
hans hefur eftir honum:
„Hitler var mikilmenni og
hugmyndir hans voru góðar,
og það var aðeins undir lok-
in að honum misheppnaðist
vegna hins mikla skaða sem
hann vann þjóð sinni, og það
var aðeins vegna þess að
stefnur hans mistókust". Sir-
han er þó ekki fasisti, né
hægri sinnaður. Hann var að-
eins ellefu ára er hann var
tekinn af jórdönsku leyni-
þjónustunni fyrir meintan
grun um vinstri sinnaðar til-
hneigingar. Áður en hann
fluttist til Bandaríkjanna var
honum gefin viðvörun í þessu
sambandi. Sinhan var auðvit-
að og eðlilega á móti heims-
samtökum Gyðinga, þó að
hann væri í sjálfu sér ekki
beinn Gyðingahatari. >að er
varla hægt að tala um að
stjórnmálaskoðanir 12 ára
barns séu fastmótaðar. Sir-
han virðist hafa verið bráð-
þroska og nokkuð ákveðin í
skoðunum.
Trúmál voru annar, og ef
til vill sterkari þáttur í of-
stækishneigð hans. Sirhan
þótti vænna um móður sína
en föður og hann hlýddi
henni ætíð orðalaust. Frá
henni nam hann trú sína.
Trúhneigð hans varð æ sterk-
ari og virtist á einhvern hátt
tengd ákveðinni trú hans á
að einhvern tíma yrði hann
mikilmenni. Sirhan kom allt-
af beint heim úr skólanum.
Hann las biblíuna á hverju
kvöldi, sem var 'hans uppá-
halds íesefni og fór síðan með
bænir sínar áður en hann fór
að sofa.
Sirhan átti auðvelt með að
eignast vini, en gat þó stund-
um mislíkað mjög við þá, sér-
staklega ef þeir notuðu ljótt
orðbragð.
>að voru trúmál, er að lok
um urðu til samvistaslita
fjölskyldunnar og þá um leið
hefst mikilvægur þáttur í ör-
lagarás Sirhans. >orpshófðing
inn í Taibeh segir ástæðuna
fyrir samvistaslitum foreldr-
ana vera, að móðir Sirhans
hafði laðazt mjög að trúar-
hreyfingu Votta Jehóva. >v'
er haldið fram af fólki sem
þekkti til fjölskyldunnar, að
sú hreyfing hafi aðstoðað
móðurina við að fara til
Bandaríkjanna árið 1957, með
Sirhan, tvo bræður hans og
systur. Faðirinn hafði byrjað
skilnaðaraðgerðir fyrir grísk-
kaþólskum dómstól, en fallið
frá því nokkrum mánuðum
síðar og farið á eftir fjölskyld
unni til Bandaríkjanna. Sagt
er, að Vottar Jehóva hafi
einnig aðstoðað hann við för-
ina. Ekki er þó ljóst hver
tengsl föðursins eru við hreyf
inguna, sem hefur verið bönn
uð í Jórdaníu sl. 9 ár, en þrátt
fyrir það heldur hún enn
uppi áköfu trúboði, sérstak-
lega í gamla hluta Jerúsalem.
Af þessu sést, að mikil
spenna hefur ríkt í lífi Sir-
hans. Heimili hans leystist
upp vegna ósamkomulags um
trúarhreyfingu, sem af sum-
um er talin jaðra við ofstæki.
>að má vera að trúhreyfingin
sjálf sé ekki svo mikilvægur
þáttur í lífi Sirhans, en mætti
samt finna einhverja skýr-
ingu í þessu sambandi.
Hvaða áhrif hafði það á
Sirhan að flytjast frá hliðar-
götum Jerúsalem inn í hring-
Sirhan Bishara Sirhan
iðu Los Angeles-borgar, sem
breyttu honum úr þægum og
prúðum dreng í ofsafenginn
árásarmann. Svo virðist að
minnsta kosti, að hegðun
hans falli vel undir hina sí-
gildu lýsingu Menningers á
sálsjúkri ofskynjun: „Sam-
fara tilfinningu um að vera
lítilsvirtur, elur maðurinn
með sér leyndar hugmyndir
um mikil völd. Slíkur ein-
staklingur kann að komast í
kast við lögin, annað hvort
sem beinn afbrotamaður, t.d.
morðingi, eða sem málshöfð-
andi, en slíka þróun telur
hann eðlilega útkomu af
miklu en óviðurkenndu mikil
vægi sínu og öfund og ill-
girni afskiptalauss heims.
Framkoma og heigðun ein-
staklingsins er oft á tíðum
svo eðlileg, einlæg og fáguð
að ógerlegt er að greina
nokkurn innri óróa".
Lögreglan í Pasadena hélt
skýrslu um Sirhan, en hún
var ekki á nokkurn hátt frá-
brugðin skýrslum milljóna
annarra ungra manna. Hann
virtist hafa tilhneigingu til að
rífast, en hafði aldrei valdið
verulegum vandræðum, en
tvisvar hafði verið kvartað
til lögreglunnar yfir honum.
Faðir Sirhans dvaldist að-
eins í þrjú ár vestra og þar
af aðeins skamman tíma með
fjölskyldu sinni í Kaliforníu,
áður en hann hélt heim til
Jórdan á nýjan leik, að hans
sögn til þess að líta eftir aldr
aðri móður sinni, sem neitað
hafði að flytja til Bandaríkj-
anna. Foreldrarnir höfðu ætl-
að að skilja, en horfið frá því
fyrir atbeina barna sinna.
Los Angeles er borg mik-
illa andstæðna. >ar skiptast
á mikil auðæfi og mikil fá-
tækt, og þar er samkeppnin
hvað hörðust í Bandaríkj-
unum. Mary Sirhan leigði sér
lítið einbýlishús í eina bland-
aða íbúðahverfinu í Pasa-
dena, sem er eitt af elztu út-
hverfum Los Angeles. Sirhan
hóf nám við gagnfræðaskóla
og reyndist prýðis nemandi,
sem yfirleitt fékk ágætis
einkunnir. Hann tók talsverð-
an þátt í málum skólans og
átti meðal annars sæti í nem-
endaráði. Að loknu burtfarar-
prófi hóf hann nám við Borg-
arháskólann í Pasadena og
reyndist sem áður góður nem-
andi. Samtímamenn hans
segja um hann, að hann hafi
verið hæglátur og nokkuð
þögull ,vingjarnlegur, en að
nokkuð erfitt hafi verið að
kynnast honum. „Hann var
alltaf snyrtilega klæddur og
skar sig þar úr hópi annarra
nemenda. Hann var rólegur
og kurteis í framkomu og
ekkert illt að finna í fari
hans. Sem námsmaður var
hann frábær og lagði stund
á rússnesku meðan aðrir
námu spænsku og ensku.
Hann dreymdi um að ná hátt
í Jórdaníu eftir að hafa lok-
ið háskólanámi".
>að er ekki auðvelt að gera
sér grein fyrir orsökinni fyr-
ir því sem kom fyrir þennan
unga og efnilega mann. Ein-
hvern veginn virðist sem
slæmur félagsskapur hafi ver
ið orsökin og í Sirhans tilfelli
voru það bræður hans, bræð-
urnir sem Sirhan, sem barn,
hafði einsett sér að bera af.
Báðir bræðurnir höfðu kom-
izt í kast við lögregluna í sam
bandi við eiturlyfjaneyzlu og
annar þeirra, Sharif, var
ákærður fyrir morðtilraun, er
hann hafði klippt í sundur
hemlaborðana á bifreið vin-
konu sinnar. Hann fékk eins
árs skilorðsbundinn dóm, sem
þótti mjög vægur.
Sirhan vann með háskóla-
náminu á kappreiðavellinum
í Hollywood Park, fyrst við
hreinsun, en síðar sem aðstoð
ardrengur hjá þjálfurum.
Hafði hann þann starfa að
ganga með hesta til að kæla
þá af æfingum loknum. Hann
hafði mikinn áhuga á að ger-
azt knapi ,en vonir hans urðu
að engu eftir að hann féll
af hestbaki og slasaðist á
höfði. Hann fór í skaðabóta-
mál og lauk málinu með
dómssátt, þannig, að Sirhan
fékk greiddar sem svarar 114
þús. ísl. kr. Svo virðist sem
hann hafi verið atvinnulaus
næsta ár, eða þar til að hann
fékk vinnu sem sendill í nátt-
úrulækningaverzlun. Vinnu-
veitandi hans segir, að hann
hafi verið traustur og heiðar-
legur starfsmaður, en haft
erfitt skap og átt erfitt með
að taka við skipunum. 7.
marz sl. sagði hann svo Sir-
han upp störfum. >ekktur
sálfræðingur í Los Angeles
segir, að andúð Sirhans á að
taka við skipunum kunni að
eiga rætur að rekja til stuðn-
ings hans við móður sina
gegn föðurnum í hjónabands-
erfiðleikunum.
Menn velta mikið fyrir sér
hvaða áhrif lífið í Los Ange-
les hafi haft á hugsjónir ungs
Arabainnflytjanda. Sam
Yorti, borgarstjóri í Los Ang-
eles, sem er harðsnúinn and-
stæðingur kommúnisma, held
ur því fram ,að Sirhan hafi
verið hlynntur kommúnist-
um og að bifreið hans hafi
nokkrum sinnum verið lagt
fyrir utan bækistöðvar sam--
taka nokkurra ,sem talin eru
kommúniskt útibú. Ekki er þó
sannað að samtök þessi hafi
yfirleitt haldið nokkra fundi
í Los Angeles sl. þrjú ár. Rit-
Framhald á bls. 18.