Morgunblaðið - 09.07.1968, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 9. JÚLÍ 1908
Tvær fjölskyldur misstu heimili
sín í eldsvoða á Akureyri
Akureyri, 8. júlí.
XVÆR fjölskyldur urðu hús-
næðislausar og misstu allt innbú
sitt i dag, þegar eldur kom upp
í stóru, tveggja hæða timbur-
húsi nr. 21 við Hrafnagilsstræti.
Eldurinn var svo bráður, að hús-
mæðurnar, sem voru einar í bús-
inu, gátu með naumindum forð-
að sér út og tókst ekki að bjarga
Sláttur hafinn
í Húnavatnss.
SLÁTTUR er bafinn í Húna-
vatnssýslu. Hófst hann í s.l. viku
á Bjargi og Ytra-Bjargi, og búið
að slá nokkra hektara. Eru þetta
melatún og var borið á þau nokk
uð snemma, eða um 20. maí.
Mikið kal er í túnum á þessum
bæjum, en þar sem ekki er dauð
kalið virðist slægja ætla að
verða sæmileg, og var vel sprott-
ið, það sem slegið var.
Ekki er kunnugt um, að slátt-
ur sé víðar hafinn í Húnavatns-
sýslum, og verður það óvíða fyrr
en um næstu helgi.
neinu fémætu. Húsið er allt svið-
ið innan og stórskemmt, svo að
ekki sé meira sagt, og húsgögn,
fatnaður og lausamunir allt
brunnið til ösku.
Laust eftir klukkan eitt í dag
varð húsfreyjan á neðri hæðinni
þess vör að eldur var kominn
upp í svefnherberginu. Hljóp
hún þegar upp á efri hæðina og
sagði konunni þar frá eldinum,
en þá var eldurinn 'kominn í
svefnherbergið og læsti sig á
svipstundu um báðar hæðirnar.
Úr næsta húsi sást, hvar reyk
lagði út um gluggana og þaðan
var hringt í slökkviliðið, sem
komið var á staðinn eftir þrjár
mínútur, en þá stóðu eldtungur
út um gluggana. Slökkvistarfið
var mjög erfitt vegna mikils
reyks, en slökkviliðsmenn fóru
inn á báðar hæðir með reykgrím
ur til að berjast við eldinn. Einn
ig var farið upp á þakið og það
rofið til að komast betur að eld-
inum og er framganga slökkvi-
liðsins mjög rómuð. Því tókst að
slökkva eldinn á tæpum tveim-
ur klukkustundum. Báðar íbúð-
irnar voru klæddar innan með
70 umferðarslys I
siðustu viku júní
UMFERÐARSLYS í síðustiu viku
júní urðu 70, þar af 16 á vegum
í dreifbýli og 30 í Reykjavík. Er
hér átt við slys, er skýrslur ná
til.
Samkvæmt reynslu tveggja ®íð
ustu ára er hér um að ræða líka
tölu og búast mátti við, ef eigi
hafði verið breytt til hægri um-
ferðar. Er umferðaröryggi enn
sem komið er, efcki verra en það
var í vinstri umferð, og í þétt-
býli er það betra, en svo til ó-
breytt á þjóðvegum.
í fyrrgreindum umferðarslys-
um meiddust 18 menn í 12 um-
ferðarslysum. Voru fimm öku-
menn, einn hjólríðandi, tveir
gangandi og 10 farþegar.
Skemmdarverkin í Hvalfirði.
„Tangarsókn44 gegn yfir-
gefinni varðstöð IMATO!
Ferðalangar teknir, en neita sakagiftum
Á ELLEFTA tímanum á sunnu-
dagskvöldið voru spellvirki
unnin á hinni yfirgefnu varðstöð
í Hvalfirði. Lögreglan í Borgar-
nesi fékk að vita um þennan at-
burð og gerði Akraneslögreglunni
viðvart, en hún kom ekki á stað-
inn fyrr en spellvirkjarnir voru
á brótt.
Meira en mannhæðarhá girð-
ing er kringum varðstöðina þétt-
riðin með gaddavír, en járn-
staurar héldu henni uppi. Aðal-
spellvirkin voru framin á girð-
ingunni fyrir framan stöðina við
veginn og kringum hliðið. Vír-
inn var klipptur niður af 61 staur
og 15 staurar voru rifnir upp og
lagðir niður, en múrsteinshnull-
ungur er undir hverjum staur.
Þá var sprautað málningu á skilt
ið við varðstöðvarhliðið og á einn
bragganna. Voru það slagorð
eins og „Úr NATO ‘69“ og fleiri
af upphrópunum „hernámsand-
stæðinga", sem svo nefna sig.
Samband var milli Borgar-
fjarðarlögreglunnar og Reykja-
víkurlögreglunnar og stöðvaði
Reykjavíkurlögreglan amerískan
fólksbíl og rússajeppa, en grun-
ur lék á að þeir, sem spellvirkin
unnu, yæru í þeim. Fólk þetta
var síðan fært til yfirheyrslu á
lögreglustöðina í Reykjavík, en
neitaði að eiga þátt í þessum
spellvirkjum. í bílum þessum var
fólk, sem hefur komið við sögu
í andmælum gegn NATO hér á
landi.
Fólk þetta hafði meðferðis
naglbít og tangir sem af þeim
var tekið.
Málið hefir nú verið afhent
rannsóknarlögreglunni hér í
Reykjavík, sem hefir það til rann
sóknar.
texi og er það allt sviðið eða
brunnið og að mestu ónýtt.
Engu varð bjargað af efri hæð
inni en af þeirri neðri náðist út
snyrtiborð og skatthol. Einnig
fundu slökkviliðsmenn að tilvís-
un húsfreyjunnar veski hennar
mikið brunnið, en í því voru
fimm eitt þúsund krónu seðlar,
nokkuð sviðnir, en þó ekki meira
en svo, að þeim var skipt í banka
í dag fyrir heila seðla. Innbú
■beggja fjölskyldnanna var vá-
tryggt.
Á efri hæð hússins bjuggu
hjónin Ármann Þorgrímsson,
smiður og Kristveig Jónsdóttir
ásamt þremur börnum sínum.
Eitt þeirra er í sumardvöl ann-
ars staðar, en tvö voru heima,
en stödd úti við, þegar eldsvoð-
inn varð. Fjölskyldan hafði
keypt íbúðina og flutt í hana
fyrir einum mánuði eða svo.
Á neðri hæð bjuggu Jón Þor-
láksson, sjómaður, og kona hans,
Árveig Kristinsdóttir og fimm
börn þeirra. Ekkert barnanna
var heima.
Tveir brunaverðir meiddust
við slökkvistarfið í dag. Gunn-
laugur Búi Sveinsson skarst illa^-,_
á hendi á brotinni gluggarúðu og
Þorkell Eggertsson meiddist í
baki, er hann datt um stól inni
í reykhafinu. Þorkell var með
reykgrímu og súrefnisflösku á
baki og varð flaskan undir hon-
um, þegar hann datt aftur yfir
sig. — Sveinn.
Slökkvilið Akureyrar að björgunarstarfið við Hrafnagilsstræti
21 í gær.
Wheeler með áhyggjur
Washington, 7. júlí.
EARLE G. Wheeler, formaður
Nasser framlengir
Moskvudvöl sína
Moskvu og Kaíró 8.7. AP-NTB
NASSER Egyptalandsforseti
ræddi í dag óvænt við Pod-
gorny forseta Sovétríkjanna, og
Breznev aðalritara sovézka komm
únistaflokksins og Kosygin for-
sætisráðherra á sveitasetri sov-
ézku stjórnarinnar skammt fyrir
utan Moskvu. Stjórnmálafrétta-
ritarar höfðu talið víst að við-
ræður þeirra, sem hófust sl.
fimmtudag, væri lokið, en Nass-
er hafði þegið boð stjórnarinnar
um að hvíla sig á landssetrinu
þar til á morgun, miðvikudag.
Stjórnmálafréttaritaramir setja
viðræðurnar í samband við yfir-
lýsingu Bandaríkjastjóraar um
nýjar vopnasendingar til ísraels.
Anwar Sadat, forseti egypzka
þjóðþingsins sat viðræðufundinn
í dag ásamt Nasser.
Eins og fyrr segir komu við-
ræðurnar í dag mjög á óvart,
en fréttaritarar telja þær benda
til að fullt samkomulag hafi ekki
ríkt á fundinum fyrir helgi. Þeir
benda einnig á að í upphafi
hafi ætlunin varið að Nasser
flygi til Júgóslavíu í dag, til
viðræðna við Tito forseta.
Tass fréttastofan sovézka hef-
ur litlar fréttir flutt frá við-
ræðum Nasser í Moskvu, aðrar
en þær að eining og hreinskilni
einkenndi þær. Podgorny forseti
Sovétríkjanna sagði að viðræð-
umar bæru vott um trausta órjúf
anlega vináttu þjóðanna á milli
og sagði að Sovétríkin myndu
halda áfram að veita Egyptum
aðstoð.
Stjórnmálafréttaritarar segja
að Nasser hafi í Moskvu lagt
áherzlu á friðarvilja sinn, án þess
að hafa nokkuð nýtt fram að
færa, er leitt gæti til lausnar
deilunnar fyrir botni Miðjarðar
hafs. í ræðu sem hann hélt í
' Moskvu lofaði hann að leggja
| fram tillögu er hugsanlega gæti
í orðið grundvöllur að lausn mála
I á sviði stjórnmála sem byggist
| á ályktun Öryggisráðs Sameinuðu
j þjóðanna 22. nóvember s.l. Sov-
I étríkin hafa áður lýst yfir stuðn
1 ingi sínum við ályktunina sem
; samningsgrundvöll.
Brezhnev og Nasser í Mosk vu.
bandaríska herráðsins, hefur lát
iS í ljós áhyggjur af varnarmál-
um Bandaríkjanna í framtiðinni,
vegna stöðugra endurbóta á her
styrk Sovétríkjanna.
Wheeler segir, að hernaðar-
máttur Bandaríkjanna sé enn
nægur til þess að tryggja fram-
tíð þeirra þótt til atómstríðs
kæmi, en Sovétríkin vinni að
stöðugum endurbótum á kjarn-
orkuvopnabúnaði sínum, bæði á-
rásarvopnum og varnarvopnum,
og nálgist hernaðarmátt Banda-
ríkjanna.
Wheeler lagði áherzlu á, að
Bandaríkin verði að viðhalda
hernaðarlegum yfirburðum sín
um, þannig, að tilgangslaust
verði að ráðast á þau. Ef það
verði ekki gert, muni Sovétrík-
in brátt álíta sig þess megnug,
að leggja út í hernaðarlegar eða
stjórnmálalegar aðgerðir gegn
Bandaríkjunum.
Stuart Symington, öldunga-
deildarþingmaður, lagði fyrir
Wheeler ýmsar spurningar um
styrkleikahlutfallið milli Banda-
ríkjanna og Sovétríkjanna á lok
uðum varnarmálafundi í apríl
síðastliðnum, en ummæli Wheel-
ers voru ekki birt opinberlega
fyrr en nú um helgina. Syming-
ton spurði Wheeler meðal ann-
ars, hvort hann væri ekki kvíð-
inn vegna þess að kjarnorku-
máttur Sovétríkjanna færi sívax
andi á meðan Bandaríkin hefðu
lagt hömlur á smíði nýrra or-
ustuflugvéla og kjarnorkukaf-
báta. Wheeler kvaðst hafa á-
hyggjur af þessari þróun, en
sagði, að Bandaríkin myndu geta
snúið henni við og haldið áfram
stöðu sinni sem voldugasta stór-
veldi heimsins.
Bilvelta á
Vaðlaheiði
Akuneyri, 8. júlí.
SEX manna fólksbíll valt heila
veltu fram af fjögurra metra
hárri vegarbrún við eina af
beygjunum austan í Vaðlaiheiði
seint á laugardagskvöld. Hafði
ökumaður misst vald á bílnum
og ekiki náð beygjunni. Fernt var
’í bílnum og meiddist ekki telj-
andi, nema hvað öbumaðurinn
skarst nokkuð á höfði. Bíllinn,
sem var með blæjuþaki, er tal-
inn gjörónýtuir. — Sverrir.