Morgunblaðið - 31.10.1968, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1968
„Eins og sakir standa veröum
við að treysta á snjóbíiinn"
Staldrað við á Suðureyri við Súgandafjörð — siðari grein
Suðiireyrarkaiiptún við Súg
andafjörð ber þess vissulega
merki að þar hefur ríkt vel-
megun á undanförnum árum.
Hvert einbýlishúsið liefur ris
ið af öðru og mátti víða sjá,
að fólk var nýflutt inn í ný
hús sem átti þó eftir að leggja
siðustu hönd á, mála að utan
og lagfæra lóðir. Er ekki ó-
liklegt, að það verði að bíða
hjá einhverjum unz betur ár-
ar. Og það er líklega eitt
merki erfiðleikanna undanfar
ið, að í sumar var aðeins eitt
hús í smíðum og ekki útlit fyr
ir að fleiri legðu í nýbygg-
ingar að sinni.
Af öðrum framkvæmdum,
sem unnið hefur verið að á
Suðureyri að undanförnu er
hafnargerðin eflaust hin mikil
vægasta. Ég fékk þær upplýs
ingar hjá Þórhalli Halldórs-
syni sveitastjóra, að á þessu
ári hefði verið unnið í höfn-
inni fyrir tæpar 2.7 milljón-
ir króna. Hefði verið gengið
frá þekju á hafnarkantinum,
15 metra steinsteyptri plötu,
ennfremur gengið frá vatni
og rafmagni og nú síðast var
verið að vinna að lýsingu. Þá
gerðist það í sumar, að vatns
mál Suðureyrar komust í við-
unanlegra horf en verið hef-
ur. Þórhallur sagði, að í fyrra
hefði verið borað eftir neyzlu
vatni.
— Suðureyrarhreppur fékk
leigðan bor hjá Rafmagnsveit
um ríkisins og var borað á
þremur stöðum niður á níu
metra dýpi. I tvær af þess-
um holum voru settar djúp-
vatnsdælur í sumar og virðast
þær ætta að gefa góða raun.
Hefði þetta ekki tekizt hefð-
um við orðið að sækja vatn
út í Staðardal, um fjögurra
og hálfs kílómeters leið. Það
hefði verið óskemmtilegt, því
þótt vegalendin sé ekki svo
mikil, hefði orðið að sprengja
leiðslurnar niður á að
minnsta kosti 600 metra
svæði og kostnaðurinn við
þetta numið milljónum.
Tvö eru þau mál, sem hvað
mestum áhyggjum valda öll-
um íbúum Suðureyrar — eins
og raunar annarra byggða á
þessum álóðum. Það eru sam-
göngumátin og læknisleysið.
Þegar blaðamaður Mbl. var
þarna á ferð laust fyrir miðj-
an þennan mánuð, hafði ekki
enn tekizt að fá lækni til að
gegna Suðureyrar og Flat-
eyrarhéruðum í vetur. í sum-
ar hefur settur læknir gegnt
þessum héruðum báðum en
hann hættir störfum nú um
þessi mánaðamót og þá blasir
við algert öryggisleysi í þess-
um efnum. Töluver'ð bót hefði
verið að því að hafa hjúkrunar
konur á stöðunum, sem gætu
að einhverju leyti annast
sjúklinga samkvæmt 'leiðbein
ingum lækna í nærliggjandi
héruðum. Það hefur oft
reynzt mikit hjálp og reynd-
ist mjög vel á Flateyri í fyrra-
vetur en þangað komst lækn
ir iðulega ekki nema að fá sig
fluttan með varðskipunum.
sem höfðu oft öðru að
sinna en standa í slíkum flutn
ingum. En eins og nú horfir
virðist fárra eða engra kosta
völ. Getur nærri hvílíkt örygg
isleysi það er fyrir íbúana,
ekki sízt þar sem samgöngur
um heiðarnar til ísafjarðar
leggjast niður langtímum sam
an á veturna.
Sum kauptúnin eru það bet
ur sett en önnur, að sjúkra-
flugvellir eru í nánd við þau,
en til dæmis á Suðureyri er
enginn slíkur völlur. Til þess
að sækja þangað sjúklinga
flugleiðis þyrfti þyrlu — og
hefur raunar komið fram sú
hugmynd, að hafa þyrlu á
Vestfjörðum til þess að flytja
lækna og sjúklinga milli
staða.
Tií bráðabirgða hefur ver-
ið gripið til þess ráðs á Suð-
ureyri að kaupa þangað snjó
bíl, sem miklar vonir eru
bundnar við. Er það, eftir því
sem Þórhallur, sveitastjóri,
upplýsti, sænskur bíll, sjö
manna og er þess vænzt, að
með honum verði unnt að
flytja sjúklinga til ísafjarðar
ef með þarf og lækna milli
héraða.
Um sumartímann eru sam-
göngur við tsafjörð og nær-
liggjandi byggðir ágætar og
tíðar. Póststjórnin annast á-
ætlunarferðir frá Suðureyri tií
ísafjarðar þrisvar í viku og
hefur stillt þær inn á flugið
milli ísafjarðar og Reykjavík
ur, sem má heita aðal sam-
gönguleiðin við umheiminn.
Hermann Guðmundsson,
póst og símstjóri á Suðureyri
sagði mér, að um sumartím-
ann færi fólk mjög sjaldan
Þórhallur Haldórsson sveitastjóri á Suðureyri við nýja snjóbílinn.
Hermann Guðmundsson, póst
og simstjóri.
sjó eða landveg til Reykja-
víkur, enda oftast hægt að
komast t.d. frá Suðureyri, til
höfuðborgarinnar á um það
bil tveimur klukkustundum.
Meira væri um það á vetrum,
að menn kysu að fara sjóleið
ina, það reyndist oft fljót-
legra en að fara til ísafjarð-
ar og bíða þar sólarhring eft
ir flugvél og jafnvel hætta á
að ekki verði flogið.
— Fyrir utan þá samgöngu
bót, sem flugið hlýtur að vera
sagði Hermann. á það líka
mikinn þátt í því að gera
fólkinu á þessu svæði lífið
bærilegt. Þegar sæmilega viðr
ar og samgöngur eru í lagi fá
um við blöð og póst daglega,
auk margskonar varnings,
sem hægt er að panta að sunn
að með stuttum fyrirvara.
Mikilvægi flugsamgangn-
anna við þennan landshluta
má m.a. ráða af því, að suma
mánuði sl. árs fóru milli fjöru
tíu og fimmtiu Suðureyringar
flugleiðis frá ísafirði, að því
er Hermann sagði, eða nær 10
prs. af ibúunum.
— Að vísu mundi ég segja,
sagði hann að mánuðirnir sept
ember október og maí væru
beztir fyrir flugið, þá er með-
al annars vertíðarfólk og
skólafólkið á ferðinni. En það
er ölíum hér mikils virði að
vita, að hægt sé að komast
Framhald á bls. 16
Starfsmenn Reykjnvíkurborgnr
Munið árshátíðina á morgun föstudag 1. nóvember.
Hefst kl. 19.30 með borðhaldi.
Takið með ykkur gesti.
Skemmtinefndin.
Atvinna
Stúlka vön skrifstofustörfum og afgreiðslu óskar
eftir vinnu.
Tilboð óskast sent Mbl. merkt: „2095“.
Til íþrótta og útivistar má
treysta Heklu sportfatnaðinum
og hlífðarfötunum. Þá gegna
Iðunnar skíða-, skauta- og
knattspyrnuskórnir mikilvægu
hlutverki í heilsurækt þjóðar-
innar að ógleymdum Gefjunar
svefnpokum og ullarteppum til
ferðalaga.
ÖRUGG TRYGGING VERÐS
OG GÆÐA.
IÐNADARDEILD SÍS
Söluturn til sölu
Mjög góður söluturn til sölu af sérstökum ástæðum.
Góður lager fylgir.
Tilboð leggist inn til Morgunblaðsins fyrir sunnudag
merkt: „6784“.
Kvikmyndatökuvél
Af sérstökum ástæðum er til sölu sem ný 16 mm
Paillard BOLEX kvikmyndatökuvél með Vario-
Switar 18—86 mm zoom linsu.
GEVAFOTO H.F.
Hafnarstræti 22 — Sími 24204.
„Stoða utvinnuveganna ó Snæfellsnesi “
er umræðuefni fundar sem Félag ungra Sjálf-
stæðismanna á Snæfellsnesi boðar til í sam-
komuhúsinu í Grundarfirði laugardaginn
2. nóvember kl. 4.30 s.d.
Alexander Stefánsson, sveitarstjóri,
Emil Magnússon, kaupmaður.
Á eftir verða frjálsar umræður.
AHt Sjálfstæðisfólk velkomið.
STJÓRN F.U.S.
AÐALFUNDUR
Að loknum umræðum verð-
ur haldinn aðalfundur F.U.S.
á Snæfellsnesi, og eru fé-
lagsmenn eindregið hvattir
til að fjölsækja fundinn.