Morgunblaðið - 31.10.1968, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 19«8
segir Jón f. Guðmondsson, nýkominn heim frá Danmörku
Jón E. Guðmundsson með „kvartettirin", sem hann smíðaði úti
í Kaupmannahöfn, og máski birtist islenzkum sjónvarps-
„Ég tel, að við, sem stundum
myndlistarkennslu i íslenzkum
skólum, stöndum alveg jafnfæt-
is Dönum í þeirri kennslu"
sagði Jón. E. Guðmundsson
myndlistarkennari I Miðbæjar-
t skólanum, sem þó er raunar
/ þekktari fyrir afskipti sín af
1 brúðuleikhúsum, þegar við hitt-
t um hann á dögunum, til að
/ frétta af utanför hans til Dan-
J merkur, en hann fékk ársfrí
t frá kennslustörfum s.l. ár til að
i kynna sér myndlistarkennslu í
J dönskum skólum. Jón er ný-
t kominn heim, og hafði margt og
mikið að segja okkur.
„Danir hafa færri nemendur
en við í hverjum bekk, og
kennarar komast þar af leið-
andi í betra samband við nem-
endur, en mögulegt er hér
heima, og geta sinnt þeim bet-
ur. Slíkt er ekki hægt hér, nema
að skipta bekkjum, En það er
eitt, sem Danir hafa í hverri
myndlistarkennslustofu, setn
okkur vantar hér, og það er
leirbrennsluofn. Aúk þess hafa
þeir þar renniskífu til að móta
ker, vasa og diska.
Þá fá börnin einnig að móta
i frjálsar myndir í leir, sem svo
síðan eru brenndar í ofnunum
með glergljáa eða án hans.
Allt er þetta endurgjaldslaust
fyrir nemendur.
Þá fá nemendur einnig end-
urgjaldslaust öll teikniáhöld og
pappír, en svo er það nú oftast
hérlendis líka.
Þá er í hverri myndlistar-
stofu kvikmyndasýningarvél, og
með henni getur kennarinn sýnt
nemendum fjölmörg heimsþekkt
listaverk, en fræðsluskrifstofum
ar i Kaupmannahöfn eiga yfir
mjög stóru safni slíkra mynda
að ráða.
Ég fylgdist með kennslu 1 12
skólum í Kaupmannahöfn á
þessu ári, sem ég dvaldist þar.
Kenndi samt lítið sjálfur. Þó
leysti ég af kennara í hálfan
mánuð og hafði mjög gott af.
Ég sá á gestabókum, að þama
höfðu á undan mér verið kenn-
arar víðsvegar að úr veröldinni,
m.a. frá Japan, og fræðsluyfir-
völd Kaupmannahafnar skipu-
lögðu mjög vel allar mínar
ferðir.“
„Málaðir þú mikið ytra Jón"?
„Heldur fór nú lítið fyrirþvf,
en samt málaði ég nokkrar
vatnslitamyndir aðallega í görð
um Kaupmannahafnar. Þar er
yndislegt að dvelja, litimir
mjúkir og fallegir."
„Þú hefur auðvitað ekki get-
að staðist freistinguna að kíkja
svolítið á brúðuleikhús?"
„Satt er það. Bakterían loð-
ir alltaf við mig, þótt ég hefði
fyrir löngu ákveðið að hætta
við brúðuleikhús. Úti á ísiands-
bryggju dvaldist ég langdvöl-
um hjá frægum meistara í
brúðusmíði, Erik Sörensen að
nafni. Ég var við upptöku á
brúðuleikritinu „Litli Kláus og
stóri Kláus“ fyrir sjónvarp en
allar þær brúður hafði Sören-
sen hoggið út í tré, og era
þær allólíkar þeim „marionett-
um" (þ.e. strengbrúðum) og
handbrúðum, sem ég hef notað
hér heima. Á verkstæðinu hjá
Sörensen á íslandsbryggju smíð
aði ég 8 brúður, sem sérstak-
lega eru gerðar fyrir sjónvarp.
Þar á meðal er karlakvartett
og einn fiðluleikari, og held ég,
að hann sé fullkomnasta brúða,
sem ég hef smíðað um dagana.
áhorfendum bráðlega,
Allir fingur eru hreyfanlegir og
styðja á strengi fiðlunnar.
Það er raunar allt annað að
gera brúður fyrir sjónvarp en
venjulegt brúðuleikhús. Þær
verða að vera svo miklu fín-
gerðari. Fjarlægðin til áhorfand
ans í venjulegu brúðuleikhúsi
er það mikil, að brúðurnar
verða að vera grófar, aðalat-
riði dregin fram, og þá sér mað
ur framhjá smáatriðum.
Sjónvarp er allt annars eðlis.
Þá er það eiginlega kvikmynda
vélin, sem er áhorfandinn, og
hún getur bragðið á leik, tekið
nærmyndir, og þá verða myndirn
ar að vera miklu fíngerðari,
þræðirnir í strengbrúðunum því
sem næst ósýnilegir. Fyrir ut-
an fiðluleikarann og kvartett-
inn, gerði ég einn hálfgildings
róna, sem kemur til fiðluleik-
arans, þar sem hann er að leika
á götuhorni. Síðan gerði ég
söngkonu og gítarleikara.
Brúðusmíði tekur svo langan
tíma. Það er raunar allt annað
að hafa leikrit til hliðsjónar,
eins og ég hef haft hér heima,
eða byggja leikþætti utan um
brúðurnar, þætti úr hinu dag-
lega h'fí. Það er víst ekkert
leyndarmál lengur, að ég er að
búa út Eldfærin eftir H.C. And-
ersen fyrir islenzka sjónvarpið.
Áður hef ég sýnt Eldfærin 120
sinnum. En ég get enga brúð-
una úr þeim fyrri leik notað
fyrir sjónvarpið. Ég verð að
smiða þær allar að nýju. Stjórn
tæki einnar brúðu henta heldur
ekki fyrir aðra, svo að hver og
einn verður að hafa sin eigin
stjómtæki."
„Það var getið um það hér i
blaðinu fyrir nokkrum mánuð-
um, að þú hefðir sótt ársþing
norrænna brúðuleikhúsa, meðan
þú dvaldist ytra, Jón. Hvað
kanntu að segja okkur frá því
þingi?"
„Já, það era um 200 manns I
þessu norræna sambandi Brúðu
leikhúsmanna. Við hjónin mynd
uðum alminnstu sendinefndina.
Jú, það má segja, að þeir ráku
upp stór augu, þegar þeir fréttu
af íslenzku brúðuleikhúsi. Hafa
vafalaust ekki reiknað með að
slíkt væri til, og enn síður, að
það væri einasta brúðuleikhús-
ið á Norðurlöndum, sem bæri
sig án allra styrkja. Þingið var
haldið í Kaupmannahöfn, og
það var mikið um sýningar, ein
ar 8 á þrem dögum. Fólk kom
með sínar hgumyndir, alls kyns
nýjar brúðugerðir. Við, sem
dvöldumst í Kaupmannahöfn,
komum saman einu sinni í mán
uði, oftast 30-40 manns, og sýnd
um, hvað við voram að gera
þá og þá stundina. Brúðuleik-
hús eru ævaforn, sennilega kom
in frá Kinverjum. Mörgum
þjóðum þykir það mikið i mun
að viðhalda þessari gömlu list-
grein, og ég las það I blaði frá
Bandaríkjunum, að þeir þar
vestra styrkja þessa listgrein
ríflega til að halda henni í
horfinu. En við erum svo fáir,
fátækir og smáir. Það er nú
það.
Ég hafði sjálfur 8 sýningar í
Kaupmannahöfn. Það vora aðal
lega músikbrúður. Næsta þing
norrænna Brúðuleikhúsmanna
var sett í Osló 26. október.
Þangað gat ég þvi miður ekki
farið.“
„Hvað er þér helzt minnis-
stæðast frá þessu þingi, Jón?“
„Ætli það sé ekki sýningitn
með skuggabrúðurnar. Skugga-
brúður eru með þvi elzta i þess
ari listgrein. Það var dönsk
fjölskylda, sem sýndi með
skuggabrúðum leikrit, sem
mætti kalla: Gamli maðurinnog
hafið. Leikritið fjallaði um
gamlan mann, sem lagði leið
sina alltaf niður að ströndinni.
Kona hans var vond við hann,
rak hann alltaf til strandar í
fiskileit. En gamli maðurinn
eignaðist þarna við hafið ást-
mey, einskonar hafmey, og
undi glaður við sitt.
Músíkin er eiginlega sam-
tvinnuð þessu gamla formi."
„Og hvað nú, ungi maður?“
„Jú mig langar að komast
aftur út. Maður lærir þessi
feikn á því að kynnast starfs-
bræðrunum og aðferðum þeirra"
sagði Jón E. Guðmundsson að
lokum. Jón er einasti íslending-
urinn sem i dag fæst við þessa
gömlu listgrein, og ættum við ís
lendingar að sjá sóma okkar í
þvi, að gera honum kleift að
stunda hana — Fr.S.
Erik Sörensen, brúðumeistari á Islandsbryggju með brúðurnar
úr Litla Kláusi og Stóra Kláusi.
Keflavík — Njarðvík 2ja—3ja herbergja ibúð óskast til leigu strax. Uppl. í síma „1829“. Þriggja herbergja íbúð til leigu við Ægissíðu frá 15. nóv. Uppl. í síma 18765 eftir kl. 5.
Kaupfélag Suðumesja Ný sending: Útsniðnar unglingabuxur, kuldaúlpur peysur í úrvali. Vefnaðarvörudeild. Herbergi óskast til leigu, helzt sem næst Sjómannaskólanum. Uppl. í síma 92-2033 í Keflavík eftir kl. 19.
Nýleg 4ra herb- íbúð óskast til kaups í Reykja- vík eða Hafnarfirði. Upp- lýsingax í síma 30090. Tii leigu á Melunum þrjú herbergi og eldhús, einhver fyrir- framgreiðsla æskileg. Tilb. sendist Mbl. merkt „2390“.
íbúð til leigu Góð 4ra herb. íbúð, 110 ferm. í Heimahverfi er til leigu í 7—9 mánuðL Tilboð merkt „íbúð 6786“ sendist afgr. Mbl. f. föstudagskv. Kjöt — kjöt 44,20 kílóið sagað eftir ósk kaupanda. Sláturhús Hafnarfjarðar, sími 50791 og heima 50199. Guðm. Magnússon.
Ibúð til leigu 4ra herb. íbúð á hæð til leigu við Miðbæinn. Reglu- semi áskilin. Tilboð með uppl. sendist Mbl. fyrir ld. merkt „6785“. 2 Kennaraskólastúlkur óska eftix að taka að sér að gæta barna síðdegis eða á kvöldin. UppL í 83392 eftir kl. 2 e. h. Geymið auglýsinguna.
Píanókennsla Get bætt við mig nokkr- um byrjendum. Sími 83408 (í Safamýri). Rósótt telpnanærföt yrjótlar drengjanærbuxur. Þorsteinsbúð, Snorrabraut 61 og Keflav.
Takið eftir Seljum í dag og næstu daga ódýra kjóla með rennilás og sloppa og fleira Klæðagerðin Elísa, Skipholti 5. — Háaleitishverfi — Hlíðar Vaniir starfandi kennari vill taka nokkur 6 ára börn i timakennslu eftir hádegi. Uppl. í síma 81884.
KEF-KLÚBBURINN
Fundurinn verður föstudagskvöld kl. 20.30 að Skip-
holti 70.
Fjölbreytt skemmtiatriði.
Mætum öll og tökum gesti með.
NEFNDIN.
Norðuid í Borgurlirði
Veiðiréttur Veiðifélaigs Norðurátr í Borgarfirði fyrir
veiðitímabilið næstu þrjú ár 1969 — 1971 er til leigu.
Heimild er fyrir 10 stöngum.
Upplýsingar gefa Þórður Kristjánsson, Hreðavatni
og Magnús Þorgeirsson, Pfaff, Reykjavik.
Tilboðum sé skilað til formanns Veiðifélags Norð-
urár, Þórðar Kristjánssonar, Hreðavatni fyrir 10. des.
næstkomandi
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er,
eða hafna öllum.
Stjórn Veiðifélags Norðurár.
HÚSMÆÐUR! HÚSMÆDUR!
Fimmtudagar — innkaupsdagar
Matvörur — hreinlœtisvörur
Aðeins þekkt merki —
Flestar vörur undir búðarverði
OPIÐ TIL KLUKKAN 10 í KVÖLD