Morgunblaðið - 31.10.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 31. OKTÓBER 1968
- Á SUÐUREYRI
Framhald af bls. 5
úr einangruninni í fjölmenn-
ið með stuttum fyrirvara.
Starfsaðstaða Hermanns,
' sem verið hefur póst og sím-
stjóri á Suðureyri í 22 ár,
breyttist mjög til batnaðai
um síðustu mánaðamót, þegar
tekið var í notkun nýtt og
myndarlegt húsnæði Pósts og
síma. Hefur þar verið mjög
til allra hluta vandað og inn-
réttingar smekklegar. í hús-
inu er rúmgóð afgreiðsla fyr-
ir póst og síma, góð íbúð
stöðvarstjóra og auk þess hús
næði, sem mun fullnægja þörf
sjálfvirkrar símstöðvar, sem
fyrrihugað er að verði komin
á miðju næsta sumri. Bygg-
ingu stöðvarhússins, sem hef
ur tekið tvö ár, annaðist fyr
irtæki á Flateyri, Hefill h.f. en
ýmsir aðrir aðilar lögðu þar
hönd að verki.
Hermann hafði nýlokið við
að flytja starsfmennina ínýja
húsið þegar ég hitti hann að
máli og var í senn harla
þreyttur og mjög ánægður.
— Þetta bætir alla aðstöðu
okkar ótrúlega, sagði hann.
Til bessa eða i 22 ár hefur
stöðin verið í sama húsnæði.
í upphafi starfaði ég einn við
þetta og númerin voru þá að
eins tíu talsins. Nú eru þau
orðin 80 og tvær stúlkur auk
Nýbygging Pósts og síma á Suðureyri.
Ford Bronco árg. "66
Seljum næstu daga nokkra góða Ford Bronco bíla.
Ýmis bílaskipti möguleg.
Sýningarsalurinn Sveinn Egilsson.
Megrunarnudd
Dömur athugið. Erum að innrita í síðustu 10 skipta
kúra fyrir jól. — Þær sem pantað hafa tíma, vinsam-
legast endurnýi nú þegar.
NUDDSTOFAN Laugavegi 13 — Simi 14656.
(Hárgreiðslustofa Austurbæjar.
mín starfa hér. Umsetningin í
pósti hefur líka aukizt gífur
lega á þessum árum, hefur
komizt upp í tvær milljónir
á mánuði stærstu mánuðina,
enda er sparisjóðurinn hér
lítill og aðeins opinn tvær
stundir á viku svo að banka
viðskipti fara að verulegu
leyti fram gegnum póstinm. Við
þurfum bara umfram allt að
fá greiðari samgöngur til ísa
fjarðar yfir vetrartímann, þá
kemur póstur aðeins tvisvar
í viku með Djúpbátnum því
að vegir eru að verulegu
leyti lokaðir allt að því átta
mánuði á árinu. Nú er unnið
að nýjum og betri vegi yfir
Botnsheiði til Súgandafjarð-
ar og gerum við okkur vonir
um, að auðveldara vef-ði að
halda honum opnum en þeim
sem nú er.
Og þar með erum við kom-
in að nýju að því vandamáli,
sem hugur al'lra snýst um,
einangruninni að vetrinum og
því öryggisJeysi sem það er
fóíki að vera lokað inni í
litlu læknislausu byggðarlagi,
með um 80 börn á skólaaldri,
Vetrartízkan 7968
Vetrarkápur með skinnum.
UlJarfrakkar (camel og cashmere).
Ullarkápur með kjólum.
Antiqueleðurkápur með loðfóðri.
Rúskinnskápur með og án loðfóðurs.
Terylenekópur loðfóðraðar með hettu.
Terylenekápur með lausu loðfóðri.
Terylenejakkar með Ioðfóðri % sídd.
Nælonpelsar víðir og aðskornir.
Nælonpelsjakkar, hrúnir, svartir og gráir.
Buxnadragtir með pilsum, margir litir.
Ullarúlpur með loðfóðri.
Loðhúfur úr skinni og nælon.
Prjónaðar húfur með treflum.
Hattar — Skinnhanzkar — Slæður.
Handtöskur og regnhlífar. — Glæsilegt úrval.
Bernharð Laxdal
KJÖRGARÐI.
- ERLENT YFIRLIT
Framhald af bls. 15
kosningamáli, að Nixon hefur
verið tregur ti'l að taka þátt í
kappræðum í sjónvarpi, og til að
leggja áherzlu á þetta bauðst
hann til að draga sig í hlé til
að gera þeim Humphrey og Nix
on kleift að kappræða og kaupa
síðan sjálfur tíma í sjónvarpinu
til að svara þeim. Við kjósend-
ur í Suðurríkjunum, sem hallast
að Nixon, segir Wallace þetta:
,,Ef þið getið sýnt mér eitthvað
gott, sem repúblikanar hafa gert
fyrir Suðurríkin síðan þræla-
stríðinu lauk, þá skal ég draga
framboð mitt til baka“.
ALLON-ÁÆTLUNIN SAMÞYKKT ?
SPENNAN fyrir botni Mið-
jarðarhafs hefur farið dagvax-
andi. Á vesturbakka Jórdan hef
ur verið efnt ti'l alvarlegustu
mótmælaaðgerðanna gegn her-
námi fsraelsmanna síðan sex
daga stríðinu lauk. f Jerúsalem
hafa ísraeískar hersveitir aftur
sótt inn í hinn jórdanska hluta
borgarinnar. Við Súezskurð hafa
stórskotalið og flugvélar Egypta
og fsraelsmanna háð einhver al-
varlegustu einvígi sín frá lok-
um sex daga stríðsins.
Bæði í fsrael og Jórdaníu eiga
ráðherrar í hörðum deilum, senni
lega vegna þess að miðað hefur í
þá átt að stjórnir landanna
hefji viðræður sín á mil'li. Margt
hefur bent til þess, að stjórn
Husseins konungs hafi verið fús
til að hefja undirbúningsviðræð-
Vörður, félag ungra Sjálfstæðismanna á Akureyri
Kvöldverðarfundur
verður haldinn í Sjálfstæðishúsinu uppi föstudaginn 1. nóvember kl. 19.15.
Fundarefni: ívar Baldvinsson hagræðingarráðunautur ræðir um störf hag-
ræðingarráðunauta og verkefni þeirra á Akureyri.
Áríðandi er að félagar fjölmenni.
STJÓRNIN.
ur um hina svokölluðu Aílon-
áætlun fsraelsmanna, sem er á
þá leið að Jórdaníumönnum
verði skilað herteknu svæðunum
að undanskilinni smáland-
ræmu meðfram Jórdanánni,
þar sem fsraelsmenn fái
að reisa landamæravirki,
og hinum gamla borgar-
hluta Jerúsalem, sem ísraels-
vilja fyririr engan mun sleppa.
DAYAN HARÐSKEYTTUR
En þjóðernissinnar í ísraelsku
stjórninni eru andvígir hvers
konar lausn, sem gerir ráð fyr-
ir að herteknu svæðunum verði
skiíað aftur. Hörðustu andstæð-
ingar slíks samkomulags eru
Moshe Dayan varnarmálaráð-
herra og stuðningsmenn hans,
og mótast afstaða þeirra meðal
annars af innanríkismálum. Day
an keppir um forsætisráðherra-
tignina, sem Lavi Eskhol hefur
ákveðið að Allon varaforsætis-
ráðherra taki við þegar hann
lætur af embættinu, en þar með
verður dregið úr áhrifum Day-
ans og stuðningsmanna hans.
Dayan hótar að kljúfa flokkinn
jafnframt því sem hann berst
ákaft gegn þvi að vesturbakk-
anum verði skilað.
f Jórdaníu hafa samtök
skemmdarverkamanna frá Palest
ínu, sem verða sífellt öflugri,
hótað að gera uppreisn gegn
Hussein konungi, ef hann kemst
KLUBBFUNDUR
HEIMDALLUR efnir til klúbbfundar n.k.
laugardag kl. 12.30 í Tjarnarbúð.
Fjármálaráðherra
Magnús Jónsson rœðir:
Hvernig á að mœta
efnahagsörðugleikunum?
Heimdallarfélagar, fjölmennið og takið með ykkur gesti STJÓRNIN.
auk fulloiðinna. Byggðin er
umlukin háum fjöllum og heið
um og engin útgönguleið
nema hafið, sem getur tæp-
ast talizt leið, svo rysjótt sem
það oft er á vetrum. En Her-
mann segir eins og Þórhalhir
sveitastjóri, Sturla hrepp-
stjóri, Óskar Kristjánsson, út-
gerðarmaður, sem er oddviti
hreppsins og allir íbúar Suður
eyrar við Súgandafjörð. „Eins
og sakir standa verðum við
að setja allt okkar traust á
snjóbílinin .. . “
m. bj.
að samkomulagi við fsraels-
menn. Skemmdarverkamennirnir
eiga nokkurn þátt í hinni auknu
spennu í samskiptum ísraelsku
hernámsyfirvaldanna og hinna
arabísku íbúa. Undirrót þessar-
ar spennu er þó sú stefna fsra-
elsstjórnar, sem Dayan hefur
komið til leiðar, að leyfa fsra-
elsmönnum að setjast að á her-
námssvæðinu. Þannig vonahann
og stuðningsmenn hans, að hægt
verði að gera svæðið í raun og
veru ísraelskt og koma þannig
í veg fyrir að það verði afhent
Jórdaníumönnum.
Stórveldin, bæði Sovétríkin,
sem hafa endurvígbúið grann-
ríki fsraels, og Bandaríkin, sem
reyna að fá ísraelsmenn til að
ganga til samninga við Araba
fyrir tilstilli SÞ, leggja hart að
báðum deiluaðilum að binda
enda á hættuástand það, sem
ríkir. Sameinuðu þjóðirnar hafa
á ný hvatt deiluaðila að setjast
að samningaborði, og sáttasemj-
ari samtákanna í deilum Araba
og fsraelsmanna, Gunnar Jarr-
ing, virðist hafa hótað að segja
af sér fyrir mánaðarmót verði
viðræður ekki hafnar fyrir þann
tíma og komizt enginn skriður á
tilraunirnar til að binda endi á
það þrátefli, sem hefur skapazt.
iimiiiiiiiimiii
BILAR
Fjölbreytt úrval af notuð-
um bilum. — Hagstæðir
greiðsluskilmálar.
Ódýrir bílar:
Skoda Oct. árg. 1961.
Renault árg. 1964.
Zephyr árg. 1962.
Consul 315 árg, 1962.
Benz árg. 1955.
Dýrari bílar:
Gloria (japanskur) árg ’67.
Rambler Classic árg. 1963.
Chevy II árg. 1965.
Rambler Classic árg. 1965.
Scout jeppi árg. 1967.
Rambler Classic árg. 1966.
Rambler American árg ’66.
Rambler American árg ’67.
Dodge Dart- árg. 1966.
Willys jeppi (nýr) árg. ’68.
Bílar nýkomnir á söluskrá:
Vauxhall árg. 1966.
Rambler Classic árg. 1968.
Verzlið þar sem úrvalið er
mest og kjörin bezt.
Rambler-
umboðið
JON
LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 — 10600
lllllllllllllllllll