Morgunblaðið - 19.11.1968, Qupperneq 10
f
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1968
Endurskoöa þarf
hraifrystihúsa
Frá tundi Hagfrœðingafélags íslands
Frímerkjasýningin
opnuð á föstudag
Ceir Hallgrímsson, borgarstjóri
verður verndari hennar
H AGFRÆÐIN GAFÉl. AG Is-
lands boðaði til fur.dar s.l. laug
ardag og var umræðuefnið gengis
breytingin. Frummælandi var
Guðmundur Magnússor prófess-
or við viðskiptadeild Háskólans,
en auk hans voru fjórir aðrir
sem fjölluðu um brevtinguna,
þeir Jónas Haralz, Jóhannes Nor
dal, Úlfur Sigurmundsson og Þor
varður Alfonsson. Fundurinn var
vel sóttur og báru fundarmenn
fram fjölmargar fyrirspurnir.
Fundarstjóri var Bjarni Bragi
Jónsson, formaður Hagfiæðinga-
félags íslands.
Bjarni Bragl Jónsson setti
fundinn og sagði, að þessi geng-
isbreyting gæfi fyrirheit um nýja
landvinninga, breytingm væri
brú yfir tfl framtíðarinnar, spurn
lngin væri því, hvort nauðsyn-
legt hefði verið að bypgja þessa
brú, og væri það verkefni þessa
fundar að fjalla um það
Guðmundur Magnússon próf-
essor hóf síðan mál s’tt. Hann
ræddi í upphafi nokkuð um mark
mið og leiðir í efnahagsmálum,
m.a. ræddi hann nokkuð um
verðbólgu, sem hann taldi mjög
skaðvænlega, þegar tit lengdar
létL Þá vék hann að genginu
og sagði að miðað við það ástand
sem hér hefði ríkt, hefði gengis-
fellingin verið mest freistandi.
Sumir hefðu að vísu vitjað upp-
bótarleið en sú leið hefði orsak-
að samdrátt og fryst vmnunýt-
inguna. Möguleiki til framtiðar-
þróunar hefði einnig orðið hverf
andi, svo að uppbótar'lmðin væri
undir öllum kringumstæðum lé-
leg leið, nema þá til mjög skamms
tíma. Um gengisfellirgu væri
það að segja, að húr\ raskaði
tekjuskiptingunni eins og upp-
bótarleiðin. en hún hefði það
fram yfir, að kaup er.endra á
íslenzkum vörum yrðu meiri,
vegna ódýrara verðs : erlendri
mynt, að útflutningur mvndi auk
ast og, innflutningur hráefnis til
úrvinnslu yrði meiri. Að 'lokum
lagði Guðmundur nokkrar spurn
ingar fyrir fjórmenningrna.
Jóhannes Nordal seðiabanka-
stjóri sagði i ræðu s'nni, að
gengisbreytingin núna hefði ver
ið eina hagkvæma leiðir. Menn
hefðu áður haldið, að tekjurýrn
unin á s.I ári væri timabund-
ið atriði, en reynslan befði styrkt
þá trú, að hér væri um að ræða
írnr
í kröfugöngum
Londonderry, Norður írlandi
YFIRVÖLD á Norður írlandi ótt
ast, að til blóðugra óeirða kunni
að draga í dag og á morgun,
þar sem boðuð er mikil ganga
til að leggja áherzlu á kröfur
borgara um réttindi. Yfirvöld
hafa neitað að gefa samþykki sitt
til að gangan verði farin, en því
hefur verið lýst yfir, að það bann
verði að engu haft.
„Borgararéttindanefndin"
krefst meiri réttinda til handa
kaþólskum minnihlutanum á
Norður írlandi, einkum hvað
snertir atvinnu og húsakost.
Pidal 777
Madrid 15. nóv. NTB
RAMON Mendez Pidal, einn
fremsti málfræðingur Evrópu,
lézt í Madrid á föstudag, nær
hundrað ára gamall. Pidal var
heiðursdoktor við átján þekkta
háskóla víðs vegar um heim.
Hann ritaði fjölda bóka og rit-
gerða um málvísindi á langri
ævi. Þekktasta framlag hans til
bókmenntasögunnar voru rann-
sóknir hans á uppruna Poma del
Mio Cid, sem er eitt elzta og
þekktasta skáldverk Spánar.
varanlega tekjurýrnun sem ætti
rót sína að rekja til fallvalt-
leika sjávarútvegsins Yrðu
menn því að búast við lægra
stigi í neyslu um alla framtíð,
nema möguleikar væru á aukn-
um útflutr.ingi annarra afurða.
Sagði Jóhanr.es, að ef ekki væri
möguleikar á slíkum útfiutningi
væri framtíðin skuggaleg.
Úlfur Sigurmundsson, hag-
fræðingur, sagði í sinni ræðu,
að gengisbreytingin hefði verið
óumflýjanleg, og bætti við, að
sumum þætti hún jafnvel ekki
nóg. Hluti gengisbreytingarinn-
ar færi strax í hækkanir og fyr-
ir hraðfrystihúsin kæmi hún
hún ekki að fullu g&gni: ein-
hver fróður maður hefði reikn-
að það út að til þess að hún
nægði þeim, þyrfti hún að vera
milli 80 og 90%. Ræddi hann
síðan um áhrif þessarar gengis
breytingar fyrir iðnað og iðnað-
arútflutning.
Þorvarður Alfonsson, hag-
fræðingur ræddi aðallega í sinni
ræðu um aðstöðu íslenzks iðn-
aðar ti'l útflutnings. Hann sagði,
að aðstaða iðnaðarins til slíks
hefði óneitanilega batnað en mörg
ljón væru þó í vegi enn, og
þyrfti að fara fram ýtarlegar
rannsóknir á hverjar vörur
væru vænlegar til útflutnings.
Benti hann á, að sl. 30 ár hefði
hið opinbera ákveðið, bverjar út
flutningsvörur íslendirga ættu
að vera.
Jónas Haralz, forstöðumaður
Efnahagsstofnunarinnar, fjallaði
í ræðu sinni aðallega um frysti-
húsin. Hann sagði að frystiiðn-
aðurinn hefði aldrei verið rekinn
með miklum ágóða, þó væri það
ekki algilt. Margar ástæður
lægju til misjafnrar afkomu, en
óneitanlega ætti mismunandi góð
stjórn fyrirtækjanna þar mikinn
þátt í. Þá hefði gætt mjög til-
hneigingar til affjárfestingar í
grundvöll
frystiiðnaðinum eins og í annarri
vinnslu sjávarafurða. Takmarkað
ur sjóndeildarhringur þeirra
manna, sem í sjávarútvegi störf-
uðu og af eðlilegum ástæðum
hefðu ekki reynzlu né þekkingu í
öðrum greinum ætti hér einnig
hlut að máli. Ennfremur ætti
starfsemi banka og fjárfestinga-
sjóða hér nokkra sök á. Margir
héldu að fjárfestingareftirlit
hefði getað komið að haldi í
þessu efni. Þetta væri þó alger
misskilningur, þar sem í slíku
eftirliti hlyti pólitískra sjónar-
miða að gæta mjög og gallarnir í
uppbyggingu hraðfrystiiðnaðar-
ins ættu að nokkru rót sína að
rekja einmitt til þess tíma, þeg
ar fjárfestingareftirlit var hér
við líði.
Jónas Haralz sagði að leiðin
til að hafa áhrif á bætt skipulag
í fjárfestingarmálum í sjávarút-
vegi lægi fyrst og fremst í gegn-
um starfsemi banka og fjárfest-
ingarlánasjóða, auk þess sem
nauðsynlegt væri að tryggja sjáv
arútvegi almennan starfsgrund-
völl er væri heilbrigður, eins og
nú væri stefnt að með gengis-
breytingunni en ekki yrði gert
með uppbótarkerfi.
Jónas Haralz sagði að fiskverð
væri óeðlilega lágt og stafaði það
af hlutaskiptareglunum. Þær
hefðu leitt til þess að útgerðar-
menn sæju sér takmarkaðan hag
í að hækka fiskverð og reyndu
heldur að gerast aðilar að fisk-
vinnslu. TaJdi Jónas að hækka
bæri fiskverð og breyta um leið
hlutskiptareglunum, það yrði sjó
mönnum tvímælalaust til góða.
Að lokum ræddi Jónas Haralz
um útflutning iðnaðarvara. Hann
sagði að smáiðnaður væri þannig
að öll áætlanagerð þar væri
meira og minna út í loftið og
gæti jafnvel orðið skaðvænleg.
Reynsla grannþjóðanna bæði í
Danmörku og Noregi benti einnig
í þá átt.
Þó hófust almeninar umræður.
Báru menn fram fyrirspurnir til
frummælenda, og komu margar
fyrirspurnir fram. Að lokum
tóku frummælendur aftur til
máls og svöruðu fyrirspurnum.
Sýningarblokkin sem gefin er
N.K. FÖSTUDAG hefst frímerkja
sýningin DIJEX 1968, á vegum
Landssambands íslenzkra frí-
merkjasafnara og Deutsche Phila
telisen Jugend. Jafnframt mun
sambandið halda sitt fyrsta lands
þing, en það var stofnað í fyrra.
Geir Hailgrímsson, borgarstjóri,
verður verndari sýningarinnar og
mun opna hana formlega. Dag-
inn sem frímerkjasýningin opnar,
kemur út sérstök sýningarblokk,
sem sýnir fyrsta frimerkið, sem
gefið var út í Bayern og á fs-
landi.
Frímerkjasýningin Dijex 1968
er unglingasýning og taka þátt í
henni íslenzkir og þýzkir ungl-
ingar, en auk þess hafa Samein-
uðu þjóðirnar ák\teðið að sýna
safn sitt og Guðbjartur Ólafs-
son mun sýna gott fslandssafn er
hann á.
í frétt frá Landssambands ís-
lenzkra frímerkjasafnara segir
m.a., að það sé Landssamband-
inu sérstök ánægja, að borgar-
stjórinn sé verndari sýningarinn-
ar, en þetta sé önnur unglingasýn
ingin sem haldin sé hér á landi.
Hin fyrsta var „Dagur frímerk-
isins 1960“, sem haldin var að
út í tilefni DIJEX 1968.
Lindargötu 50.
í heiðursnefnd sýningarinnar
eiga sæti: Ingólfur Jónsson, póst-
og símamálaráðherra, Gunnlaug-
ur Briem póst- og símamálastjóri,
Max Kiesel, Múnchen og Torf-
hildur Steingrímsdóttir Hafnar-
firði. Formaður framkvæmda-
nefndar sýningarinnar er Sigurð-
ur H. Þorsteinsson, forseti LÍF.
Sýningin verður haldin að Frí-
kirkjuvegi 11 og opnuð n.k. föstu
dag kl. 19.30 fyrir almenning og
verður opin til 29. nóv. kl. 10-12
og 14-16 verður sýningin opin fyr
ir unglinga í skólum borgarinn-
ar og nágrennis, en á sýning-
unni verða tvö söfn, er sýna
notkun frímerkjanna í skóla-
starfi.
Laugardag og sunnudag verð-
ur sýningin ópin fyrir almenn-
ing kl. 14-22, en aðra daga kL
17-22.
Sérstakt pósthús, með sér-
stimpli verður opið á sýningunni,
þegar hún er opin fyrri almenn-
ing.
Leikrit Guðmundar Kambans, Vér morðingjar, hefur nú verið
sýnt 55 sinnum hjá Þjóðleikh isinu við ágæta aðsókn. Leikur-
inn var frumsýndur þann 20. apríl s.l. á 18 ára afmæli Ieik-
hússins, og hlaut frábæra dóma leikgagnrýnenda. Aðalhlut-
verkin eru leikin af Kristbjörgu Kjeld og Gunnari Eyjólfs-
syni, en leikstjóri er Benedikt Árnason. Næsta sýning leiks-
ins verður n.k. föstudag þann 22. nóvember. Myndin er af
Gunnari og Kristbjörgu.
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Sonur okkar ei bezti drengur, en hann ráfar um og virð-
ist ekki hafa neinn áhuga á lífinu. Við erum áhyggju-
full út af honum. Hvað getum við gert til þess að hrista
af honum slenið?
Flestir unglingar eru einatt leiðir í skapi. Við gæt-
um kallað þetta andlega vaxtaverki. Þegar við erum
orðin fullorðin, munum við aðeins eftir sólskinsstund-
um æskunnar, og við segjum: „Unga fólkið er ekki
eins ánægt og við vorum í mínu ungdæmi“.
Ég hef átt tal við margt ungt fólk, og ég hef komizt
að raun um, að það, sem það þarfnast öllu öðru
fremur, er kærleikur, skilningur og traust. Jesús um-
gekkst fólk af mikilli vizku, og eitt af því, sem sýnir
það, er sú trú og það traust, sem hann bar til manna.
Hvað gat styrkt óstöðugan mann eins og Pétur meira
en orð Jesú, þegar hann segir: „Þú ert Pétur, og á
þessum kletti mun ég byggja söfnuð minn?“ Eða,
hvað var fremur þess megnugt að fjarlægja brodd
iðrunarinnar úr hjarta hórseku konunnar en orðin,
sem hún fékk að heyra: Ég sakfelli þig ekki heldur.
Far þú, syndga ekki upp frá þessu“? Ef til vill var
það fremur trú Jesú á fólkinu en trú fólksins á Guð,
sem breytti lífi þess. Auðvitað fór hvort tveggja sam-
an og hvort tveggja er nauðsynlegt.
Reynið að efla sjálfstraust sonar yðar með því að
sýna honum, að þér hafið trú á honum. Að baki hverj
um manni, sem nýtur velgengni, er einhver, sem
trúir á hann, væntir mikilla hluta af honum og
örvar hann.
g upp- S
m