Morgunblaðið - 19.11.1968, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. NÓVEMBER 1968
Félag íslemkra
snyrtisérfræðinya
Fundur verður haldinn miðvikudaginn 20. nóv.
kl. 8.30 að Hótel Sögu herb. 513.
Fundarefni:
Gísli Þorkelsson efnaverkfræðingur talar.
Kaffi.
/ STJÓRNIN.
Framtíðarstarf í bókhaldsdeild
Ungur maður 20—26 ára verður ráðinn á næstunni til
þess að annast ýmis skrifstofustörf í fjármáladeild
stórs fyrirtækis í Reykjavík.
Krafizt er reglusemi, mikillar nákvæmni og góðrar
enskukunnáttu.
Þetta er starf sem útheimtir eljusemi, en býður á móti
fölbreytni og trygga framtíð.
Vinnuskilyrði og starfsskilyrði er eins og bezt gerist.
Laun verða greidd í hlutfalli við atorku og starfs-
árangur.
Tilboð með sem fyllstum upplýsingum sendist Morg-
unblaðinu merkt: „Nútímatækni — 6692“.
Nauðungaruppboð
sem auiglýst var í 28., 31. og 33. tfbl. Lögbirtingablaðsins
1968 á hluta í Skálagerði 17, hér í borg, þingl. eign Jóns
Stefánssonar, fer fram eftir kröfu Amar Þór hrl., Gjald-
heimtunnar í Reykjavík og Veðdeildar Landsbanlkans, á
eigninni sjálfri, fimmtudaginn 21. nóv. 1968, kl. 16.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
N auðungaruppboð
sem auglýst var í 43., 45. og 48. febl. Lögbirtingablaðsins
1968 á hluta í Hjarðarhaga 60, hér í borg, þingl. eign
Hauks Haraldssonar, fer fram eftir kröfu Gjaldheimtunn-
ar í Reykjavík á eigninni sjálfri, fimmtudaginn 21. nóv.
1968, kl. 11.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
N auðungaruppboð
annað og siðasta á hluta í Grensásvegi 22, hér í borg,
talin eign Iðnplasts h.f., fer fram á eigninni sjáliri,
fimmtudaginn 21. nóvember 1968, kl. 11.00.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 43., 45. og 48. tfel. Lögbirtingablaðsins
1968 á hluta í Hraunbæ 54, hér í borg, talin eign Bjarna
Th. Matthíassonar, fer fram eftir kröfu Hafþórs Guð-
mundssonar hdl., og Veðdeildar Landsbankans á eigninni
sjálfri, fimmtudaginn 21. nóvemfeer 1968, kl. 13.30.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Tryggingastofnunar iíkisins, Fiskimála-
sjóðs, Fiskveiðasjóðs íslands og Ólafs Þorgrímssonar,
hrl., verður fiskverkunarstöð í Akurhúsatúni í Grinda-
vík, þinglesin eign Gunnars Halldórssonar, seld á
nauðngaruppboði, sem háð verður á eigninni
sjálfri föstudaginn 22. nóv. 1968, kl. 2.30 e.h
Uppboð þetta var auglýst í 11., 14. og 16. tölublaði
Lögbirtingablaðsins 1966.
Sýslumaðurinn í Gullbringu- og Kjósarsýslu.
•Nýútskrifaðir meinatæknar. Fremri röð frá vinstri: Elín Þ. Björn sdóttir, Vilborg ólafsdóttir, Arn-
ttís Theódórs, Kristín Ragnarsdóittir, Hlín Aðalsteinsdóttir og Anina Kristjánsdóttir, sem hlaut
fhæstu einkunn, 9,2. Aftari röð frlá vinstri: Soffía Sigurjónsdóttir, Kristín Bergsteinsdóttir, Erna
Gunnarsdóttir, Ástríður Hauksdróttir, sem hlaut aðra hæstu einkmnn, 9,1, Ingunn Hjaltadóttir,
llðunn Óskarsdóttir og Sigríður fGissurardóttir. Á myndina vantJar Guðnýju Dóru Kristinsdóttur
log Ásthildi Pálsdóttur sem báðar starfa nú erlendis. — Ljósm. tMbl. Á. J.
Fyrstu meinatœknarnir
trá Tœkniskólanum
TÆKNISKÓLI íslands útskrifaði
í gær fyrstu meinatæknana frá
skólanum, alls 15 stúlkur. Meina-
tæknar eru aðstoðarfólk á rann-
sóknarstofum, sem hafa stundað
sémám í tvö ár, bóklegt nám
og verklegt. Þessar 15 stúlkur,
sem útskrifuðust ' gær eru fyrstu
meinatæknarnir, sem útskrifast
úr skóla hérlendis.
Bjarni Kristjánsson, skóla-
stjóri Tækniskólans, afhenti
meinatæknunum skírteini sín í
gær að viðstöddum kennurum og
yfirlæknum rannsóknarstofnana.
Skólastjóri sagði m. a. í ræðu'
sinni:
„Þegar þjóðfélagið vantar hóp
af sérhæfðu fólki til vandasamra
verka, þá gerist það venjulega
að einn eða fleiri aðilar ganga
fram fyrir skjöldu og berjast
fyrir því að komið sé á fót kerf-
isbundinni merntun, sem full-
nægi þörfinni.
Fyrir nálega einum áratug
munu forstöðumenn rannsókna-
stofnanna, sem nú taka þátt í
menntun ykkar, sem hér á að
útskrifa í dag, hafa komið á hjá
sér einskonar menntunarkerfi
fyrir meinatækna. Að nokkru
leyti var það fólgið í því að láta
verðandi meinatækna sækja
vissa tíma í Læknadeild háskól-
ans.
Þessi skipan mála sýndi sig þó
að vera ófullnægjandi, og fram
fyrir skjöldu gengu forstöðu-
menn rannsóknastofnanna. Fé-
lag íslenzkra meinafræðinga og
Hlín Aðalsteinsdóttir.
Sjálfstæðiskvennafélagið Hvöt
Aðalfundur félagsins verður haldinn miðvikudaginn
20. nóv. kl. 8.30 síðdegis í Sjálfstæðishúsinu.
Fundarefni.
1. Lagabreytingar, tillaga að nýjum lögum
fyrir félagið.
2. Venjuleg aðalfundarstörf.
3. Önnur mál
Kvikmyndasýning, kaffidrykkja.
Félagskonur fjölmennið.
STJÓRNIN.
nefnd á vegum M’enntamála-
ráðuneytisins, þannig mjakaðist
málið áleiðis.
Af þeim 20 sem hófu nám .
október 1966 hættu 4 námi fyrri-
hluta vetrar, 15 stóðust próf í
lok námskeiðsins, og þessar 15
hafa nú allar lokið síðari hluta
námsins."
Við ræddum stuttlega við Hlín
Aðalsteinsdóttur frá Neskaup-
stað, eina af stúlkunum úr hópi
hinna nýju meinatækna og
spurðum hana hvernig námið
gengi fyrir sig. Fer viðtalið hér
á eftir:
— Hvaða menntun þarf til
þess að geta hafið meinatækna-
nám?
— Það þarf stúdentspróf til
þess og námið tekur tvö ár, s^m
skiptist í átta mánaða bóklt gt
nám með lokaprófi, og síðan er
16 mánaða verkleg þjálfun á
rannsóknarstofum.
— Á hvaða rannsóknarstofum
fer þjálfunin fram?
— Á Borgarspítalanum og
Landspítalanum er þjálfað í
blóðmeinafræði og meinefna-
fræði og á Rannsóknarstofu há-
skólans við Barónsstíg er þjálf-
að í vefjafræði og sýklafræði.
— Hafið þið laun á meðan á
verklegri þjálfun stendur?
— Já, fyrir fyrstu 4 mánuðina
fáum við 50% laun, sem eru
um 6 þúsund kr., í eitt ár f'um
við svo 60% launa.
— Hvað tekur nú við hjá pér
að námi loknu?
— Að minnsta kosti til að
byrja með mun ég vinna á rann-
sóknarstofu Borgarspítalans, þar
sem ég lærði, en síðan getur vel
verið að ég fari utan og vinni
þar.
— Nú er til félag meinatækna.
— Já, fyrir einu ári var stofn-
að félagið Meinatæknafélag ís-
lands. í því eru um 60 meina-
tæknar og tilgangurinn er að
efla samvinnu við önnur meina-
tæknafélög á alþjóðav'ett’Tangi,
og gæta hagsmuna meinat.ekna.
Nýlega hefur Meinatæknafé-
lagið gerzt aðili að Norðurlanda-
samtökum meinatækna og auð-
veldar það í íslenzkum meina-
tæknum að fá atvinnu á Norður-
löndum og einnig er í ráði að
sækja um inntöku í alþjóðasam-
tök meinatækna.
Bræður 17 og 24ra
ára óska eftir atvinnu, gætu
haft bíl. Eru öllu mögulegu
vanir, útkeyrslu, innheimtu,
sölumennsku. Einnig þýðingar
úr erlendum tungumálum eða
verzlunarstörf.
Tilboð merkt: „Athafnasemi
6694“ sendist skrifstofu Mbl.