Morgunblaðið - 29.11.1968, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1968
læknirinn hugsi á hann, og
skuggalegt augnatillit hans var
fjarri því að vera neitt innilegt.
Nú mundi Maigret allt í einu eft-
ir því sem maðurinn minnti
hann á: einhvern soldán, sem
hann hafði einhverntíma séð
mynd af. Hann var jafndigur, á-
líka stiórvaxinn og virtist mjög
sterkur, þrátt fyrir alla fituna.
Hann hafði líka þetta fyrirlitn-
ingarfulla augnaráð þessara Ar-
abahöfðingja, sem myndir eru af
á vindliragaumbúðum.
f stað þess að gefa eitthvert
merki um samþykki sitt, eða
segja neitt hversdagslegt orð í
þá átt, eða hreifa mótmælum, tók
Serre upp gul'leitt eyðublað úr
vasa sínum og renndi yfir það
augum.
—Ég hef verið kallaður hingað
af ! ög r eglu stj óran u m í Neuily,
saigði banin, — og ég er að bíða
eftir því, sem hann befur við mig
að segja.
— Eruð þér að gefa í skyn, að
þér neitið að svara mínum
spurningum.
— Já, eindregið.
Maigret þagði. Hann hafði séð
allar tegundir þrjózkra og þver
úðugra manna, en enginn hafði
áður svarað honum uppi svona
einbeittlega.
— Það þýðir líkilega ekki að
karpa um það.
— Nei, þar er ég á sama máli.
— Eða benda á, að þessi fram-
koma yðar gefur ekki neitt góð-
ar hugmyndir um yður?
f þetta sinn andvarpaði mað-
urinn aðeins.
— Gott og vel. Lögreglustjór-
inn skal fó að tala við yður.
Maigret fór til þess að ná í
lögreglustjórann, sem skildi
ekki strax til hvers var ætlazt
af honum og var tregur á að
taka að sér þetta hlutverk. Skrif
stofan hans var vistlegri, næst-
um skrautleg í samanburði við
allar hinar, og þar var marmara
klukka á arinhiilunni.
— Vísið þér hr. Serre hingað
inn, sagði hann við vaktmann-
inn.
Hann benti á stól með rauðu
flosáklæði.
— Gerið svo vel að fá yður
sæti hr. Serre. Þetta eru bara
spurningar til staðfestingar, og
ég skal ekki tefja yður lengi.
Lögreglustjórinn skoðaði eyðu
1. sunnudagur í aðventu
n.k. sunnudag.
Ódýrustu kertin (aðeins
gamlar birgðir) fáið þið
í verzluninni
KIRKJUMUNIR, Kirkjustræti 10.
Sendum gegn póstkröfu.
Pk_.1( ERLIUFUR
uan«) DRVKKUR
fmtant DAILY er súkkulaði-
drykkur. DAILY leysist upp á
augabragði í mjólk eSa vatni.
Ein eða tvær teskeiðar nægja
í eitt glas. Aðeins þarf að
hræra og þá er tilbúinn undra-
Ijúffengur súkkulaðidrykkur,
heitur eða kaldur, eftir því
sem hver óskar.
blaðið, sem honum hafði verið
fært.
— Mér skilst þér séuð eig-
andi að vélknúnu farartæki nr.
RS8822L?
Tannlæknirinn staðfesti þetta
með því að kinka kolli. Maigret
hafði setzt úti við gluggann og
hafði vandlega auga með honum.
— Og þér eigið enn 'þetta far-
artæki?
Aftur kinkaði hann kolli.
— Hvenær notuðuð þér það
síðast?
— Mér finnst ég þurfi að fá
að vita ástæðuna til svona spurn
inga.
Lögreglustjórinn hreifði sig í
stólnum. Hann kunni hreint ekki
við þetta hlutverk, sem Maigret
hafi falið honum.
— Setjum svo, að bíllinn yð-
ar hafi lent í árekstri . ..
— Hefur hann það?
— Setjum svo. að einhver hafi
tilkynnt okkur, að bíl’l með þessu
númeri hafi ekið man.n um koll?
— Hvenær?
Lögreglustjórinn sendi Mai-
gret ásakandi augnatillit.
— Á þriðjudagskvöld.
— Og hvar?
— Skammt frá Signu.
— Bíllinn minn fór alls ekki
út úr skúrnum á þriðjudags-
kvöld.
19
Einhver gæti hafa tekið
hann í leyfisleysi.
— Það efast ég um. Skúrinn
er aflæstur.
— Þér eruð þá reiðubúinn að
sverja, að þér hafið ekki notað
bílinn á þriðjudagskvöld, eða
seinna um nóttina?
— Hvar eru vitnin að þessum
árekstri?
Enn leit ’lögreglustjórinn vand
ræðalega á Maigret eftir hjálp.
En Maigret, sem só, að þetta
hvorki gekk né rak, benti honum
að fara ekki lengra út í þessa
sálma.
— Þá hef ég ekki fleiri spurn-
ingar, hr. Serre. Þakka yður fyr
ir.
Tannlæknirinn stóð upp, og
það var eins og þessi risaskrokk
ur fyllti herbergið. Hann setti
upp Panamahattinn, og gekk úf,
eftir að hafa sent Maigret iili-
legt augnatillit.
— Ég gerði það, sem ég gat,
eins og þú sást.
— Jú, ég sá það.
— Gaztu fengið nokkra bend-
ingu út úr því?
— Kynni að vera.
— Þetta er maður, sem gerir
okkur erfitt fyrir. Hann stend-
ur heldur betur fast á réttinum.
Ég veit.
<
SAI-. fALLS
Vélapakkningar
De Soto
BMC — Austin Gipsy
Chrysler
Buick
Chevrolet, flestar tegundir
Dodge
Bedford, dísil
Ford, enskur
Ford Taunus
GMC
Bedford, dísil
Thomas Trader
Mercedes-Benz, flestar teg
Gaz ’59
Pobeda
Volkswagen
Skoda 1100—120«
Renault Dauphine
Þ. Jónsson & Co.
Sími 15362 og 19215.
Brautarholti 6.
Það var næstum eins og Mai-
gret væri ósjálfrátt farinn að
stæla tannlækninn. Það var
sami þunglamálegi svipurinn á
honum. Og svo gekk hann líka
áleiðis að dyrunum.
— Hvað er hann talinn hafa
gert af sér, Maigret?
— Það veit ég ekki enn. En
það er hngsanlegt, að hann hafi
kálað konunni sinni.
Hann gekk síðan til Vanneau
og þakkaði honum fyrir hjálp-
ina og gekk síðan út, þar sem
lögreglubíllinn beið hans. Áður
en hann steig upp í hann, fékk
hann sér eitt glas á barnum á
horninu, og þegar hann leit á
sjálfan sig í speglinum, tók hann
að velta því fyrir sér, hvernig
hann mundi ’líta út með Panama
hatt. Svo setti hann upp skakkt
bros við hugsunina um, að þetta
væri eins og bardagi milli
tveggja þungaflokks hnefaleika-
manna.
Hann sagði við ekilinn:
— Aktu yfir í Bæjargötu.
Skammt frá nr. 43 komu þeir
auga á Serre, sem gekk eftir
stéttinni með löngum frekar leti
legum skrefum. Eins og margir
feitir menn var hanin dálítið
gleiðgengur. Enn var hann að
reykja langan vindil. Þegar hann
gekk framhjá bílskúrnum, gat
ekki hjá þvi farið að hann tæki
eftir manninum, sem þar var á
verði, og gat hvergi skriðið í
felur.
Maigret vildi ógjarna stöðva
bílinn við húsið með járnhliðinu
enda hefði honum sennilega álls
ekki verið hleypt þar inn.
Ernestine beið hans í gler-
veggja-biðstofunni í lögregiu-
stöðinni. Hann vísaði henni inn í
skrifstofuna sína.
— Nokkuð að frétta? spurði
hún.
— Ekki nokkur vitund.
Hann var í vondu skapi. Hún
vissi ekki, að hann naut þess
raunverulega að ver.a í slæmu
skapi, í upphafi erfiðs viðfangs-
efnis.
— Ég fékk kort I morgun og
er með það með mér.
Hún rétti honum litprentað
póstkort, með mynd af ráðhús-
inu í Le Havre. Þar var enginn
texti, engin undirskrift en að-
eins nafn Ernestine, stílað á póst
húsið.
— Frá Alfred?
— Já, það er hans rithönd.
— Hann hefur þá ekki farið til
Belgíu.
— Svo virðist ekki vera. Hann
hefur varað sig á landamærun-
um.
21. marz — 19. apríl
Ef þú kannt listina að sitja á þér, verður lánið þér hliðhollt.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Notaðu þér nýjar hugmyndir. Það gengur allt betur, ef
þú ferð þangað sem þig langar til að fara. Ofreyndu þig ekki.
Tvíburarnir 21. maí — 20 júní
Allir eru geðstirðir, skeyttu því engu. Það kann að vera óþægi-
legt að láta koma sér á óvart, en getur borgað sig.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Farðu að eigin hyggjuviti, þótt aðrir séu ótrúaðir á það.
Reyndu að vinna dálítið á.
Ljónið 23. júlí — 22. águH
Ferðalög eru flókin, og þörf að koma víða við. Hógværð er bezt.
Meyjan 22. ágúst — 22. september
Nóg er af góðum hugmyndum, en fjármagnið, sem við á að
etja kemur síðar, og aðeins fyrir þá, sem einhvern árangur síðar.
Gerðu fleiri en eina tilraun.
Vogin 23. september — 22. október
Þótt þú reynir að leyna óþolinmæði þinni tekst það illa. Per-
sónuleg áform þín eru tálmuð um stundarsakir vegna óviðráðan
legra aðstæðna
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember (
Sýndu ekki óvinunum snöggu blettina með því að stökkva upp
á nef þér. Hafðu kýmnigáfuna í lagi. Mótstaðan er að minnka.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember
Láttu frjótt hugarflugið feykja þér. Viðræður eru gagnlegar.
Þú getur fengið aðstoð ef þú biður um hana.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Þú átt fleiri vini, en þú heldur. Þeir sýna sig fremur, ef
þú leggur þig allan fram, en ef þú situr og bíður átekta.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Fólk kemur, framandi og langt að. Leggðu við hlustirnar og
neyttu hæfileika þinna til að hafa áhrif á aðra þegar röðin kem-
ur að þér.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz.
Reyndu að eyða ekki um efni fram. Ágætur dagur til allra
hluta, sem einhver skynsemi er í Haltu áfram að vera í góða
skapinu þínu.