Morgunblaðið - 13.12.1968, Síða 1
32 SIÐUR
279. tbl. 55. árg.
FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Ráðherraskipan Nixons
vekur nokkra undrun
Enginn demókrati skipaður og flestir ráð-
herranna lítt þekktir utan Bandaríkjanna
Washington, New York, 12. des.
AP. NTB.
• Richard Nixon sat á fundi með
nýskipuðum ráðherrum sínum í
Lumaði á
aurunum
Los Angeles, 12. des. (AP).
Maxknillian nokkur Lando
andaðist í Los Angeles í marz
1966. Var hann almennt álit-
inn blásnauður einsetumaður,
því hann gekk sokkaiiaus, og
föt hans voru snjáð otg sliitin
og næld saman með öryggis-
nælum.
Nú hetfur hæs'tiréttur Los
Angeles kveðið upp þann úr-
skui'ð að erfðaskrá Landos sé
lögleg, en hann lét eftir sig
728.432,91 dollara, (rúmlega
64 milljónir króna), sem eiga
að skiptast að jöfnu milli
M i nnesota -h áskóla og borgar-
búa í Los Angeles. Hvorugur
erfingjanna fær þó arfinn
greiddan á næstunni. í ertfða-
skránni segir Lando að pen-
ingarnir eigi að liggja á vöxt-
um, hlutur háskólans í 100 ár
og hlutur Los Angelesbúa í
200 ár. Ef hluitur Lois Angeles
niýtur núgildandi vaxtakjara,
þ.e. 5%, næstu tvær aldir,
verður hann orðinn þrjú þús-
und milljónir dollara (264
milljarðar króna) þegar til út-
dag og tilkynnti þeim, að hann
hefði ákveðið að gefa þeim mjög
frjálsar hendur, hvað snertir skip
anir í ýmis embætti og stöður í
væntanlegum ráðuneytum. Sagði
Nixon, að þeir gætu kosið sér þá
ráðunauta og sérfræðinga, er þeir
hefðu mestan augastað á, þegar
þeir tækju við störfum sínum.
• Skipan stjómarinnar hefur
vakið talsverða furðu í Banda-
ríkjunum, og þykir stangast á
við yfirlýsingar Nixons í kosn-
ingabaráttu sinni. Þá lagði hann
jafnan áherzlu á, að nú þyrfti
að hleypa nýju og fersku lofti
inn í bandarísk stjórnmál. Stjóm
málafréttaritarar segja, að við
fyrstu sýn veki ráðherralisti hans
ekki vonir um að svo verði. Þá
hefur og vakið athygli, að enginn
demókrati tekur sæti í stjórn-
inni, eins og búizt hafði verið
borgunar kemur.
Parísarfundirnir:
Borðmálið
að leysast?
París 12. des. NTB.
FORYSTUMBNN Bandaríkjanna
og Suður-Vietnam á samninga-
fundunum í ParLs náðu í kvöld
samkomulagi um ýmis þau forms
atriði, sem hafa tafið viðræðurn-
air undanfarið, m. a. lögun samn-
ingaborðsins. Þeir Averill Harri-
mann og Nguyen Cao Ky, sér-
legur ráðunautur sendinefndar
Suður-Vietnam komust að þeirri
niðurstöðu að annað hvort
skyldu notuð tvö há 1 fhringsborð,
eða hringborð, sem væri skipt í
tvennt.
við. Hins vegar hefur Nixon gef-
ið í skyn að demókrati muni
taka við embætti ambassadors
Bandaríkjanna hjá Sameinuðu
þjóðunum. Talið er að Nixon
skipi Sargent Shriver ambassador
í París í þá stöðu.
• Mesta athygli og undrun hef-
ur vakið skipan Nixons í stöður
utanríkisráðherra og varnarmála
ráðherra, en frá þeim er skýrt í
Mbl. í gær, William P. Rogers
verður utanríkisráðherra og Mel-
vin Laird, vamarmálaráðherra.
Akvörðim Nixons að sikipa Rog
ers utanrikisráðherra hefur vadd-
ið nokkrum úlfaþyt, þar sem
reynslia Rogers í utanríkismálum
þykir mjög af skomum skammti.
Rogers var dómsmálaráðherT'a
í 3 ár í stjórn Eisenhowers.
Melvin Laird, er sa.gður íhalds-
samur, harla þröngsýnn og mjög
metniaðargjiarn. Hann er þingmað
ur og hefur átt sæti í fjárveit-
inganefnd fuUrtúadeildarinnar.
Hann barðist hvað ötullegaist fyr-
ir því árið 1960, að Nixon hlyti
Framhald á bls. 2
Oto Sik fer
ekki heim
Basel, Sviss 12. des. AP.
DOKTOR Ota Sik, fyrrv. aðstoð-
arforsætisráðherra Tékkóslóvak-
íu og efnahagssérfræðingur,
sagði í dag, að honum hefði bor-
izt vitneskja um að hann hefði
verið ákærður fyrir agabrot inn
an tékkneska kommúnistaflokks-
ins. Ota Sik sagði, að hann hefði
því ákveðið að fresta för sinni
til Prag, en þangað hafði honum
verið boðið að 'korna, og hugðist
hann sitja fund miðstjórnar
flokksins, sem hófst í Prag í dag.
I gær var unnið að því að skreyta jólatré Reykvíkinga á Aust-
urvelli og þá tók Ólafur K. Magnússon þessa mynd.
Stjórn á Ítalíu
— Rumor forsætisráðherra
Rómaborg 12. des. NTB.
MARINO Rumor, leiðtogi kristi-
lega demókrataflokksins á ítalíu
Fjárhagsáœtlun Reykjavíkur fyrir 1969:
Hækkun útsvarsupphæðar aðeins 4%
— og útgjaldahœkkun 7,6%
— Meginstefna að stilla álögum í hóf
og halda útgjöldum niðri
— sagði Ceir Hallgrímsson á fundi
borgarstjórnar t gœr
Frv. að fjárhagsáætlun
Reykjavíkurborgar fyrir árið
1969 var lagt fram til fyrri
umræðu í borgarstjórn
Reykjavíkur í gær.
í ræðu er Geir Hallgríms-
son, borgarstjóri, flutti fyrir
fjárhagsáætluninni lagði
hann áherzlu á, að megin-
stefnan við undirbúning fjár-
hagsáætlunarinnar hefði
annars vegar verið að stilla
álögum á borgarbúa í hóf,
þannig að gjaldabyrði þeirra
verði ekki þyngri en óhjá-
kvæmilegt er og hins vegar
að draga með öllu móti úr
útgjaldahækkunum. í því
skyni var farið oftar en einu
sinni yfir hvern einasta út-
gjaldalið. Haft var að leiðar-
tjósi við gerð fjárhagsáætlun-
ar að leitast við að hafa út-
svarsupphæðina ekki hærri
en svo, að unnt væri að gefa
sama afslátt og í ár þótt ekki
sé hægt að fullyrða að það
takist.
í samræmi við þessi sjón-
armið er gert ráð fyrir, að
útsvarsupphæðin hækki um
4,07% en heildarútgjöld borg-
arinnar til rekstrar og fram-
kvæmda hækki um 7,66%. Til
samanburðar má geta þess að
rekstrargjöld borgarinnar
hækkuðu á þessu ári frá ár-
inu 1967 um 10,59%.
Geir Hallgrímsson
Geir Hallgrímsson minnti í
ræðu sinni á, að lögum skv.
er heimilt að innheimta fast-
eignaskatta með 200% álagi
og hefur sú heimild verið not-
uð að fullu að því er tekur til
lóðagjalda frá ársbyrjun 1965
en aðeins að hálfu að því er
tekur til húsaskatts. Hins veg
ar hafa mörg önnur sveitarfé-
lög nýtt þcnnan tekjustofn að
fullu. Með tilliti til þess, að
gera má ráð fyrir, að fast-
eignaskattar verði stærri
tekjuliðir fyrir sveitarfélög í
framtíðinni, þykir nú eðlilegt,
að Reykjavíkurborg nýti að
fullu þennan tekjustofn frem
ur en hækka útsvör eða að-
stöðugjöld.
Hér fara á eftir þeir kaflar
úr ræðu Geirs Hallgrímsson-
ar, borgarstjóra, sem fjalla
almennt um tekju- og út-
gjaldamál borgarinnar en á
bls- 17 í dag er gerð grein
fyrir einstökum tekju- og út-
gjaldaliðum fjárhagsáætlun-
arinnar og hækkunum á þeim
og á bls. 10 er gerð grein fyrir
fyrirhuguðum framkvæmd-
um borgarinnar á næsta ári
utan gatna- og holræsagerðar
og framkvæmda einstakra
borgarfyrirtækja.
Geir Hallgrímsson: Eins og ég
heí oftsinnis áður við framilagn-
Framhald á bls. 31
var í dag opinberlega skipaðtir
til að veita forystu nýrri sam-
steypustjórn á ítalíu. Saragat
ítalíuforseti hefur lagt blessun
sína yfir ráðherralista Rum-
ors. Þar með lýkur þriggja
vikna stjórnarkreppu í landinu,
sem skall á, þegar minnihluta-
stjórn Giovanni Leones sagði af
sér hinn 20. nóvember sl.
Rurnor sagði í kvöld, að sósia-
listinn Pietro Neni verði utan-
ríkisráðiherra, en nöfn annarra
hafa ekki verið birt. Að stjóm-
inn nýju standa sósialistar, repú-
blikanar og kristilegir demókrat-
ar.
Kennedy-
dóttir
Washington, 12. des, (AP).
• ETHEL Kennedy, ekkja Ro-
berts heitins Kennedy, fyrrum
I öldungadeildarþingmanns, er
myrtur var í Kaliforníu í júní
I sl., ól í dag 16 marka dóttur.
I Er þetta ellefta barn frúar-
I innar, og f jórða dóttirin. Hin
börnin tíu eru á aldrinum frá
1 18 mánaða til 17 ára.
Talsmenn sjúkrahússins í
1 Washington, þar sem frú
I Ethel ól dóttur sína, segja að
| mæðgurnar séu báðar við
I beztu heilsu. Mágur frúarinn-
ar, Edward Kennedy, og kona
) hans voru hjá frú Ethel í
| sjúkrahúsinu í morgun.