Morgunblaðið - 13.12.1968, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 1968
3
íslenzkar fornsögur
— ritgerð eftir Sigurð Nordal komin út
Þessi klettur fféll á veginn inn að Vigdísarvöllum norðán Sveiflu-
háls, í jarðskjálftunum á dögunum. Þegar borin er saman stærð
bjargsins og jeppinn sést að kletturinn er feiknastór og fleiri
tonn á þyngd. Jeppinn skreiddist framhjá en kletturinn lokaði
að mestu veginum og minni bílar lögðu ekki í að komast fram-
hjá honum, vegna aurbleytu. Kletturinn kom veltandi ofan hlíð-
ina til hægri og hjó djúp för ofan í veginn er hann valt yfir
hann. Ljóm. Mbl. Kr. Ben).
„UM íslenzkar fornsögur" heitir
ritgerð eftir Sigurð Nordal, sem
Bókaútgáfa Máls og menningar
gefur út. Ritgerð þessi var upp-
runalega rituð á dönsku fyrir
safnritið Nordisk kultur, en hef-
wr nú verið þýdd af Arna Björns
syni. Sigurðar Nordal ritar for-
xnála að bókinni.
í formálanum segir Sigurður
nokkuð frá tildTÖgum þesis að rit-
gerðin varð til. Jón Helgason,
prófessor í Kaupmannahöfn rit-
aði jafnframt í Nordisik kultur
um kveðskap íslendinga og Norð
Neytendn-
snmtökin
í nýtt húsnæði
NEYTENDASAMTÖKIN hafa
flutzt í nýtt húsnæði í Austur-
Etræti 9. Um daiglegan reksitur
sér fraimikvæmdaetjóri samak-
anna, Kristjián Þongeirssom, en
Ihann tók við þvá stanfi hinn 1.
nóvemiber siL í endursköðum er út
gátfustarfsemi samitakanna og er
ætlunin að breyting verði þar á
eftir áramót.
Neytendasamtökin búaist nú til
að skipuleggja starf sérstakra
nefnda, sem ætílunin er að korna
á fót, svokalilaðra matenefnda,
Þegar er sitarfandi matsnefnd
efnalauiga, en fleiri mun komið á
fót á næstunni, að ‘þvi er fram-
kvæmdastjórinn tjáði blaðamönn
um á blaðamannafundi í gær.
manna, en sá hluti fylgir þessari
ritgerð, þótt forráðamenn Máls
og menningar hafi sagt að það
hefði verið í ráði.
Bókin er prentuð í Prentsmiðj
unni Hólum. Hún er 178 blaðsíð-
ur. í bókinni er gerð tilraun til
þess að raða íslenzkum fornsög-
um sem næst því er sennilegur
ritunartími segir til. „Þetta
fannst mér“, segir Sigurður Nor-
dal í formálanum, „einna helzt
geta orðið að gagni af því sem
unnt var að gera nokkur skii í
svo stuttu máli“.
Úrum stolið fyrir
um 110 þús. kr.
BROTIZT var inn í skartgripa-
verzlun Sigurðar Jónssonar,
Laugavegi 10, og þaðan stolið um
30 kvenúrum. Telur eigandi verzl
unarinnar að söluverðmæti úr-
anna sé samtals um 110 þúsund
krónur.
Kona, sem býr í þessu húsi,
varð vör við broíhljóð í verzlun-
inni í fyrrinótt, og gerði hún lög-
reglumini þegar aðvart. Sá hún
litilu síðar hivar maður hljóp frá
húsinu, var hann houfinin af staðn
um er lögreglan kom þar. Var
mannsins leitað, en það bar eíkki
árangur. Mlállið er nú í höndum
rannsókniairlöigreglunnar til frek-
ari rannsóknar, og telur hún góð
ar horfur á því að maðurinn fiinn
ist.
Nokkur innbrot hafa iverið
frEunin í skartgripaverzllanir á
sivipu'ðutm slóðum að undanförnu.
Fyrsto úætlunor-
flugið til Nes-
kuupstuður
FYRSTA áætlunarflug Flugfélags
fslands með Fokker Friendship
til Neskaupstaðar var farið í gær
og lenti flugvélin á Norðfjarðar-
flugvelli kl. 12.10. Frá Neskaup-
stað fór flugvélin kl. 13. Með
vélinni voru 18 farþegar frá Nes-
kaupstað. Flugstjóri var Geir
Garðarsson.
Fokker Friendship hefur einu
sinni áður lent á Norðf jarðarfluig
velli, í sumar, er verið vair að
athuga flugvöllinn og aðsitæður.
Vélin sem lenti þar að þessu
sinni er sú, sem er sameign SAS
og Fluigfélagsins, en hún kemur til
landsins einu sinni í viku tíma,
en þá fer hin fyrrnefnda aftur
tutan.
Londhelgis-
úlyktun
Húsvíkingn
FJÖDMENNUR fundur Fiskiðju-
samlags Húsavíkur gerði ein-
róma eftirfarandi fundarsam-
þykikt: „Aðalfundur Fiskiðjusam
lags Húsavíkur, haldinn miðviku-
daginn 11. desember 1968 lýsir
sig andvígan því að togveiðar
verði leyfðar innan 8 mílna fisk-
veiðilögsögu á svæðinu frá Gjög-
urtá austan Eyjaf jiarðar að Langa
nestá. Fundurinn telur að leyfa
mætti íslenzkum togskipum veið
ar í ákveðnum hálfum milli 8
og 12 mílna fiskveiðimarkana á
framamgreindu svæði, en veiði-
skip og skipstjómiarmenn verði
svipt slíkri togveiðaheimild við
brot á fiskveiðilöggjöfinni. Fund-
urinn bendir á, að aukoar tog-
veiðar muni valda miklum sam-
drætti í smábátaútgerð við Skjálf
andaflóa og sbapa sjómönmum og
fiskvinmslustöðvum þar mýja erf-
iðleika og hann bendir eimnig á
það að mú er unmið að því af
hálfu íslenzkra fiskifræðinga að
fá friðuð stór svæði utan 12 rnílna
fiskveiðilögsögunniar út af norð-
austuriandi fyrir togveiðum.“
Þess má geta í þessu sambandi
að síðan lögregluvakt var tek-
in upp á Skjálfanda hafa tog-
bátar ekki sýnt sig á flóanum.
— FréttariitarL
Fulltrúar LÍV
í sambonds-
stjóin ASÍ
Á FUNDI fullskipaðrar stjórnar
Landssamband's ísl. verzlunar-
manna 10. þ. m. voru eftirtaldir
kosnir aðalmenn í samibands-
stjórn AjSÍ:
Sverrir Hermannsson, Magnús
L. Sveinsson og Örlygur Geirs-
son. Til vara voru kosnir: Björn
Þórhallsson, Björgúlfur Sigurðs-
son og Sigurður Sturluson.
Strengjakvartettinn nýstofna*! mun leika í fyrsta sinn í Eyjum. Frá vinstri: Þorvaldur Stein-
grímsson I. fiðla, Jónas Þórir Dagbjartsson 2. fiðla, Oldrich Kotora, cello og Mirslav Tomecek,
viola. L jósm. Mbl. Kr. Ben.
Strengjasveit leikur í skolum í Vestmannaeyjum
Nýstofnaður strengj akvartett
mun um helginia halda tánleika
í Vestmannaeyjum. í kvartettm-
urn eru tveir íslendingar og tveir
itékkneskir tónlistarmenn, sem
starfa í sinf óníuhlj ómsveitinni.
Kvartettinn mun spila í Eyjum
jEyrir tónlistarfélagið n.k. laugar-
dag í kirkjunni, en einnig munu
þeir félagar heimsækja gagn-
fræðaskólann, tónlistarskólann
og sjúkrahúsið og leika þar. Á
tómleikunium í kirfcjunni mun
Martin Hunger aðstoða strengjia-
sveitina með undirleik á argel.
Þeir félagar munu leika verk
eftir Bach, Beetihoven, Dvorak,
Mendelsshon, Vivaldi, Hendel og
einnig jólatónlist eftir ýmsa höf-
unda.
Þeir félagar í stren gjiasvetinni
hafa í hygigju að spila einnig í
Reykjavík og ef til vill víðar úti
á landi.
Martin Hunger
Fækkun
sovézkra
herskipa ú
Miðjarðarhafí
London, 12. des. (AP).
TALSMENN brezka flotans
skýrðu frá því í London í dag,
að fækkað hefði sovézkum her-
skipum á Miðjarðarhafi að und-
anförnu. Flest hafa skipin verið
um 50, en nú er talið að þau séu
33. Af þessum 33 skipum eru 17
herskip ,en hin eru birgðaskip
og dráttarbátar. Einnig hefur
sovézkum herskipum fækkað á
Atlantshafi og í nánd við Bret-
land, og virðast skipin hafa ver-
ið kölluð heim.
Bókauppboð
Kristjúns Fr.
LAUGARDAGINN 14. desemiber
kL 4 verður bókauppboð í Siig-
túni á vegum Krisitjáns Fr. Guð-
mundssonar. Bækiurnar verða til
sýnis sama dag frá M. 1—4.
Á bókaskránni eru ails 100
númer. Méðal verka á skránni
eru: „Sælir eru einfaldir“ eftir
Gunnar Gunnarsson, frumútgáfa,
Biskupasögur Jóns prófasits Hall-
dórssonar í Hítardai, ljóð Jóns
frá LjáTskógum frá 1S4I7, 8 bæk-
ur Eimars H. Kvarans frá árun-
um 1901—1919, Gráskiinna Sig-
urðar Nordal og Þórbegs Þórðar-
sonar, Ijóðmæli Matthiasar Joch-
umsonar I—V, og 22 bækur Hall-
dórs Laxness, þar af 18 í fruxn-
útgáfu.
STAKSTEI!\IAR
Öhóíleg sjálísánægja
Fyrir rúmu ári tók einn af
ritstjórum kommúnistablaðsins
sæti á Alþingi og hafði það bin-
ar hrikalegustu afleiðingar fyr-
ir blað hans. Næstu vikur ©g
mánuði féll ekkert það vísdóms-
orð af vörum þingmannsins og
ritstjórans að ekki væri frá því
skýrt af einstakri ákefð á síð-
um blaðs hans og kvað svo
rammt að þessu, að allir aðrir
þingmeim kommúnistaflokksins
urðu að víkja. Dag eftir dag
og viku eftir viku voru forsíð-
ur kommúnistablaðsins lagðar
undir ræður þingmannsins og rit
stjórans með tilheyrandi mynd-
um en aðrir og eldri þingmenn
flokksins urðu að sætta sig við
að þeirra ræður væru látnar
sitja á hakanum. Þegar á þessu
hafði gengið um skeið og aug-
sýnilegt var að óhófleg persónu
dýrkun var í uppsiglingu var
orð á þessu haft bér í Mbl. Þá
skipt'i skyndilega um. Ræður
þingmannsins og ritstjórans hurfu
af forsíðu kommúnistablaðsins en
var holað á baksíðuna í stað-
inn. En um skeið var þess vendi
lega gætt að birta ekki myndir
af honum og nafn hans ekki
sett í fyrirsagnir og raunar urðu
lesendur að 1-esa töluvert langt
niður í frásögnina til þess að
átta sig á að hér var kominn
speki þessa sjálfumglaða manns.
Nú hefur meira jafnvægi komizt
á frásagnir kommúnistablaðsins
af ræðum ritstjórans en óneitan-
lega voru þessi fyrstu spor harla
eft'irtektarverð.
Lærisveinninn
Síðustu vikur hefur hins vegar
komið í ljós að ritstjóri kommún
istablaðsins á sér lærisvein á
ritstjómarskrifstofum Framsókn
arblaðsins. Fyrir skömmu fékk
ungur blaðamaður á Tímanum að
taka sæti á Alþingi í hálfan mánuð
uð. Hann lét þar hendur standa
fram úr ermum og flutti marg-
ar ræður og mörg mál. Tíminn
skýrði skilmerkilega frá þessum
atburðum enda átti þingfrétta-
ritari blaðsins hér hlut að máli
Út yfir tók þó, þegar þessi vara-
þingmaður hirti í hlaði sínu und
ir nafni þingsjá upp á 10 dálka
eða tvær síður. Af þessum 10
dálkum fjölluðu 8 dálkar um
afrek þingsjárritarans á
Alþingi. Þótti mörgum
myndarlega að verið. Og I
gær var enn staðfest hve dygg-
ur lærisveinn kommúnistaritstjór
ans er hér á ferðinni. öll for-
ustugrein Framsóknarblaðsíns
þann dag fjallar um afrek þessa
blaðamanns Tímans og þess gætt
að prenta nafn hans aftur
og aftur. Slík sjálfum-
gleði er býsna sjaldgæf og
raunar verður að leita til komm
únistablaðsins til þess að finna
hliðstæðu. Hitt er svo ljóst að
auglýsingagleði þessara tveggja
manna varpar heldur einkenni-
legu ljósi á stjómmálavafstur
þeirra og vekur gmnsemdir um,
að það sé fremur til komið aí
persónulegum valdaáhuga en
löngun til þess að vinna góðum
málum gagn.