Morgunblaðið - 15.12.1968, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAOUR 15. DESEMBER 1968
19
Afkoma borgarsjóðs 1968:
Útgjöld fara 41 millj. kr.
fram úr áætlun
M.a. vegna launahœkkana — Töluverðar
umframgreiðslur vegna gatna- og
holrœsagerðar — Tekjur standast ácetlun
Geir Hallgrímsson vék síðan
að tekjum borgarinnar og sagði,
að þegar á heildina væri litið
mundu tekjumar um það bil ná
áætlun. Hing vegar mundu út-
svörin tæpast skila sér það vél,
að áætlunarupphæið þeirra næð-
ist. Miðað við svipaðar forsend-
ur um inhheiimtu útsvara og ver-
ið hefði en lakari inniheimtu eftir
stöðva mundi 12,9 millj. skorta á,
að útsvarsupphæðin stæðisit
áætlun en hins vegar mundu að-
stöðugjöld væntanlega fara 4,5
millj. fram úr áætlun.
Miðað við tekjur og umfram-
grefðslur á rekstrarreikningi
sagði bongarstjóri, að yfirfærala
til framkvæmda mundi rýrna
þannig að búast mætti við, að
hún næmi um 160,9 millj. í stað
203,6 millj. eins og áætlað var
en þá væri ekki tekið tillit til
uimframgreiðslu vegna gatna- og
holræsagerðar.
í ræðu sinni fyrir fjárhags-
áætlun Reykjavíkurborgar
fyrir árið 1969 á fundi borg-
arstjórnar Reykjavíkur í gær
gerði Geir Hallgrímsson, borg
arstjóri, nokkra grein fyrir
afkomu borgarsjóðs á yfir-
standandi ári.
í ræðu borgarstjóra kom
fram, að tekjur borgarinnar á
árinu standast nokkurn veg-
inn alveg áætlun en gjöld á
rekstrarreikningi fara hins
vegar nokkuð fram úr áætlun
eða um 41,3 milljónir, sem
jafngildir 4,7%. Af þessari
upphæð stafa 15 milljónir af
hækkun beinna launa-
greiðslna.
Geir Hallgrímsson sagði, að
klostnaður vi‘ð stjóm borgarinnar,
brunamál, fræðslumál og listir,
íþróttir og útiveru virtust ætla
að standast áætlun. Hins vegar
mundu nokikrir aðrir útgjaildalið
ir fara fram úr áætlun. Má þar
nefna löggæzlu, sem búast má
við að fari 2,6 millj. firam úr
áætlun en umdeild er krafa á
hendur ríkissjóðd vegna starfa
lögreglumanna í sambandi við
framkvæmd hœgri umferðar.
Heilbrigðis- og hreinlætismál
munu fara um 11 miillj. fram úr
áætlun. Sjúkrahúsin fara líklega
5 milljónir fram yfir það sem
ráðgert var en einnig verða
nokkrar umframgreiðsilur vegna
sorphreinisunar, sorphauga o.fl.
Kostnaður vfð félagsmál fer
væntanlega 8,7 millj. fram úr
áætlun en þar af eru 8,3 millj.
vegna félaigsmálaaðstoðar og
lægri innheimtu meðlaga. Er tal-
ið, að í þessum auknu greiðslum
komi fram áhrif minnkandi at-
vinnu í borginni.
Geir Hallgrímsson vatoti sér-
staka athygli á því í ræðu sinni,
að útgjöld tdl gatna- og holræsa-
gerðar, sem í fj ánhagsáætlun
voru áætluð 202,1 milljón verða
317,6 mililj. Er ástæðan annars
vegar sú, að viðhald gatna fer
væntanlega 9 milJjónir fram úr
áætlun vegma slæms ástands
eldri gatna eftir veturinn 1967—
1968 og hins vegar fóru útgjöld
tiíj umiferðarmála 4,5 miillj. fram
úr áætlun vegna uppsetningar
umferðarlj ósa, umfe rðarfr æðslu
og amnarra ráðstafana vegna
hægri umferðar.
Borgarstjóri sagði, að nú væri
einnig ljóeit, að framkvæmdir
undir þessum gjaldalið mundu
flara mjög verulega fram úr
veittri fjárhæð til þeirra og nema
alls 209,8 millj. en til frádráttar
koma tekjnr af benzínskatti og
aí gatnagerðargjöldum að upp-
hæð 41 millj. kr., þannig að
nettóútgjöld vegna nýfram-
tovæmda gatna og holræsa verða
1167,8 millj. en voru áætlaðar
14(1,2 millj. og fara því 26,6
millj. fram úr áætlun.
Geir Hallgrímsson sagði, að or-
sakir þessarar umframgreiðslu
væru þær helztar, aSð hæikkanir á
launum starfsmanna og hækk-
anir á véla- og bifreiðaleigu
hefðu niumið 17,5—25%, breyt-
ingar hefðu verið gerðar á fram-
fcvæmdaáætlun með vitund borg-
arráðs, sumar óhjákvæmilegax
vegna hægri umferðar, og telur
gatnamálastjóri þær hafa kostað
um 10 millj. kr. Auk þess reynist
framkvæmd nókkurra verka, sem
lokið var á árinu 11,5 millj. kx.
dýrari en gert hafði verið ráð
fyrir í fjárhagsáætlun.
Borgarstjóri sagði, að nú væri
leitað ráða til þess að forða því,
að umframgreiðsla þessi kæmi
niður á framkvæmdafé til gatna-
og holræsagerðar á næsta ári og
kæmi m.a. til greina, að hiluta
hagnaðar af fyrirtækjum borg-
arinnar sem tengd eru gatna-
gerð, verði varið í þessu sikyni.
Borgarstjóri sagði ennfremur, að
verði framkivæmdir langtum dýr
ari en áætlað væri eða eðli þeirra
breyttist mætti ekki ganga út frá
því, að fjárveiting breyttist a'ð
sama skapi heldur ætti annað
hvort að samþykkja viðbótarfjár
veitingu í þessu skyni eða draga
úr verkunum, þannig að ekki
yrði notað fyrirfram af fjárveit-
ingum næstu ára.
AUGLYSIHGAR
SÍMI 22‘4*SO
Hugmyndir ungra manna um
— hveitimyllu, jólasveinavörur, blóm,
og rabarbaravín verðlaunaðar
í GÆR fór fram verðlaunaaf-
hending í hugmyndasamkeppni,
sem efnt var til á sl. vori á veg-
um Frjálsrar verzlunar, um gagn
Ford Cortina 1969
daglega til sýnis í snýingarsalnum.
FORDUMBOÐID SVEINN EGILSSON
MAN. 800 vörubifieið 1967
til sölu — Upplýsingar í síma 40216
legar nýjunar í atvinnumálum.
Fjórir ungir menn hlutu verð-
laun, fimm þúsund krónur hver,
fyrir nýjar hugmyndir, eða nýja
útfærslu á eldri hugmyndum.
Frjáls verzlun efndi til þessar-
ar hugmyndasamkeppni mætti
fjölbreyttni í atvinnuháttum. Var
heitið 30 þúsund kr. verðlaun-
um, sem ungur áhugamaður
lagði fram. Dómnefnd skipuðu
Gunnar J. Friðriiksson, frkvstj.,
Harry O. Frederiksson, frkv.stj.,
Hjörtur Torfason hrl., Pétur Pét-
ursson, forstj., og I>órir Einars-
son, viðskiptafræðingur. Bárust
dómnefnd sex hugmyndir og
taldi hún fjórar þeirra viður-
kenningar verðar. Til hliðsjónar
hafði nefndin þjóðhagslegt gildi
hugmyndar, frumleika og mótun.
Eftirtaldir menn fengu verð-
laun: Eggert Hauksson, stud.
oecon., fyrir hugmynd um stofn-
un hveitimyllu á íslandi til fram
leiðslu á kornvöru fyrir heima-
markað, Haukur Ragnar Hauks-
son, verzlunarskólanemi, fyrir
hugmynd um framleiðslu á papp
írsvörum o. fl. tengdum jóla-
sveininum á ís'landi, Leó Eiríkur
Löve, stud. jur. fyrir hugmynd
um ræktun blóma til útflutnings
og Ólafur Kristjánsson, menntá-
skólanemi, Laugarvatni, fyrir
hugmynd um framleiðslu á víni
úr innlendum rabarhara til
heimaneyzlu og útflutnings.
Á fundi með fréttámönnum í
gær afhenti Hjörtur Torfason
brl. þremur fyrstnefndu evrð-
launahöfunum viðurkenninguna,
en Ólafur er í prófum á Laugar-
vatni og gat því ekki mætt. —
Lýstu ungu mennirnir hugmynd-
um sinum nokkuð, sem allar
virðast geta'orðið gagnlegar þjóð
arbúskapnum, þegar þeim hefur
verið hrint í framkvæmd.
Frá afhendingu viðurkenninga
rinnar. Frá vinstri: Hjörtur Torfa
son, Haukur Ragnar Hauksson,
■ Leó Eirikur Löve og Eggert H
auksson. (Ljósm. Sveinn Þormó
ðsson).
Skriistoíuhúsnæði óskost
3—4 herbergi við Miðbæinn.
Tilboð merkt: „Skrifstofur — 6630“ sendist MbL
fyrir 18. þ.m.
NÝTT!
nýtt/
prentar
dagbók ^ fyrjr
„OOMÖOU^''" \ yöur
OFFSETPRENT H.F.
REYKJAVÍK
SÍMI 15145
Hefur gefið út til-
valdar bækur fyrir
kaupsýslumanninn
og húsmóðurina.
Fást hjá bóksölum
og ritfangaverzl-
uninni Penninn.
JÓLAGJAFIR
1YRIR DÖMUR:
n
Gjafakassar
í úrvali frá
HELENA RUBINSTEIN
Revlon — Lentheric —
og fleira.
Skrautpúðurdósir.
IYRIR HERRA:
Old Spice-gjafakassar
Tabac — Onix — williams o. fl.
Flest á gamla verðinu.
ILMVÖTN í úrvali öll á gamla
verðinu.
Austurstræti 16 —
(Rvíkur Apóteki)
Sími 19866.