Morgunblaðið - 18.12.1968, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1968
7
Bœr í björtum hvammi
Rabbað við
Huldu Emilsdótt-
ur, söngkonu
Í„Ég er búin aff syngja lengi,
og alltaf hef ég haft ánægju af
því. Raunar er svo langt síffan
ég byrjaffi aff líklega eru þaff
orðin ein 20 ár. Ég var þá í
Verzlunarskólanum. Viff bekkjar
systurnar byrjuffum aff syngja
á skólaskcmmtunum."
Þannig voru fyrstu orff
Huldu Emilsdóttur, söngkonu,
I sem um þessar mundir syngur á
Hótel Loftieiffum. Hulda er gam-
alkunn söngkona, en nú um
nokkurt árabil hefur hún búiff
í Houston í Texas i Bandaríkj
unum og er þegar kunn söng-
kona þar I borg.
„Við vorum fyrst 5 saman.
Allar vorum við þá í Verzlun-
arskólanum. Ég man, að við byrj
uðum að syngja á bekkjar-
Skemmtunum í skólanum. Fljót
lega hættu tvær og við urðum
3 eftir, og kölluðum okkur þá
Bláklukkur. Sigríður Guðmunds-
dóttir, Björg Benediktsdóttir og
ég.“
„Segðu mér, Hulda, hvar ertu
fædd og uppalin?"
„Því er auðsvarað. Ég er fædd
og uppalin á Eskifirði, þar sem
faðir minn, Emil Björnsson var
sýsluskrifari hjá Magnúsi Gísla
syni sýslumanni.
Eiginlega byrjaði ég þá strax
að syngja, kornung, varla
þriggja ára.
Skyldi ekki bakterian hafa
komist inn í blóðið þá?
Sjálfsagt hefur hún heltekið
mig þá. Þarna austurfrá, fannst
mér allt í kringum mig vera
söngur. Pabbi hafði raunar á-
gæta söngrödd, og ekki er hægt
um að segja, nema ég hafi
strax, sem krakki smitazt af
honum.
„Nú er ég búin að hlusta á
þig syngja, hérna niðri í Blóma
sal og Víkingasal, og mérfinnst
lagavalið þitt vera ýmist
spánskt eða íslenzkt. Hvað veld
ur því?“
„Bæði er það vegna þess, að
í Houston, er ég ekki allfjarri
Kúbu og Mexicó. Mér finnst
nú alltaf einhvemvegin að mér
beri að syngja íslenzk lög fyrst
og fremst. Einu sinni í gamla
daga söng ég á „gömlu döns-
unum“ í Þói-skaffi, lærði þá
mörg góð lög. Þeir þarna í Hou
ston hafa gefið út hæggenga
plötu með söng mínum.
Ég syng þar í svonefndum
fjölskylduklúbb, þar sem pabb
arnir og mömmurnar mega
koma með börnin sín til að
skemmta sér saman. Eiginlega
er þetta einskonar fjölskyldu-
guðsþjónustur, sem ég heyri að
prestamir hér heima séu byrj-
aðir að halda“.
„Hvaða lög íslenzk syngurðu
helzt, Hulda?“ * |
„Þau em nú allmörg. „Geng /
ég fram á Gnýpu“ er til dæmis 1
eitt. Kveðskapurinn í því er i
svo fallegur. Þá syng ég /
Sprengisand, þú mannst það J
þjóðfræga kvæði þar sem í stend I
ur m.a. „Ég vildi ég væri komin t
ofan í Kiðagil."
„Hvernig finnst þér svo að »
vera aftur farin að syngja á
íslandi?"
„Þér að segja, finnst mérþað
ákaflega gott, en þó hef ég
ekkert nema gott að segja um
Houston í Texas. Þeir hafa tek-
ið mér þar fjarska vel. Núna
er ég hérna heima með tvö
börnin mín, og ég held þau
njóti þess, og ætli það sé ekki
aðalatriðið," sagði Hulda Em-
ilsdóttir að lokum, þegar við 1
kvöddum hana og óskuðum l
henni góðs gengis. — Fr. S: [
FRÉTTIR
Æskulýffsféiag Bústaffasóknar
báðar deildir. Jólafundur verður i
Réttarholitsskóla fimmtudagskvöld
kl. 8.30.
Kristniboffssambandið
Samkoman í Betaniu fellur niður í
kvöld.
Kvenfélag Háteigssóknar
Þessir vinningar í happdrætti
bazarnefndar Háteigssóknar em
enn ósóttir:
Nr. 6/16 — 10/1416 — 11/1051 —
12/431 — 16/42 — 19/339 — 20/501
— 22/1100 — 27/1661 — 28/1426 —
29/1477.
Óskaist vinsamlegast sóttir strax
I Stigahlíð 4, 1. h.t.v.
Kvenfélag Fríkirkjusafnaffarins í
Reykjavík heldur jólafund í Frí-
kirkjunni miðvikudaginn 18. des. kl
8.30
Nessókn
í fjarvistarleyfi mínu frá 15 des.
gegnir séra Páll Þorleifsson embætt
isstörfum mínum. Hann verður til
viðtals í Neskirkju kl. 6—7 alla
virka daga, nema laugardaga, sími
10535. Séra Jón Thorarensen.
Ekknasjóffur Reykjavíkur
Styrkur til ekkna látinna félags-
manna verður greiddur á skrifstofu
Kveldúlfs h.f. Vesturgötu 3 alla
virka daga nema laugardaga.
Frá Mæðrastyrksnefnd
Munið einstæðar mæður með
börn, sjúkt fólk og gamalt!
Frá Blindravinafélagi íslands
Eins og að venju tökum við á
móti jólagjöfum til blindra, sem
við munum koma til hinna blindu
manna fyrir jólin.
Mæffrastyrksnefnd Hafnarfjarffar
er tekin til starfa. Umsóknir og
ábendingar sendist til Sigurborgar
Oddsdóttur, Álfaskeiði 54.
Hjálpræffisherinn
Úthlutun fatnaðar daglega til 23.
des. frá kl. 15 tii 19.00.
Vinsamlegast leggið skerf í „Jóla
pottinn". Hjálpið okkur að hjálpa
öðmm.
Kvennaskólanemendur
Minningargjöfum um Ingibjörgu
H. Bjamason er veitt móttaka að
Hallveigarstöðum hjá húsverði
þessa viku eftix kl. 2 daglega.
Frá Mæffrastyrksnefnd
Munið jólasöfnun Mæðrastyrks
nefndar á Njálsgötu 3, sími
14349, opið frá kl. 10-6.
Frá Mæðrastyrksnefnd
Gleðjið fátæka fyrir jólin!
Mæffrastyrksnefnd Kópavogs
hefur opnað skrifstofu í Félags-
heimili Kópavogs opin 2 daga í
viku frá kl. 2-4.30 á mánudögum
og fimmtudögum.
Kvenfélag Hallgrímskirkju
hefur hafið fótaaðgerðir fyrir aldr-
að fólk í Félagsheimili kirkjunn-
ar alla miðvikudaga kl. 9-12. Síma-
pantanir í síma 12924.
TURN IIALLGRÍMSKIRKJU
Útsýnispallurinn er opinn á laug
ardögum og sunnudögum kl. 14-16
og á góðviðriskvöldum þegar flagg
að er á turninum.
Kvenfélag Fríkirkjunnar í Rvík.
hefur hafið fótaaðgerðir fyrir aldr
að fólk í Safnaðarheimili Langholts
kirkju alla miðvikudaga frá kl. 2-
5. Pantanir teknar í síma 12924.
Kvenfélag Nessóknar
Aldrað fólk 1 sóknlnni getur
fengið fótaaðgerð í félagsheimilinu
á miðvikudögum frá kl. 9-12 Pant-
anir í síma 14755
Spakmœli dagsins
Það er enginn tími til þess að
hafa hestaskipti meðan veriff er að
fara yfir ána. — A. Lincoln.
BÖRN
MUNIÐ AÐ VERA
INNI EFTIR KL 8.
Litlu nœturgalarnir koma attur
Litlu næturgalarnir heilags Mar-
teins, Les Rossignolets, frá Frakk-
landi, sem komu hingað á jólum í
fyrra eru væntanlegir aftur um
þessi jól til að skemmta íslend-
ingum.
Siffast sungu þeir sig inn í hug og
hjarta allra, sem á þá hlýddu, og
sjálfsagt mun svo verða á nýjan
leik. í ár syngja þeir meðal ann-
ars í Kópavogskirkju og Háteigs-
kirkju, en nánar verður sagt frá
þvi síður. Myndin að ofan er af
Litlu næturgölunum.
Kvenveski tapáðist í Miðbænum . mánudag. — Vinsaml. hringið í síma 35441. Sölubörn óskast til bókasölu. SVANSPRENT, Skeifan 3, Iðngörðum, sími 82605. (Takið með ykkur tösku),
2ja herb. íbúð til leigu Skrifborðsstólar
í Austurbæ. Tilboð sendis't Mbl. fyrir mánudag merkt: „6833“. Skrifborðsstólar, 20 gerðir. Húsgagnaverzl. Búslóð við Nóatún - Sími 18520.
Holdanautakjöt Símastólar
Úrvals buff, gullasoh, snitc hel, filet, hakk, steikur. Kjötbúðin, Laugavegi 32. Úrval símastóla. Húsgagnaverzl. Búslóð við Nóatún - Sími 18520.
Svínakjöt Fuglakjöt
Aligrísalæri, steikur, kótel- ettur, hryggir, bógax. Kjötmiðstöðin, Laugalæk. Kalkúnar, gæsir, endur, hænur, kjúklingar, lundi. Kjötbúðin, Laugavegi 32.
Hangikjöt Nýreykt sauðahangikjöt og lambahangikjöt. — Gamla verðið. Kjötbúðin, Laugavegi 32. Ódýr matarkaup Folaldasteikur 65 kr. kg. Folaldahakk 75 kr. kg. Nautahakk 130 kr. kg. Kjötbúðin, Laugavegi 32.
Jólatré I /ambahangik jöt
Rauðgreni og eðalgreni, sem ekki sáldrast. Jólatréssalan, Drápuhlíð 1. Nýreykt læri og frampart- ar. Gamla verðið. Kjötmiðstöðin, sími 35020.
Píanó- og orgelstillingar Munið að láta stilla hljóð- færið fyrir jólin. Hljóðfæraverkstæði Pálmars Árna, sími 32845. Kápur Vandaðar frúarkápur með skinnkrögum til sölu á mjög hagstæðu verði. Saumastofan, Víðihvammi 21. - Sími 41103.
Miðstöðvarketill Til sölu 3ja—4ra ferm. mið stöðvarketill ásamt brenn- ara, dælu og yfirfallsdúnk. Uppl. í síma 41016 eftir kl. 8. Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. Hemlastilling hf., Súðavogi 14 - Sími 30135
Keflavík — Suðurnes Til sölu
Finnskur kristall. Keramikvörur, stál, leik- föng, fjölbreytt úrval. STAPAFELL, sími 1730. tvenn drengjaföt og stakur jakki. Vil kaupa sesalong. Uppl. í síma 13677 eftir kl. 1.
Prestolite rafgeymar ennþá á gamla verðinu, 2ja ára ábyrgð. — Höfum sérstakl. ódýra 6 w. geyma fyxir V.W. og Tra- bant. Nóatún 27, s. 35891. Keflavík — Suðumes Carmen-hárgreiðslutæki. Luxo-vinnulampar. Ron- songaskveikjarar. Philips- rafmagnsrakvélar. STAPAFELL, sími 1730.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu Kjötsagarblöð Hef til kjötsagarblöð af öll um stærðum. Pantið í tima. SKERPIR, Rauðarárstíg 24, sími 22739
Bátar fil sölu
27 lesta bátur með nýupptekinn GM. dísilvél og
48 m Radar.
37 lesta bátur byggður 167 með 240 h. Caterpillar.
Eftirspurn er eftir bátum hjá okkur af ýmsum
stærðum, helzt 15—100 lesta.
Leitið til okkar um kaup og leigu á bátum.
SKIP OG FASTEIGNIR
Austurstræti 18. Sími 21735,
eftir lokun 36329.
Bezt ú auglýsa í Morgunblaðinu