Morgunblaðið - 18.12.1968, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 18.12.1968, Blaðsíða 25
MQRGUNBT.A£>IÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1968 25 - ALÞINGI Framliald af bls. 14 isðflun til handa fiskvinnslu- afcöðvum. f öðru lagi, hvort hægt er að freata aðgerðum í málinu fram yfir áramót, miðað við þá aðatöðu, sem nú hefur skapazt í sambandi við veiðar þeasara báta. f sambandi við fyrra atrið- ið liggur fyrir skýrsla frá Fiski- félagi íslands um árangur af botnvörpuvieðum, báta, og það aflamagn, sem bátar, sem þessar veiðar hafa stundað, hafa skil- að í land til fiskvinnslustöðv- anna. Af þeirri skýrslu sézt að árið 1966 var heildarafli þessara báta rúmlega 18 þús. tonn. Árið 1967 færist hann upp í 35 þús. Ifcann og til þess tíma sem skýrsl- an var gefin 1968, var hann kominn upp í 56 þús tonn en mun vera endanlega til 1. des. að ég hygg, að m.k. 60 þús. tonm Það segir sig alveg sjálft, að slíkur afli er ekki aðeins orðinn hagsmunamál fyrir sjómenn og útgerðarmenn, heldur mundi ég segja, að það væri orðið ekki tninna, og jafnvel mun meira hagsmunamál fyrir það verka- fólk sem unnið hefur við fisk- iðnaðinn í hinum ýmsu sjávar- pláasum víðsvegar um land að þessar veiðar geti haldið áfram. Ég hygg, að það sé ekki ofmælt, að á mörgum stöðum mundi verða um verulegan samdrátt í atvinnu að ræða, ef afli botnvörpuveiði- bátanna dregst saman og ef hann stöðvaðist alveg einhvem ihluta ársins, mundi víða um land verða algjört atvinnuleysi. Fisk vinnslustöðvamar eru sérstak- lega á hinum smærri stöðum og reyndar sums staðar á hinum stærri stöðum einnig, orðnar nær einasta atvinnutæki byggðarlag anna. Ef samdráttur verður hjá þeim, liggur alveg í augum uppi, hvernig fara muni um atvinnu í þeim byggðarlögum, hvaða afleið ingar það mimdi hafa fyrir það fólk, sem við fiskiðnaðinn vinn- ur. Ég endurtek því, að hér er ekki einungis um hagsmunamál sjómanna og útgerðarmanna að ræða, hér er einnig um mikið hagsmunamál hins vinnandi fólks í sjávarplássum að ræða. Þá er það hibt atriðið, hvort nauðsynlegt sé að gera nú þeg- ar ráðstafanir í þessu máli. Eins og ég minntist á, hefur það á- stand skapast eftir 1. des. s.l., að víðast hvar hafa bátar hætt að stunda veiðar með botnvörpu Það þýðir ekkert að loka aug- unum fyrir því, að þessar veið- ar hafa í vaxandi mæli á und- anförnum árum verið stundaðar í trássi við gildandi lög og regl- ur. Ég tel ekki að Alþingi geti ætlast til þess, að þeir að- ilar, sem framkvæma eiga lögin, líti endalaust fram hjá því, ef þau eru brotin, heldur hljóti það miklu fremur að vera skylda Al- þingis að ráða fram úr vandan- um, sem skapazt hefur á þann hátt, sem eðlilegt hlýtur að telj- ast. Og í þessu tilviki mundi ég segja, að það væri gert með því að' veita verulegar tilslakanir á þeim reglum, sem gilda um þess- ar veiðar. Hér er að sjálfsögðu ekki um neitt sérhagsmunamál þeirra þingmanna, sem sfcanda að flutningi þessa frumvarps að ræða. Vil ég í því sambandi skírskota til ályktunar, sem Landsamband ísl. útvegsmanna gerði á fundi sínum fyrir nokkr um vikum. En þar var gerð samhljóða ályktun, sem sýnir, að þeir aðilar telja fulla ástæðu til, að þessi mál verði nú þegar tekin til meðferðar hér á Al- þingi. Við, sem að flutningi þessa frumvarps stöndum, höfum reynt að gera það eins einfalt fyrir Alþingi og við töldum frekast kost á, þar sem aðeins er gert ráð fyrir, að heimild ráðherra til þess að leyfa veiðiheimildir nái til tveggja svæða, þ.e. á Norðurlandssvæðinu frá Homi austur að Rauðunúpum, og fyrir Suðurlandinu á svæðinu frá Garðskaga austur af Stafnnesi, en þeitta eru þau svæði, sem akýrslur Fiskifélagsins benda til að togveiðar hafi mest verið stuandaðar á og svæði sem gefið hafa mestan afla bæði vetur og sumar. Við drógum út þau svæði fyrir Austurlandi, Vestfjörðum og Vesturlandi, sem vitað er, að deilur hafa staðið um, hvort að veita ætti veiðiheimildir á, og ennfremur eru önnur svæði, sem landhelgisnefndin hlýtur að kanna betur og athuga í hve ríkum mæli kæmi til greina að veita veiðileyfi á. Það kunna að vera svæði, þar sem jafnvel þyrfti að fara inn fyrir fjórar mílurnar ef nýta ætti þau á al- mennilegan máta, það eru þau svæði, sem flatfiskur verður veiddur eða var veiddur á, á síð- ustu árum í dragnót og hefur nú í sumar og haust verið veiddur í botnvörpu. Um Vestfirði og Vesturland ^r það að segja, að það kæmi aldrei til greina nema á ákveðnum stöðum, sem sam- komulag gæti orðið um, að skyn samlegra væri að hagnýta með botnvörpu heldur en á annan hátt, og á ég þá aðallega við þau svæði, þar sem um flatfisk- veiðar er að ræða á vissum tím- um, helzt yfir haustmánuðina. Fyrir Norðurlandi er hér lagt til, að ráðherra verði veitt heim ild til veiðileyfa á hinu tiltekna svæði, er ég nefndi áðan, allt inn að fjórum sjómílum, frá grunnlínupunktum, eins og þeir voru í gildi frá 1. sept. 1958. Þebta þýðir, að allir flóar og firðir verða eftir sem áður lok- aðir og ætti þetta því ekki að koma svo mjög að sök fyrir hina smærri báta á þessum stöðum, þó að togveiðar yrðu leyfðar fyrir utan 4 mílur frá hinum gömlu mörkum, sem voru í gildi frá 1. sept. 1958. Þetta mundi hins vegar rýmka veiðisvæði tog bátanna fyrir Norðurlandi veru lega, og verða atvinnulífinu þar til mikillar upplyftingar. Ég skal geta þess að Norðurland kemur inn í skýrslu Fiskifélagsins með verulegt magn af fiski, sem veidd ur hefur verið í botnvörpu á ár- inu 1968. Á árinu 1966 var hér um 272 tonn að ræða, á árinu 1967 voru þetta 1687 tonn, og á þessu ári til þess tíma, sem skýrslan gefur upp, mun afla- magnið á þessum veiðum vera um 12.390 tonn. Ég hef sannar fregnir af því, frá þeim mönnum, sem við fisk- iðnað fást fyrir Norðurlandi, að veiðar í botnvörpu hafi hreinlega á mörgum stöðum í vetur og sumar, bjargað atvinnulífinu í hinum ýmsu sjávarplássum, þann ig að auðsætt er, að ef ekki verða gerðar tilslakanir á veiði- heimildum fyrir Norðurlandi, þá mundi verða um verulegan art- vinnusamdrátt að ræða. Fyrir Suðurlandi er um miklu róttækari breytingar að ræða, þar sem lagt er til, að heimilrt verði að fara allt inn að þrem- ur mílum frá strandlengju á svæð inu frá Garðskaga að Stafn- nesi. Við Suðurströndina horfir þetta mál allt öðru vísi við. Þar er ekki um að ræða neina firði. Þar sem um uppeldi á smáfiski er að ræða. Ströndin er heldur ekki vogskorin, eins og menn vita. Fiskur sem þar er bæði vetur og sumar er að miklu leytj göngufiskur sem fer með- fram ströndinni. Þetta þekkja sjómenn, sem lengi hafa stund- að veiðar vel. Fiskurinn kemur í torfum eins og kallað er og á það sér stað bæði vetur og sumar, eða ákveðinn tíma á á- kveðnum stöðum, heldur síðan göngu sinni áfram og hverfur af þessum miðum. Um uppeldis- stöðvar í verulegum mæli er þar ekki að ræða. Hins vegar er á þessum stað hryggningarstöðvar bæði síldar og annarra nytja- fiska okkar, þorsksins og ýsunn ar, en í tillögunum er gert ráð fyrir, að hrygningarsvæði síldar og önnur svæði, sem Hafrann- sóknarstofnunin telur nauðsyn- legt að vernda verði friðuð fyrir botnvörpu þann tíma, sem nauð- synlegt er talið, þannig, að þó þetta frumvarp yrði að lögum, tel ég enga hættu á því, að rányrkja eða ofveiði eða skemmd ir á hrygningarsvæðum yrðu. Ég tel ekki, að það mundi í sjálfu sér leysa neinn vanda, þótt skemur yrði gengið í þessu við suðurströndina heldur en til lagan gerir ráð fyrir, það mundi lítinn sem engan vanda leysa, þófct leyfðar yrðu togveiðar 4 mílur út frá hinum fyrri eða ;síðari grunnlínupunktum. Þeir ieru dregnir það langt út, að bátaflotinn mundi ekki með nein um árangri geta stundað þessar veiðar, ef hann ætti að halda sig utan við það svæði, sem þar er um að ræða. Eins og ég sagði áðan telja flurtningsmenn þessa frumvarps óhjákvæmilegt að skjóta lausin til bráðabirgða verði fundin á þessu máli, og er þá reiknað með að nefnd sú, sem sjávarútvegsmála- ráðherra skipaði í haust haldi áfram störfum og skili áliti þeg- ar hún telur tímabært. Ég vil undirstrika, að hér er um tíma- bundnar ráðstafanir að ræða, sem aðeins eiga að gilda í fjóra mán- uði og aðeins á tveimur tiltekn- um veiðisvæðum landsins, en alLs ekki kring um landið allrt, BANN GEGN BOTNVÖRPU- VEIOI Á laugardaginn var fram hald ið í neðri deild Alþingis 1. um- ræðu um frumvarpið um bann gegn veiðum með botnvörpu. Tóku þá þátt í umræðunum Jón Skaftason, Björn Pálsson, Birg- ir Finnsson, Eysteinn Jónsson, Guðlaugur Gíslason, Eggert G. Þorsteinsson sjávarútvegsmála- ráðherra og Jóhann Hafstein dómsmálaráðherra. Var frum- varpinu síðan vísað til 2. um- ræðu og sjávarútvegsnefndar. Jón Skaftason (F) sagði m.a. í sinni ræðu, að flutningur frum varps þessa mundi spilla fyrir 3törfum nefndar er starfaði að lausn málsins, og spilla fyrir því að samkomulag næðist, sem væri þó mjög nauðsynlegt. Bjöm Pálsson (F) sagði að frumvarp þetta gerði aðeins ráð fyrir bráðabirgðalausn á vanda- máli sem þyldi enga bið að greitrt yrði úr. Samþykki þess spillti á engan hátt fyrir störfum nefnd arinnar, heldur þvert á móti gæfi henni betri tóm til að kanna málið til hlítar. Birgir Finnsson (A) sagði í ræðu sinni, að við afgreiðslu þessa máls yrðu menn að hafa í huga alþjóðlega kynningu og samvinnu Íslendinga að land- helgismálum. Ekki mætti flasa að neinu er spillt gærti fyrir því sem áunni2st hefði. Eysteinn Jónsson (F) tók mjög í sama streng og Jón Skaftason og sagði að óþarflega lengi hefði dregizt að skipa þessa nefnd, eftir að ákvörðun Alþingis var tekin. Eggert G. Þorsteinsson, sjávar útvegsmálaráðherra, gerði grein fyrir af hverju nefndarskipunin drógst svo lengi, og sagði, að einstakir aðilar sem tilnefna áttu fulltrúa í nefndina hefðu dregið það óþarflega lengi. Jóhann Hafstein, dómsmálaráð herra, sagði að það sem lyti að hinu alþjóðlega í þessu frum- varpi, þyrftu íslendingar ekki að óttast, enda hefði jafnan verið kynnt ítarlega sjónarmið fslend inga í landhelgismálinu á er- iendum vettvangi. Við hefðum gert öllum grein fyrir því að landhelgin væri eign okkar sjálfra, og að við mundum hag- nýta okkur hana undir vísinda- legu eftirliti, svo mikið sem skyn samlegt mætti teljast. JOHNS - MMILLE glerullareinangrunin Fleiri og fleiri nota Johns- Manville glerullareinangrun- ina með álpappírnum, enda eitt bezta einangrunar- efnið og jafnframt það langódýrasta. Þér greiðið álíka fyrir 4” J-M glerull og 214” frauð- plasteinangrun og fáið auk þess álpappír með! Jafnvel flugfragt borgar sig. Sendum um land allt — Jón Loftsson hf. Hringbraut 121. - Simi 10600. CÓÐ JÓLAGJÖF pHjjtf g ER REKAVIÐAR- MYND EFTIR SÓLVEIGU Húsgagnaverzlun | Árna Jónssonar, Laugavegí 70, sími 16468 MÁLSVARI MYRKRAHÖFÐINGJANS eftir Morris L. West er ein vinsœlasta skáldsaga | , sem lesin hefur verið upp i ' útvarpinu Nú eru komnar út tvœr nýjar bœkur eftir hann Babels- turninn MOHRIS L.WKST iGullna Ostran eftir Douald Gordon er óhemju spennandi skáldsaga, byggð á sannsögulegum staðreyndum um leit aS | fjársjóði Rommels hershöfð- j ingja, sem sökkt var undanj ströndum Afríku. DONALD GORDON hefur á óvenju skömmum | tíma aflaS sér fraegSar fyrir \ þessa og fleiri metsölubœkur sínar. VerS kr. 323.25 Prentsmiðja Jóns Helgasonar L ðókaafgreiðsla Kjörgarði ] Sími 14510 Babelsturninn pem kemur nú út samtímis I Ihjá þekktustu bókaforlögum | |i meira en tuttugu löndum. ÞETTA ER SKÁLDSAGA ÁRSINS HÉR OG ERLENDIS VerS kr. 430.00 Gull og sandur eftir I Morris L. West er spennandi og falleg ástarsaga, skrifuS af þeirri frásagnarsnilld sem er I aSalsmerki höfundar. L Kostar aSeins kr. 193.50.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.