Morgunblaðið - 18.12.1968, Blaðsíða 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1968
ÍMH
ingarnir voru kyrrir í skápnum,
en hún var skulduð fyrir upp-
hæðinni.
Maigret blaðaði í bókinni
nokkrar mínútur, stóð síðan upp
þegjandi og gekk svo inn í hina
stofuna, þar sem borgara-
klæddu lögreglumennirnir fóru
að eins og skólastrákar og lét-
ust allt í einu vera önnum kafn-
ir, hikaði, eins og hann væri að
hugsa um, hvort hann ætti að
láta senda sér bjór upp, en
gekk síðan að hálftómu glasi,
eins og ósjálfrátt, og tæmdi það
sem í því var.
Þegar hann kom iran aftur,
hafði Serre ekki hreift sig, en
var að kveikja sér í nýjum
vindli, en tautaði nú:
— Með leyfi?
— Maigret jánkaði því, í illu
skapi, en yppti öxlum.
— Þér hafið hugsað um þessa
seinni gluggarúðu, hr. Serre?
— Ekki hef ég nú lagt það
á mig.
rétt. Betra væri ef þér gætuð
fundið einhverja skýringu á
henni.
- Ég er ekkert að leita að
neinni skýringu . ..
— Haldið þér því þá enn
fram, að þér hafið ekki sett í
nema eina rúðu í gluggann í les-
stofunni yðar?
— Já, bara daginn eftir þrumu-
veðrið.
— Viljið þér, að við fáum það
staðfest hjá Veðurstofunni, að
ekki hafi neitt þrumuveður ver-
ið á þriðjudagsnótt?
— Það er tilgangslaust. Nema
þér gætuð haft einhverja á-
nægju af því. Ég átti við þrumu-
veðrið í hinni vikunni.
— Næsta dag fóruð þér í búð-
ina og keyptuð rúðu og kítti.
— Já, það hef ég þegar sagt.
— Og eruð þér reiðubúinn að
sverja, að þér hafið ekki komið
þangað síðan og keypt aðra
rúðu?
35
/
Um leið ýtti bann að honum
myndinni af innfærslunni í bók-
ina.
— Hversvegna teljið þér, að
þeir hefðu tekið uppá því að
færa þetta inn í bókina í annað
sinn?
— Það hef ég enga hugmynd
um.
— Hversvegna ætti kaupmað-
urinn að bera það fram, að þér
hafið komið eldsnemma á mið-
vikudagsmorgun — klukkan um
átta?
— Því verður hann sjálfur að
svara.
— Hvenær notuðuð þér síðast
bílinn yðar?
— Síðastliðinn sunnudag.
Það er nú annars ekki
— Hvert fóruð þér?
Við móðir mín fórum út að
aka í eitthvað þrjár klukku-
stundir, eins og við erum vön á
sunnudögum.
—í hvaða átt?
—■ Áleiðis til Fontainebleau-
skógarins.
— Fór konan yðar með ykkur?
— Nei, hún var eitthvað las-
in.
— Höfðuð þið ákveðið að
skilja?
— Það var ekki talað um
neinn skilnað. Hún var þreytt
og miður sín. Henni kom aldrei
saman við móður mína. Við kom-
um okkur saman um, að hún
skyldi fara heim í föðurland sitt
í nokkrar vikur eða nokkra mán
uði.
— Og hún tók samt með sér
alla peningana sína?
— Já.
— Hversvegna?
— Afþví að það gat vel kom-
ið til mála, að hún kæmi alls
ekki aftur. Við erum hvorugt
nein börn lengur og getum litið
á lífið með rósemi. Þetta var eins
konar tilraun hjá okkur.
— Segið mér, hr. Serre: Það
verður að fara yfir tvenn landa-
mæri til að komast til Amster-
dam, ekki satt? Og frönsku yf-
irvöldin eru afar ströng með
flutning á peningum, þegar farið
er út úr landinu. Var ekki konan
yðar hrædd um, að gullið fynd-
ist og yrði gert upptækt?
— Er ég skyldugur að ,svara
því?
— Já, mér finnst það geti verið
í yðar eigin hag.
— Jafnvel þó ég eigi á hættu
málshöfðun?
— Hún verður sennilega
skárri en morðákæra-.
— Gott og vel. Ein ferðatask-
an konunnar minnar var með tvö
földum botni.
— Fyrir þessa ferð sérstak-
lega eða hvað?
— Nei.
— Hafði hún þurft á þessu að
halda áður?
— Já, hvað eftir annað.
-— Til þess að komast yfir
landamærin?
— Já, landamæri Belgíu og
einusinni svissnesku landamærin.
Þér hljótið að vita, að til skamms
tíma var ódýrara að kaupa gull
bæði í Sviss og Belgíu.
— Þér játið þá meðsekt yðar
i þessum f jármunaflutningum?
— Já, það geri ég.
Maigret gekk fram í varðstof-
una. — Viltu koma héma inn
snöggvast, Janvier? Síðan mælti
hann við Serre: — Aðstoðarmað-
ur minn ætlar að skrifa niður
þennan hluta samtals okkar. Ger
ið svo vel að endurtaka orðrétt
18. DESEMBER
Viðskiptin eru óráðin ennþá. Skipuleggðu vel öll smáatriði, lærðu
Hrúturinn 21. marz — 19. apríl
eitthvað nýtt.
Nautið 20. apríl — 20. maí
Hæfileikar þínir til að sjá út sameiginlegan hagnað og reikn-
inga eru góðir. Leggðu strax í framkvæmdir. .
Tvíburarnir 21. maí — 20 júní
Vertu samvinnuþýður. Félagar þínir fylgjast ekki með því, sem
þú hugsar og segir. Farðu hægar.
Krabbinn 21. júní — 22. júlí
Einhver óánægja ríkir heima fyrir vegna einhvers óvænts. Ferða
lög fara öðrvísi en ætlað var. Það gengur allt betur, þegar þú
ert búinn að sættast við heimamenn.
Ljónið 23. júlí — 22. ágúst
Farðu hægt I breytingar í dag. Gleddu börn og gamalmenni
Meyjan 23. ágúst — 22. september
Notaðu hæfileika þína til að taka ákvarðanir. Láttu það ekki
eftir fólki að hörfa. Haltu þér síðan við efnið.
Vogin 23. september — 22. október
Nú ríður á að hjakka í farinu, hvað sem það kostar. Reyndu
persónutöfrana á fólk.
Sporðdrekinn 23. október — 21. nóvember
Starfaðu með gömlum vinum. Þú getur gætt hag þinn með
eilífum tilrauniun til að hagnast. Þú getur vel minnzt á sjálfan
þig án þess að miklast.
Bogmaðurinn 22. nóvember — 22. desember
Þú ræður allt í einu ekki neitt við neitt, og tapar sennilega
eitthvað. Félagslífið blómstrar.
Steingeitin 22. desember — 19. janúar
Farðu nú yfir allt, sem setið hefur á hakanum, og komdu því
í röð og reglu. Láttu ákvarðanir bíða betri tíma, þegar allt er
ekki eins viðkvæmt og hættir ekki svona til frumhlaupa. Láttu
ástvini þína vita eitthvað af þér.
Vatnsberinn 20. janúar — 18. febrúar
Allt sem þú segir verður fyrir harðri gagnrýni. Því bera
fæst orð minnsta ábyrgð. Eitthvað gerir rómantikin vart við sig.
Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz
Ef þú flytur mál annarra, skaltu gera jákvætt tllboð í dag.
Viðskiptin ganga eðlilega. Athugaðu betur smáatriðin.