Morgunblaðið - 18.12.1968, Page 12

Morgunblaðið - 18.12.1968, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1968 NEWSWEEK The international news magazine Fylgizt með fréttum heimsins Nýtt verð. Aðeins kr. 21.50, skattur innifalinn. Fió Matsveina- og veitingoþjónaskólanum Seinna kennslutímabil skólans hefst með inntökuprófi 3. janúar. Kvöldnámskeið fyrir matsveina á fiski- og flutninga- skipum hefst 6. janúar. Innritun í alla bekki og námskeiðið fer fram í skrif- stofu skólans í Sjómannaskólanum 18. og 19. þ.m. kl. 3—5 síðdegis. Vegna mikillar aðsóknar er áríðandi að allir nemendur mæti til skráningar á réttum tíma. SKÓLASTJÓRI. Fjölbreytt úrval SPEGLA með og án umgerðar í forstofur, bað- herbergi etc. Margar gerðir fyrir- liggjandi eða allt að 200 centi- metra lengd. Speglabúðin Laugavegi 15. J Ó LAGJAFIR SPEGLAR Sími 19635. Nanno Egíls Björnsson LJÖÐA- OG ARÍUKVÖLD í Austurbæjarbíói, Reykjavík á morgun fimmtudag inn 12. desember 1968 kl. 7.15. Undirleik annast Gísli Magnússon. Aðgöngumiðasala er í bókaverzlunum Lárusar Blöndai og Sigfúsar Eymundssonar í dag og á morgun. „Núkynslóð" — Nýstárlegt list-tímarit NÝTT list-tímarit er að hefja göngu sína um þessar mundir, og nefnist það ,,Núkynslóð“. — Eins og nafnið bendir til eru út- gefendur af ungu kynslóðinni, en ábyrgðarmaður er Ragnar Jónsson. I vetur var haldin skáldakynning á vegum Núkyn- slóðar í Tjarnarhæ við mjög góða aðsókn og undirtektir. All- ir þeir höfundar, sem þar lásu upp, eiga ritsmíðar í nýja tíma- ritinu, en auk þeirra ýmsir aðr- ir. I tímaritinu er að finna Ijóð eftir Þorstein Antonsson, Gunn- laug Sveinsson, Sigurð Pálsson o. fl., greinar og sögur eftir Ólaf Hauk Símonarson, Hrafn Gunn- laugsson, Eyjólf P. Kolbeins, dr. Sigurð Guðmundarson, Þórarin Eldjárn, Einar Hákonarson, Ólaf Kvaran o. fl., viðtai við Eyvind Erlendsson leikstjóra og smásögur eftir „megas“ og Guð- berg Bergsson. Er tímaritið hið vandaðasta, og æði nýstárlegt að ytra búnaði. 1 formála og formála að for- mála er þess getið að bláðið sé ekki bundið neinnd ákveðinni línu né skoðunum ákveðins hags munahóps, og hafi hlotið fjár- veitingu firá Alþingi. Segir í for mála að formála meðan annars: ,,Við látum bókmenntagagnrýn- endur og fræðimenn finna út hvaða isma við fylgjum og und- ir hvaða stefnu við flokkumst. Frum-stefnan er að hafa enga stefnu. Grundvallarlínan er áð fylgja engri línu.“ Gg í formála segir: „Trúlega er skynsamleg - ast að líta á Núkynslóð sem ár- bók þeirra, sem eru að byrja að reyna sig við ritstörf. Einhvers konar torgsamkoma, þar sem menn hittast og færa fram, það sem þeir hafa fram að færa. Má vera, að það veki áhuga ein- hverra, sem leið eiga um.“ Ritnefnd Núkynslóðar skipa Hrafn Gunnla>ugsson, Kristinn Einarsson, Ólafur Kvaran, Ólaf- ur Haukur Símonarson og Sig- urður Pálsson. „Tímaritið mun liggja frammi í bókaverzlunum og einnig veirður því dreift í hina æðri skóla landsins, þar sem nemendum gefst kostur á að kaupa þa'ð við afslegnu verði,“ eins og segir í tilkynn- ingu útgefenda. Cóð af- koma SAS Stokkhólmi, 16. des (NTB) Á SÍÐASTA reikningsári, sem lauk 30. september sl., reyndist hagnaður Norðurlandaflugfélags- ins SAS vera 118,7 milljónir norskra króna (um 1.464 milljón- ir ísl. kr.), og er það 2,9 milljón- um meira en á fyrra reiknings- ári. Þrátt fyrir þennan mikla hagn- að voru afskriftir á árinu meiri en áður, eða 143 milljónir norskra kr. miðað við 127,4 milljónir ár- ið áður. Einnig var fjárfestmg félagsins á árinu mieiri en áður, eða 625 milljónir n. kr. BBC bendlað við njosnir Moskvu, 16. des (NTB) Dagblaðið Izvestia, málgagn ■sovézku stjórnarinnar, sakar í dag brezka útvarpskerfið BBC um samvinnu við leyniþjónust- una og aðstoð Við að ráða njósn ara í þágu Breta. Ásökun þessi kemur fram í grein eftir þá V. Ljadov og C. Rozin. Segja þeir að blaðið hafi fórum sínum leyniskjöl, sem sanni Framhald á bls. 21 ’iússenhcuis Brauð- og áleggssneiðarar sneiða allt: — brauð, ost og annað álegg, bacon. Nýjustu gerðir: • Frístandandi á sogskálum. • Samanbrjótanleglr I geymslu. • Sleði fyrlr það, sem snelða á. • Ryðfrlr stálhnifur, losaður á augabragði með þrýstihnappl. Gagnleg gjöf — Góð eign! ♦ SfBI 2 44 20 o SI IU IU.ATA 10 o TIL JÓLACJAFA VE8KI - TÖ8KUR - MIM sHljóðfærahús Reykjavikur Leðurvörudeild. Laugavegi 96 — Sími 13656

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.