Morgunblaðið - 18.12.1968, Page 16
16
MOáGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1»68
tíitgleíÉandi
Framfcvœmdastj óri
'Ritstgórax'
Ritstjómarfulltrúi
Fréttaistjóri
Auglýs ingaistj órá
Ritstjórn og afgneiðsla
Auglýsingati?
Aakriftargj'ald kr. IS'0.08
í lansasö>],u
H.f. Árvakur, Reykjaviik.
Haraldur Sveinsson.
Sigiurður Bjarnasen frá Viguir.
Matthías Jdhanniesslen.
Eyjólfur Konróð JónssOO.
Þorbjöm Guðmundssott.
Björn J óhannssoia.
Arm Garðar Kristínsaon.
Aðalstræti 6. Sími 10-109.
Aðalstræti 6. Siml 22-4-90.
á mánuði innanlands.
kr. 10.09 eintakið.
LUÐVIK HAFÐI
TVÖFALT VERÐ
CJtóryrði kommúnista þessa
l~' dagana um sjávarútvegs
málafrv. ríkisstjómarinnar fá
óneítanlega á sig dálítið ein-
kennilegan blæ, þegar haft
er í huga, að þegar Lúðvík
Jósepsson var sjávarútvegs-
málaráðherra 1956—1958 ríkti
mjög svipað fyrirkomulag og
stefnt er að með frv. ríkis-
stjórnarinnar. Því er gert ráð
fyrir að kostnaðarhækkanir
útgerðarinnar vegna gengis-
breytingarínnar verði teknar
af óskiptum afla áður en til
hlutaskipta kemur.
Þegar Lúðvík Jósepsson,
var sjávarútvegsmálaráð-
herra, gilti tvöfalt fiskverð,
annað sem var hærra og gilti
fyrir útgerðina og hitt, sem
var lægra og gilti fyrir sjó-
menn. Upplýsingar sem
Eggert G. Þorsteinsson, sjáv-
arútvegsmálaráðherra, gaf á
Alþingi í fyrradag leiddu í
ljós, að mismunurinn á þess-
um tveimur fiskverðum varð
sjómönnum enn óhagstæðari
í ráðherratíð Lúðvíks Jóseps-
sonar en áður. Á árunum
1952—1956 var um 15% mun-
ur á hinum tveimur fiskverð-
um en á þeim árum, sem Lúð-
vík Jósepsson, var sjávarút-
vegsmálaráðherra var þessi
munur um og yfir 20% og
var því sjómönnum enn óhag
stæðari en áður. Lúðvik
Jósepsson reyndi að þræta fyr
ir þessar staðreyndir í um-
ræðunum á Alþingi í fyrra-
dag en tókst ekki betur til en
svo að ummæli hans stað-
festu það sem Mbl., og nú
síðast sjávarútvegsmálaráð-
herra hafa sagt um hið tvö-
falda fiskverð í ráðherratíð
Lúðvíks Jósepssonar.
Það kemur því vissulega úr
hörðustu átt, þegar þessi
sami maður ræðst að ríkis-
stjóminni vegna þeirra ráð-
stafana, sem hún beitir sér nú
fyrir til þess að tryggja rekstr
argrundvöll útgerðarinnar.
Þær ráðstafanir em mjög
svipaðs eðlis og aðgerðir, sem
Lúðvík Jósepsson beitti sér
fyrir og lagði blessun sína
yfir, þegar hann sjálfur var
sjávarútvegsmálaráðherra.
VILJA KOMMÚN-
ISTAR EKKI
ÚTRÝMA
ATVINNULEYSI?
rT'ala atvinnuleysingja vex
-*■ nú ískyggilega ört. Þeir
niunu nú vera á sjötta hundr-
að í Reykjavík og nokkuð á
annað hundrað í Vestmanna-
eyjum en færri annars stað-
ar. í ljósi þessara uggvæn-
legu tíðinda mun verkafólk
og raunar allir launþegar
fagna því, að viðræður ríkis-
stjómarinnar og Alþýðusam-
bands íslands um atvinnumál
in hófust í fyrradag. Vonandi
leiða þær viðræður til þess,
að öflugar ráðstafanir verði
gerðar til þess að þurrka at-
vinnuleysið út og tryggja
fulla atvinnu-
í þessu sambandi verður
ekki komizt hjá því að vekja
athygli á furðulegri afstöðu
kommúnista og Framsóknar-
manna í miðstjóm ASÍ til
þessara viðræðna. Þessir
menn gerðu mjög ákveðna til
raun til þess að koma í veg
fyrir, að ASÍ hæfi þessar við
ræður við ríkisstjómina og
lögðust þar með gegn því, að
þessi voldugu fjöldasamtök
leituðust við að hafa áhrif á
ráðstafanir og aðgerðir ríkis-
stjórnarinnar í þessum efn-
um-
Að visu þarf engan að
undra þótt kommúnistar yfir-
leitt bregðist þannig við, en
hvað skyldu atvinnulausir
verkamenn í Reykjavík í dag
hugsa um þá afstöðu Eðvarðs
Sigurðssonar, formanns Dags-
brúnar að leggjast gegn slík-
um viðræðum um að tryggja
þeim fulla atvinnu.
Atvinnuleysi er ekki hægt
að þola á íslandi í dag. Gera
verður mjög ákveðnar og öfl-
ugar ráðstafanir til þess að
útrýma því. Til þess að það
megi takast verða allir að
leggjast á eitt. Þess vegna
verður að krefjast þess, að
menn, sem stór og fjölmenn
verkalýðsfélög hafa sýnt mik-
ið traust bregðist því ekki,
heldur leggi sig alla fram um
það með öðmm að ná þeim
árangri sem dugir.
Hann streitist enn á móti
— Smrkovsky, forseti tékkneska þjóðþingsins er sá,
— sem Rússum veitist örðugast að múlbinda
SÁ tékkneskur ráðamaður,
sem einna mest hefur komið
við sögu undanfarið er óum-
deilanlega Josef Smrkovsky
forseti tékkneska þjóðþings-
ins. Þess er skemmst að
minnast, að athyglj vakti, að
Smrkovsky var ekki í hópi
þeirra forystumanna Tékkó-
slóvakíu, sem voru kvaddir
til Kiev á dögunum til enn
eins viðræðufundaT við sov-
ézku foringjana. Nokkru áður
hafði það síazt út, að Oldrich
Cernik, forsætisráðherra hefði
veitt Smrkovsky ákúrur fyrir
að vera of opinskár og laus-
máll, þegar málefni flokksins
væru annars vegar. Allt bend
ir til að Smrkovsky sé sá,
sem hvað erfiðastur reynist
Sovét í taumi og virðist stefnt
að því að hann skuli smám
saman sviptur völdum og á-
hrifum eins og nýjustu fréttir
í dag bera og með sér.
Þessi orðrómur var orðinn
svo áleitinn, að Smrkovsky
I kom fram í útvarpi og sjón-
varpi fyrir nokkru og sagði
þá, að hann væri við hesta-
heilsu og hefði alls ekki í
hyggju að draga sig í hlé,
hvorki af heilsufars ástæð-
um, eins og flogið hefði
fyrir, né af nokkrum öðrum
orsökum. Þó tókst ekki að
kveða sögusagnirnar niður.
Um svipað leyti lýstu verka-
menn við stærstu verksmiðju
f Prag því yfir, að þeir
myndu grípa til allsherjar-
verkfalls, ef atför yrði gerð
að Smrkovsky. Þessi skorin-
orða yfirlýsing fékk svo góð-
an hljómgrunn, að starfsmenn
í fjölmörgum öðrum verk-
smiðjum, bæði í Prag og
'annars staðar í Tékkós'lóvak-
íu tóku undir og sögðust ekki
rnundu hika við að fara í
verkfall líka. Verkamennirnir
segjast votta Smrkovsky ein-
læga hollustu og vara ein-
dregið við því að hann verði
beittur nokkrum þeim þving-
■unum, sem kunni að leiða til
þess að hann sjái ekki annað
ráð vænna en ségja af sér.
Verkamennirnir sögðu: „Við
'kunngerum það hér með Og er
um staðráðnir í að fylgja því
eftir, að brottvikning æðstu
leiðtoga okkar úr núverandi
embættum mundi hafa ófyrir-
sjáanlegar og stórlega var-
hugaverðar afleiðingar fyrir
þjóðina alla. Við tökum það
fram að gefnu tilefni, að
við eigum hér við félaga
Smrkovsky."
Josef Smrkovsky.
Nafn Josefs SmrkOvskys
’hefur frá því í janúar sl. ver-
ið tengt þeirri lýðræðisþró-
un sem blómstraði í Tékkó-
slóvakíu í nokkra mánuði og
Rúsfsar hafa nú stöðvað.
Ásamt þeim Alexander Dub-
cek, flokksleiðtoga, Cernik,
forsætisráðherra og Svoboda
forseta var Smrkovsky einn
þeirra, sem þjóðin virti og
dáði og batt hvað mestar von-
ir við. Sérstaklega nýtur hann
stuðnings og velvilja meðal
yngri kynslóðarinnar, ekki
síður en hugmyndafræðingur-
inn Cestmir Cisar, sem hefur
nú verið gerður nær því á-
'hrifalaus. Nú 'virðist svo
sem hinir leiðtogarnir hafi að
mestu látið undan hótunum
og þvingunum sovézku stjórn-
arinnar. Smrkovsky er sá eini,
sem spriklar enn í netinu.
Og hver er svo Josef
Smrkovs'ky? Hann er fæddur
26. febrúar 1011 og er því
hartnær 58 ára að aldri. Hann
hefur verið virkur félagi
í kommúnistaflokknum frá
unga aldri og koms't þar ungur
til metorða. Ritari verkalýðs-
félags kommúnista varð hann
kornungur, eða 21 árs að
aldri. Flokksritari í neðan-
jarðarhreyfingu kommúnista-
flokksins var hann um skeið,
meðal annars árið 1944—45.
Skömmu fyrir stríðslok varð
hann þjóðhetja í Tékkósló-
vakíu vegna vasklegrar fram-
'göngu í uppreisnartilrauninni
gegn nazistum. Að stríðinu
loknu varð hann varaforseti
þjóðarráðs Tékkóslóvakíu unz
hann var gerður að aðstoðar-
landbúnaðarmálaráðherra ár-
ið 1948. Því embætti gegndi
hann í þrjú ár, en var þá
handtekinn, grunaður um ó-
'tryggð við stefnu Stalíns og
dæmdur til dauða. Dómnum
var síðar breytt og Smrkovsky
sat í fangelsi til ársins 1955. Á
árunurn 1956 til 1963 starfaði
Smrkovsky að landbúnaðar-
málum á vegum ríkisins og
gegndi ýmsum minni háttar
embættum þar að lútandi.
Síðan tók við staða vatns-
orkustjóra, en árið 1966 var
hann gerður að skógarmála-
ráðherra og gegndi því starfi,
unz hann var kjörinn forseti
tékkneska þjóðþingsins í apríl
síðastliðnum. Áður en Ludvik
Svoboda var kjörinn forseti
Tékkóslóvakíu 30. marz sl.
var Smrkovsky einn þeirra
sem líklegastir þóttu til að
■hljóta embættið. Hann sóttist
þó ekki eftir því s'jálfur og
•studdi Svoboda heils hugar.
Þegar Alexander Dubcek
•hóf gagnrýni á stefnu Nov-
otnys, fyrrverandi forseta
og aðra þáverandi valda-
rnenn í Tékkóslóvakíu, gekk
Smrkovsky þegar í lið með
Framhald á bls. 31
Smrkovsky heilsar Dubeek eftir að sá síðarnefndi kom úr einni af mörgum heimsóknum
til Moskvu sl. haust.