Morgunblaðið - 18.12.1968, Side 31

Morgunblaðið - 18.12.1968, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1968 31 Hér sést hluti þeirra umbúða, sem lilutu merki sýningarinnar eöa viöurkenningu. Vandaðar umbúbir fá viöurkenningu - Stúdentaóeirðir í Frakklandi — Stjórnin hótar ströngum gagnráðstöfunum Læknaskipunar- lögin til 2. umræðu — í GÆR komu læknaskipunarlög- in til 2. umræðu á Alþingi. Mælti Friðjón Þórðarson fyrir nefndar- áliti heilbrigðis- og félagamála- nefndar, en Sigurvin Einarason mælti fyrir breytingartillögu, sem hann og fleiri flytja við frumvarp ið. Jóhann Hafatein, heilbrigðis- málaráðherra, tók einnig til máls, en umræðu og afgreiðslu frum- varpsins var síðan frestað. Pési prukkuri og ævintýri BÓKAMH>STÖ®IN hefur gefiö út söguna „Pési prakkari", eftir Einar Loga Einarsson. Er þetta barna- og unglingasaga, samin eftir samnefndu leikriti. Teikn- ingar í bókinni eru eftir Ellen Birgis. Bókin er prentuð í Prent- smiöju Jóns Helgasonar. Þá hefur Bókamiðstöðin gefið •út barnabækurnar „Ævintýrið um Anton og drekann" og „Æv- ■intýrið um Snjókarlinn og börn- in“.^Teikningar gerði Ellen Birg- is, en bækurnar eru prentaðar í 'Prentsmiðju Jóns Helgasonar. Jurðskjólfti Anchorage, Alaska, 17. des. (AP-NTB) I NÓTT varð all-snarpur jarð- skjálfti á Kenai-skaga í Suður- Alaska, en hann olli Iitlum skemmdum, og ekki er vitað til þess að nokkur hafi látizt af hans völdum. JarðskjáJftinn varð á svipuðum slóðum og jarðhræir- ingamar á föstudaginn langa fyrir fjórum árum, þegar 178 manns fórust og gífurlegar skemmdir urðu í borginni An- chorage. Að þessu sinni mældist styirk- leiki jarðskjálftans 6,5 á Richt- eir skala, en jarðskjálftinn 1964 mældist 8,5. - ÁRMANN Fi lald af bls. 30 þar er athafnasvæði róðradeild- arinnar. Skíðaskáli félagsins í Jósepsdal hefur löngum verið ein vinsælasta skíðamiðstöð Reykvikinga. Skálinn var nýlega stækkaður og bættur að öllurn útbúnaði og nýr vegur lagður til Jósepsdals. Við allar þessar framkvæmdir hafa Ármenning- ar unnið mikið og fómfúst sjálf- boðaliðsstarf, sem margar kyn- slóðir eiga eftir að njóta góðs af. KEPPT OG SYNT ERLENDIS. Hinir ýmsu íþróttaflokkar Ár- manns hafa farið meira en 30 keppni og sýningarferðir til annarra landa og borið hróður íslenzks íþróttastarfs víða meðal erlendra þjóða. Hér heima em íþróttasýningar Ármenninga orðn ar fleiri en tölu verði á kom- ið um allt land. Á löngu starfsskeiði sínu hef- ur Glímufélagið Ármann átt sinn góða hlut í uppeldi og þroska þúsunda æskufólks, sem iðkað hafa íþróttir og unnið félags- störf í Ármanni. Undir merki Ármanns hafa ótaldir íþrótta- menn og íþróttakonur háð marga eftirminnilega keppni, unnið marga glæsta sigra og tekið þátt í fjölmörgum íþróttasýningum, bæði heima fyrir og á erlendum vettvangi. Ármann er orðinn áttræður, en hann er síungur, vegna þess að æskan endurnýjar hann sí- fellt með ferskum kröftum, og starfar saman innan vébanda hans. Ármann hefur líka átt þeirri gæfu að fagna, að njóta starfskrafta margra dugmikilla og hæfra forystumanna, þjálf- ara og eldri félaga, sem unnið hafa með unga fólkinu og miðlað því af kunnáttu sinni og reynzlu. FÉLAG íslenzkra iðnrekenda og Landssamband iðnaðarmanna, Iðnkynningin 1968, hafa nýlega efnt til fyrstu íslenzku umbúða- samkeppninnar. Var samkeppni þessi auglýst í júní og þátttaka háð þeim skilyrðum, að umbúð- irnar væru hannaðar eða fram- leiddar af íslenzkum aðilum og hefðu komið á markað hér eða erlendis. Matsnefnd skipuðu eftirtaldir menn: Stefán Snæbjarnarson, húsgagnaarkitekt, formaður, Leif ur Guðmundsson, forstjóri, Harður Ágústsson, listmálari, Sveinn Björnsson, framkvæmda- stjóri, Pétur Sigurðsson, kaup- maður, Hafsteinn Guðmundsson, prentsmiðjustjóri og Sigrfður Pétursdóttir, húsfrú. Alls bárust 54 umbúðir til samkeppninnar og hlutu eiftiir- taldar umbúðir viðurkenningar- merki: Brúsi fyrir teppashampó. Hönnuður Sigurður Jónsson, framleiðandi Sigurplast h.f. og notandi Sápugerðin Frigg. Hólk- ur utan um Álafoss hespulopa. Hönnugur Gísli B. Bjömsson, framleiðandi Plastprent h.f., not- —MJÓLKURSALA Framhald af bls. 32 I viðtali við þá sagði Stefán, að stöðvun mjólkursölunnar væri gerð með hagsmuni neytandans fyrir augum, þar sem dreifingar- kostnaður á sunnudögum væri allt of hár. Mjólkursamsalan hætti sunnudagssölu í Reykjavík á síðastliðnu sumri. Benda likur til, sagði Ólafur G. Einarsson í viðtali við Mbl., að Mjólkursam- sölunni finnist erfitt að hafa verzlanir sínaT lokaðar í Reykja- vík á meðan sala er leyfð í ná- grannabyggðum borgarinnar. í Reykjavík munu nú vera um 90 útsölustaðir sem reknir eru af MjólkursamsölunnL - DVALARHEIMILI Framhald af bls 32. og í þeim bauð bæjarstjóm Hafnarfjarðar hluta úr landi jarðarinnar Áss í Hafnarfirði undir dvalarheimilisbygging- una. Á fundinum 11. desem- ber sl. var stjórn Sjómanna- dagsráðsins falið að halda áfram samningaviðræðum við bæjarstjórn Hafnarfjarðar og önnur sveitarfélög, ef óskað væri eftir, en það hefur ver- ið skoðun okkar, að hvort sem dvalarheimilið verður byggt innan eða utan marka Hafnarfjarðar, væri æskilegt að ná samvinnu við fleiri ná- grannasveitarfélög. Undirbúningur að fram- kvæmdum sem þessum tekur að sjálfsögðu langan tíma og á þessu stigi málsins get ég ekki sagt neitt frekar um við- ræðurnar. Vonir standa til, að á aðalfundi Sjómannadags- ráðs, sem haldinn verður í marz nk., verði endanleg ákvörðun tekin í rnálinu" sagði Pétur að lokum. andi Álafoss h.f. Kassi fyrir Glit öskubakka, hönnuður Kristín Þorkelsdóttir, framleiðandi Kassa gerð Reykjavikur, notandi Glit h.f. Kassi fyrir jurtasmjöcrlíki, hönnuðir Haiukur Halldórsson og Tómas Tómasson, framleiðandi Kassagerð Reykjavíkur, notandi Smjörlíki h.f. Pækiltunna, hönn- uður Vigfús Fríðjónsson. Fram leiðandi Rosti Plastfabrik A/S. Þrettán aðrair uonbúðir hlutu auk þess viðurkenningu. -SKÖLABYGGINGAR Framhatd af hls. 32 verið veitt til nýbygginga skóla. Sagði ráðherra að t.d. á árunum 1966—1967 og 1968 hefði að með altali verið veittar 16,7 millj. kr. á ári til nýbygginga skóla. Þá komu húsnæðismál Kenn- araskóla fslands nokkuð til um- ræðu, eftir að Magnús Kjartans- son hafði gert þau að umtals- efni. Sagði menntamálaráðherra að það væri rétt að Kennara- skólinn byggi við mjög mikinn húsnæðisskort, enda hefði vöxt- ur skólans verið með fádæmum. Enginn hefði látið sér það til hug ar koma, þegar ný lög um skól- ann voru sett 1963, að þau mundu válda slíkum straumhvörfum í aðsókn að honum, þar sem nem endafjöldi skólans hefði á þess- um árum 8—9 faldast. Sagði ráð herra að nú væri unnið að bygg- ingu Æfingaskóla Kennaraskól- ans og mundi hann sennilega erða fullbúinn næsta haust. Skýr ingin á því að ekki hefði tek- ist að leysa húsnæðismál Kenn araskólans væri öðru fremur sú að hin mikla uppbygging mennta skólanna hefði reynst mjög kostn aðarsöm. Menntaskólinn á Laug- arvatni hefur nú verið stækk- aður um helming á þremur ár- um, byggður hefur verið nýr menntaskóli á Akureyri sem er stærri en gamli skólinn, nýbygg- ing hefur verið reist við Mennta- skólann í Reykjavík sem er stærri en gamli skólinn og auk þess hefur Menntaskólinn í Hamra- hlíð, stærsti menntaskóli lands- ins verið byggður. Ráðherra sagði að þessar framkvæmdir við byggingu menntaskólanna hefði verið orðnar mjög aðkall- andi, þar sem lítið hefði verið gert í byggingarmálum þeirra um langan tíma. Strax og þess- ari byggingaráætlun menntaskól anna yrði lokið, mundi verða hafizt hana við byggingarmál- efni Kennaraskóla íslands af ful'l um krafti. Ráðherra skýrði frá því að forráðamenm kennaraskóla ís- lands hefðu farið fram á að takmarka inngöngu nemenda í skólann. Ráðherra sagði, að þess ari málaleitan hefði verið synj- að og séð yrði til þess að þeir sem ættu rétt á inngöngu í skól ann kæmust í hann, þó að taka yrði frekara leiguhúsnæði fyrir starfsemina. f umræðunum um frumvarp- ið tóku þátt auk áðurnefndra þingmennimir Þórarinn Þórar- insson, Skúli Guðmundsson og Stefán Valgeirsson. PARÍS 17. desember, NTB, AP. Baráttuglaðir stúdentar við fimm háskóla í Frakklandí létu undir höfuð leggjast að sækja fyrir- lestra í dag, þrátt fyrir aðvaran- ir rikisstjórnarinnar um, að grip- ið yrði til harkalegra aðgerða gegn hvers konar endurtekningu á óeirðum þeim, sem áttu sér stað í maí og júní sL Athyglin beindist einkum að listasögudeild háskólans í Nant- erre, sem er ein af útboTgum Parísar, en þar tók lögreglan upp eftirlit í dag með því, hverjir færu þar inn og út á háskóla- svæði. Er tilgangurinn með lög- reglueftirlitinu sá, að koma í veg fyrir, að æsingamenn nái að komast inn í háskóladeildina, en þar hafa námsverkfallsaðgerðir stúdenta staðið yfir frá því á fimmtudag. Þá áttu sér stað mótmælaað- gerðir af hálfu stúdenta einnig við háskólana í Montpellier, Toulouse, Strasbourg og Nantes. Þrátt fyrir þetta lítur svo út, sem það sé einungis lítill hluti stúdenta, sem þátt tóku í þessum mótmælaaðgerðum og ekki sjást þess merki, að stúdentaæsing- arnar sem hófust í Nanterre séu í þann veginn að breiðast út um allt landið, eins og átti sér stað í vor. Þannig voru það færri — Hann streitist Framhald af bls. 16 honum og var einn af helztu höfundum nýju stefnuskrár- innar, sem boðaði tékknesku þjóðinni aukið frelsi. Josef Smrkovsky er sagður maður viðfelldinn í fram- komu, sannfærandi í mál- flutningi og ör í skapi, keðjureykingamaður. Hann er myndarlegur á velli og sagður traustvekjandi í allri fram- komu, öfgalaus en fastur fyr- ir. Smrkovsky á undir högg að sækja þessa daga. En hann lætur. ekki deigan síga. Þótt mörg ljón séu á veginum. heldur hann ótrauður áfram baráttu sinni fyrir frelsi lands síns og þjóðar og heldur á Iofti kyndli mannúðar i því svartnætti sem grúfir yfir Tékkóslóvakíu. - TÉKKÖSLÓVAKÍA Framhald af bls. 1 embætti til eilífðar". Hann bætti því við, að „em- bættismenn munu verða valdir á stjómskipulagan hátt“ og sagðþ að ógerlegt væri að segja fyrir um, hverjir yrðu valdir í æðstu stöður nýja þjóðþingsins. Verka- menn hafa hótað allsherjarvehk- falli, ef Smrkovsky verður vikið úr stöðu sinni. Nýja þjóðþingið er liður í áætlunium um sam- bandsstjómarfyrirkomulag, sem komið verður á á næsta ári. Sam bandsríkisstjóm á að vera yfir aðskildum ríkisstjómum Tékka og Slóvaka í Prag og Bratislava. Verður þjóðþingið einnig skipu- lagt á sambandsiríkisgrundvelli. Colotka sa.gði, að núverandi þjóðþing, þar sem 300 þingmenn eiga sæti, muni verða áfram við lýði um stundarsakir, sem sér- stök deild í sambandsþinginu, unz nýjar kosningar færu fram. Sagði hann ennfremur, a'ð 75 meðlimir þjóðarráðs Slóvaka myndu verða kjömir í þjóðadeild á nýja sambandsþinginu. Myndi miðstjórn flokksins ræða um það í næsta mánuði, hverjir ættu að gegna forsetaembættum í þess- um tveimur þingdeildum. Col- otka sagði hins vegar, að ekki hefði verið ákveðið enn, hvaða dag miðstjórn flokksins myndi koma saman til fundar. Sjá grein um Smrkovsky á bls. 16). en eitt þúsund stúdentar, sem mættu á fundi við Nanterre- háskóla, þar sem ráðagerðir voru uppi um að koma á fót nefndum til þess að gera grein fyrir kröf- um stúdenta. Kvörtuðu sumir stúdentarnir þar yfir því, að þeir hlytu nú miklu minni undirtektir en sl. vor. Var þeim, sem ekki vildu taka þátt í mótmælaað- gerðum, borið á brýn af sumum herskárri stúdentum, að þá skorti pólitískan þros'ka og upp- lýsingar. Couve de Murville forsætisráð- herra varaði í sjónvarpsræðu, sem hann flutti í gærkvöldi, „að það yrði ekki þolað lengur, að stúdentar legðu undir sig há- skólabyggingar á nokkurn hátt“. Á sumum stöðum í dag, þar sem óeirðir hafa átt sér stað í há- skólum, voru hófsamari stúdent- ar teknir að hafa uppi kröfur um að fá að sækja háskóla sína með eðlilegum hætti. - BIAFRA Framhald af bts. 1 verið í her Biafra. Fulltrúar í nefndinni eru frá Kanada, Bret- landi, Pólandi og Eþíópíu, og er formaður nefndarinn/ar William A. Milroy, hershöfðngi frá Kan- ada. Drengurinn sagði netfndar mönnum, að hann væri einn hundruða jafnaldra sinna, sem kvaddur hafi verið til herþjón- ustu í fyrra mánuði. Var hann ænd'Ur til fjögurra daga æfinga, þar sem honum var kennt að skjóta úr riffli. Að æfingum loknum voru honum aíhent fimm skot í riffilinn og sendur með það til skotgrafa sunnan Onitsha. Þegar Nígeríusveitir nálguðust skotgrafirnar, kvaðst drengurinn hafa gefizt upp, og hafði hann þá að eigin sögn aldrei skotið úr riffli sínum. Hann kvaðst hafa verið neydd- ur til að ganga í herinn og hefðu Biafrahermenn beitt valdi til að fá hann og jafnaldra hans til að taka sér vopn í hönd. Hins veg- ar hefði verið farið vel með þá eftir að þeir voru komnir í her- inn. Það sem honum þófcti vænzt um var, að „við fáum kjöt“. Einnig sögðu talsmienn Nígeríu hers eftirlitsnefndinni að þeir hefðu komizt yfir orðsendingu frá einum af foringjum Biaifra- hers á vígstöðvunum til aðal- stöðva hersins. Sagði foringinn þar meðal annars: „Htmdrað hermenn mótteknir. Meðal þeirra sá ég einn fullorðinn, 26 ára, hin ir eru 16 ára. Af hverju? Eng- inn þessara drengja kann að skjóta. Ef við ekki eigum full- vaxta hermenn, erum við til einskis nýtir. Þeir lofta ekki þungum vopnum. Við báðum einn þeirra að bera skotfæra- kassa 16 metra leið. Áður en hann komst á leiðarendia, datt hann. Er þetta hermaður? Hivern- ig getum við haldið þessu áfram? Vinsamlegast sendið okkur full- orðna hermenn“. Ekki var unnit að staðfesta að þessi orðsending væri rétt eftir höfð, en talsmenn eftirlitsnéfnd- arinnar segja hinsvegar, að þeir hafi lagt nokkum trúnað á frá- sögn drengsins. ★ I fregn frá stöðvum alþjóða Rauða krossins í Genf segir, að áframhald sé á matvælaflutn- ingum til Biafra að næturlagi með flugvélum frá eyjunni Fem- ando Po. Á fyrstu tveimur vik- unum í þessum mánuði voru farnar alls 96 ferðir og flutt 914 tonn af matvælum. Alls hafa þá flugvélar á vegum Rauða kross- ins flutt 5.300 tonn í 558 ferðum frá því flutningar þessir hófust i september sL

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.