Morgunblaðið - 23.02.1969, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 23.02.1969, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 196-9. 3 Dr. Sigurbjörn Einarsson, biskup: Yf ir og allt Appollon nýi er kominn inn í bók- menntir íslendinga. Þar lenti hann með kvæði Jóhanns Hjálmarssonar, sembirt ist í Lesbók á sunnudaginn var, og ég trúi því, að viðstaðan verði nokkuð varanleg. Tunga Eiríks og Leifs og Þorfinns og annarra íslenzkra mjög- siglenda geymir svo gott kvæði meðan hún fær að 'lifa hér undir þeim himni, sem á einna tærastan bláma. Þú lágst einhverntíma í bernsku mlili þúfna á grænum velli, með goluþyt í stráum við eyra, og horfðir í þennan bláma, augun köfuðu dýpra og dýpra í þennan lygna hyl og þú uppgötvaðir og undraðist, að hvergi varð vart við botn. Og þó að veröld þín væri ekki stærri en svo, að hún endaði við Fljót- ið eða einhverja aðra dularfulla tor- færu, sem ful'lorðnir nefndu með svo sérkennilegum hreimi, þá fékkstu hug- boð þarna milli þúfnanna um óendan- leikann, eilífðina. Einhvers staðar út í þessu hyldýpi er Guð. Nei, hann er yfir og allt um kring með eilífri bless- un sinni, yfir bláa fjarskanum, allt um kring í angan grænkunnar á vell- inum og þyt gólunnar við eyra þér. í kvöld kveikir hann á Ijósunum sínum, tunglinu og stjörnunum, eins og amma kveikir á lampanum, þegar dimman er komin. Og það er aldrei slökkt á ljós- unum hans Guðs, það eru alltaf jól á himnum og ljósin loga alla nóttina. Yf ir og allt um kring. Allar nætur. Og líka þegar maður deyr og leggur af stað út í blámann. um kring „Allt þetta var nálægt þá, og er nálægt enn eins og ferð mannsins inn i aðra nótt. Út úr jarðneskri nótt? Heim til barnsins í jötunni! Barnið kemst að raun um það, að fyrir handan Fljótið eða önnur ver- aldarmörk barnshugans er önnur sveit og svo taka við aðrir mannheimar. Það er hægt að skoða þá alla, kannski eign- ast þá alla. Þannig hefur maðurinn vappað sín fet frá þúfunni, sem hann vaknaði á, ti'l hinnar, sem hann hvarf undir síðast til að sofa. En loks kom sú kynslóð, sem hóf sig á loft og náði því í fáeinum, lygilega skjótum áföngum að gera drauma djörfustu ævintýra að veru- leik. Og þó er þessi kynslóð umlukt sömu þögninni í bak og fyrir og allar aðrar, hún er á sömu stuttu dagleið út úr nótt að baki og inn í aðra nótt. Geimöldin er samt runnin upp. Það eru allar líkur á því, að innan tíðar verði farnar rannsóknarferðir út um all-t sólkerfið. Tunglferð Appollons 8 er aðeins byrjun. En geimurinn er ennþá stór, þrátt fyrir stökkin yfir þau mörk, sem voru til skamms tíma óyfirstíganleg. Djúpið dýpkar því lengur sem í er rýnt. Frá sólkerfi voru er fjarlægðin til annarra hnatta í vetrarbrautinni svo gifurleg, að alltjent nú virðist óhugs- andi að komast þangað. Næsti granni utan sólkerfisins er í það miklum fjarska, að geimskip með 30 km. hraða á sekúndu er eins og snígill á' þeim óravegi og þyrfti heila eilífð til þess að komast hann á enda Endar geimurinn einhvers staðar? Eða er hann endalaus? Annað hvort hlýtur að vera, eða hvað? Og hvort um sig er í rauninni óhugsandi. Kannski er hvorugt rétt? Eða hvort tveggja? Ef til vill er ekki unmt að gera sér neina grein fyrir svona frumlægum hlutum eða svara slíkum spurningum um skynheiminn nema með því að við- urkenna blótt áfram, að skynsemin, vitið, getur ekki ráðið við þetta eða bú- ið til hugtök yfir það án þess' að tala í mótsögnum. Það gæti forðað mönnum frá ýmsum glæringjaskap, þegar þeir tala um eða leggja dóm á kristin trúarhugtök, ef þeir hugsuðu út í, að jafnvel á sviði raunþekkingar og í meðferð þessa heims fyrirbæra komast menn stundum ekki hjá því að túlka veruleikann með orða- lagi gátunnar. Þó að ég viti það, að biáminn er ekk-i annað en mannleg ímyndun, lang- ar mig ekki til þess að verða svo full- orðinn, að ég geti undrunarlaus horft út í víðáttuna. Ég vil ekki láta mér gleymast, að svörin og lausnirnar, sem vísindin láta í té, vekja nýjar spurn- ingar. Og stærstu og nákomnustu spurn ingarnar eru þær sömu á dögum Bor- manns og þær voru, þegar Phaeton flaug. Sá geimur, sem blasir við fyrir utan og opnast meir og meir, er líkari gömlu ljóði en „vísindum nútímans", segir skáldið. Það var einmitt stef úr gömlu ljóði, sem barst til jarðar frá Appollon 8, þegar hann hafði lokið hringferðinni umhverfis tunglið og stefndi aftur til mannheima: f upphafi skapaði Guð himinn og jörð. En jörðin var þá auð og tóm, og myrkur grúfði yfir djúpinu, og Guðs andi sveif yfir vötnunum. Þá sagði Guð: Verði ijós. Og það varð ljós. Og Guð sá, að ljósið var gott. Og Guð greindi ljósið frá myrkrinu. Gamla Biblían var með í förinni og fyrstu orð hennar bárust yfir djúpið, sem engin mannleg rödd hafði óður brú- að. Þeir, sem stýrðu geimfarinu, vildu benda á, að innsæi eða opinberun þess- ara stefja er gildur sannleikur og í vaxandi mæli áríðandi sannleikur eftir j því sem jarðneska barnið stækkar. Bibl ían og hennar boðskapur þarf að vera með í för. Sjálfsagt rifjast það upp fyrir mörg- um, þegar tunglfararnir bandarísku sendu þessa kveðju til jarðar, að Gagarin, sem fyrstur sveif í geimfari kringum jörð- ina, tilkynnti, að hann hefði ekki rek- ist á néinn Guð í geimnum. Svo var að skilja sem sú uppgötvun væri hluti af sigrinum, sem unninn var með þessu mikla afreki. Annað mál er, hverjum hefur verið ætlað að uppbyggjast og sannfærast af svo barnalegri einfeldni. Gildi þessarar yfirlýsingar var það eitt að afhjúpa á hvaða vitsmunastigi sá andtrúaráróður er, sem mikill hluti mannkyns er undir seldur. Kristinn maður veit, að Guð er yfir og allt um kring með eilífri blessun ^ sinni, hvort sem maður horfir út í blám ann úr þúfnamó eða svífur kringum tunglið í geimskipi. 3á Guð, sem í önd- verðu og að eilífu segir: Verði ljós, hann býr í því ljósi, sem enginn fær til komizt, sem enginn leit né litið get- ur (1. Tím. 6.16). En hann er ekki fjarri neinum af oss. í honum lifum, hrærumst og erum vér (Post. 17,27— 28). Sigurbjörn Einarsson. Knattspyrnufélagið Þróttur Knattspyrnudeild Almennur félagsfundur verð ur haldinn að KAFFI HÖLL sunnudaginn 23. febrúar og hefst kl. 16.30. Félagsmenn kvattir til að mæta stund- víslega. Stjórnin. SAMKOMUR Sunnudagaskóli kl. 10,30. Vakningarsamkom ur í kvöld og öll kvöld þessa viku kl. 20,30. Verið velkom- in. — Heimatrúboðið. Samkomuvika Hjálpræðishersins Sunnud. kl. 11 og 8.30 al- mennar samkomur. Mánudag kl. 8.30 vakningasamkoma. Ofursti Arne Ödegaard talar. Allir foringjar á íslandi taka þátt. Velkomin. íerðaskrifstofa bankastræti 7 símar 16400 12070 travel Enn sem fyrr ódýrustu og beztu utanlandsferðirnar PÁSKAFERÐIR 1969 Mallorrka og London. — Verð frá kr. 14.800,00. Brottför miðvikudag fyrir skírdag, 2. aprid. Flogið beint til Palma. Þér veljið um dvöl á sömu ágætu hótelunum, sem þúsundir íslendinga þekkja af eigin raun úr SUNNUFERÐUM. Páskaferðin er í ár fyrsta ferðin af hálfsmánaðar og síðan vikulegu reglubundnu leiguflugi SUNNU beint til Spánar, eins og undamfarin ár. Okkur hefir tekizt að halda verðunum niðri, svo þessar vinsælu utamlands- ferðir geti ennþá orðið almenninigseign. Dvalið í 2 vikur á Mallorcka og 2 daga í London á heimdeið. íslenzk skrifstofa SUNNU í Palma með eigin síma er farþegum mikilsverð og einstök þjónusta. í þessurn mánuði, janúar felluir ný appelsinuupp skera af trjánum á Maílorka. í aprílbyrjun má reikna með um 28 stiga hita og sól frá morgni til kvölds. Malloirika er fjöisóttasti og vinsælasti ferða mannastaður í Evrópu. Ódýrar utanlandsferðir með leiguflugi. Mundð hinar ódýru utamlandsferðir SUNNU með leigufluigi. Þær 'hafa gert þúsumdum íslemdinga möguilegt að njóta utanlandsiferða, sem amrnars hefðu ekki átt þess kost. Tvær vikur á Malorca fyrir kr. 12.600,00. Notuan eimgömgu hótel og íbúðir fyrsta f'lokks með baði og svölum. í suma.r einmig mjög ódýrar hóp- og leiguifluigsferðir til Norðurlamda með nýju sniði. Vikuferð ti'l Kaupmamnaihafnair, flug- ferðir og hótel fyrir kr. 11.800,— Þér getið valið um ódýrax ferðir til allra staða á Spáni, Ítalíu, Mið-Evrópu, Egyptalandi og Norðunlöndum. Sum a-ráætluin komin. \mm\ ferðirnar sem folkið velur Góð þjónusta sækjum gamla svefnbekk- inu að morgni — skilum sem nýjum að kvöldi. Klæðum einnig ön.nur bólstruð húsgögn. • Komum með áklæðissýnis- horn og gerum verðtilboð. SVEFN BEKKJfl Laufásveg 4. Sími 13492 SÆKID SUMARIÐ HEIM UM HÁVETUR PÁSKAFERÐIR ÚTSÝNAR 1969 TORREMOLINOS — LONDON Brottför 28. marz. Á SÓLARSTRÖND SPÁNAR — COSTA DEL SOL — er allt í feg- ursta skrúða um páskana. Bezta loftslag og sólríkasti staður Evrópu með meira en 320 sólsltinsdaga á ári. Úrvalshótel og fjöldi skemmti- staða. Fyrir þá, sem kæra sig ekki um að.liggja alla daga í sólbaði er fjölbreytt úrval kynnisferða um Sólarströndina til Granada, Sevilla eða yfir sundið til Afríku. Eftir- sóttasti ferðamannastaður Spánar árið um kring. f sumar mun ÚTSÝN halda uppi hálfsmánaðarferðum með þotuflugi beint á COSTA DEL SOL, vinsæl- asta ferðamannastað álfunnar. Með fyrsta flokks gistingu er verðið frá kr. 15.000.— KANARIEYJAR — LONDON Á KANARIEYJUM er sumarpara- dís meðan vetrarríkið herjar á norðurhjara heims, enda eru þær eftirsóttasti dvalarstaður Evrópu- búa á veturna og allt upppantað marga mánuði fram í tímann. Vegna sérstaklega hagstæðra samninga getur ÚTSÝN boðið nokkur sæti á mjög lágu verði til Kanarieyja um páskana. Verð frá kr. 24.800.— ÚTSÝN ARFERÐ — ÓDÝR EN FYRSTA FLOKKS. Ferðaskrifstofan ÚTSÝN Austurstræti 17. Símar 20100 og 23510.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.