Morgunblaðið - 23.02.1969, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. FEBRÚAR 1969.
7
ÞAR ANGAR BLÓMABREIDÁ"
Ferðir mínar úti á víðavangi
hafa fremur beinzt að fjörum
og fjörulifi hingað til, en ekki
er ég þó sáttur við þá tilhugs-
un, að mér þyki ekki blóm fall
ég, þótt ég verði að viðurkenna,
að þau hafa svona helzt orðið
útundan hjá mér, frá því ég,
ungur strákur, var að reyna að
útfæra upp á íslenzku svokall-
aða Raunkjærsaðferð við plöntu
tkoðun Maður myndaði hring,
mig minnir með 10 cm. radius,
og taldi svo plönturnar inni í
hringnum.
Þótti það góð fræðsla um gróð
urfarið. Einnig minnir mig, að
þessi vitneskju hafi ég haft úr
Náttúrufræðingnum, sem svo sem
var ekki að undra, því að það
tímarit hefur um langt árabil
verið mitt andlega fóður.
En vegna þess, að einn minna
beztu vina er gróðrinum hlynnt
ur, hann Jón Arnfinnsson garð-
yrkjumaður, og ég veit, að hon-
um myndi þykja það leiðinlegt,
að ég minntist aldrei á hann —
við, sem gengum saman í mörg
ár á fundi Náttúrufræðifélagsins,
bæði upp í Menntaskóla og Há-
skóla. Þeir fundir voru svo
skemmtilegur, að á eftir héld-
um við þá helzt niður í kjall-
aradeildina , Finnur og við hin
ir, drukkum kaffisopa, og rædd
um stíft um umræðuefnið, sem
við nýverið höfðum verið að
hlusta á. Við vorum að vísu
færri þá.
Ég sakna raunar þessara
stunda enn á fræðslufundum Nátt
úrufræðifélagsins, sem ég held,
að sé eitthvert bezta félaig hér-
lendis, að öðrum ólöstuðum.
★
Og nú ætla ég í þetta sinn að
bjóða ykkur með, lesendur mín
ir út þar sem angar blóma-
breiða, aðallega út af honum
Jóni, með því, að við gengum
eitt sinn þvert yfir Búðahraun
og týndum burkna.
Ekki ætla ég í þetta sinn, að
tala um aðrar plöntur en fífla.
Hugsið ykkur fegurðina að
ganga tún og engi, logagyllt af
sóleyjum og fíflum?
Halldór Laxness, okkar
fremsta skáld, kemst svo að
orði um líka tilfinningu:
„Bráðum kemur betri tíð með
blóm í haga
sæta langa sumardaga.
Þá er gaman að trítla um
tún og tölta á eingi,
einkum fyrir unga dreingi.
Folöldin þá fara á sprett og
fulginn syngur,
og kýrnar leika við kvum
sinn fingur."
Fíflar eru af körfublómaætt,
náskyldir Baldursbránni, sem svo
sannarlega er talinn eitt falleg
asta blóm hérlendis, þótt stund-
um sé hún talin illgresi. Fátt var
taldið ljótt á Baldri enda hef-
ur þetta gullfallega blóm verið
skírt í höfuð hans. Svo var
hann þá að lokum drepinn með
Mistilteini.
★
Margt hefur verið ort um
blóm, og á Jónas Hallgrímsson
ekki sízt þar hlut að máli. Ferða
lok kvæði hans, er áreiðanlega
eitt fegursta kvæð.i sem ort hef
ur verið á íslenzka turagu. Þar
í stendur þetta:
„Tíndum við á f jalli
tvö vorum saman,
blóm í hárri hlíð.
Knýtti ég kerfi
og í kjöltu þér
lagði ljúfar gjafir."
Jónas hefur sjáfsagt þekkt
fífla frá barnæsku í öxnadal.
Hraun og Steinsstaðir bafa ver-
ið honum áfangastaðir og vega-
mót, því að til þess bendir kvæð
ið Ferðalok, þar sem skildu leið
ir þeirra Þóru Gunnarsdóttur við
Galtará. Vafalaust hefur á þeim
slóðum, allt logað í fíflum og
sóleyjum. Maður greiðir sjálf-
sagt ekki lokka við Galtará,
án þess að öll veröldin sé
roðagullin og slegin. Hver
skyldi ekki muna eftir því að
hafa búið til fí jfofesti? Stungið
holum leggjum inn I hvern ann
an, lagt svo festina um hálsinn
á ástmey sinni ungri? Síðan
komu til bifukolla, ekkert ann-
að en fræ til að viðhalda nýju
lífi. Svo blés maður og blés,
og fræin flugu til allra átta.
Og gæti maður blásið öll bif-
hárin í einu mátti rnaður óska
sér einnar óskar. Þannig var
þjóðtrúin.
Vona ég svo, lesendur mínir.
I*ar angar blómabreiða, þar
er mitt draumaland.
Vona ég svo, lesendur mínir,
að hjá ykkur ævinlega, angi
blómabreiða. Náttúran er svo
sem söm við sig alltaf, það er
bara að kunna að njóta hennar.
þá angar blómabreiðan, og þar
er mitt draumaland. — Fr.S
VIÐAVANGI
Skrifstofumaður óskar eftir starfi hálfan eða allan daginn. Fjölþætt reynsla. Tek bókhald fyrir minnj fyrirtæki. Tilb. m. „Góður bókari 2927“ til Mbl. Ungur maður óskar eftir vinnu við heild- sölu eða verzlunarst. Kunn átta í öllum Norðurlandam. og ensku. Margt kemur til gr. Tilb. m. „3000“ til Mbl. f. 1. marz.
BEZT að auglýsa í Morgunblaðinu íbúð til sölu Til sölu er um 130 ferm. fokh. rish., væri hentuð fyr ir smið eða laghen. mann mann. Gott verð. Mjög góð kj‘r. Uppl. í súma 83441.
Árshátíð
Hárgreiðslu- og hárskerameistara verður haldin að
Hótel Sögu, sunnudaginn 2. marz. Hefst með cocktail
kl. 6 síðdegis. Miðar verða seldir í Greiðunni, Háaleit-
isbraut 58—60, Hárgreiðslustofu Austurbæjar, Lauga-
vegi 13, Tinnu, Grensásvegi 50, Einari Eyjólfssyni, Álf
heimum 31, Eddu, Só heimum 1 og Rakarastofu Gunn-
ars Guðjónssonar, Kliapparstíg.
Stjórnirnar.
Tökum fram á morgun
glœsilegt úrval at enskum og
dönskum dömu- og fermingarkjólum
Hagstætt verð og greiðsluskilmálar.
Kjólabúðin MÆR
Lækjargötu 2.
Og við gengum þvert yfir Bú ðhraun og týndum burkna
Diskótektæki
Veitingahús í Reykjavík óskar eftir tilboðum í
diskótektæki.
Tilboð er greini frá gerð, verði með uppsetningu og
öðru er nauðsynlegt þykir sendist afgr. Mbl. merkt:
„DISKÓTEK — 6272“ fyrir 2. marz n.k.
Leiksmiðjan
Leiksmiðjan sýnir Galdra
Loft í síðasta sinn í kvöld
í Lindarbæ. Er þetta
aukasýning. Aðsókn hef-
ur verið góð að sýning-
unum.
FRÉTTIR
í Reykjaneskjördæmi. Aðalfundur
Kjördæmisráðs verður kl. 2 e.h.
laugard. 22. febr í Grindavík
Kvennadeild Slysavarnafélags-
ins
Minnir á merkjasölu félagsins á
Góudag, sunnudaginn 23.2. Merkin
verða afherat í öllum barnaskóiun-
um, og eru foreldrar vinsamleg-
ast beðnir að lofa börnum sínum
að selja þau. Allur ágóði merkja-
sölunnar rennur til Slysavarnafé-
lagsins.
Bræðrafélag Bústaðasóknar
Munið Góufagnaðinn. Konukvöld
félagsins sunnudaginn 23.2 kl. 20.30
í Réttarholtsskóla. Góð skemmti-
atriði Félagar fjölmennið Takið
með ykkur gesti. Tekið á móti kök
um í skólanum eftir kl. 16.
Kristniboðs- og æskulýðsvika í
Hafnarfirði í húsi KFUM og K
16,—23. febrúar 1969.
Sunnudagur 23. febrúar
Konráð Þorsteinsson, pípulagninga
maður, talar. Raddir æskunnar: El-
ín Elíasdóttir, fóstrunemi, og Gunn
ar J. Gunnarsson, kennaranemi.
Æskulýðskóriran syngur.
ARABIA-hreinlætistæki
Stórkostleg.
nýjung
Hljóðlaus W.C. — kassi.
Nýkomið: W.C. Bidet
Ilandlaugar Baðker
Fætur f. do. W.C. skálar & setur.
Fullkomin varahlutaþjónusta.
Glœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumboð fyrir ísland:
HANNES ÞORSTEINSSON
lieildv., Hallveigarstíg 10, sími 2-44-55.