Morgunblaðið - 29.03.1969, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 29.03.1969, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 29. MARZ 1969 - 30. MU1949 Framhald af bls. 11 og 16. marz birtist svohljóðandi til- kynning frá ríkisstjórninni: Þar sem nú er vitað, að íslandi muni verða gefinn kostur á að gerast aðili ypntanlegs Norður-Atlantshafsbanda- lags, telur ríkisstjórnin skyldu sína, að kynna sér til hlítar efni sáttmálans, og aðstæður allar, áður en ákvörðun verð- ur tekin í málinu. Hefur þess vegna orðið að ráði, að utanríkisráðherra Bjarni Benediktsson, fari þessara erinda til Washington á- samt fulltrúum annarra þeirra flokka, sem þátt taka í ríkisstjórninni, þeim Emil Jónssyni og Eysteini Jónssyni. í för með þeim verður Hans And- ersen þjóðréttarfræðingur." Daginn eftir átti svo utanríkisráð- herra viðtal við hinn bandaríska kollega sinn Dean Acheson og aðra starfsmenn Fréttamenn Lundúnaútvarpsins tóku einnig viðtal við utanrikisráðherra og hafði eftir honum, að þá hefði íslenzka ríkisstjórnin ekki tekið neina ákvörð- un um það, hvort hún mælti með eða móti þátttöku íslands í bandalaginu. Hlutverk sendinefndarinnar íslenzku væri að ganga úr skugga um það, hvort bandalagið fyrirhugaða yrði með þeim hætti, að íslendingum væri unnt að ger- ast aðilar að því, — síðan myndu ráð- herrarnir birta Alþingi skýrslu um mál- ið. Það væri Alþingis, en ekki ríkis- stjórnarinnar að taka lokaákvörðunina. Þegar hér var komið sögu eru ís- lenzku dagblöðin farin að skrifa mikið um málið, og fjalla um það m.a. í for- ystugreinum sínum. Opinberir fundir voru einnig haldnir m.a. af æskulýðs- samtökum og stúdentafélögum. Á Al- þingi kemur svo málið á dagskrá, er Einar Olgeirsson kveður sér hljóðs ut- an dagskrár og gerir fyrirspurn varð- andi vesturför ráðherranna. T ÞINGTÍÐINDI FRA 1941 Stefán Jóhann Stefánsson, forsætis- ráðherra varð fyrir svörum. Kemur fram í ræðu ráðherra, að siálfsagt verði að teljast að . ríkisstjórnin afli sér fyllstu upplýsinga um hvaða skyldur muni felast í sáttmálanum, ef sótt verði u*n þátttöku í bandalaginu. Það hafi verið af forgöngu íslenzku ríkisstjórn- arinnar og af hennar frumkvæði, að ráðherrarnir voru sendir til Washing- ton. Þá lýsti forsætisráðherra því yfir að ekkert samráð mundi verða haft við kommúnitsa í svo stórvægilegu og vandasömu utanríkismáli. Hörð orðaskipti urðu á þessum fundi. Stefán Jóhann rifjaði upp ummæli Brynjólfs Bjarnasonar frá 1941, að hér mætti skjóta án miskunnar, ef það yrði til að létta undir með Rússum á Austurvígstö'ðvunum. Var þetta til þess að sumir kommúnistaþingmenn gerðu hróp að ráðherranum, en hann svaraði með því að benda þeim á að fletta upp í þingtíðindum frá 1941, og sjá þar þessi ummæli svört á hvítu. Við lok umræð- unnar lagði svo forsætisráðherra þá spurningu fyrir kommúnistaþingmenn ÍTvaða þjóð hefði lagt undir sig flest lönd meðan á stríðinu stóð og eftir það. Heyrðust þá hróp kommúnista, svo sem: Það vár Holland, — það var Bret- land, það voru Belgíumenn. 18. marz lauk viðræðum íslenzku ráð- herranna við ráðamenn í Washington og var þá gefin út sameiginleg yfirlýs- ing utanríkisráðherranna. Af hálfu ís- lenzka ráðherrans var lögð áherzla á sérstöðu íslands, þar sem það væri með öllu vopnlaust og hérlendis enginn her. Auk þess var lögð áherzla á að hér yrði ekki her á friðartímum. Bandaríski utanríkisráðherrann lagði áherzlu á að tilgangurinn með sáttmálanum sé ein- göngu sá, að varðveita friðinn í heim inum, og bendir á, að sáttmálinn sé gerður í fullu samræmi við stofnskrá Sámeinuðu þjóðanna. Daginn eftir var íslandi svo formlega boðin þátttaka í bandalaginu um leið og sáttmálinn yrði undirritaður að þeim níu ríkjum sem endanlega höfðu ákveðið þátttöku sína. 22. marz komu ráðherrarnir þrír úr vesturför sinni og daginn eftir birti Morgunblaðið viðtal við Bjarna Bene- diktsson og kemur fram í því að fullt tillit hafi verið tekið til séraðstöðu fs- lands, og í lok viðtalsins segir ráð- herra: „Aðalþýðing samtakanna, sem og þátttöku okkar, og annarra einstakra ríkja, er þessvegna, að það er feng- in viljayfirlýsing lýðræðisþjóðanna um það að þær munu standa saman til að varðveita frelsi sitt og menningu. Fjrrir íslenzku þjóðina er nú um það að velja, hvort hún vill telja sig til- heyra lýðræðisþjóðum eða ekki.“ þingsalykunartillaga LÖGÐ FRAM 26. marz gefa svo ráðherrarnir út sameiginlega yfirlýsingu um för sína. Hefst hún á þessum orðum: „Þar sem Alþingi mun bráðlega taka til meðferðar þátttöku íslands í hinu fyrirhugaða Norður-Atlantshafsbanda- lagi, þykir okkur hlýða að gefa al- menningi nú stutta skýrslu um för okk- ar til Washington og viðræður okkar við utanríkisráðherra Bandaríkjanna og aðstoðarmenn hans.“ Síðan er í yfir- lýsingunni skýrt frá viðræðum ráðherr- anna og frá viðurkenningu á sérstöðu íslands í málinu. Daginn eftir var síðan lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um þátttöku fslands í Norður-Atlatnshafs- samningi, af tilhlutan ríkisstjómarinnar. Tillagan sjálf var svohljóðandi: ÚTIFUNDUR við HiÖbæjarbarnaskól ann kl. 1 í dag Fulltrúaráð verklýðsfélaganna í Reykjavíjc og Verkamannafélaglð Dagsbrún skora á allan almennlng í bænum að taka sér frí tll að' mæta á útlfundlnum í Lækjargötu (við Mlð* bæjarbamaskólann) kl. 1 e.h. í dag. Fundurinn er boðaður af Fulltrúaráði verklýðsfélaganna til þess að Reykvíkíngum gefizt tækífæri til þess að krefjast þjóðar- atkvæðagreiðslu um inngongu Islands I hern- aðarbandalag Norður • Atlantshafsríkja enn einu sinni áður en Alþingi hefir tekið fullnaðar ákvörðun um málið. Fulltrúaráð verkalýðsfélaganna í Reykjavík Verkamannafélagið Dagsbrún Fregnmiði er kommúnistar létu dreifa að morgni 30. marz. Skutu þeir sér bak við verkalýðshreyfinguna og létu hana boða til fundarins. „Alþingi ályktar að fela ríkisstjórn- inni að gerast stofnaðili fyrir íslands hönd að Norður-Atlantshafssamningi þeim sem fulltrúar Bandaríkjanna, Belgíu, Bretlands, Frakklands, Hol- lands, Kanada Luxembúrg, og Noregs hafa orðið ásáttir um og prentaður er sem fylgiskjal með ályktun þessari." í greinargerð til'lögunnar eru síðan rak- in ýtarlega öll efnisatriði málsins og forsaga þess. FYRRI UMRÆÐAITM TILLÖGUNA Kl. 10. árdegis 29. marz 1949 hófst fyrri umræða um tillöguna. Bjarni Bene diktsson fylgdi henni úr hlaði, en aðrir sem þátt tóku í umræðunum voru Einar Olgeirsson, Gylfi Þ. Gíslason, Katrín Thoroddsen, Hannibal Valdimarsson, Sigfús Sigurhjartarson, Asmundur Sig- urðsson, Áki Jakobsson, Finnur Jóns- son og Jónas Jónsson. Ræður komm- únistaþingmannanna voru yfirleitt lang ar og fóru þeir hamfarir út í samning- inn. Stóð umræðan allan daginn, en þegar langt var liðið kvölds flutti Ein- ar Olgeirsson svohljóðandi tillögu að rökstuddri dagskrá: Um leið og Al- þingi felur ríkisstjórninni að snúa sér til stjórna Bandaríkjanna, Bretlands og Sovétríkjanna og óska yfirlýsinga þeirra um, að þessi ríki muni virða að fullu friðhelgi ÍSlands í stríði sem friði, svo fremi það ljái engu ríki herstöðv- ar í landinu, tekur það fyrir næsta mál á dagskrá.' Tillaga þessi var síðar felld að við- höfðu nafnakalli með 38 atkvæðum gegn 10. Margir þingmenn gerðu grein fyrir atkvæði sínu. Meðal þeiira var Jónas Jónsson sem sagði: „Þar sem það er orðið ljóst, sem flutn ingsmanni tillögunnar var víst ekki kunnugt um, að Rússland gerði samn- inga við fimm þjóðir í vestri, en tók þær al'lar herskildi, tel ég það bera vott um vöntun á sögulegum skilningi að samþykkja þessa dagskrá og segi því nei.“ Þegar umræðu var lokið var tillög- unni vísað til utanríkisnefndar, en Jón Pálmason forseti Sameinaðs-Alþingis bað menn að bíða í húsinu því ætlun- in væri að hefja 2. umræðu þá um nótt- ina ef störf nefndarinnar sæktust vel. Mótmæltu kommúnistar þessu harðlega og sagði t.d. Einar Olgeirsson að þetta væri ofþeldi sem minnti meira á Trampe greifa, en Jón Pálmason. Úr- því gat ekki orðið að síðari umræða færi fram um nóttina, en ákveðið var að hún hæfist kl. 10 daginn eftir. ÖLDURNAR ÞYNGJAST Kl. 10 voru flestir þingmenn mættir í þinghúsinu og forseti setti fund. Áð- ur en síðari umræða um tillöguna hófst kvaddi Lúðvík Jósefsson sér hljóðs ut- an dagskrár og mælti þá m.a.: „Þegar ég kom hingað (að Alþingis- húsinu) kl. 9 í morgun — ég er vanur að koma hingað um það leyti, — þá voru aðaldyrnar, móti allri venju, lok- aðar. Þar var ekki hægt að komast inn. Ég hvarf þá að því ráði að leita til bak- dyranna. Ég ætlaði að reyna að komast inn þeim megin, eins og ég hef stundum gert áður. Þar var tekið á móti mér af nokkrum lögregluþjónum, og ég var fangaður. Mér var meinað um inn- göngu nema ég gæti sýnt eitthvert aðgöngukort, og mér var sagt að án þess færi ég ekki inn í húsið.“ Kærði Lúðvík síðan þennan atburð fyrir forseta. Daginn áður hafði orðið samkomu- lag milli kommúnista og stjórnarflokk- anna, að gefin yrðu út aégöngukort að þingpöllum, þar sem búizt var við að ella mundi verða þar mikill troðning- ur og þrengsli. Var ákveðið að hver flokkur fengi þrjú aðgöngukort á hvern þingmann. Mistökin að Lúðvík var ekki hleypt inn í húsið, stöfuðu af því eingöngu, a ð lögreglumenn sem gættu dyranna, þekktu hann ekki í sjón, en starfsmaður þingsins kom til hjálpar og leiðrétti mistökin. Jón Pálmason forseti harmaði að þessi mistök hefðu átt sér stað, og sagði þing- mönnum, að sjálfsögðu væri heimilt að fara allra sinna ferða, sem fyrr. Er síðari umræða um tillöguna gat hafizt, skýrði forseti frá því, að hann hefði ákveðið að tíminn sem færi til umræðunnar yrðu þrjár klukkustundir, svo sem heimild væri til í þingsköpum. Las síðan forseti upp umrædda grein þingskapa. Við þessa ákvörðun umturn- úðust kommúnista þingmennirnir algjör- lega og gerðu hróp að forseta. Ekki mun allt bókað í þingtíðindi sem þar var kallað, en í þeim má samt lesa eftirfarandi: Sigfús Sigurhjartarson: Við krefjumst forsetaúrskurðar. Ég neita þessum að- gerðum, og krefst úrskurðar forseta. Einar Olgeirsson: Þetta er enginn fundur. Sigfús: Þetta er lögleysa og vitleysa. Einar: Ég mun greiða atkvæði á móti þessu. Sigfús: Þetta er harðstjórn og amer- ískt ofbeldi, ó'lög og vitleysa. Einar: Hafa menn þá rétt til að greiða atkvæði. Þegar hljóð hafði fengist lét forseti þingmenn greiða atkvæði um ákvcirðun sína. Var hún samþykkt með 29 atkvæð- um gegn 13. Kommúnistar óskuðu eítir nafnakalli og létu óspart ljós sitt skína með greinargerðum um atkvæði sitt. Kastaði fyrst tólfunum þegar Einar Ol- geirsson tók til máls. Flutti hann langa tölu, án þess að greiða atkvæði. Forseti barði í bjölluna og óskaði eftir atkvæð- inu, en Einar lét ekki segjast. Frammí- köll fóru að heyrast, og m.a. þeirra er kölluðu til þingmannsins, sem farinn var að ólmast, var forsætisráðherra.' Upp úr því urðu þessi orðaskipti: Forseti: Atkvæðið. Einar: Ég bið forseta að vera róleg- an og láta forsætisráðherra þegja, svo ég geti lokið minni greinargerð. Forseti: Þetta er alltof löng grein- argerð. Einar: Ég ræð minni greinargerð sjálf ur. Hér er Alþingi fslendinga, en ekki stofnun Bandaríkjaleppa. Forsætisráðherra: Þú ætlra »*kki eð gera það að sæmdarstofnun. Einar: Þegi þú, þú hefur akki orðið hér. Ég er álþingismaður fslendinga, kosinn af 7000 Reykvíkingum og tala hér í umboði þeirra, en þú ert upp- bótaþingmannsræfill sem sveikst þig inn á þing. (f ákafa sínum glevmdi þingmaðurinn hve margir þingmenn kommúnista voru einmitt uppbótarþing- menn) Frá þessum orðaskiptum greindi Þjóð- viljnin svo daginn eftir á sinn venju- lega „hlutlausa" hátt!: „Mótmæli Einars gegn ofbeldi stjórnarliðsins hitti áreiðanlega í mark, því Stefán Jóhann Stefánsson forsætisráðherra tók að roðna og þrútna í framan. Missti hann loks alla stjórn á sér, rak upp reiði- öskur og hellti sér yfir Einar með svo götustrákSlegum fúkyrðaaustri, að einsdæmi mun að íslenzkur forsætisráð- herra hafi hagað sér svo í þingsölum. Linnti hann ekki látum fyrr en forseti hafði marghringt bjöllu sinni til að minna forsætisráðherra á að gæta mannasiða og valda ekki þingspjöllum. En það voru fleiri en þingmenn kommúnista sem gerðu grein fyrir at- kvæði sínu, og skulu hér tilfærð um- mæli Finns Jónssonar: „Ég mótmæli þeirri svívirðu, sem hér er höfð í frammi af kommúnistum, og ég mótmæli einnig, að meiri hluti þings- ins geti ekki tekið sínar ákvarðanir, og segi því já.“ Að atkvæðagreiðslunni lokinni gat síðari umræða um tillöguna hafist. Framsögumaður meiri hluta utanríkis- nefndar var Ólafur Thors, Hermann Jónsson var framsögumaður 1. minni hluta og Einar Olgeirsson framsögu- maður 2. minni hluta. Aðrir sem þátt tóku í umræðunum voru Bjarni Bene- diktsson, Gylfi Þ. Gíslason, Katrín Thor- oddsen, Hannibal Valdimarsson, Sigfús Sigurhjartarson, Ásmundur Sigurðsson, Áki Jakobsson, Finnur Jónsson, Jón- as Jónsson, Lúðvík Jósefsson og Sig- urður Guðnason. Þegar langt var liðið á fundartím- ann tók Sigurður Guðnason til máls og las þá ályktun þá, sem síðar verður vikið að hvernig til var komin. Var hún svohljóðandi: „Almennur útifundur, haldinn í Reykjavík, miðvikudaginn 30. marz 1949, að tilhlutan fulltrúaráðs verkalýðsfé- laganna mótmælir harðlega þátttöku fs- lands í Atlantshafsbandalaginu og vill á úrslitastundu málsins, enn einu sinni undirstrika mótmæli og kröfur 70—80 félagssamtaka þjóðarinnar um, að þessu örlagaríka stórmáli verði ekki ráðið til lykta án þess, að leitað sé álits þjóðar- innar sjálfrar. Fundurinn skorar því al- varlega á Alþingi að taka ekki loka- ákvörðun um málið án þess að leitað sé álits þjóðarinnar, og krefst þess að af- greiðslu málsins sé skotið undir al- menna þjóðaratkvæðagreiðslu. Fundur- inn samþykkir að fela fundarboðend- um að færa Alþingi og þingflokkunum þessa kröfu og óskar skýrra svara for- manna þingflokkanna um afstöðu þeirra til kröfu fundarins. Ráðfærði forseti sig við formenn þingflokkanna, en mælti síðan: „Út af þeirri fyrirspurn sem fram er komin frá háttvirtum 8. þingmanni Reykjavíkur vil ég taka það fram, að ég hef sýnt öllum formönnum þing- flokka þeirra, er að ríkisstjórninni standa, þessa fyrirspurn og segja þeir, að þeir hafi þegar svarað og svarið sé neitandi." Var þá komið að atkvæðagreiðslunni. Nafnakall var viðhaft og tillagan sam- þykkt með 37 atkvæðum gegn 13, en 2 þingmenn sátu hjá við atkvæðagreiðsl- una, en það voru þeir Hermann Jóns- son og Skúli Guðmundsson. Kommúnistaþingmennirnir greiddu auðvitað allir atkvæði gegn tillögunni, en auk þeirra framsóknarþingmaðurinn Páll Zophaníasson og alþýðuflokksmað- urinn Gylfi Þ. Gíslason. Gerðu þeir grein fyrir atkvæði sínu á eftirfarandi hátt: Páll Zóphaníasson: Með því að búið er að fella tillögu á þingskjali 508 og þar með neita að lofa þjóðinni að segja álit sitt á samningi þessum, svo og að neita að gera við hann viðauka, er tryggi rétt okkar fslendinga, þá get ég ekki verið samþykkur þessari tillögu. Gylfi Þ. Gíslason, sagði m.a. í sinni greinargerð: „Þess vegna hefði ég viljað gera tvennt að skilyrði fyrir fylgi mínu við aðild íslendinga að Norður-Atlantshafs- bandalaginu. 1. Að það verði algerlega ótvírætt, að sú sérstaða íslands sé við- urkennd, að íslendingar geti aldrei sagt öðrum þjóðum stríð á hendur og aldrei háð styrjöld gegn nokkurri þjóð. 2. Að Keflavíkursamningurinn verði endur- skoðaður þannig að íslendingar taki rekstur flugvallarins í Keflavík alger- lega í eigin hendur, svo að þeir öðlist óskoruð yfirráð yfir öllu íslenzku landi, en ella geta íslendingar ekki talizt jafn réttháir öðrum samningsaðilum. Þar eð tillögur um þessi atriði hafa verið felldar segi ég, nei. Þegar atkvæðagreiðslu var lokið og búið að afgreiða tillöguna til ríkis- stjórnarinnar sem ályktun Alþingis bað forseti Jón Pálmason menn að bíða í húsinu, og fara þaðan ekki nema með samþykki lögreglustjóra, vegna þeirra ókyrðar og ærsla sem úti fyrir væru og nú verður vikið að. Framháld á morgun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.