Morgunblaðið - 03.04.1969, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 03.04.1969, Blaðsíða 1
Þessa mynd fékk Kristján Albertsson frá Halldóri Laxness og birti meff skrifum um Vefarann mikla. Myndina hafffi teikn- ari á Ítalíu g-ert. Gamlar greinar um stórskúld, hroka, drengjakoll o. fl. Krístjón Albertsson um Halldór Laxness Sama ritstjórnartilskipun nm páskablaff í ár eins og í fyrra. Blaffamaðurinn skal taka frétt effa grein úr gömlu Morg- unblaffi og bregffa á hana nú- tímabirtu meff endurbirtingu og viffræffum viff einhverja sem þar áttu hlut aff máli. Sömu vandræðin vekja ósjálfrátt hugrenningatengsl viff viðfangs efniff frá í fyrra. Upprifjun á 50 ára gömlum ritdómi um skáldsögu eftir Halldór Kiljan Laxness í síðasta páskablaffi, varff til þess aff ég las þá aff gamni mínu gamla ritdóma og ýmislegt, sem skrifað var á sín um tíma í blöð um rithöfund- inn og næstu bækur hans á eftir Barni náttúrunnar. Fyrir verffur hinn frægi rit- dómur meff þessum fleygu orð- um Kristjáns Albertssonar „Loksins — loksins ..." sem Ragnarar í Smára taka sér gjarnan í munn enn eftir 40 ár, þegar þeir vilja koma blaffa- mönnum í skilning um aff nú hafi þeir stórkostlega bók til sölu. Þaff gæti veriff gaman aff rifja þessi skrif og önnur frá sama tíma upp og heyra viff- horf Kristjáns til þeirra nú. Sú hin fræga upphrópun Krist jáns viff útkomu Vefarans frá Kasmír var á þessa leiff: LOKSINS — LOKSINS „Loksins — loksins tilkomu- mikið skáldverk, sem gnæfir eins og hamraborg upp úr flat- neskju íslenzkrar Ijóða- og sagnagerðar síðustu ára! ís- land hefur eignazt nýtt stór- skáld — það er blátt áfrarn skylda vor að viðurkenna það með fögnuði. Halldór K. Lax- ness hefur ritað þessa sögu á 24. aldursári sínu. Ég efast um að það komi fyrir einu sinni á aldarfjórðungi að skáld á þeim aldri semji jafn snjallt verk og þessi saga hans er. Á 64. gráðu norðlægrar breiddar hefur það aldrei fyrr gerzt. Vefarinn mikli frá Kasmír er ekkert meistaraverk — en tilþrifin fá- gæt og glæsileg. Stíllinn víða gallaður, en yfirleitt kjarn- meiri, blóðríkari, andríkari, meira lifandi, hressandi, vilt- ur og sannur og æskusterkur en hjá nokkrum öðrum íslenzkum skáldsagnahöfundi. Þróun tíma- borins íslenzks sögustíls tekur hálfrar aldar stökk með þess- ari bók Laxness." Það eru stór orð. Kristján hefur þótzt alveg viss í sinni sök. Af ritdómum þessara ára sér maður þó, að hann gat líka verið óvæginn, ef honum fannst skáldskaparhæfileikana vanta. f ritdómi í Mbl. árið 1919 lýsir hann skoðun sinni á hlutverki ritdómara og segir m.a.: „Af engu stendur bókmenntum vor- um meiri hætta í bili, en hinni góðmannlegu lítilþægni ís- lenzkra ritdómara, af geðleysi þeirra og hugleysi, af tepru- skap þeirra og tannleysi. Þeir varast eins og heitan eldinn að mæla styggðaryrði til nokk- urs rithöfundar, og allra sízt þeirra sem minnstir eru að þroska, menntun og gáfum. Pár unglingsins, sem er að byrja að draga til stafs, nýtur sér- stakrar verndar hinna óskrif- uðu friðunarlaga, — þá dekra ritdómarar við á allar lundir. Stundum verður þetta svo ó- geðslegt að það minnir á flað- ur, tilburði og kurteisisöfgar erlendra knæpuþjóna .. . Það er heimska, að það sé gild af- sökun bágbornu skáldriti, að höf. sé „enn á unga aldri“ eða „menntunarlaus alþýðumaður" o.s.frv. Það er engin afsökun til fyrir lélegu skáldriti. Blátt áfram engin.“ Vefarinn frá Kasmír varð Kristjáni Albertssyni þó ekki einhvers konar opinberun, sem skyndilega opnaði augu hans. Trú hans á þessum unga rit- höfundi á sér aðdraganda. Það sést t.d. á skemmtilegum smá- greinum í blöðum, sem hann skrifar nokkrum árum áður. Þessi birtist t.d. í Verði 8. nóv. 1924: ÁHYGGJUR SKÁLDSKAPARVINA „Halldór Kiljan Laxness, hinn ungi gáfaði rithöfundur, er um þessar mundir, sem oftlega áður, íslenzkum skáldskapar- vinum hið mesta áhyggjuefni. Hann hefir sýnt óvenjulega hæfileika á yngra aldri, en títt mun um norræna rithöfunda og Viff lögffum þessar greinar, sem skrifaffar voru fyrir rúm um 40 árum og nú eru rif jaff- ar upp hér á síffunni, fyrir Kristján Albertsson. Hvern- ig koma honum þessi skrif fyrir sjónir nú? Hinn ske- leggi höfundur fyrri tíma er greinilega hófsamari í orffum og umsögnum nú. Spurning- unni svarar hann: — Greinar mínar, sem Morgunblaffiff tekur upp, voru skrifaffar þegar ég var nýorffinn ritstjóri Varffar og við Halldór orffnir mjög góff- ir kunningjar. Þó virffast þær benda til þess aff mér og öðr- um hafi fundizt ofurlítill of- látungsbragur á sumu, sem kom frá hinum unga gáfaffa höfundi — en vel aff merkja, ekki honum sjálfum persónu- lega. Hann hefur alla tíff ver- ið manna hæverskastur og ljúfmannlegastur í allri fram- komu. En semsagt, mér og öðrum kann að hafa fundizt hann hafa gott af aff fá of- urlitla áminningu. Þannig eru greinar mínar tilkomnar og vonast ég til aff ekki dylj- ist aff þær eru skrifaffar í vinsamlegum anda. Þessar greinar eru báðar skrifaðar áffur en hin eiginlega frægff Halldórs hófst meff Vefaran- um mikla. — Þér komuff þar mikið við sögu. í Skáldatíma talar Halldór um, aff blaffið Vörff- ur hafi reynzt honum vel, þegar hann var að skrifa Vefarann mikla frá Kasmír suffur á Sikiley. Þér voruff þá ritstjóri blaðsins, var þaff ekki? Hvernig var þetta? — Viff Halldór Laxness borðuffum saman niffri á Hót- el ísland kvöldið áður en hann fór af landi burt. Ég lofaði aff reyna aff fá blaff- stjórn mina til að fallast á að ég sendi honum ritlaun fyrir greinar, og það tókst. Þaff er alveg rétt, hann minnist á þetta í Skáldatíma. — En segir aff Árni Jóns- son hafi veriff ritstjóri? — Þaff er auffvitaff mis- minni. Halldór ruglar þessu saman viff einhvern annan greiffa, sem Árni hefur gert honum eftir aff hann var sjálf ur orðinn ritstjóri Varffar. — Kristján, hvaff viljiff þér segja okkur um það, þegar Vefarinn var aff koma út? — Hann kom út í heftum, sem send voru áskrifendum og leiff allt aff mánuður á milli. Ég man, að þegar ég hafði lesið þriðja eða fjórða heftiff, var ég svo hrifinn og lá svo mikiff á að þakka skáldinu, sem þá bjó heima í Laxnesi hjá móffur sinni, aff ég skrifaffi bréf og fór meff það út í náttmyrkriff til að pósta þaff. Þessi bók stakk svo í stúf viff allt, sem áffur var til á íslenzkri tungu, aff ég var gersamlega undrandi. — Eruff þér enn jafn hrif- inn af henni? — Mér finnst enn í dag Vefarinn mikli vera stórkost- leg bók og ein af mestu bók um Laxness. — Hvar hittust þið ungu listamennirnir á þessum tíma? — í kaffihúsi Rosenbergs, þar sem nú er Reykjavíkur- apótek, á neðstu hæffinni meff breiðum gluggum út aff Pósthússtræti. Þar var ein þungamiffja bæjarlífsins. Þar Kristján Albertsson, myndin tekin 1922. sátu á eftirmiffdögum ungir rithöfundar, listamenn, blaða menn og fésýslumenn. Og ung ar konur, blómarósir af síma og skrifstofum bæjarins. Þaff var glymjandi músik í lofti, venjulega annað hvort ung- versk effa austurrísk. Þar sátu menn eins og Laxness, Tómas Guffmundsson, Páll ís- ólfsson, Davíð Stefánsson og Kjarval. Stundum gátum viff átt von á Nordal, Árna Páls- syni, Jóni Sigurffssyni frá Kaldaðarnesi, Nielsi Dungal, effa gestum frá útlandinu, eins og Kamban, Jóni Leifs effa Eggert Stefánssyni. Viff vorum allir á þeim aldri, þeg- ar menn leggja rækt viff vin- áttumál sín og sitja mikiff á kaffihúsum. Þar var mikiff rætt um stjórnmál, bókmennt ir — og ísland! Og rifjaffar upp ferffaminningar frá út- landinu, því flestir vorum við sigldir. — Þiff hafiff haft efni á aff sitja á kaffihúsum? — Ekki bar á öðru en aff viff hefffum allir nægilegt skot silfur. En ungir menn hafa alltaf einhvern veginn efni á því sem þá langar til. — Þegar maffur les þessar gömlu greinar í blöffunum, þá virffast höfundar hafa verið miklu djarfari en nú viff aff segja hvaff eina og ekkert verið að skafa af skoðunum sínum í blöðum. — Ég var nú alltaf tölu- vert fyrir aff isegja þaff sem í brjósti bjó, líka við vini mína, og treysta því aff þeir skildu að í vináttu var mælt. Enda varð ég t.d. ekki ann- ars var en aff vinátta okkar Laxness biði enga hnekki viff þessi skrif mín, sem nú eru prentuff upp. Hann hefur auðvitaff skiliff, aff þegar maff ur vill vera frægur, er eitt aðalatriðiff aff mikiff sé um mann talaff, og hreint ekki heppilegt aff þaff sé eintómt hól. — Þiff hafiff semsagt veriff góffir vinir. Hvenær sáust þiff næst? — Áriff 1927 kom Vefarinn út og um haustið fór Halldór til Ameríku. Ég fór til Frakklands 1928 og var þar í þrjú ár. Við skrifuðumst á allan tímann meðan hann er í Ameríku. Ég var í París voriff 1931, þegar ég fékk fyrra bindiff af Sölku Völku frá Laxness, sem þá var í Leipzig. Ég skrifaffi honum strax og dáðist aff þessum nýja þroska, sem hann hefffi tekiff í list sinni. Hann skrif- aði mér og boðaffi komu sína til Parísar, baff mig að sjá sér fyrir herbergi og taka á móti sér. Ég sé hann enn fyr- ir mér, þegar hann kemur á móti mér á járnbrautarstöð- inni Gare de l’Est í ljósgul- um frakka úr úlfaldahári og ritvél í hendinni. Morguninn eftir hélt Laxness áfram að skrifa bók, sem hann lauk svo viff í Grindavík um haust iff. Viff hittumst iðulega á kvöldin á Montpamasse með an hann var í París, en hann fór heim í júlímánuði. Sjálf- ur kom ég heim í desember- mánuffi. Þá var Halldór ný- kvæntur og átti heimili í Reykjavík. Skriiaði skóldinu þakkarbrél og póstaði um miðjn nótt

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.