Morgunblaðið - 15.04.1969, Page 2
2
MOEGÚNBLAÐIÐ, ÞRIÐ.JUDAGUR 15. APRfL 1999
Þrettán hross drápust
eftir ormaíyfsgjöf
ÞRETTÁN hross drápust á
hrossaræktarbúinu á Kirkju-
bæ á Rangárvöllum fyrir rúm
lega hálfum mánuði. Gerðist
það eftir að þeim hafði verið
gefið inn ormalyf.
Morgunblaðið sneri sér til
Karls Kortssonar dýralæknis
á Hellu, en hann sagði að
ormalyfið hefði verið gefið
án samráðs við dýralækni og
hefði ekki verið haft samband
við hann sem héraðsdýra-
lækni eftir að hrossin dráp-
ust. Tvö hræ voru send til
krufningar að Keldum og er
Mbl. hafði samband við Pál
A. Pálsson yfirdýralækni sagð
ist hann ekki geta gefið nein-
ar upplýsingar á þessu stigi
málsins.
Féll milli skips og
bryggju
LAUST eftir miðnætti aðfaranótt
sunnudags féll maður milli skips
og bryggju við hafskipabryggj-
una í Stykkishóimi. Náðist hann
upp og var hann fluttur í sjúkra
hús en síðdegis í gær var hann
fluttur flugleiðis til Reykjavíkur
og liggur nú í Landspítalanum,
þungt haldinn af lungnabólgu.
Maðurinn, sem er skipverji á
mb. Björgvin var að fara um
borð í bátinn er hann féll í sjó-
inn. Félagi hans sá er hann féll
Ársæll Sveins-
son útgerðnr-
moður lútinn
ARSÆLL SVEINSSON útgerð-
armaður í Vestmannaeyjum lézt
í gær, 75 ára að aldri. Hann var
einn af kunnustu athafnamönn-
uim í Vestmannaeyjum og heið-
ursborgari staðarins.
Ársæll hóf ungur sjómennsku,
var skipstjóri og stundaði útgerð
og stofnaði og stjórnaði Skipa-
smáðastöð Vestmannaeyja. Hann
tók mikinn þátt í félagsmálum
útgerðarmanna og sat í stjórn-
um margra félaga. Hann var m.
a. formaður Bátaábyrgðafélags
Vestmannaeyja um langt skeið
og var um árabil framkvæmda-
stjóri Björgunarfélags Vest-
mannaeyja.
Ársæll var eindreginn stuðn-
og reyndi strax að bjarga honum
en lágsjávað var og erfitt um
vik. Mun skipverjinn því hafa
verið búinn að vera nokkra
stund í sjónum er félagi hans
náði til hans og tókst að koma
honum upp á þverslá, sem er á
bryggjuhausnum og þaðan var
honum síðan bjargað. Var hann
þá meðvitundarlaus, en lögreglu
bíll, sem kominn var á staðinn
flutti hann hið skjótasta í sjúkra
hús.
ingsmaður Sjálfstæðisflokksins
og gegndi þar mörgum trúnaðar
störfum. Sat hann í bæjarstjórn
um nær þriggja áratuga skeið
og var m. a. forseti bæjarstjórn-
ra. Kona hans, Laufey Sigurðar-
dóttir lézt árið 1962.
Komandi kynslóð gæti átt það
til að vera miklu gagnlegri en við
— Nokkurra mínútna mál hjá Carl O/sen
aðalrœðismanni eftir 60 ára dvöl hér
í GÆR voru liðin sextíu ár síð
an Carl Olsen aðalræðismaður
kom hingað fyrst.
Er hann okkur af ýmsu
góðu kunnur eftir langan
starfsferil, og hverigi nærri
hættur i starfi eða styrkleika
þótt næsta afmæli fyllj ní-
unda tuginn.
Hann var fús til að segja
nokkur orð við blm. Morgun-
blaðsins, þótt annríkt ætti í
skrifstofu sinni við Pósthiús-
stræti og sagði hann m. a.:
— Eftir 90 ár í íslenzku
þjóðlífi finnst mér það ganga
auðvitað bölvanlega í dag.
Það hefur allt verið á niður-
leið síðan 1966, og það eru
víst ekki margir, sem ekki
hafa hugsað það.
— Það er alltaf hægt að
finna að hlutunum. Ég vona
að það sé líf eftir þetta líf.
Ef svo er ekki tii hvers vor-
um við hérna þá?
— Tja ég á víst gott, og á
marga vini. En ég ar mú ekki
svo fáfengilegur og hégóm-
legur, að ég álíti, að einhver
ætli að fara að hlaupa upp
marga stiga, bara til að sjá
framan í mig, gamlan mann-
inn.
— Ég ætla að stinga af eft-
ir nokkra daga og syngja í
skógum Danmerkur. Já, ætla
að eyða nokkrum íslenzkum
krónum og kaupa fáar dansk
ar brónur fyrir, og reyna að
vera í mánuð. En þegar ég
fæ ekki nema átta danskar
krónur fyrir hundruð íslenzk
ar, þá er nú lítið eftir, ekki
satt?
Slæmt er með gengisfelling
ar og verst með aumingja,
aldraðar manneskjuir, sem
hafa nurlað saman af natni
í mörg ár til að leggja fyrir.
Nokkra aura hafa þær klipið
af framfærslueyri sínum til
að eiga eitthvað upp á að
hlauipa og gleðja sig við eftiir
langt strit, og nú verður það
allt að engu.
Þetta er nú hlutanna eðli,
og menmirnir ekki fullkomn-
ari en þeir eru.
— Já, því ekki, þegar nóg
er af fiski kringum landið
að leyfa sjómönnunum út að
fiska. Láta þá og hina svo
berjast, þegar þeir eru búnir
að leggja upp öll þau verð-
mæti, sem fást? Ef þeir þá
hafa nokkurn áhuga fyrir
því, þegar þar að kemur. —
Mér finnst þefr taka ranga
stefnu bara til þess að eyði-
leggija landið. Ég veit það svo
vel, að þeir vilja fella stjórn-
ina, en það kemur allt niður
á hagsmunum landsins.
— Ég veit lítið um Biafra,
því að þangað hef ég aldrei
kiomið, en það er víða eyrnd
að finna, og gott og blessað
að vera gjafmildur og hjálpa
öðrum. Það ber að virða.
— Það er ekki auðvelt að
segja um það eftir sextíu ár,
hvort maður hefði ef til vill
getað fundið sér eitth'vað
annað starf. sem betur hefði
farið. Ég geri ráð fyrir, að
ég hafi ekki eytt tímanum til
einskis.
— 1916 var hér mikið starf
framundan og mikið að
byggia upp. í húsbyggingum
varð til dæmis. að blanda
hverja einustu fötu af steypu
og flytja hana með handafli
á áfangastað. Það var allt
erfiði þá. Þó tók ekki nema
sjö mánuði. að byggia hús. —
Þá var lítið um stevpujárn
hér, og ég þurftj i kringum
landið til að finna slíkt ef
það vantaði.
__ Ég hef ekki spor vit á
málum unga fólksins. Það er
engin reynsla komin á það.
En það getuT sko vel verið,
að það eigi eftir að koma og
gera miklu betri hluti, en við.
Það sannast á sínum tíma.
— Ég sé ekki eftir þeim
sextíu árum, sem ég hef ver-
ið héT. Þvrt á móti. Ég vona,
að ég hafi eitthvað lagt af
mörkurn til velferðar lands-
ins og framtíðar.
En enginn er dómbær á
eigin verknað .
— Fyriir 11 árum fór ég frá
Nathan og Olsen, og helgaði
mig stjómarformannsstörfum
hjá Almennium tryggingum
h.f. og hef haft skrifstofu hér
siðan. — Hér er gott fólk.
Carl Olsen á heimili sínu.
Ég hef alltaf verið léttur í
lund. Ég þoli ekki geðillsku,
og hef því alltaf reynt að
plokka fremur eitthvað af
léttari hlið lífsins.
Víst hefur það verið gam-
an. Einu s'inni ræktaði ég
upp landið í Laugardalnum,
30 dagsláttur, og fékk ég níu
hundruð hesta af heyi af land
inu. Ég veit ekki nema Thor
Jensen hafi haft áhrif á mig
í þessurn efnum.
Seinna átti ég tvær jarðir
í Ölfusi, hverja á fætur ann-
arri. Það voru Þórodidsstaðir,
og síðan Kirkjuferja. Það var
indæl jörð, sem ég sá eftir
að fara frá. En það var ekk-
ert annað um að gera á þeim
tírna. Ég ætlaði að rækta
hana alla upp, skipta henni
síðan í smiá skika, til þess að
gera ungu fólki kleift að
byrja búskap, en svona fór
það nú. Ég varð að selja, og
síðan ekki söguna meiir þar.
En ég hef aldrei séð eftir
því að'hafa sezt hérna að.
Sovétleppurinn í Ungverjalandi
segir Tékkóslóvök-
um fyrir verkum
í FRÉTT frá Moskvu í gær er
frá því skýrt að Janos Kadar,
flokkseliðtogi ungverskra
kommúnista hafi ráðizt harð-
lega á leiðtoga Tékkóslóvakíu
fyrir að sýna and-sósíalískum
öflum þar í landi allt of mikla
linkind, eins og komizt er að
orði.
Ummæli þessi eru höfð eft-
ir Kadair í Pravda, málgagni
sovézka kommúnistaflokksins.
Segir blaðið að Kadar hafi
krafizt þess að miðstjórn
tékkóslóvakíska flokksins og
ríkisstjórnin 1 Prag taki nú
ákveðna afstöðu til varnar
hagsmunum sósíalismans. Held
ur Kadar því fram að andstað-
an í Tékkóslóvakíu gegn Sov-
étríkjunum og mótmælaað-
gerðir þar í fyrra mánuði hafi
vakið andstyggð ungversku
þjóðarinnair. „Það er sannfær-
ing okkar að flokkurinn og
ríkisstjómin í Tékkóslóvakíu
verða að sýna festu og bar-
áttuvilja gegn öllum hægri-
sinnum, and-sósí ölsk um og
þjóðemissinmuðum öflum",
sagði Kadar í viðtali við
Pravda.
f sambandi við þessi um-
mæli er rétt að minnast þess
lítillega á hvern hátt Kadar
komst til valda í heimialandi
sínu, Ungverjalandi, en það
var eftir misheppnaða tilraun
þjóðariamar í október 1956 til
að hrinda af sér oki komm-
únista og kveikja frelsisglætu
í landinu. And-kommúnísk
bylting var gerð í Ungverja-
landi í síðustu viku október-
mánaðar 1956, og leiddi hún
til myndunar nýrrar ríkisstjóm
ar allra flokka undir forsæti
Imre Nagy. Féllst þessi nýja
ríkisstjórn á kröfur þjóðarinn
air og hét því að efna til
frjálsra kosninga í landiniu, að
samningar yrðu teknir upp við
Sovétríkin um brottflutning
sovézks herliðs, að Unigverja-
liand segði sig úr Varsjárbanda
laginu, og að stjómin tæki
upp hlutleysisstefnu.
Þegar þessi nýja ríkisstjórn
var mynduð, var jafnframt
tilkynnt að Janos Kadar 'hefði
tekið við ebmætti aðalritara
ungverska verkamanriiaflokks-
inis, og var Kadar talinn frjális
lyndur kommúnisti. Kadar
hafði um áratug áður veirð
skipaður innanríkisráðherra,
og gegndi því embætti þar til
árið 1950 þegar hanh var hand
tekinn og sakaður um land-
ráð og „Tító-isma“. Var mál
hans aldrei tekið fyrir, en hon
um haldið í fangelsi þar til
eftir lát Stalíns.
Stjóm Nagys varð sikam,m-
líf, því sovézkir skriðdrekar
réðust inn í Búdapest og sov-
ézkum hermön/num tókst að
drekkja frelsisþrá un.gversku
þjóðarinnar í blóði 4. nóvem-
ber þrátt fyrir hetjulega bar-
áttu hennar.
Imre Nagy og samstarfs-
menn hans flestir voru hand-
teknir. Sagði Moskvuútvarpið
svo frá að stjórn Nagys hafi
fallið vegna þess að margir
„saniniir föðurlandsvinir" inin-
an hennar hefðu sagt af sér.
Meðal þeirra, sem sneru baki
við Nagy þegar sovézki her-
in-n sótti inn í höfuðborgina,
var Janois Kadar, og skýrði
MoSkvuútvarpið frá því þenn-
an sama dag, 4. nóvember 1956,
að bamn hefði myndað nýja
ríkisstjóm í landinu. Eftir að
frelsisbyltingin hafði verið bar
in niður með sovézkum skrið-
drekum, hófust gífurlegar of-
isóknir í Ungverjialandi, og
gerðist Kadar þá leppur inn-
rásairiliðsins sovézka. Imre
Nagy og fylgismieinn hans
hurfu af sjónarsviðiinu, og
fréttist ekki af Jíeim fyrr en
nærri tveimur árum siíðar, þeg
ar tillkynnt var í Búdapæst áo
Nagy hefði verið dæmdur til
dauða fyrir aðild sína að upp-
reiisninni í Ungverjaliandi, og
að hann hefði verið tekinn af
lífi.
Janos Kadar gekk í lið með
fjandmörunum ungversku þjóð
arinnar á neyðartímum og
sveik vini sína og samstarfs-
menn. Hann hefur ekki tran-
að sér mikið fram á alþjóða-
vettvangi, en skiljanleg er að
honum mislíki frelsisbarátta
í Tékkóslóvakíu, enda gekk
hann í lið með Sovétríkjun-
um og sendi ungverskar her-
sveitir til þátttötou í innrás-
inni í Tékkóslóvalkíu í ágúat
í fýrra. Hefur hann verið læri
feðrum sínum þarfur þjónn.