Morgunblaðið - 15.04.1969, Blaðsíða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 15. APRfL 196®
Ingibjörg Eggertsdótti
F. 14. maí 1912. D. 11. marz 1969.
MIÐVIKUDAGINN 19. marz sl.
var vor í lofti í Siglufirði, sól í
heiði, blæjalogn; jörð klædd
hvitum möttli frá fjallatoppi að
fjöruborði. Vor heilsaði vetri í
hreinviðri og fegurð. Þennan
fagra dag var frú Ingibjörg
Eggertsdóttir borin til grafar í
heimabæ sinum í skjóli fjall-
anna, sem um aldaraðir hafa
staðið vörð um byggðina, er hún
unni. Þessi dagur spegla'ði lif og
skapgerð konunnar, sem kvödd
var, og fylgt var til hinztu
hvílu af miklum fjölda samborg-
ara hennar, sem votta vildu
henni þökk og virðingu.
Frú Ingibjörg Eggertsdóttir
var fædd 14. maí 1912. For-
Faðir okkar tengdafaðir og afi
Jakob Björnsson
fyrrv. lögregluvarðstjóri,
ándaðist að heimili sínu
Barónsstíg 51, 13. þ.m.
Böm, tengdabörn og
baraabörn.
Systir mín
Stefanía Björnsdóttir
Lindargötu 11, Sauðárkróki,
andaðist á Héraðssjúkrahús-
inu Sauðárkróki laugardags-
kvöldið 12. apríl.
Þorsteinn Björnsson.
Ingibjörg Sigurðardóttir
fyrrv. barnakennari
andaðist 12. þ.m.
Ragnbeiður Sigurðsson
og bræðrabörn.
Móðir okkar
María Guðmundsdóttir
frá Skálanesi, Grænaskjóli 23,
andáðist sunnudaginn 13. þ.m.
Börn og tengdabörn.
Eiginmaður minn og faðir
okkar
Samúel Þórir Ilaraldsson,
andaðist í Landspítalanum á
páskadag 6. apríl sl. Útförin
hefur farið fram. Þökkum
veitta hjálp og samúð. Sér-
staklega þökkum við þeim, er
sýndu honum tryggð og vin-
áttu, gegnum löng og erfið
sjúkdómsár. Guð blessi ykkur.
Kristín Sigríður Guðjónsdóttir
og börn.
Konan mín
Guðrún Andrésdóttir,
sem andaðist 10. apríl, verður
jarðsungin frá Gaulverjabæj-
arkirkju fimmtudaginn 17.
apríl kl. 3.
• Hannes Jónsson
frá Meðalholti.
Jarðarför fósturmóður okkar
Valgerðar
Ingimundardóttur
Háaleitisbraut 17,
er andaðist 6. april fer fram
frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 16. apríj kl. 13.30
Inga Jóhannesdóttir,
Ingimundur Bjarnason.
Móðir mín, fósturmóðir,
tengdamóðir og amma
Guðrún Heiðberg
Kvisthaga 12,
verður jarðsungin frá Föss-
vogskirkju þriðjudáginn 15.
apríl kl. 13.30.
Ásdís Arnadóttir,
Bjarney Hinriksdóttir,
Valgeir Hannesson,
og barnabörn.
Móðir okkar og stjúpmóðir,
Ásdís M. Þorgrímsdóttir,
Ásvallagötu 28,
sem andaðist 9. apríl 1969,
verður jarðsungin fimmtu-
daginn 17. april. Athöfnin fer
fram í Fossvogskapellu kl. 3
e.h. Jarðrett verður í gamla
kirkjugarðinum.
Þorgrímur V. Sígurðsson,
Anna Sigurðardóttir,
Gnðrún Sigurðardóttir,
Margrét Sigurðardóttir,
Aðaiheiður Sigurðardótttir,
Ásberg Sigurðsson,
Áslang Sigurðardóttir,
Valborg Sigurðardóttir og
Kristín L. Sigurðardóttir.
ár hennar við hússtjórnar- og
hjúkrunarnám.
18 ára að aldri hóf frú Ingi-
björg nám við húsmæðraskóla
Isafjarðar. Árið eftir hóf hún síð
an hjúkrunarnám á Sjúkrahúsi
Siglufjarar, sem hugur hennar
stóð til, og sfðan þriggja ára
framhaldsnám í Kaupmanna-
höfn. Fór þar mjög að líkum, að
frú Ingibjörg veldi sér slíkan
náms- og starfsvettvang. Heim-
komin starfaði hún um 5 ára bil
sem skólahjúkrunarkona í Siglu
firði, en alla æfi vann hún
dyggilega að hjúkrunar- og líkn
armálum í sinni heimabyggð.
Skömmu heimkomin frá námi
í Kaupmannahöfn giftist frú
Ingibjörg eftirlifandi eiginmanni
sínum, Sigurði Gunnlaugssyni,
nú bæjarritara í Siglufirði. Var
sambúð þeirra alla tíð með þeim
ágætum, að fádæmi er enda sam
hent og samhuga. Þeim hjónum
varð tveggja sona auðíð: Gunn-
laugs, skólastjóra Gagnfræða-
skólans í Garðahreppi, sem
kvæntur er Gunnlaugu Jakobs-
dóttur, og Jóns, byggingarmeist-
ara, sem er ókvæntur.
Frú Ingibjörg Eggertsdóttir
var listræn og félagslynd kona,
sem tók virkan þátt í margs kon-
ar félagsstarfi í Siglufirði.
Hún var vinmörg og vej látin
og er nú af mörgum treguð, sem
harma fráfall hennar á góðum
aldri. Sárastur er þó söknuður
eiginmanns og sona, sem svo
mikils hafa misst. En minning-
in um góða konu og góða móð-
ur verður ekki frá þeim tekin,
hún. mun lifa björt og hrein í
hugum þeirra, björt og hrein
eins og dagurinn, sem bjó henni
hinztu hvílu í hennar heima-
byggð, björt og hrein, eins og svo
margir dagarnir, sem þau áttu
saman í skjóli hinna siglfizku
fjalla.
Blessuð sé minning frú Ingi-
bjargar Eggertsdóttur.
Stefán Friðbjarnarson.
Ingunn Sigríður Sig-
urðardóttir - Minning
eldrar hennar voru Eggert Ein-
arsson, kaupmaður á Akureyri,
og kona hans frú Guðlaug Sig-
fúsdóttir. Fárra vikna fór hún til
fósturforeldra sinna Jóns Gísla-
sonar, þá bónda að Karlsá við
Dalvík, og konu hans Snjólaug-
ar Þorkelsdóttur. 10 ára að aldri
fluttist hún til Siglufjarðar
ásamt fósturforeldrum sínum og
þar dvaldist hún lengst af ævina
alla, ef undan eru skilin náms-
Mitt hjarta er fullt af harmi,
hljóð ég sit í kvöld.
Móðurhjartað milda,
mæðir sorgin köld.
Ég sé þig! Sárt ég trega
þinn svefn og gröfin köld,
þann vágest vildum sefa,
þau valda harmi hans völd.
Ég man mitt blíða barnið,
brosið þrungið tryggð.
Þann unað, ástúð fagra,
þú oft mér léttir hryggð.
Þú varst minn vænsti geisli,
þú varst mín von og dyggð.
Ég yfirgefin hugsa
um alla þína tryggð.
Ó Guð, þú gefur, tekur,
gefðu miskunn, ró.
Þú léttir þjáðum þrautir,
þín gæði eru nóg.
Þú lætur Ijósið skæra
leiða hennar sál,
og vínáhópinn kæra
vera henni hjá.
Og börnum' hennar blíðum
ég bið þú veitir skjól,
þau verndi friðarengill
og greiði þeirra slóð.
Og manni hennar mæta,
mæti gæfa um ár.
Og góða föðurhöndin
græði öll vor sár.
J. K.
„Rósin dáin, brostin bráin
brugðið yndi sumardrauma
Hljóð í bláinn horfir þráin,
heim frá mold tfl Ijóssins
strauma"
„Það syrtir að, er sumir
kveðja“, og aldrei fremur en
þegar ung móðir verður að
Okkar innilegustu þakkir fyr-
ir au'ðsýnda samúð við andlát
og jarðarför móður okkar
Guðrúnar Ámadóttur
Ásláksstöðum.
Hlaðgerður Snæbjörnsdóttir
og systkin.
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför föður okkar,
tengdaföður og afa
Helga Finnbogasonar
Tangagötu 24, Isafirði.
Sérstaklega viljum við þakka
lækni, hjúkrunarkonum og
öðru starfsfólki Sjúkrahúss
ísafjarðar fýrir frábæra hjúkr
un.
Börn, tengdabörn og
barnaböm.
kveðja börn sín ung, og vonir
elskenda, sem virtust eiga fagra
framtíð, sýnast allar að engu
verða Því verður mörgum í huga
líkt og ljóðskáldið lýsir a lík-
indamáli, er hcrrft er á föln-
andi brá, sem áður brosti svo
bjart Og þannig varð mörgum
ínnanbrjósts við hinztu kveðju
Ingunnar Sigríðar Sigurðardótt-
ir, frá Ánanaustum, ungrar og
hugþekkrar húsfreyju, sem varð
að kveðja í blóma lífsins, eftir
erfiðan sjúkdóm, sem æska og
þrek varð að lúta
Ekki varð þetta léttara, þegar
á það er litið, að nú yirtist
hamingjan brosa við henni á ný
með ágætum eiginmanni á kyrr-
'látu heimili þeirra En þetta eiga
aðeins að verða örfá minningar-
orð um þessa indælu konu, en
ekki æfisaga hennar Hér skla
því aðeins örfárra atriða getið
Ingunn var fædd að Ánanaust-
um í Reykjavík 28 maí 1937 og
lézt á Landakotsspítala 19 febr-
úar 1969
Hún var dóttir hjónanna Sig-
ríðar Friðriksdóttur og Sigurðar
Ingvars Hannessonar, sem marg
ir þekkja að góðu Og hún ólst
upp á sínu ágæta foreldraheim-
ili og þroskaðist að djúpri rétt
lætiskennd, aterkri ábyrgðartil-
finningu og einlægri guðstrúEn
þetta állt varð henni heilla-
drjúgt vegarnesti í lífsbaráttu,
sem oft var henni erfiðari en
orð megi greina Millí hennar,
foreldranna og bræðranna, var
jafnan mjög innilegt samband
Ingunn vann um tíma við hæli
fyrir umk’omulaus börn, en ein-
mitt við það starf nutu eðlis-
kostir hennar sín vel Fyrst var
hún við barnaheimilið að Elliða-
vatni, en fór svo til Danmerkur
til að kynna sér rekstur slíkra
heimila Eftir heimkomuna réð-
ist hún að barnaheimilinu Sól-
heimum í Grímsnesi, þar sem
hún vann um skeið
Ung giftist Ingunn Eiríki Ei-
ríkssyni en þau slitu samvistum
Tóku þá við erfið ár, en þá
sýndi hún einmitt óvenju mik-
inn styrk Var hún staðráðin í
því að reynast börnum sínum
góð móðir
Fyrir tæpu ári giftist Ingunn
Guðna Jóhanni Þórarinssyni frá
Másseli í Jökulsárhlíð. Guðni
orðar minningu Ingunnar á þessa
leið:
„Ingunn bar með sér birtu,
frið og gleði Hún færði mér
þá gæfu, sem gerði mig að betri
manni og gaf lífi mínu takmark
og fyllingu Hún var traust kona
trygg og virðuleg, glæinleg í
sjón og göfugleg í fasi og fram-
komu, viljasterk og heiðarleg,
sjálfstæð í lund og vildi ekki að
neinn ætti hjá sér ógoldinn
greiða eða þakkir án þess að
veita í staðinn af rausn Hún
hafði sérstakt lag á að gera
heimili sitt hlýtt og vistlegt.
Öllum þótti þar gott að koma
og gaman að dvelja og njóta
gestrisni hennar, sem hún átti
æskuglaðan og skæran hlátur,
sem var svo þýður, að allir hlutu
að taka þátt í gleði hennar
Hún var góðum gáfum gædd,
skapstór að eðlisfari, en hafði
lært að stjórna tilfinningum sín
um og fara vel með skapsmuni
sína
Ingunn var börnum sínum ást-
rík og góð Gaf hún þeim gott
fordæmi með reglusemi og festu
Áfengi og hættur nútímakynslóð
ar vildi hún ekki i nánd við þau
eða á sínu heimili
Hún kenndi börnum sínum bæn
ir og ljóð og fræddi þau um
Frelsarann * og gætti þess, að
þau sofnuðu með bænarorð á
vörum“
Þetta voru orð manns hennax,
sem nú hefur orðið fyrir svo
heitum harmi að missa hana eft-
ir stutta en ástríka sambúð
Ingunn átti þrjú börn, Krist-
ínu 12 ára, Sigríði 7 ára og ó-
skírðan son á fyrsta ári Þau
hafa mikið misst, en einnig öðl-
ast mikið, að eignast Guðna sem
föður og foreldra hans í Másseli
sem afa og ömmu:
Einn af okkar æðstu hugsuð-
um sagði í sárri raun:
„Fótsár af æfinnar eyðimörk
einn unaðsreit ég fann
til þess að deyja‘
Gæti það ekki hafa verið
hamingja hinnar ungu dóttur
borgarinnar að finna þennan
unaðsreit hljóðlátrar hamingju í
íslenzkum fjalladal og geta skil-
ið þar eftir börnin sín í hönd-
um traustra, góðra vina, þegar
hún sjálf var kölluð brott
Ég, sem þessar línur rita, sá
hana fyrst á beimili foreldra
hennar Bros hennar opið og ein-
lægt, persónan öll svo fresk og
eðlileg, verður mér ógleyman-
leg.
Maður, sem kom til hennar
deyjandi, minntist einmitt á þetta
bjarta bros, sem umlukti ásjónu
hennar
Guð blessi anda hennar að
eilífu og veiti ástvinum hennar
fjær og nær frið og huggun
góðleíkans
SE
Innilega bökkum við öllum þeim sem auðsýndu okkur vináttu
og samúð við andlát og útför
GUNNLAUGS H. SVEINSSONAR
kennara.
tngileif Guðmundsdóttir og böm,
Sveinn Gunnlaugsson, fyrrv. skólastjórí
og aðrir aðstandendur.